Morgunblaðið - 12.05.1988, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1988
63
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þesslr hringdu . .
Lítið tillit tekið til
gangandi vegfarenda
Eldri borgari hringdi:
„Að undanförnu hefur verið
fjallað um gangandi vegfarendur
í Velvakanda og vil ég leggja orð
í belg. Ég var um skeið búsettur
erlendis, í Kaupmannahöfn, en
þar tíðkast meiri tillitsemi í um-
ferðinni en hér. Þar kom varla
fyrir að ökumenn stöðvuðu ekki
við gangbrautir ef einhver var á
vegbrúninni og algengt var að
ökumenn stöðvuðu ef þeir sáu að
gangandi vegfarendur ætluðu
yfir, þó engin væri gangbrautin.
Hér á landi virðist einhver
heimskufrekja einkenna háttarlag
ökumanna. Þeir ganga á rétt
hvers annars af minnsta tilefni
og gangandi vegfarendur hafa
nánast engan rétt. Það er við-
burður hér ef bíll stöðvar við
gangbraut þar sem ekki eru ljós
og þarf maður venjulega að bíða
meðan nokkrir bílar fara framhjá.
Það er hreinlega lífshættulegt
að fara yfir umferðargötur þar
sem ekki eru gangbrautir, að
minnsta kosti fyrir eldra fólk.
Ökumönnum dettur almennt ekki
í hug að draga úr hraðanum þó
þeir sjái gangandi mann heldur
er flautað og haldið áfram á fullri
ferð þannig að göngumaður á
jafnvel fótum fjör að launa. Slíkur
skortur á háttvísi er ökumönnum
ekki til sóma. Of lítið tillit er tek-
ið til gangandi vegfarenda í um-
ferðinni og þyrfti að gera átak í
þessum málurn."
Há húsaleiga
Ellilífeyrisþegi hringdi:
„Má fólk verðleggja húsaleigu
eins og það vill? Ég hef verið að
leita mér að húsnæði og hef skoð-
að nokkur tilboð. Fyrir nokkur var
mér boðin kjallaraíbúð á leigu og
átti hún að kosta 35 þúsund krón-
ur á mánuði. Þó var þetta ekki
stór íbúð og þurfti að ganga fimm
tröppur niður í hana. Nú hefur
stór hópur launþegar ekki nema
35 þúsund krónur á mánuði í
kaup og sumir minna. Það myndi
aðeins hrökkva fyrir þessari leigu,
ekki fyrir rafmagni og hita. Við
búum í láglaunalandi, hvemig
getur húseigendum liðist að
sprengja leiguverð svona upp? Það
verður að setja einhverja viðmiðun
því einhver hlýtur réttur leigenda
að vera.“
Tölvuklúbbur
Pétur hringdi:
„Fyrir skömmu sá ég auglýs-
ingu í einhverju dagblaði frá
tölvuklúbb fyrir IBM-samhæfðar
tölvur. Ég var svo óheppinn að
týna auglýsingunni en langar að
vita hvernig hægt er að komast
í samband við þennan klúbb og
hvaða möguleika hannjgefur.“
Góð þjónusta
0467-6688 hringdi:
„Það er stundum kvartað um
óliðlegheit og slæma þjónustu hjá
opinberum stofnunum en mig
langar til að þakka Erlu Hafliða-
dóttur hjá Húsnæðisstofnun ríkis-
ins fyrir sérstaka góða þjónustu
og elskulegheit þegar ég þurfti
að leita til Húsnæðisstofnunar
fyrir nokkra. Húsnæðisstofnun
gertur verið stolt af slíkum starfs-
manni."
Kettlingur
Svartur og hvítur sjö mánaða
gamall kettlingur tapaðist frá
Alakvísl 50 fyrir skömmu. Þeir
sem hafa orðið varir við hann era
vinsamlegast beðnir að hringja í
síma 672483.
h
Veriö vel klœdd í sumar
Nýjar
Iðunnarpeysur
á dömur og herra.
Nýjar blússur frá
OSCAR OF
SWEDEN.
Sumarbuxurfyrir dömur
ognýpilsfrá
GARDEUR í Vestur-
Þýskalandi.
Verzlunin er opin
daglegafrá 9-6,
laugardagafrá 10-12
Krodltkortaþjónusta
wðuntu
SKERJABRAUT 1 V/NESVEG, SELTJARNARNESI
Með
morgunkaf&nu
Það gat nú verið. Loksins
þegar mér hafði tekist að
botna í vínkortinu, þá er kom-
ið með nýtt kort.. -
HÖGNI HREKKVlSI