Morgunblaðið - 12.05.1988, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1988
Jasstónleikar í Noiræna húsinu
Færeysk-dansk-sænska jass-
bandið Yggdrasil heldur tón-
leika í Norræna húsinu laugar-
daginn 14. maí kl. 16.00.
Hljómsveitina skipa Kristian
Blak frá Færeyjum, John Tchicai
frá Danmörku, Anders Hagberg,
Lelle Kullgren, Anders Jormin og
Karin Korpelainen frá Svíþjóð. A
efnisskránni eru verk eftir Kristian
Blak, aðallega svítur.
Yggdrasil hefur haldið tónleika
og leikið inn á hljómplötur frá
1981. Hljómsveitin er að hefja
tónleikaferð um Norðurlönd og er
ísland fyrsti viðkomustaðurinn.
Auk tónleikanna í Norræna
húsinu verða tónleikar í Heita
pottinum á föstudagskvöld og á
Akureyri á sunnudag.
(Fréttatilkynning)
LONDON
INNLENT
ry s • i
7x1 viku
flugleidirJIw
-fyrirþig-
Kveldúlfskórinn. Morgunblaðið/Theodór K. Þórðarson
Kveldúlfskórinn með
tónleika í Skasfafirði
Borgarnesi. **—?
Kveldúlfskónnn í Borgarnesi
hyggst leggja land undir fót og
halda söngskemmtun í Miðgarði
í Skagafirði fimmtudaginn 12.
maí nk. Verður þessi skemmtun
lokapunkturinn á vetrarstarfi
kórsins.
Kveldúlfskórinn var stofnaður
haustið 1983 að tilstuðlan Verka-
lýðsfélags Borgarness og hét þá
Samkór Verkalýðsfélags Borgar-
ness. Fyrsti stjómandi kórsins var
Björn Leifsson, stjómaði hann kórn-
um í eitt ár en þá tók Ingibjörg
Þorsteinsdóttir við stjórninni og
hefur hún stjórnað kórnum síðan.
Kórinn hefur haldið margar söng-
skemmtanir á liðnum ámm í Borg-
arnesi og nágrenni. Kórfélagar em
alls um 40 talsins. Að sögn stjórn-
anda kórsins verða á dagskránni í
Miðgarði bæði íslensk og erlend
lög, einsöngur og tvísöngur. Undir-
leikari verður Guðný Erla Guð-
mundsdóttir.
- TKÞ
Kjaramálaráð-
stefna um launa-
stefnu Sjálf-
stæðisflokksins
„Við teljum, eins og reyndar
ríkisvaldið, að þetta hljóti að
vera það minnsta sem hægt er
að ætla fólki að lifa af. Við erum
ekkert einir um þessa skoðun.
Mjög mörg verkalýðsfélög og
samtök eru búin að lýsa því
yfir að þau telji þetta eðlileg
lágmarkslaun,“ sagði Sigurður
Oskarsson, formaður Verka-
lýðsmálaráðs Sjálfstæðisflokks-
ins, aðspurður um ályktun ráðs-
ins í siðustu viku um að lág-
markslaun eigi að vera 42 þús-
und krónur eða jöfn skattleysis-
mörkum.
„Þetta hefur ekki náðst fram í
kjarasamningum, en ætti að vera
markmiðið. Þetta hefur verið ítar-
lega rökstutt af verkalýðssamtök-
unum, skýrast nú síðast hjá Versl-
unarmannafélagi Reykjavíkur og
við tökum undir öll þau rök,“ sagði
Sigurður ennfremur.
Verkalýðsmálaráð Sjálfstæðis-
flokksins gegngst fyrir kjaramála-
ráðstefnu um launastefnu Sjálf-
stæðisflokksins á laugardaginn
kemur klukkan 13.30 í Valhöll,
húsi Sjálfstæðisflokksins. Fram-
sögumenn á ráðstefnunni verða
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR, Linda Rós Michaelsdóttir,
kennari, og Haraldur Hannesson,
formaður Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar. Almennar
umræður verða að loknum fram-
söguræðum og síðan pallborðsum-
ræður um kjaramál. í þeim taka
þátt, auk framsögumanna, Sigurð-
ur Oskarsson, formaður Verka-
lýðsmálaráðs, Anna K. Jónsdóttir,
varaborgarfulltrúi og formaður
dagvistar Reykjavikurborgar, og
Guðmundur Hallvarðsson, form-
aður Sjómannafélags Reykjavíkur.
Ráðstefnustjóri verður Guðmund-
ur H. Garðarsson, alþingismaður
og ritari ráðstefnunnar verður
Kristján Guðmundsson, formaður
málfundafélagsins Óðins.
STENDUR EITTHVAÐ TIL?
Ef svo'er, þá erum við
með fyrsta flokks mat
FYRIRTÆKI
OG
STOFNANIR
Við mynnum á okkar
umtöluðu matarbakka
í hádeginu úr bakka- Æ
eldhúsinu. Hægt er að É
velja um 3 tegundir: 1
HEITAN MAT
KABARETT I
MEGRUNARMAT
Sendum og sækjum .<5^1
þjónustu reiðubúin,
veislueldhúsinu okkar.
Við tökum að okkur veislur og mannamót
af öllum stærðum og gerðum, og bjóðum
eingöngu upp á fyrsta flokks hráefni
og fjölbreytni í vali: Kalt borð,
heita rétti, pottrétti og smárétti.
Ekki má gleyma brauðinu okkar, sem
er það besta í bænum: Cockteil-snittur,
fex kaffi-snittur, cockteil-pinnar,
L x brauðsneiðar 1/2 og 1/1
Hm og okkar rómuðu brauðtertur.
|Bpieð hagstætt verð.
Pöntunarsími 68-68-80
? m
: - v>v ^
% 2 .m&.,.
éa zifllr' "******' /2'% ■ ■
VEITINGAMAÐURINN
BÍLDSHÖFÐA 16 - SlMI 68-68-80
-
öjt
|
íkJ pfeS
auglýsingast. magnúsar ólafss.