Morgunblaðið - 15.05.1988, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1988
B 17
um í bænum hljóðalaust. Engin
mótspyma hafði verið sýnd og til
engra vandræða kom. Eina tjónið
var brotin hurð.
Mér fannst tími til kominn að
greina frönskum kollega mínum frá
atburðum dagsins. í setustofunni
var lítið skatthol, greinilegá notað
af frú Gerlach. í því var bréfsefni
eins og vorrós að lit. Aftan á ums-
lögin var letrað nafnið Bertha
Berlach, og lagði angan af þeim.
Ég hripaði niður orðsendingu og lét
færa franska ræðismanninum, hr.
Voillery, hamingjusamlega kvænt-
um manni. Hann var trúlega ennþá
í rúminu, en ég hugleiddi hvort það
væri alveg við hæfi að senda honum
ilmandi skilaboð frá ektakvinnu
annars manns á þessum tíma dags.
Ég þóttist þó viss um að efni bréfs-
ins yrði honum svo kærkomið að
allt annað hyrfi í skuggann við lest-
ur þess.
Gerlach var sendur áleiðis til
Englands samdægurs og lenti svo
í Lundúnatuminum. Seinna var
skipzt á honum og Sir Lancelot
Oliphant, sendiherra okkar í Belgíu.
Til forsætisráðherra
Þegar Howard Smith var kominn
í land, gengum við á fund Her-
mánns Jonassonar forsætisráð-
herra, sem tók á móti okkur ásamt
hinum ráðherrunum. Vom þeir al-
varlegir í bragði en ekki ýkja undr-
andi á landtökunni. Howard Smith
ítrekaði orð brezku ríkisstjómarinn-
ar frá fyrra mánuði, þess efnis, að
við vildum koma í veg fyrir að það
sama henti ísland og Noregur og
Danmörk höfðu orðið að þola. Hlut-
leysisyfirlýsing hafði greinilega lítt
stoðað fyrir þau lönd, en ef Þjóð-
veijamir hefðu hertekið ísland
hefðum við þurft að kasta þeim út
aftur og með því fært átök ófriðar-
ins til Islands. Eins og málum var
háttað yrði ekki um neina íhlutun
í daglega stjóm landsins að ræða
og yrði brezka herliðið ekki á ís-
landi stundinni lengur en nauðsyn
krefði.
Forsætisráðherra hélt fast við
fyrri afstöðu ríkisstjómarinnar.
Hún tryði því ekki að Þjóðveijar
hefðu ráðizt á ísland og væri land-
taka Breta því óþörf.
En úr því að herliðið brezka
væri komið í anda góðvildar yrðu
íslendingar samvinnuþýðir. Þá um
kvöldið ávarpaði hr. Jónasson þjóð-
ina til að segja frá atburðunum.
Hann bætti við að ríkisstjómin hefði
ekki beðið um vernd og þyrfti henn-
ar ekki með, en úr því brezkir her-
menn væm komnir skyldu íslend-
ingar koma fram við þá sem gesti
í landinu.
Daginn eftir, sem vár laugardag-
ur, fómm við aftur í stjómarráðið
til að ræða um ýmis framkvæmdar-
atriði. Var ytri hurðin harðlæst og
lengi vel var ekkert svar þegar við
knúðum dyra. Loksins var lokið upp
og þar stóð gamall maður, veður-
barinn og boginn. Kunni hann hrafl
í ensku.
„Við viljum hitta forsætisráð-
herra."
„Hann er ekki við.“
„En utanríkisráðherrann?"
„Ekki heldur."
„Er nokkur ráðherranna við?“
„Nei. Það er laugardagur. Þeir
hafa allir farið úr bænum eins og
venjulega um helgar."
Mér datt í hug að það hlyti að
vera einsdæmi í mannkynssögunni
að ríkisstjóm færi í heilu lagi úr
bænum í helgarfrí, daginn eftir að
land hennar hefði verið hertekið af
erlendu stórveldi. Var þetta dæmi
um íslenzka rósemi, en ekki minna
merki um traust íslendinga í garð
brezku þjóðarinnar og hermanna
hennar.
íslendingar virtust sammála
ríkisstjórn sinni. Þó þeir væm ekki
sérlega órólegir, var það þeim til
skapraunar að vera dregnir nauð-
ugir viljugir inn í rás ófriðarins.
Samt höfðu þeir í aðra röndina
gert ráð fyrir einhveiju þessu líku.
Ummælin vom aðallega tvenns
konar:
„Frekar þið en hitt pakkið!"
„Einu sinni létu Bretar þó sjá sig
nógu snemma!"
Nýrómantík í menningarlífi Finnlands
TIMO Karlsson, finnskur sendi-
kennari við Háskóla íslands,
heldur fyrirlestur í fundarsal
Norræna hússins á sunnudag 15.
mai kl. 14.
Fyrirlesturinn fjallar um nýróm-
antík í menningarlífí Finnlands,
einkum um sk. karelianisma sem
var mikilvægur þáttur í fínnskri
nýrómantík fyrir og um síðustu
aldamót og sem sótti innblástur til
Kalevala, þjóðkvæðabálks Finna,
og til sveita í Kiijálalandi, þar sem
gömlum kvæðum hafði verið safn-
að. í fyrirlestrinum er fjallað um
bakgmnn karelianismans og gerð
grein fyrir ýmsum listgreinum, sem
tengjast karelianismanum, til dæm-
is tóolist, myndlist og bókmenntum.
Fyrirlesturinn tengist sýningunni
í sýningarsölum hússins á mynd-
skreytingum sem fínnski listmálar-
inn Akseli Gallen-Kallela gerði við
Kalevala. (FréttatUkynning)
ÍMAZDA929]
greiðslukjör25°/o
tS30mánuðl
Allt það
nýjasta frá
MAZDAM
LUXUSBILAR -
SMÁBÍLAR
FJÖLSKYLDUBÍLAR
SPORTBÍLAR
MAZDA 626 SEDAN
MAZDA121
OPIÐ
LAUGARDAG
OG SUNNUDAG
FRÁ KL. 1-5
BILABORG HF.
FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99.
Sérstaklega kynnum viö nýjan
MAZDA 626 STATION, 2 nýjar
gerðiraf MAZDA 323: SUPER
SPECIAL og SUPER SPORT
og nýjan MAZDA E 2000 meö
aldrifi og dieselvél.
Ennfremur allar aörar geröir
af MAZDA 626 og 323, MAZDA
929, MAZDA 121 og B 2600
pallbílana meö aldrifi.
Geriö ykkur dagamun um
helgina, komiö og skoöið það
nýjasta í bifreiðahönnun og
tækni.
J