Morgunblaðið - 15.05.1988, Síða 25
-88ei LAM .51 HUOAQlÍMMIIS .QIÖaJHVÍUUHOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1988
a
B 25
Undirlægjuháttur
gagnvart útiendingum
Niður með óþörf
boð og böim
Gunnar hringdi:
.% vil taka undir orí Hialta
JónaaoMT acm aknfa* greimn,
.öveitamennskulmynd liiendingu
útrýmf t Vel.akanda fyS
nokkni. Alla kyna óþörf 6od og
>>onn gera „kkur lalemimS
eflauat tgánalcga I augum útlend-
mg* en það er ekki þad vemta
" þurfa aartta
vnð aJU konar púkalegm- reglur
Sveitamennskuímynd
Islendinga útrýmt
Til Velvakanda.
Fyrir nokkru var í Velvakanda
grein sem nefndist Sveitamennsku-
ímynd íslendinga útrýmt, og svo
nú á laugardaginn kom grein frá
öðrum „spekingi" sem virðist vera
álíka gáfaður. Ef þessir menn eru
ekki að gera að gamni sínu þá gefa
skrif þeirra ótvírætt til kynna að
þeir eru miklir „furðufuglar". Meðal
annars er það spéhræðslan _við að
útlendingar muni hlæja að íslend-
ingum fyrir að hafa ekki sterkan.
bjór á boðstólum. Hann er svo
skrýtinn þessi undirlægjuháttur
gagnvart útlendingum sem eru að
sjálfsögðu misjafnlega skýrir í koll-
inum svipað og íslendingar eru.
Hjá útlendingum eru líka skiptar
skoðanir með og móti sterkum
drykkjum. Það er svo einkennilegt
ef útlendingur segir eitthvað um
íslendinga, gott eða vont, þá virkar
það á suma eins og guð almáttugur
hafi sagt það. Sé það gott sem sagt
er, þá ætla þessir sömu aðilar að
rifna af monti, enda kunna útlend-
ingar að notfæra sér þetta. Maður
hefði nú haldið að þessi aumingja-
háttur væri horfínn með þjóðinni
eða hvað? Var einhver að skrifa um
að sveitamennskuímyndinni hafi
verið útrýmt? Svo vill þessi blessaði
maður fara að drífa upp hnefaleik-
ana, það passar ágætlega þegar
menn eru orðnir rallhálfir af sterka
bjómum, þá geta þeir æft sig á að
lemja friðsama borgara eins og
gerðist oft um og eftir striðsárin.
Það var á meðan hnefaleikar voru
leyfðir hér á landi. Já, niður með
boð og bönn, segja þessir blessaðir
„vitringar".
Hvemig ætli þessum spéhræddu
mönnum yrði við ef einhver útlend-
ingur myndi hlæja að íslendingum
fyrir að hafa lögregiu. Væri þá
ekki alveg sjálfsagt að leggja alla
löggæslu niður. Þá nefnir hann að
áður hafi verið bannað að sjónvarpa
á fimmtudögum. Það var af fjár-
skorti hjá sjónvarpinu. Nú greiða
menn hærra afnotagjald fyrir að
fimmtudagurinn bættist við. Það
em ekki allir fjársterkir, og kemur
sér illa fyrir suma. Af því þessir
menn taka svo mikið mark á útlend-
ingum, þá voru það margir útlend-
ingar sem hingað komu, sem sögð-
ust öfunda íslendinga fyrir að vera
lausir við sjónvarpið á fimmtudög-
um.
Þ.K.
Kofar í alfaraleið
Til Velvakanda.
Þar sem umhverfismál eru nú
ofarlega á baugi langar mig til að
minnast á nokkuð sem lengi hefur
angrað mig. Einhver mesta þjóð-
braut landsins er Reykjanesbrautin,
vegurinn frá Reykjavík til Keflavík-
ur og Keflavíkurflugvallar. Flestir
landsmenn fara þennan veg og
einnig erlendir ferðamenn sem
hingað koma. Sé skyggni gott sér
vítt frá þessari þjóðbraut og finnst
mér jafnan skemmtilegt að aka
þessa leið. En þegar kemur út fyrir
álverið, þar sem heitir Hvassahaun,
blasir við einkennileg sjón. Þar er
þyrping kofa og sumarhúsa sem
virðast hafa verið byggð alveg
skipulagslaust. Sum þessara húsa
eru sliguð og hanga varla upp og
flest hafa þau ekki verið máluð svo
árum skiptir. Ekkert hefur verið
gert fyrir lóðir þessara „sumarbú-
staða" til prýði, ekkert ræktað upp
eða girt af. En vegna staðsetningar
sinnar er þessi draugabyggð eins
konar ásjóna landsins fyrir þá sem
héðan fara og hingað koma.
Tilgangur þessarar greinar er að
vekja athygli á þessu og fara þess
á leit að þama verði tekið til hend-
inni fyrr en seinna. Hér má reyndar
víða sjá alls kyns kofa í alfaraleið
VARÐANDI fyrirspum sem birt-
ist í dálkunum á þriðjudag, um
afstöðu og rödd þjóðkirkjunnar
i bjórmálinu, skal það upplýst að
Kirkjuráð sendi forseta efri
deildar alþingis eftirfarandi
ályktun hinn 26. apríl sl.
„Kirkjuráð hinnar íslensku þjóð-
kirlq'u leyfir sér að biðja alþingis-
menn að íhuga vandlega viðvarandi
varðandi leyfi til að framleiða og
sem enginn landprýði er af. Tökum
okkur á og látum slíkt hverfa, að
minnsta kosti við þjóðvegina. Einn-
ig ætti að auka landgræðslu með
Til Velvakanda.
-Ætlað alþingismönnum og lqos-
endum til umhugsunar. Mér datt í
hug að senda þér hugsanir mínar
sem ungs kjósanda. Um það hvem-
ig ráðherrar efna kosningaloforð
sín.
Ég er í framboði til alþingiskosn-
inga. Ég er eins og alþýðan vill að
alþingismaður sé. Ég er heimskur
og málgefinn og í orðum mínum
er enginn boðskapur. En hvað gerir
til þó að einn bætist í hópinn. Þau
eru öll svona. Auðvitað mun ég lofa
öllu fögm um betri kjör og betra
líf þjóðarinnar. En ekki frekar en
aðrir sljómarmenn mun ég standa
selja áfengt öl í landinu. Ábending-
ar um að þetta riiuni auks áfengis-
bölið hér á landi hljóta að verð-
skulda vandað mat. FVæðsla ein sér
getur ekki bætt skaðann eða fengið
áheym ef alþingismenn taka ekki
mark á áliti sérfróðra manna í þess-
um efnum."
Virðingarfyllst
Bemharður Guðmundsson
fréttafulltrúi
þjóðkirkjunnar.
þjóðvegum og væri óskandi að land-
græðsluátakinu sem hafíð var við
Reykjanesbrautina í fyrra yrði hald-
ið áfram í sumar. H.Þ.
við gefín loforð. Það er að segja
ef ég yrði einhvemtímann kosinn í
ráðherrastól. Og ég tel að það yrði
góður punktur hjá þjóðinni að kjósa
eins kalkaðan, ruglaðan, bullukoll
eins og mig. Ég er það sem al-
þýðunni vantar til að halda 10 kg
skuldaböggum á aðra hvora per-
sónu þjóðarinnar. Hugsið ykkur ef
einhver hugvitsmaður kæmist á
þing, þjóðin myndi lyftast upp, sem
yrði reiðarslag eftir langa setu á
botninum. Nei, ég legg til að ég
verði kosinn. Kjósið mig, þið þurfíð
ekki að hafa áhyggjur af breyting-
um á meðan. Því eins og aðrir ráð-
herrar mun ég sitja í vellystingum
heima og horfa á myndbönd með
Range Roverinn í bílskúmum. Mak-
inn þyrfti að labba í vinnuna og
vinna fyrir sér, því ekki fær hann
skerf af mínum peningum. En svo
ég haldi nú áfram að lýsa mínum
einstöku hæfileikum til að sitja á
þingi. Nei, það tæki of langan tíma.
Það er í rauninni hægt að rúma
þetta í tveimur orðum, loforð og
svik.
Svona í lokin vil ég aðeins taka
saman þann boðskap sem ég hef
með herkjum komið hér á fram-
færi. Ég er allt. Ég get allt. Ég vil
allt. Ég kann allt. En auðvitað geri
ég ekki neitt og sýni ekki neitt af
þessu.
Ungur kjósandi
Um hvað snýst
íslensk pólitík?
Kirkjan og bjórinn
STUTTAR FERÐIR LANGAR FERÐIR
ÞÉfTAR FERGIR STRIÁLAR FERGIR
SKEMMTIFERGIR VIÐSKIPTAFERGIR
TUNGLFERGIR....
TÖSKURIALLAR FERÐIR
Landakort, ferðahandbækur, vasaorðabækur, stórkostlegt úrval.
cnm
Hallarmúla 2, sími 8321 1 - Austurstræti 10, sími 27211
Kringlunni, sími 689211
DAGVIST BARIVA
BREIÐHOLT
Seljaborg v/Tungusel
Leikskólinn Seljaborg óskar eftir fóstrum nú
þegar í heilar og hálfar stöður.
Upplýsingar gefa forstöðumenn
í síma 76680.
MIÐBÆR
Grænaborg v/Eiríksgötu
Dagheimilið/leiksk. Grænaborg óskar eftir
fóstrum strax eða í haust.
Ennfremur vantar aðstoðarmann.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
14470 og 681362 á kvöldin.
Metsölublað á hverjum degi!