Morgunblaðið - 09.07.1988, Side 3

Morgunblaðið - 09.07.1988, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JUU 1988 3 Háskólarektor um bréf menntamálaráðherra: Alltaf ástæða til að athuga vinnubrögð Störf dómnefnda ekki undanskilin SIGMUNDUR Guðbjarnason, rektor Háskóla íslands, segir að háskólaráð hafi tekið til umfjöll- unar bréf menntamálaráðherra til ráðsins, þar sem hann leggur til að reglur verði settar um að dómnefndarmenn í Háskólanum uppfylli „hæfisskilyrði" sam- bærileg við þau sem tíðkast við val i dómstóla. Rektor segir að alltaf sé ástæða til að athuga vinnubrögð Háskólans og störf dómnefnda séu þar ekki undan- skilin, enda hafi nefnd um endur- skoðun starfsreglna dómnefnda verið starfandi í Háskólanum i ár. „Við höfum tekið upp ýmis ný- SkútanÚa heil í höfn SKÚTAN Úa, sem lenti í stórviðri síðastliðinn laugar- dag norðvestur af Skot- landi, fannst í gærmorgun um 21 mílu austur af Barra- head, sem er syðst Suður- eyja. Það var skoski fiski- báturinn Shannon sem fann skútuna og dró hann hana til hafnar í Mallaig á Skot- landi. Unnur Steingrímsdóttir, annar eigandi skútunnar, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að svo virtist sem skútan hefði ekki skemmst mikið á ytra borðinu, umfram þær skemmdir sem orðið höfðu í stórviðrinu. Sagði Unnur það einstakt lán að Úa skyldi finnast heil, því stórskerjótt er á þessum slóðum og því höfðu menn alveg eins átt von á að hana myndi taka niðri_ á einhverju skeijanna. Þegar Úa fannst hafði hana rekið um 200 mílur í suðaustur frá staðnum þar sem óhappið varð. Reynir Hugason, hinn eig- andi skútunnar, er væntanleg- ur til Mallaig í kvöld þar sem hann mun fylgjast sem viðgerð og hreinsun á Úu og auk þess munu fulltrúar frá Sjóvá, þar sem skútan er tryggð, fara utan til að kanna skemmdimar nánar. mæli í þessum efnum, til dæmis með því að skipa umboðsmann, sem fylgist með störfum dómnefnda og gætir formsatriða, svo sem þeirra að fyllsta hlutleysis sé gætt,“ sagði rektor. „Reyndar var slíkur um- boðsmaður í dómnefndinni sem dæmdi umsælq'endur um stöðu lekt- ors í stjórnmálafræði, það er Jónat- an Þórmundsson, forseti lagadeild- ar.“ Rektor sagði að háskólaráð hefði ekki tekið endanlega afstöðu til bréfs ráðherra á fundi sínum í gær, enda hefði annað og merki- legra mál legið fyrir fundinum. „Þetta bréf lá fyrir og verður skoð- að gaumgæfilega," sagði rektor. „Það verður metið hvaða atriðum í því er ósvarað í ályktun þeirri, sem samþykkt var á fundinum." Rektor sagði að málið yrði rætt nánar að loknu sumarleyfi háskólaráðs í síðari hluta ágúst. Vegaeftirlit á hálendinu Morgunblaðið/Júlfus Fjallabíll vegalögreglunnar, sem er sérstaklega útbúinn til eftirlits á hálendinu verður á ferðinni nú um helgina til eftirlits og aðstoðar ferðamönnum. Á myndinni, sem er af vegaeftirlitsflota lög- reglunnar, má sjá hálendisbílinn lengst til vinstri, en hann var tekinn í notkun síðastliðið sumar og reyndist mjög vel, bæði hvað varðar eftirlit og aðstoð við ferðalanga á hálendinu. Olíufélögin óska eftir allt að 10% hækkun olíuverðs Hækkunarbeiönin óeðlileg, segir Kristján Ragnarsson formaður LIU VERÐLAGSRÁÐI hefur borist beiðni frá olíufélögunum um 7 til 10% hækkun á bensíni, gasolíu og svartolíu. Að sögn Árna Ólafs Lárussonar, fjármálastjóra Skelj- ungs, er hækkunarbeiðnin til komin vegna hækkandi verðlags í landinu, gengisfellingar og sterkari stöðu bandaríkjadollars. Kristján Ragnarsson, formaður íslenskt flugfélag er í píla- grímaflugi Nýlega hófst pílagrímaflug á vegum flugfélagsins Atlanta, sem er i eigu íslenskra aðila. Alls verður flogið með á fjórða þúsund pílagríma frá ýmsum ríkjum Afríku til Jedda í Saudi- Arabíu. Að sögn Siguijóns Alfreðssonar, starfsmanns Atlanta, hófst pílagrímaflugið 4. júlí og er nýlok- ið flugi frá Níger, en nú er verið að fljúga með pílagríma frá borg- inni Abidjan á Fílabeinsströndinni. Að því loknu verður flogið með pílagríma frá Mið-Afríkulýðveld- inu, Kongó og Burkina. Flugfélagið Atlanta hefur leigt Boeing 707 vél til þessa verkefnis, og starfa 17 íslendingar við það. Að sögn Siguijóns hefur allt geng- ið samkæmt áætlun hingað til. Kreditkort hf. gera þj ónustusamning við Póst og síma Afgreiðsliistöðum fjölgar úr 30 í 122 Eurocard á íslandi hefur gert samning við Póst og síma um aukna þjónustu við við- skiptamenn Eurocard hér á landi. Afgreiðslustaðir Pósts og síma um allt land munu frá 1. október n.k. sjá um þjónustu við kreditkorthafa, auk þeirra banka sem nú þegar veita slíka þjónustu. Þrír bankar eru aðilar að Kred- itkortum hf., Verzlunarbankinn, Útvegsbankinn og Sparisjóður vélstjóra. Afgreiðslustaðir Euroc- ard á íslandi hafa verið um 30 hingað til, en verða við gildistöku samningsins við Póst- og síma- málastofnunina 122 á nánast öll- um þéttbýlisstöðum á landinu. Samningur þessi felur meðal ann- ars í sér bætta þjónustu við er- lenda ferðamenn og aðildarfyrir- tæki Eurocard. Póstafgreiðslur munu frá og með 1. október taka við umsóknum um Euro-kort og öðrum gögnum frá einstaklingum og fyrirtækjum sem viðskipti eiga við Kreditkort hf. Kreditkort hf. er aðili að stærsta greiðsluskiptaneti heims, sem telur um 130 milljón greiðslu- kortanotendur. Morgunblaðið/Bjarni Á myndinni eru f.v.:ÓLafur Tómasson, Póst- og símamála- stjóri, Bragi Kristjánsson, framkvæmdastjóri viðskiptadeildar Pósts og síma, Hallgrímur Jónsson, stjórnarformaður Kredit- korta hf. og Gunnar Bæringsson, framkvæmdastjóri Kredit- korta hf. Landssambands íslenskra útvegs- manna, telur hins vegar að beiðni um hækkun á olíuverði nú sé óeðlileg eins og málum er háttað, ekki síst i ljósi þess að heimsmark- aðsverð fer lækkandi. Að mati Kristjáns þýddi þessi hækkun nú að álagning á olíu hefði hækkað um 48% frá því á sama tima í fyrra. Um forsendur fyrir hækkunar- beiðninni sagði Árni Ólafur Lárusson meðal annars: „Það er dýrtíð í landinu, gengið hefur verið fellt í tvígang og til viðbótar hefur dollar- inn styrkst. Auk þess hefur aldrei verið tekið á því háa heimsmarkaðs- verði á olíu sem var í vetur og vor, en við erum nú að hluta til að selja olíu sem keypt var á því verði“. Varðandi lækkun á heimsmarkaðs- verði að undanfömu sagði Ámi Ólaf- ur að landsmenn kæmu til með að njóta þess með haustinu, ef lækkun- in yrði viðvarandi, en ýmis merki væru um að sú þróun væri nú að stöðvast. Kristján Ragnarsson sagði að það sem olíufélögin væm nú að biðja um væri að gasolíulítrinn hækki úr 8,90 krónum í 9,80 krónur. „Þetta gerist þrátt fyrir það að verðið var hækkað um 8,5% í kjölfar gengisbreytingar- innar og vegna hennar 18. maí síðastliðinn," sagði Kristján. „Síðan kemur verðbreytingarósk frá þeim núna, þrátt fyrir það að 18. maí var skráð verð í Rotterdam 144 dollarar tonnið, en siðastliðinn mánudag var verðskráningin í Rotterdam 125 doll- arar. Verðið hefur því verið að lækka og nemur lækkunin nú um 13%. Þeir biðja samt um 10% hækkun. Að vísu hefur dollarinn hækkað um allt að 5% frá því verðið var síðast ákveðið, en það sem þeir em að biðja um þama er að stórhækka álagningu á olíu, sem þeir höfðu fengið hækk- aða um 28% frá því á sama tíma i fyrra. Þeir em með öðmm orðum að biðja um 48% hækkun á álagn- ingu frá því á sama tíma í fyrra,“ sagði Kristján. „Það er talað um að við útvegs- menn eigum að hagræða og gera betur, en okkur finnst að það megi einnig ætlast til að þessir aðilar geri betur og að þeir, sem hafa grætt á þjónustunni við þennan atvinnuveg alla tíð, taki einhvem þátt í erfiðleik- unum með okkur núna, þegar verð fellur á mörkuðunum. Menn verða einhvers staðar að spyrna við fótun- um gegn því að þessi þjónusta geti endalaust yfirfært allar verðhækk- anir yfir á okkur. Þeir gætu til dæm- is frestað einni eða tveimur nýbygg- ingum á bensínstöðvum,“ sagði Kristján Ragnarsson, formaður LIÚ. Nemar í félagsvísindadeild: Hannes kenni ekki skyldunámskeið FYRIR deildarfundi félagsvís- indadeildar HÍ, sem haldinn verður á mánudag, liggur tillaga frá fulltrúum nemenda um að deildarráð úthluti Hannesi H. Gissurarsyni, nýskipuðum Iektor við deildina, ekki kennslu í skyld- unámskeiðum stjórnmálafræði. Rök nemenda fyrir þessari til- lögu eru þau að Hannes hafi ekki hlotið ótvíræðan hæfnisdóm til að kenna þessi námskeið. „Nemendur hafa vissulega mikið til síns máls,“ sagði Þórólfur Þór- lindsson, forseti féiagsvísindadeild- ar. „Það var hins vegar búið að ganga frá því að Hannes kenndi heimspeki félagsvísinda næsta vet- ur, en það eru ákaflega mörg nám- skeið sem hann getur kennt önnur en skyldufögin, til dæmis stjórn- málaheimspeki.“ Þórólfur sagðist telja að deildin stæði frammi fyrir þó nokkru vandamáli, þar sem Hannes hefði ekki verið dæmdur hæfur til að kenna skyldunámskeiðin. „Þetta er vandamál, sem kemur áreiðanlega upp aftur á næsta hausti," sagði Þórólfur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.