Morgunblaðið - 15.05.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1988
B 27
Húsmóðirin snýr
aftur
Til þess dags er hún dó hafði
Lucy Chadman verið Ijúf og indæl
húsmóðir í úthverfi. Eiginmaðurinn
hennar, Jason, djammaði svolítið
með sæta liðinu á Manhattan en
lif Lucy var dauðleiðinlegt.
En öðru máli gegnir um líf henn-
ar eftir dauðann. Stórskrítinni syst-
ur hennar tekst að stela henni úr
himnaríki með dularfullum göldrum
og Lucy er ekki lengi að komast
að því að margt hefur breyst frá
því hún yfirgaf jarðlíf sitt. Heimili
hennar og eiginmaður eru til að
mynda nú heimili og eiginmaður
gömlu vinkonu hennar, Kim.
Lucy ákveður að krydda tilveru
sinna nánustu með svolítið yfirnátt-
úrulegu bragði þartil lækna- og fjöl-
miðlaheimurinn stendur á haus af
undrun yfir endurkomu hennar.
„Hello Again" (Halló aftur) heitir
gamanmyndin um Lucy Chadman
og hún verður bráðlega sýnd í Bíó-
höllinni. Með aðalhlutverkin í henni
fara tvær sjónvarpsstjörnur, þau
Shelley Long (Staupasteinn) og
Corbin Bernsen (Lagakrókar) en
það færist æ meira í vöxt í Banda-
ríkjunum að stjörnur skjásins reyni
fyrir sér á stóra tjaldinu. Sumum
tekst vel upp en öðrum gengur
verr að fóta sig í bíóhúsunum.
Aðrir sem fara með hlutverk í
„Hello Again" eru Judith Ivey,
Gabriel Byrne og Sela Ward. Leik-
stjóri og framleiðandi myndarinnar
er Frank Perry en handritshöfundur
er rithöfundurinn Susan Isaacs.
og kvikmyndarisa í 55 ár. Hún
komst aftur á fætur, aðeins 45
kíló, og lærði setningarnar sínar
utanað og allra hinna eins og hún
hafði alltaf gert. Með „Hvölun-
um“ gafst henni tækifæri til aö
fara með aðalhlutverk í bíómynd
— og í leiöinni gafst henni tæki-
færi tii að fara aftur til Maine þar
sem hún bjó í tíu ár og ól upp tvö
börn.
Leikstjóri myndarinnar er Bret-
inn Lindsay Anderson („Britannia
Hospital") og hann segir um Da-
vis:„Hún er erfið vegna þess að
i
I
Síðast þegar þau tvö, Perry og Isa-
acs, unnu saman varð úr gaman-
myndin„Compromising Positions",
sem sýnd var í Regnboganum um
árið. *
„Ég hef gaman af að vinna með
Susan vegna þess að hún skrifar
kómedíur um raunverulegar per-
sónur sem flækjast inní skemmti-
legar kringumstæður," segir Perry.
Susan Isaacs segir: „Ég vildi skrifa
sögu þar sem aðalpersónan var
„bara" húsmóðir vegna þess að
mér finnst að á undanförnum árum
hafi verið litið framhjá konum sem
eru heima. Húsmæður fara kannski
ekki á skrifstofuna á hverjum degi
en þær eru samt í fullu starfi."
„Hello Again" er fyrsta myndin
sem írinn Gabriel Byrne („Gothic")
leikur í vestan hafs. Hann leikur
lækninn á gjörgæsludeildinni sem
annast Lucy áður en hún deyr og
verður skotinn í henni þegar hún
snýr aftur. „Það er ekki nóg með
að þetta sé fyrsta bandaríska
myndin sem óg leik í,“ segir hinn
ágæti Byrne, „heldur vill svo til að
Í>etta er í fyrsta sinn sem ég leika
ra.“
Leikstjórinn Frank Perry hefur
orð á sór fyrir að vera leikstjóri leik-
aranna en hann hefur gert myndir
með Burt Lancaster, Faye
Dunaway, Susan Sarandon, Bar-
bara Hershey, Sam Waterston og
Jeff Bridges svo einhverjir séu
nefndir.
hún er Bette Davis en ekki vegna
þess að hún er stjarna. Hún er
vond út í lífið og fólk og hefur
alltaf verið það. En hún hafði aldr-
ei áhyggjur af því hvernig hún liti
út. Hún horfði á upptökur dagsins
og sagði aldrei„Oh, ég lít hræöi-
lega út". Henni var efst í huga
að persónusköpunin væri rétt."
Leikkonan og leikstjórinn rifust
daglega. „Lillian reynir fyrst og
fremst að gefa leikstjóranum það
sem hann biður um,“ segir And-
erson. „Bette reynir að Ifta alger-
lega framhjá leikstjóranum."
Leikstjórinn Lindsay Anderson og Gish fara saman yfir atriði.
Tilbod óskast
Tilboð óskast í Ford Econoline Red-E-Kamp (ekinn 37.000 mílur) árg. 1984,
Cherokee Chief (tjónabifreið) árg. 1984 ásamt öðrum bifreiðum sem verða í út-
boði þriðjudaginn 17. maí nk. kl. 12-15 á Grensásvegi 9. Tilboðin verða opnuð
á sama stað kl. 16.00.
Sala varnarliðseigna.
Sumarbúðir
ÆSK
við Vestmannsvatn
Sumarbúðir ÆSK eru við Vestmannsvatn í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu. Þar fara sam-
an einstæð náttúrufegurð og mikil veðursæld. í búðunum er alltaf mikið um að vera, hægt
er að fara í göngu- og bátsferðir, renna fyrir silung, fara í bílferð, til kirkju eða í sund.
í búðunum er íþróttavöllur og leikvöllur. Þegar veður leyfir er safnast saman við varðeld
og söng. í samkomusal eru haldnar helgistundir og fræðslukvöld. I sumarbúðunum er
lögð rækt við sál og líkama.
Sendir verða út gíróseðlar fyrir staðfesting-
argjaldinu, ásamt bréfi með öllum upplýs-
ingum um sumarbúðirnar, t.d. útbúnað og
ferðir.
Flokkaskipting
1. fi.
2. fl.
3. fl.
4. fl.
5. fl.
6. fl.
7. fl.
8. fl.
9. fl.
10. fl.
11. fl.
1. júní - 8. júní stelpur/strákar 8-11 ára
9. júní -16. júní stelpur/strákar 7-11 ára
18.júnf -25.júní stelpur/strákar8-11 ára
27. júní - 4. júlf stelpur7-11 ára
5.júlí —12. júlí stelpur/strákar7-11 ára
14. júlí — 21. júlf stelpur/strákar11-13ára
23. júlf -30. júlf blindir og aldraðir
3. ágúst -10. ágúst aldraðir Selfossi
11. ágúst -18. ágúst orlofskonur Norðurlandi
fjölskyldubúðlr
óráðstafað
Dvalargjald
19. ágúst—21. ágúst
22. ágúst — 29. ágúst
Hægt er að taka á móti hópum og skólum utan þessa
tfma, bæði vor og tiaust.
Innritun
Innritun í sumarbúðir ÆSK við Vestmanns-
vatn er hafin. Hún fer fram hjá Gunnari Rafni
Jónssyni og Steinunni Þórhallsdóttur,
Skálabrekku 17 á Húsavík. Síminn er
96-41668. Innritað er alla virka daga frá kl.
17-20, en einnig má hringja á öðrum
tímum, ef það hentar betur.
Frá og með 30. maí fer innritun fram í
sumarbúðunum við Vestmannsvatn. Síminn
þar er 96-43553.
Við innritun þarf að greiða 2000 kr. staðfest-
ingargjald, sem er óendurkræft, ef umsækj-
andi hættir við dvölina þremur vikum eða
skemur fyrir upphaf hennar. Ella gengur
staðfestingargjaldið upp í dvalargjaldið.
Dvalargjald í barnaflokkum er 7.900 fyrir
barnið. Systkini fá afslátt, og er dvalargjaldið
þá 7.100 kr.
Ungir sem aldnir
Notið tækifærið, látið innrita ykkur strax í
dag. Njótið þess að eiga ykkar sæluviku á
Vestmannsvatni í glöðum hópi, í fagurri
náttúru og endurbættum húsakynnum.
Sjáumst öll hress og kát.
Æskulýðssamband
kirkjunnar í Hólastifti
fltoggroiEIafcfft
MetsöluUaö á hverjum degi!