Morgunblaðið - 09.07.1988, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
Rekstur Tívolísins í Hvera-
gerði tryggður út árið
- segir Ólafur Ragnarsson, stjórnarformaður Skemmtigarðsins hf
ÖLL tæki og verkefni í Tívolíinu í Hveragerði hafa nú verið leigð
út og að sögn Ólafs Ragnarssonar, stjórnarformanns fyrirtækisins,
tryggir það áframhaldandi rekstur, a.m.k. fram að næstu áramótum.
Hæstiréttur felldi síðastliðinn miðvikudag niður greiðslustöðvun
Skemmtigarðsins hf. sem rekur Tívolíið. Bú félagsins var afhent
skiptaráðanda í gær til gjaldþrotaskipta.
Rekstur í Tívolíinu hefur venð
leigður alls 6 einstaklingum sem
flestir eru fyrrverandi starfsmenn
fyrirtækisins. Hæstiréttur felldi á
miðvikudag niður greiðslustöðvun
Skemmtigarðsins hf. en hún hafði
verið heimiluð til þriggja mánaða
um miðjan júní. Á stjómarfundi
félagsins sem haldinn var á fimmtu-
dag var ákveðið að afhenda skipta-
ráðanda bú Skemmtigarðsins hf. í
gær til gjaldþrotaskipta.
Ólafur Ragnarsson segir að
leigusamningamir tryggi að þrota-
búið fái fastar leigutekjur. „Verði
búið tekið til gjaldþrotaskipta hefur
það sömu áhrif og greiðslustöðv-
un,“ segir Ólafur. „Lánadrottnar
geta ekki leitað kröfum sínum fulln-
ustu í þrotabúinu. Þannig er rekstur
tívolísins tryggður, a.m.k. fram að
næstu áramótum en þá rennur
helmingur leigusamninganna út.“
Skiptaráðandi í Reykjavík á hins
vegar eftir að fjalla um mál búsins.
Verði það tekið til gjaldþrotaskipta
ráða hagsmunir lánadrottna mestu
um meðferð þess samkvæmt gjald-
þrotalögum.
í greinargerð Skemmtigarðsins
hf. til Hæstaréttar, vegna fyrr-
nefnds kærumáls um greiðslustöðv-
un, kom fram að eignir félagsins
væru um 80 milljónir en skuldir 75
milljónir króna. Sóknaraðili máls-
ins, Rúnar Mogensen hdl. fyrir hönd
Lífeyrissjóðs Suðurlands og Vél-
smiðjunnar Faxa, taldi aftur á móti
að skuldir félagsins umfram eignir
næmu 90 milljónum króna.
Ólafur Ragnarsson leitaði í
síðasta mánuði aðstoðar fógeta til
að fá afhent bókhaldsgögn
Skemmtigarðsins hf. og innkomna
leigu á þessu ári frá Sigurði Kára-
syni, fyrrum framkvæmdastjóra
fyrirtækisins. „Sigurður Kárason
telur sig eiga haldsrétt í átta til níu
milljónum króna í víxlum og skulda-
bréfum, en um er að ræða fyrirfram
greidda leigu," segir Ólafur Ragn-
arsson. „Löggiltur endurskoðandi á
mínum vegum tók við bókhaldinu
í síðustu viku og afhenti skiptaráð-
anda það í gær. Bókhaldið sýnir
hvort Sigurður hafi varið leigutekj-
unum í þágu Skemmtigarðsins hf.
eða ekki og skiptaráðandi hlýtur
að meta það.“
1/EÐURHORFUR í DAG, 9. JÚLÍ 1988
YFIRLIT Í GÆR:
Skammt norður af Skotlandi er 1003 mb. lægð sem þokast austur
og önnur grynnri en kyrrstæð ó Grænlandshafi — en um 900 hm.
Suður í hafi er vaxandi 1003 mb. lægð sem hreyfist austnorðaust-
ur. Hiti breytist lítið.
SPÁ: ( dag verður hæg breytileg átt á landinu. í innsveitum verður
víða léttskýjað og fremur hlýtt, en skýjað og svalara við sjóinn.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG: Austlæg átt, skýjað og dálítil úrkoma á
suðaustur og austurlandi, en þurrt og víða léttskýjað um vestan-
vert landið. Svalt við austurströndina, en annars fremur hlýtt.
HORFUR Á MÁNUDAG:Norðaustanótt. Skýjað og dálitil súld á
norður- og austurlandi, en þurrt og víða lóttskýjað um sunnan- og
vestanvert landið. Heldur kólnandi veður.
TAKN:
O Heiðskírt
Léttskýjað
^ Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* ■* *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V
Él
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO
4
K
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
w m w
T 4
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 13 lóttskýjað
Reykjavfk 11 alskýjað
Bergen 15 skýjað
Helsinki 22 skýjað
Kaupmannah. 18 skýjað
Narssarssuaq 8 léttskýjað
Nuuk 5 rigning
Osló 19 skýjað
Stokkhólmur 21 háifskýjað
Þórshöfn 11 alskýjað
Algarve 26 heiðskírt
Amsterdam 15 léttskýjað
Aþena 17 skúrir
Barcelona 26 léttskýjað
Chicago 23 mistur
Feneyjar 28 léttskýjað
Frankfurt 23 skýjað
Glasgow 12 skúr
Hamborg 19 skýjað
Las Palmas 23 léttskýjað
London 17 skýjað
Los Angeles 16 skýjað
Lúxemborg 18 skýjað
Madrid 25 léttskýjað
Malaga vantar
Mallorca 28 léttskýjað
Montreal 23 skúr
New York 26 mistur
París 19 skýjað
Róm 28 alskýjað
San Diego 18 alskýjað
Winnipeg 17 léttskýjað
Á myndinni eru, talið f.v.: Sverrir Þórðarson, í stjórn Visindasjóðs-
ins, Jónas Magnússon, læknir, Ingibjörg Ásgeirsdóttir, yfiriðjuþjálfi,
sem tók við styrknum fyrir hönd Guðrúnar Árnadóttur, Gunnar
Sigurðsson, yfirlæknir, Haraldur Erlendsson, læknir, og Magnús
Skúlason, aöstoðarframkvæmdastjóri Borgarspítalans.
Fjórir hlutu styrki
úr Vísindasjóði
Borgarspítalans
ÚTHLUTUN styrkja úr Vísinda-
sjóði Borgarspítalans fór fram
14. júní síðastliðinn. Styrki hlutu
Guðrún Arnadóttir, iðjuþjálfi,
Gunnar Sigurðsson, yfirlæknir,
Jónas Magnússon, læknir og
Haraldur Erlendsson, læknir. Að
þessu sinni var úthlutað styrkj-
um, sem voru samtals að upphæð
600 þúsund krónur.
Guðrún Ámadóttir, iðjuþjálfi,
hlaut 200 þúsund krónur til að full-
vinna og ganga frá rannsóknum er
lúta að þróun iðjuþjálfamats. Til
rannsóknar á „immunoglobulinum"
í sermi sjúklinga með of mikla starf-
semi í skjaldkirtli fékk Gunnar Sig-
urðsson, yfirlæknir, krónur 150
þúsund. Jónas Magnússon, læknir,
hlaut 150 þúsund krónur í styrk til
að vinna að doktorsritgerð við Há-
skólann í Lundi. Ennfremur fékk
Haraldur Erlendsson, læknir, 100
þúsund krónur í styrk til þess að
meta árangur geðdeyfðarlyfja, sem
gefin eru sjúklingum með „intra-
venous infusion" og verka eiga á
„kroniska" verki á stoðkerfis- eða
taugagrunni.
Vísindasjóður Borgarspítalans
var stofnaður árið 1963 til minning-
ar um Þórð Sveinsson lækni og
Þórð Úlfarsson flugmann. Tilgang-
ur sjóðsins er að stuðla að og styrkja
vísindalegar athuganir, rannsóknir
og tilraunir, sem fara fram á Borg-
arspítalanum eða í náinni samvinnu
við hann.
Engin skreið ólög-
lega til Nígeríu
„ÞAlÐ var engin skreið flutt út ólöglega til Nígeríu. Það fengust
innflutningsleyfi fyrir öllum skreiðarformum þangað, það eru alveg
hreinar línur,“ sagði Einar Ingvarsson, sem var formaður nefndar
þeirrar sem gerði úttekt á skreiðarskuldum í Nígeríu. Einar var
spurður út í ummæli Alhaji Mammans, viðskiptaráðherra Nígeríu,
sem sagði í heimsókn sinni hér á landi að Nigeríumenn myndu borga
þá skreið sem flutt hefði verið inn löglega til landsins.
Ólafur Bjömsson hjá Samlagi
skreiðarframleiðenda tók í sama
streng og Einar. Stefán Gunnlaugs-
son, deildarstjóri hjá utanríkisráðu-
neytinu kvaðst telja að ráðherrann
ætti með ummælum sínum við vöru
sem flutt hefði verið ólöglega inn í
gegnum nágrannaríki Nígeríu, svo
sem Kamerún, en smygl þaðan
væri mikið vandamál.
Einar Ingvarsson sagði að
greiðslur upp í skreiðarskuldirnar
væru sífellt að berast, m.a. hefði
Sambandið nýlega fengið greidda
eldgamla skuld að upphæð 650.000
dollarar, eða um 30 milljónir
íslenskra króna. Þó að skuldirnar
yrðu að fullu greiddar yrði samt
stórfellt tap á skreiðarsölunni, biðin
eftir greiðslunum væri svo löng.
Skýrsla um skreiðarviðskiptin við
Nígeríu, sem birt var fyrr á þessu
ári sagði útistandandi skuldir vegna
viðskiptanna nema 824 milljónum
króna og þar af voru nærri 440
milljónir taldar glatað fé.
Borgarbókasaf n:
Gerð verði tilraun með
útlán á vinnustöðum
BORGARSTJÓRN hefur vísað til
menningamálanef ndar
Reykjavíkur tillögu Alþýðu-
bandalagsins um að gera tilraun
með útlán bóka frá safninu á
7-10 vinnustöðum í Reykjavík.
Tillagan gerir ráð fyrir að bóka-
skáp með blönduðum bókakosti
verði komið fyrir í fyrirtækjum og
geti starfsmenn óskað eftir ákveðn-
um bókum við Borgarbókasafnið.
Tilraunin standi í eitt ár og að henni
lokinni verði tekin frekari ákvörðun
um útlán með þessum hætti.
I greinargerð tillögunnar segja
Alþýðubandalagsmenn að það muni
hvetja og auðvelda fólki að fá bæk-
ur að láni ef það getur nálgast þær
á vinnustað sínum. Þannig sé líka
vakin meiri athygli á starfsemi
safnsins og því aflað nýrra við-
skiptavina.
Davíð Oddsson borgarstjóri sagði
tillöguna góða. Fordæmi væru fyrir
svipuðum útlánum, en Borgarbóka-
safnið hefði um árabil lánað bóka-
kassa um borð í skip. Lagði borgar-
stjóri til að tillögunni yrði vísað til
menningarmálanefndar borgarinn-
ar, sem sjái um frekari útfærslu
hennar.