Morgunblaðið - 15.05.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1988
B 3
Magnea fyrir framan málverk af dóttur hennar, Hellen.
Hellen Helgadóttir.
Magnea Hjálmarsdóttir árið
1967.
ég Grétari Fells sem mér þótti mjög
vænt um sem fræðara og mannvin.
Ég tók mikið tillit til þess sem hann
sagði. Ég stundaði einnig mann-
rækt í skóla Sigvalda Hjálmarsson-
ar þó lítið þyki mér hafa áunnist í
þeirri grein. Ég hef haldið áfram á
þessari braut, ég er frímúrari og
er einnig í skóla hjá Erlu Stefáns-
dóttur. Eg hef einnig sótt kirkjur.
Sorgin opnaði mér nýjan heim. Það
má segja að ég hafi notið meiri
veraldlegrar gleði meðan Hellen
lifði en eftir að hún dó öðlaðist ég
ríkari vissu um framhaldslíf en ég
hafði fyrir."
Man eftir mörgoim tilveru-
stigum
í samræðum okkar Magneu kem-
ur fram að hún trúir á endurholdg-
un. Ekki aðeins trúir, heldur telur
sig hafa sannreynt, að slíkt sé til.
„Eg man eftir mörgu úr fyrri lífum
sem ég hef lifað," segir hún. „Ég
man eftir mörgum fyrri tilverustig-
um, sumum fyrir löngu. Ég_ hef til
dæmis lifað í Egyptalandi. Ég man
að ég var í ilskóm og einhveiju
hvítu og • síðu og fór á hveijum
morgni til að heilsa sólinni, deginum
og austrinu. Seinna man ég eftir
mér í klaustri þar sem ég var að
skúra og skúra og skúra eintómar
hellur og þama var vond vist. Ég
strauk og með mér kona sem ég
kynntist seinna í þessu lífi sem ég
lifí nú. Við náðumst aftur og urðum
að fara aftur í skúringamar. Enn
seinna lifði ég fínu lífí á Bretlandi.
Ég var hefðarkona í fallegum kjól-
um með fínum pífum. Þegar ég kom
til Bretlands þá þekkti ég mig aft-
ur. Sú tilvera var sú næsta á undan
þessari núna. Ég held að þar á
undan hafi ég verið á Ítalíu fremur
en Frakklandi. Þá var ég dökk og
miklu minni en ég er í dag. Þá átti
ég ofsalega fínan hring með stórum,
grænum smaragði. í þeirri tilveru
leið mér vel. En eitt sinn bjó ég í
harðbýlu landi og átti son sem ég
hélt mikið uppá. Hann var eitthvað
að draga sig eftir stúlku sem mér
þótti ekki nógu fín fyrir hann. Svo
átti hann að fara í stríð og mér
þótti það skárra en að hann færi
að giftast þessari stelpu. En hann
kom bara ekki aftur úr stríðinu og
þá lærði ég mikið. Ég myndi aldrei
skipta mér af slíku aftur.
„Ég á ábyggilega eftir að
skokka aftur ...“
Ég sþyr^Magneu hvort hún telji
lfkindi til að þetta sé hennar síðasta
jarðlíf en hún hristir höfuðið og
segir: „Ég á ábyggilega eftir að
skokka aftur, en vonandi eitthvað
betur undirbúin. En það fer að líða'
lengra á milli. Þeir sem fara af slys-
um og ofsóknum, t.d. í styijöldum,
þeir sækja meira eftir að komast
aftur hingað. Þetta fólk hefur vænt
sér mikils en svo er klippt á þráð-
inn. Ég held að fólk geti haft ein-
hver áhrif á hve fljótt það kemst
hingað aftur. En þetta eru nú dul-
vísindi sem erfítt er að henda reiður
á.“
Næst spyr ég Magneu hvort hún
sé skyggn. „Nei, ég er ekki skyggn,
því miður," segir Magnea. „Ég veit
að það styrkir vissu manns. Ég sé
svona bregða fyrir en það er engin
skyggni. Eg hef heldur enga miðils-
hæfíleika en ég fínn margt á mér
og skynja fólk auðveldlega og
hvemig það hugsar til mín. Hug-
skeyti fæ ég líka. Ég var mjög
draumspök en það hefur minnkað
með aldrinum. Mig dreymdi fyrir
láti Hellen. Mig dreymdi pabba
hennar klæðlausan. Þegar ég vakn-
aði hugsaði ég: Hveiju hefur þessi
maður að tapa? Ekki er hann kaup-
maður eða þess háttar. Mig dreymdi
þennan draum aftur. Svo dó Hellen
og þá missti hann aleiguna, rétt
eins og ég. Þá skildi ég þennan
draum.
Þrátt fyrir þetta sem ég hef hér
sagt frá þá verð ég að segja eins
og er að ég er öðrum þræði ótta-
lega veraldleg í mér. Ég hef gaman
af fallegum hlutum, gaman af að
ferðast og ýmsu öðru sem tilheyrir
þessum heimi. Eitt vil ég að komi
fram, ég er afar þakklát fyrir að
vera íslendingur, það er hvergi í
veröldinni eins dýrðlegt að vera og
á íslandi."
Brot úr sögu
Friðriks Jónassonar
Og nú kalla hinir veraldlegu hlut-
ir að. Magnea þarf að fara niður í
þvottahús með þvott sem hún þarf
að setja í þvottavélina en Friðrik
maður hennar sest í hennar stað í
stólinn gegnt mér við borðið og við
tökum tal saman.
Friðrik Jónasson fæddist að
Breiðavaði á Fljótsdalshéraði árið
1907, sonur Jónasar Eiríkssonar
skólastjóra Búnaðarskólans á Eið-
um. „Pabbi átti mig með ráðskonu
sinni, Helgu Baldvinsdóttur, hún
hafði áður átt þijú böm en misst
eitt. Pabbi átti fyrir sex syni með
konu sinni sem hann missti. Ég
ólst upp hjá pabba og mömmu á
Breiðavaði þar til ég var tíu ára,
en þá skildu þau. Hún fór að Eiðum
og gerðist þar einskonar ráðskona.
En pabbi bjó áfram á Breiðavaði
hjá syni sínum, þá var pabbi orðinn
mjög heilsulítill. Ég flutti með
mömmu að Eiðum en tók þó mjög
nærri mér að skiljast við pabba.
Ég var þó mikið hjá pabba eftir
þetta, var oft tíma og tíma á vet-
uma, það er heldur ekki langt á
milli Eiða og Breiðavaðs, rétt
klukkutíma gangur. Faðir minn fór
til landbúnaðamáms til Noregs að
tilhlutan Jóns Sigurðssonar forseta
og þegar því námi lauk ferðaðist
hann um meðal íslenskra bænda
og kenndi þeim nýjar aðferðir við
landbúnað. Seinna var hann við
nám í sömu fræðum við háskólann
í Kaupmannahöfn. Þegar ég var
tólf ára flutti ég alveg til pabba og
var hjá honum þar til ég var fímm-
tán ára, þá sendi hann mig í Ai-
þýðuskólann á Eiðum sem stofnað-
ur var þar eftir að búnaðarskólinn
hætti. Ég var þó lengst af með
annan fótinn á Breiðavaði ef svo
má segja. Eftir nám á Eiðum undir
handleiðslu Ásmundar Guðmunds-
sonar seinna biskups, sem var fyrsti
skólastjóri Alþýðuskólans, þá fór
ég í Kennaraskólann. Eftir að hafa
tekið kennarapróf fór ég til Kaup-
mannahafnar og var þar við nám í
skólaíþróttum í eitt ár. Ég var allt-
af öðrum þræði íþróttakennari.
Þegar ég kom heim voru kreppuár
og erfitt að fá kennarastöðu. Ég
fékk þó stöðu á Seyðisfirði og var
þar í tvö ár en svo fór ég til ísafjarð-
ar og var þar í sextán ár. Á ísafirði
byijaði ég að kenna lestur með
hljóðaðferð. Þá aðferð kenndi mér
Sigurður Sigurðsson sem hafði
kynnt sér hljóðaðferð m.a. í Þýska-
landi og Bretlandi. Um svipað leyti
hóf ísak Jónsson að kenna lestur
með hljóðaðferð hér í Reykjavík.
Við Sigurður höfðum saman smá-
bamaskóla um tíma. Maður varð
að vinna mikið til að hafa inn ein-
hveija peninga á þessum_ tíma því
kennaralaunin voru lág. Árið 1947
flutti ég til Reykjavíkur og hóf
kennslu þár. Arið 1942 gekk ég í
karlareglu Frímúrara og er þakklát-
ur fyrir hve mikið ég hef lært af
samvistum við frímúrara."
Friðrik Jónasson kvæntist Hólm-
fríði Hemmert, skólasystur sinni úr
Kennaraskólanum, ungur að árum.
Þau áttu saman dótturina Jóhönnu.
Friðrik og Hólmfríður skildu eftir
stutta sambúð. Á ísafírði kvæntist
Friðrik Sigríði Magnúsdóttur frá
Sæbóli í Aðalvík. Þau voru gift í
mörg ár og áttu saman eina dótt-
ur, Björku. Sigríður er látin fyrir
allmörgum árum.
Niðurlagsorð
í sama bili og við Friðrik höfum
lokið spjailinu kemur Magnea neðan
úr kjallara með bleika gúmmí-
hanska á höndum, hafði rétt lokið
við að setja þvott í vélina og hengja
upp það sem búið var að þvo.
Magnea tekur af sér hanskana og
drífur mig að svo búnu inn í eldhús
til að líta í kaffíbollann minn sem
lá þar á ská yfír teskeið, rétt eins
og ég hafði skilið við hann þegar
við Magnea tókum okkur kaffihlé
í miðju viðtalinu. Þá hafði ég fregn-
að að Magnea hefði brugðið fyrir
sig að lfta f bolla fyrir vini og kunn-
ingja. Bollinn er með þurrum kaffi-
rákum og Magnea sest með hann
við gluggann og rýnir í hann. Svo
tekur hún að spá og ég hlusta áijáð.
Hvað hún sagði ætla ég ekki að
tilfæra hér en eitt er víst að slæmt
var það ekki því ég var glöð í bragði
þegar ég kvaddi þau hjón Friðrik
og Magneu og skundaði heim á leið.
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Myndir: Sverrir Vilhelmsson
Söngskglinn / Reykjavík
Umsóknarfrestur um skólavist í
Söngskólanum í
Reykjavík
veturinn 1988-1989 er til 25. maí nk.
Umsóknareyðublöð fást í Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar og á skrifstofu skóians Hverfis-
götu 45, sími 27366 daglega frá kl. 15.00-17.00
þar sem allar nánari upplýsingar eru veittar.
Skólastjórí.
kr. 195,
Litir: Hvítt, svart,
rautt, gult, dökkblátt,
kakí, beige.
Stærð: 24-46.
Póstsendum.
5°h staðgreiðsluafsláttur.
21212
Um miðjan maí
hefst sumartími
í leikfiminni
ÞÚ GREIÐIR FYRIR 4 VIKUR EN FÆRD 6
VIKUR í LEIKFIMI.
Opnunartími í sumar:
mánudaga.........13-21
þriðjudaga .....7.30-22
miðvikudaga..... 13-21
fimmtudaga......7.30-22
föstudaga........1 3-1 8
laugardaga........10-16
sunnudaga.........lokað
Q 1 M 1 O
HEILSUGARÐURINN
Garðatorgi 1. 210Garöabæ,
sími : 65 69 70 - 65 69 71.
Leikfimi fyrir konur á öllum
aldri, morguntímar, dagtímar
og kvöldtímar.
Munið barnagæsluna.