Morgunblaðið - 15.05.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.05.1988, Blaðsíða 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1988 Sagt frá prúðmannlegri hertöku íslands, handtökunni á Gerlach og samkvæmi í Höfða í bið eftir bresku herskipunum Ríkisstjórain fór í helgarfrí daginn eftir heraám Birt frásögn Francis Michie Shepherd aðalræðismanns Breta á íslandi í maí 1940 M ^avid nefndi nokkrar stöður m Jsem voru falar, engin þeirra •M-* * sérstaklega aðlaðandi, en klykkti út með þessu: Þu vilt auðvit- að ekki fara til Reykjavíkur?". Ég bað um sólarhringsfrest til að hugsa málið. Mér var kunnugt um að ísland hafði haft verulega mikla hernaðar- lega þýðingu á árum fyrri heims- styrjaldarinnar, og mér virtist sem sú þýðing yrði ennþá meiri í þetta skipti. Þess utan, þó að starfinn í Reykjavík væri staða aðalræðis- manns undir yfírstjóm sendiráðsins í Kaupmannahöfn að nafninu til, var ísland aðskilið, sjálfstætt ríki og staðan yrði því sjálfstæð í raun. Því tjáði ég David daginn eftir að ég tæki Reykjavíkurstöðuna fram yfír hinar, og var það samþykkt. Þetta var í marsmánuði 1940. Ég hafði verið kynntur fyrir Sir Harold Gillies, frægum skurðlækni pg golfleikara, sem taldi laxveiði á íslandi meðal helztu áhugamála sinna. Hann aðstoðaði mig við val á laxastöng og meira að segja kom alla leið frá Hampstead í leigubíl á myrkvunartíma kvöld eitt með sýn- ingarvél, til þess eins að sýna mér nokkrar kvikmyndir sem hann hafði tekið á íslandi. Þótti mér þetta mjög vinsamlegt. Freddie Mason var með okkur þá um kvöldið, en hann hafði verið skipaður til að fara með mér sem vararæðismaður. Ætlunin var að fara með Brúar- fossi frá Liverpool undir lok apríl- mánaðar. Þar sem allt mitt hafur- task hafði orðið eftir í Dresden, eyddi ég næstu vikunum í innkaup á búsáhöldum og bíl. Þegar Þjóðveijar réðust inn í og hertóku bæði Noreg og Danmörk þá í apríl, gerði ég mér strax grein fyrir því að við hefðum alls ekki efni á því að leyfa þeim einnig að hertaka ísland. Með því réðu þeir yfír kafbátalægjum í miðju Atlants- hafí, en slíkt myndi ógna sam- „Ég er friðelskandi og hæverskur að eðlisfari, en þrátt fyrir þetta hef ég flækst í fímm styrjöldum. Ég var skipaður í virðu- leg en samt þungvæg embætti sendiherra, með þeim afleiðingum að um tíma nefndu fréttamenn mig „sendihera vandræða- bletta". Sýndist mér þessi framvinda svo athyglisverð að hugsanlega vekti hún áhuga hjá öðrum. Er þetta afsökunin fyr- ir þessari bók, svo og hitt, að til greina kemur að hún varpi ljósi á nokkur al- þjóðavandamál liðinna ára.“ Svona hljóma inngangsorð Sir Francis Sheperd í handriti að endurminningum sínum, sem aldrei fengjust gefnar út. Eins og kemur fram í greininni, var Sir Franc- .is (þá hinn óbreytti hr. Shepherd) aðalræð- ismaður Breta á íslandi þegar landið var hemumið af Bretum 10. maí 1940, og gegndi hann því emba^tti til 1942. Þar áður hafði hann verið ræðismaður í Barcel- ona á Spáni, en þar varð hann að bjarga brezkum þegnum frá hörmungum borg- arastríðsins árið 1938. Því næstgerðist hann aðalræðismaður í Danzig í Póllandi, sem hann varð að yfírgefa í flýti eftir innrás Þjóðverja í ágúst 1939. Héðan fór hann til Kongó, en þar stóð hann fyrir útvegun úrans til tilrauna með atómsprengju. Því næst var hann fyrsti embættismaður Breta sem fór til Finn- lands eftir innrás Rússa. Svo til Bataviu (nú Jakarta), á meðan ófriður ríkti milli innfæddra og hollenzku nýlenduherranna. Hann var skipaður sendiherra í Persíu 1951, en þá stóðu sem hæst miklar deilur um olíuvinnslu í landinu. a öðrum tímum starfaði hann í Bandaríkjunum, Þýzka- landi, Argentínu, Perú, Haiti og E1 Salvad- or. Hann var aðlaður af konungi 1948, en léztárið 1962. Það var ungur frændi Sir Francis, Nig- el Shepherd lautinant, sem nýlega kom handritinu í hendur brezka ræðismannsins hér á Iandi, ef ske kynni að það yrði lands- mönnum til einhvers fróðleiks. Frásögn hans um íslandsdvölina hefst með vitali við yfírmann í ræðismannaþjónustunni um hugsanleg störf í kjölfar flóttans frá Pól- landi. Þjóðveijar, sem Bretar handtóku við hernámið, bíða þess á bryggjusporðinum að vera fluttir um borð í herskip. Herflutningaskipin á ytri höfninni hernámsmorguninn. Annað skipið er feijan Dover-Calais.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.