Morgunblaðið - 15.05.1988, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.05.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1988 B 9 Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon náttúruvemd, þ.m.t. landvemd, vemdun náttúmlegs skóglendis og friðun dýra. Þá er tekið fram að samgöngu- ráðuneytið fari einnig með stjóm þeirra umhverfismála sem önnur ráðuneyti fara ekki með og skal ráðu- neytið heita samgöngu- og umhverf- isráðuneyti. Samkvæmt frumvarpinu á um- hverfismálaskrifstofa innan síðast- nefnds ráðuneytis að annast sam- ræmda yfirstjóm umhverfismála en starfsemi skrifstofunnar á að vera fjárhagslega óháð annarri starfsemi ráðuneytisins. Þá er gert ráð fyrir að skipuð verði sérstök fimm manna stjómar- nefnd umhverfismála. Ráðherrar fyrmefndra ráðuneyta skipi formann hennar en Samband ísl. sveitarfélaga og Náttúruvemdarráð sitt hvom. Hlutverk stjómamefndar um- hverfismála á samkvæmt 7. grein laganna að vera: 1. Gera tillögur til ráðherra og ríkisstjómar um stefnumótun í um- hverfismálum og samræmingu þeirra. 2. Akveða aðgerðir í skörunartil- vikum og vinna að samnýtingu starfskrafta. 3. Úrskurða í ágreiningsmálum um aðgerðir. Vísa má úrskurði nefndarinnar til samgöngu- og um- hverfisráðherra. 4. Fjalla um öil lagafrumvörp og reglugerðardrög á sviði umhverfis- mála. 5. Veita umsögn um starfsleyfi fyrir stórframkvæmdir og starfsemi sem getur valdið vemlegri mengun. 6. Fylgjast með framkvæmd ein- stakra þátta umhverfísmála. 7. Hafa frumkvæði að rannsókn- ar-, fræðslu- og útgáfustarfsemi. 8. Afgreiða einstök mál er ríkis- stjómin eða ráðherrar sem fara með umhverfismál fela henni. Stjómar- nefnd skal við afgreiðslu einstakra mála leita álits hlutaðeigandi stofn- ana og samtaka, eftir því sem við á. Síðar segir að samgöngu- og um- hverfismálaráðherra skipi sam- kvæmt ákveðnum reglum 7 manna umhverfismálaráð skipað fag- mönnum/sérfræðingum til 4 ára í senn sem verði ráðgjafar- og um- sagnaraðili fyrir ríkisstjóm og stjóm- amefnd umhverfismála. IV. kafli laganna fjallar um eftir- lit og gjaldtöku. Þar er kveðið svo á að heilbrigðisfulltrúi sveitarfélag- anna skuli fara með eftirlit með mengandi starfsemi að svo miklu leyti sem það hefur ekki verið falið Hollustuvemd ríkisins. Eftirlit með náttúruvemd og friðunarmálum er í höndum samgöngu- og umhverfis- málaráðuneytisins. Þá segir og að til þess að koma í veg fyrir eyðingu gróðurs utan rækt- aðs lands sé samgöngu- og umhverf- isráðuneytinu heimilt í samráði við sljómamefnd umhverfísmála og Rannsóknarstofnun landbúnaðarins að takmarka beit og hvers konar umferð um hlutaðeigandi svæði, tímabundið f allt að 5 ár. Eftirlit með mengun sjávar er í höndum Siglingamálastofnunar og eftirlit með skipulagsmálum í hönd- um Skipulagsstjómar ríkisins. Annað eftirlit sem undir þessi lög fellur er í höndum samgöngu- og umhverfis- ráðuneytisins. Samkvæmt 11. grein er ráðuneyti samgöngu- og umhverfísmála heim- ilt að setja gjaldskrá vegna einnota umbúða, véla og tækja o.fl. í formi fasts gjalds til að stuðla að viður- kenndri förgun þeirra eða endur- vinnslu. Stofnaður skal sérstakur umhverfisvemdarsjóður en stjómar- nefnd umhverfismála fer með stjóm hans. Hlutverk hans er að styrkja þau sveitarfélög og aðila sem þurfa á sérstöku átaki að halda við lausn umhverfismála, stuðla að ákveðnum aðgerðum í samræmi við áætlanir stjómamefndar og að standa fyrir rannsóknum á skaðlegum þáttum umhverfisins. Þá skal veita allt að tfunda hluta sjóðsins til fræðslu og upplýsingastarfa á sviði umhverfis- mála. Sérstakur kafli er um förgun úr- gangs. Þar segir m.a. að heimilt sé að koma úrgangi fyrir t.d. með urðun eða í sérstökum geymslum, þegar förgun verður ekki við komið. Hins vegar sé hægt að gera kröfu til þess að úrganginum verði fargað, finnist síðar ráð til þess. Meðferð úrgangs samkvæmt þessari grein er á kostnað hlutaðeigandi aðila. í X. kafla þar sem flallað er um ákvæði til bráðabirgða segir, að lög- in skulu endurskoðuð innan fjögurra ára frá gildistöku og skal þá sérstak- lega hugað að frekari samræmingu einstakra þátta umhverfismála og stofnana er sinna verkefnum á þessu sviði. Stöðuheimildir Náttúruvemdar- ráðs skuli frá gildistöku laganna flytjast yfir í umhverfismálaskrif- stofu samgöngu- og umhverfismála- ráðuneytis. Þá segir og að frá 1. janúar 1990 skuli liggja fyrir endurskoðuð lög um starfsemi Landgræðslu ríkisins og Skógræktar ríkisins, sem tækju mið af breyttum rekstri og skal stjómar- nefnd umhverfismála hafa frum- kvæðið að endurskoðun þeirra í sam- ráði við landbúnaðarráðuneytið. Tekið er fram að fyrir 1. janúar 1989 skuli ríkisstjómin í samvinnu við sveitarfélögin gera áætlun um frágang skolps og frárennslislagna þar sem komi fram hvemig stjóm- völd hyggist leysa þessi mál innan næstu 10 ára og hvemig sveitarfé- lögum verði gert kleift að standa undir kostnaði vegna þessa. Notkun á bensfni sem í er blý skal vera óheimilt eftir 1995 — og dregið skal úr notkun efna- og efna- sambanda sem valdið geta eyðingu ozon-lagsins. í athugasemdum með frumvarp- inu er gerð grein fyrir tilraunum hérlendis til lagasetninga um um- hverfismál sem allar hafa átt sér stað á síðasta áratug — 5—6 talsins en engin náð fram að ganga. Ástæð- umar em taldar margvislegar en þessi nefnd sem um þessi mál flall- aði hafði það að leiðarljósi fyrst og fremst að finna raunhæfa lausn. Það er álit nefndarinnar, að með hliðsjón af því hve umhverfismál eru víðtækur málaflokkur, sé á þessu stigi ekki hægt að ganga lengra í átt til samræmingar og tilfærslu málaflokka á milli ráðuneyta miðað við núverandi skipan mála f Stjómar- ráði íslands. Nefndin lítur svo á að með frumvarpi því sem hér er lagt fram, sé stigið fyrsta skrefíð í þá átt að flytja málaflokkinn í heild sinni í eitt ráðuneyti. Slík tilfærsla tengist óhjákvæmilega endurskoðun laga um Sijómarráð Islands og nýrri verka- skiptingu ráðuneyta. H.V. tók saman. Hugtakið umhverfisvernd, markmið umhverf ismála- lag-a í sérstökum kafla sem fylgir at- hugasemdum með lagafrumvarpinu með þessari yfirskrift segir m.a.: Skýring hugtaksins umhverfis- vemd liggur til gmndvallar öllum réttarreglum á sviði umhverfismála og er því nauðsynlegt að skýra það í stuttu máli. Markmið umhverfisvemdar er að tryggja íbúum jarðar þau gæði láðs og lagar, sem gefa þeim möguleika á sem bestum lífsskilyrðum. Er þá átt við ástand mála eins og þau em á hverjum tíma og ekki síður þegar til framtíðar er litið. Er hér um að ræða alla þætti Iffrikisins. Umhverfismálalöggjöf er forsenda allrar stjómunar á þessu sviði. Hlut- verk hennar er fyrst og fremst að skipa fyrir um hvemig taka beri til- lit til eiginleika umhverfisins með hliðsjón af lffrfkinu. Þótt umhverfis- vandamál séu fyrst og fremst leyst á tæknilegan hátt, er umhverfismála- réttur löngu viðurkenndur innan fræðikerfis lögfræðinnar. ... Rétturinn til heilbrigðis í tengslum við óspillt umhverfi er við- urkenndur sem gmndvallarréttur og telst þvf til sjálfsagðra mannréttinda og er því meginmarkmið umhverfis- málalöggjafar. DAHSKT OC „DEJUGT íá Milt veðurfar, afslappað andrúmsloft og vingjarnlegt fólk. Gómsætur matur og ölið óborganlega. Þetta er hluti þess sem gerir Danmörku svo aðlaðandi heim að sœkja. Einnig má nefna stuttar vegalengdir og gott samgöngukerfi. Og tungumálið, sem nœstum allir íslendingar geta brugðið fyrir sig - ef þeir bara reyna! Sumarhús á Jótlandi Ebeltoft á austurströnd Jótlands er einn afþessum notalegu bœjum þar sem tíminn virðist standa í stað. í útjaðri Ebeltoft bíður nýtt sumarhúsahverfi fyrstu gestanna. Þar finna allir eitthvað við sitt hœfi og allt snýst um að láta ykkur líða vel í fríinu. Og verðið er ekki síður aðlaðandi: Frá 23.700 kr. á mann. Miðað við 8 saman í húsi. Innifalið: Beint flug tilBillund á Jótlandi, flutningur til og frá flugvelli erlendis og hús í 2 vikur. Brottfarir 23. og 30. júní, 7., 14., 21. og 28. júlí, 4. og 11. ágúst. Flug og bíll um Kaupmannahöfn Fyrir þá sem frekar vilja ferðast á eigin vegum. Verð frá 13.050 kr. á mann. Miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2-11 ára, ferðist saman. lnnifalið: Flug og bíll í viku, ótakmarkaður akstur, kaskótrygging og söluskattur. Vegna verkfallanna undanfarið framlengjum við afsláttarkjör í skipulagðar hópferðir til 26 maí. Til að njóta afsláttarins er nóg að greiða staðfestingargjald eigi síðar en 26. maí. FERÐASKRIFSTOFAN URVAl - fólk sem katm sitt fag! Pósthússtræti 13 - Sími 26900.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.