Morgunblaðið - 12.05.1988, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1988
Róttækar ráðstafanir í Póllandi:
Óopinberar vinnu-
stöðvanir bannaðar
Varsjá, Reuter.
PÓLSKA stjómin fékk heimild
frá þinginu i gær til að hrinda í
framkvæmd umfangsmiklum
efnahagsaðgerðum og banna þær
vinnustöðvanir í landinu sem efnt
er til í trássi við yfirvöld. Þingið
samþykkti tillögur stjómarinnar
samhljóða. I þeim felst að verðlag
og laun verða fryst til ársloka og
heimilt er að segja upp verka-
mönnum og forstjórum ríkisfyrir-
tækja „til að ryðja umbótum
braut“.
Framvegis er verkamönnum því
bannað að leggja niður vinnu án
samþykkis hinna opinberu verka-
lýðsfélaga en þau hafa aldrei efnt
til verkfalla. Stjómin féll hins vegar
frá því að banna öll mótmæli vegna
nýju ráðstafananna eftir að hið opin-
V esturbakkinn:
Búðum lok-
að í refs-
ingarskyni
Rimal, Gaza-svteðinu, Reuter.
ÍSRAELSKI herinn neyddi kaup-
menn á vesturbakka Jórdanár til
að loka búðum sinum í gærmorg-
un. Á mánudag var efnt til alls-
herjarverkfalls á hemumdu svæð-
unum tíl að minnast þess að hálft
ár er Iiðið síðan uppreisn Pa-
lestínumanna hófst.
Verkfallið hefur lamað atvinnulíf
að stórum hluta á vesturbakkanum.
ísraelsher vill að búðir séu lokaðar
fyrir hádegi á hemumdu svæðunum
og er þetta talinn vera mótleikur
gegn verkföllunum.
Israelski herinn hefur nú einnig
hafið aðgerðir til að knýja alla Pal-
estínumenn á Gaza-svseðinu til að
skipta um persónuskilríki. Tilgangur
þessara ráðstafana er að sögn tals-
manna hersins sá að gera Palestinu-
mennháðari ísraelum en andspymu-
hreyfíng Palestínumanna hefur hvatt
til að þær verði hunsaðar.
bera verkalýðssamband landsins,
OPZZ, tilkynnti að það gæti ekki
stutt svohljóðandi ákvæði.
Frumvarpið kom fyrir þingið
skömmu eftir að Lech Walesa, leið-
Reuter
Sprenging
áKypur
Öflug sprengja sprakk í bif-
reið við sendiráð ísraels i
Nikósíu, höfuðborg Kýpur í
gær. Þrír létu lífið i spreng-
ingunni og nitján særðust.
togi Samstöðu, fylgdi síðustu verk-
fallsmönnunum í skipasmíðastöð í
Gdansk út úr stöðinni. Verkfallinu
var aflýst í fyrradag og bar það
engan árangur. Walesa sagði frétta-
mönnum í Gdansk að verkfallið sem
stóð í tvær vikur í tveimur stórum
skipasmíðastöðvum í borginni hefði
verið ótímabært. „Ég sagði við fé-
laga mína að verkfallið hefði verið
of snemma á ferðinni. Við þurfum
betri skipulagningu innan Samstöðu
til þess að slíkt beri árangur. En
verkfallið var lærdómsríkt og ljóst
er að Samstöðu er þörf til að tryggja
breytingar í landinu,“ sagði Walesa.
Reuter
Indland:
Herlögreglumaður á verði við Gullna hofið í Amritsar. Siðustu þrjá
daga hafa átta látið lifið í átökum milli síkka, sein hafast við í hof-
inu, og indverskrar herlögreglu.
Bardagar við Gullna hofið
A ** - - - - ■ IaIt
Amrítsar og Nýju Delí, Reuter.
SÍKKAR, sem stofna vijja sjálf-
stætt ríki í Punjab, börðust í gær
þriðja daginn f röð við lögreglu,
sem umkringt hefur Gullna hofið
í Amrítsar. Að sögn sjónarvotta
var mikil skothríð við hofið, en
inni í þvi halda aðskilnaðarsinnar
síkka til. Einn maður féll og þrír
;særðust í átökunum í gær. Meira
en 900 manns hafa fallið i Punjab
á fyrstu fjórum mánuðum þessa
árs.
Umhverfís Gullna hofíð eru nú
einungis lögreglusveitir og hefur
umsátur þeirra staðið síðan á mánu-
dag, en þá var lögregluforingi skot-
inn af aðskilnaðarsinna. Eftir nokkra
skothríð lágu fimm sfkkar í valnum.
Lögregla leyfði um 800 manns að
fara út úr hofínu og er tálið að ein-
ungis séu vopnaðir menn eftir í því.
Þeirra á meðal eru síkkar sem eftir-
lýstir eru fyrir ofbeldisverk.
Árið 1984 gerði indverski herinn
árás á hofíð og felldi 1.000 manns.
Arásin leiddi meðal annars til þess
að aðskilnaðarsinnum óx mjög fiskur
um hiygg og morðið á Indiru Gand-
hi, þáverandi forsætisráðherra og
móður Rajivs Gandhis núverandi for-
sætisráðherra, sigldi í kjölfarið.
Punjab er ríkasta ríki Indlands og
um 60% íbúa þess eru síkkar. Af-
gangurinn er að mestu hindúar. Ta-
lið er að um 900 manns hafí fallið
það sem af er ársins vegna sjálfstæð-
isbaráttu síkka og færast morðin
sífellt í aukana. Árið 1986 féllu 520
manns, en í fyrra 1.280.
Utanríkisráðherrar risaveldanna funda í Genf:
Rætt um framkvæmd eftir-
lits og fækkun kjarnavopna
Washington, Genf, Reuter.
EMBÆTTISMENN í höfuðstöðv-
um, Atlantshafsbandalagsins' í
Briissel og síárfsbræður þelrra
í Washington kváðust f gær vera
bjartsýnir á að utanríkisráð-
herrum risaveldanna tækist að
jafna ágreining sem upp er kom-
inn um eftirlit með eyðingu
kjarnorkueldflauga i Evrópu. í
gær hófst fundur utanríkisráð-
MURARAMEISTARAR
Húsbyggjendur
souuruix GÓLFÍLÖGN
• Við sérhaófum okkur í gólfílögnum
(sem undirverktakar)
• Við leggjum í gólf með afkastamiklum tækjum
(u.þ.b. 2000 fm á dag)
• Við bjóðum verð sem er samkeppnishæft
(þ.e.a.s. ódýrari en hefðbundin gólfílögn)
• Við notum vestur-þýsk gæðaefni
( jLunw ii e flotsteypa)
#Við bjóðum eingöngu múrarameisturum og stærri
verktökum þjónustu okkar (sem undirverktakar)
GÓLFLAGNIR hf.,*
P.O. BOX1523
121 REYKJAVÍK
(‘Einkaumboðsaðili)
herranna i Genf í Sviss og sagði
George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, að fullur
vilji værí hjá báðum aðilum til
að gera út um ágreining þennan.
Deilan varðar túlkun eftirlits-
ákvæða sáttmála rísaveldanna
um algera útrýmingu meðal- og
skammdrægra kjamorkueld-
flauga á landi, sem undirrítaður
var f Washington í desember á
síðasta árí.
„Við erum komnir hingað til að
leysa þetta mál og við ætlum okkur
að gera það,“ sagði Shultz er hann
ræddi við blaðamenn í Genf í gær
áðuríen fyrsti fundur utanríkisráð-
herranna hófst. Eduard Shev-
ardnadze, utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, bað menn að sýna þolin-
mæði því skýrt yrði frá niðurstöðun-
um að fundinum loknum. -Shev-
ardnadze sagði við komu sína til
Genfar á þriðrjudag að honum væri
ekki að fullu kunnugt um tilefni
ágreiningsins en sagði „einhverjar
athugasemdir" hafa komið fram í
öldungadeildinni.
Deilt tun tæknileg atríði
Carrington lávarður, fram-
kvæmdastjóri Atiansthafsbanda-
lagsins, kvaðst ekki trúa því að
Sovétmenn hygðust ganga á bak
gerðum samningum. „Hér er um
gífurlega flókinn samning að
ræða,“ sagði lávarðurinn og sagðist
telja að ágreiningurinn hefði bloss-
að upp fyrir misskilning. Sam
Nunn, formaður hermálanefndar
öldungadeildar Bandaríkjaþings,
tók í sama streng en sagði engan
vafa leika á því að túlkun Banda-
ríkjamanna á eftirlitsákvæðunum
væri hin rétta.
Báðir sögðust telja að utanríkis-
ráðherramir myndu leysa þetta mál
á fundinum í Genf. Lögum sam-
kvæmt þarf öldungadeild Banda-
ríkjaþings að staðfesta sáttmálann
áður en hann öðlast formlegt gildi
en umræðum um hann, sem heQa
átti í gær, hefur verið frestað vegna
deilu þessarar. Ágreiningurinn
snýst um hvemig haga beri eftirliti
með því að ákvæði samningsins séu
í virt í Sovétrílq'unum og hvort
bandarískum embættismönnum sé
heimilt að skoða smærri mannvirki
og farartæki sem kunna að hýsa
einstaka eldflaugahluta. Reagan
Bandaríkjaforseti leggur á það ríka
áherslu að samningurinn hafí hlotið
formlega staðfestingu áður en hann
heldur til fundar við Gorbatsjov
Sovétleiðtoga í Moskvu í lok þessa
mánaðar.
Leiðtogafundur í Moskvu
Fundur utanríkisráðherranna í
Genf er liður í undirbúningi fyrir
Moskvu-fundinn og er alment búist
við að þeir Shultz og Shevardnadze
muni einkum ræða ágreiningsefni
risaveldanna varðandi fækkun
langdrægra kjamorkuvopna. Á
fundi þeirra Reagans og Gorb-
atsjovs í Washington í desember
náðist um það samkomulag að fela
samningamönnum risaveldanna að
gera drög að slíkum sáttmála. Vom
jafnvel bundnar vonir við að samn-
ingur í þá veru yrði undirritaður á
leiðtogafundinum í Moskvu en ef
marká má ummæli bæði banda-
rískra og sovéskra embættismanna
má ólíklegt teljást að sú verði raun-
in.
Bandarískir embættismenn hafa
undanfama daga látið í ljós vonir
um að unnt verða að staðfestá
Washington-samninginn fyrir leið-
togafundinn í Moskvu. Charles Red-
man, talsmaður bandaríska ut-
anríkisráðuneytisins, sagði í gær
að í Bandaríkjunum væm menn enn
þessarar skoðunar.
r