Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
7
Risaganga í Langá
„Ég segi allt alveg rosalega
gott, Jóhannes á Ánabrekku kom
til mín áðan og sagðist hafa séð
í morgun þá stærstu laxagöngu
upp Langá sem hann hefur séð
síðan sumarið 1972. Alveg rosa-
legar torfur, fleiri hundruð laxa
og þegar þetta fór allt af stað var
eins og botninn færi allur af stað
á stórum svæðum. Samfara þessu
hefur verið mokveiði, bæði hjá
okkur á miðsvæðinu og niður frá
hjá Jóhannesi," sagði Ingvi Hrafn
Jónsson í veiðihúsi sínu við Stang-
arholti hjá Langá, en veiðin hefur
þar heldur betur tekið kipp að
undanfomu eftir slæman kafla
meðan vatnavextimir gengu yfir.
Ingvi Hrafn sagði enn fremur
að 11 laxar hefur veiðst á sínum
svæðum í gærmorgun, 15 stykki
daginn áður og 21 lax þar á und-
an. Alls komnir 63 laxar, nær
allir frá og með 3. júií. Niður frá
hefur verið stórveiði og veiðin í
ánni í heild er nú orðin svipuð og
á sama tíma í fyrra þrátt fyrir
að áin hafí verið óveiðandi í 10
daga.
Óhemjaaf laxi í Hvítá.
Um 120 laxar hafa veiðst í
Hvítá í Ámessýslu fyrir landi
Langholts það sem af er. Á þriðju-
daginn voru laxamir 102 talsins
og einungis 17 þeirra léttari en
tíu pund hver. Meðalþunginn mjög
hár og miklir stórlaxar þama inn-
an um. Einn stærsti lax sumarsins
veiddist þama fyrir skömmu, 25
punda fískur og menn hafa séð
þama þó nokkra laxa sem em
vart undir 30 pundum. Handan
árinnar, í landi Snæfoksstaða hef-
ur einnig verið nokkur veiði og
það bar til tíðinda fyrir nokkm,
að menn sem þar voru að veiðum,
sáu þá stærstu göngu fara í gegn
sem þeir höfðu augum litið og em
þeir þó nauðakunnugir á þessum
slóðum og víðar. Það sem vakti
ekki minni undmn þeirra var hve
mikið af laxinum var gríðarstór,
20 til 30 punda ferlíki á lofti um
allt. Mikil fískför hefur einnig
sést á pallinum hjá Selfossi og
veiði verið allgóð á köflum.
Lélegt, í Laxá í Aðaldal.
Veiði hefur verið slök í Laxá í
Aðaldal og er fyrst og fremst um
kennt leirlosi í Mývatni sem hefur
litað ána illa. Veiðimenn eiga því
erfítt með að átta sig á því hvort
mikill fískur sé genginn í ána,
sérstaklega á efri svæðum. Aftur
á móti verða menn nokkuð varir
neðan Æðarfossa og samkvæmt
því virðist sem laxinn sé alltaf að
ganga þótt illa gangi að veiða
hann ofan Fossa. Sem dæmi um
tregðuna má nefna, að Þórður
Pétursson veiðivörður var í ánni
fyrir skömmu og er hann einhver
Veiðimaður rennir í Langholtinu fyrir skömmu, en þar er óhemja
af fiski þessa dagana og góð veiði.
slyngasti Laxármaður sem uppi
er. Hann fékk 7 laxa á sinni vakt
neðan Æðarfossa, en var físklaus
ásamt félaga sinum á hinum vökt-
unum. Áður en gruggið hljóp í
ána hafði þó orðið vart við lax
upp um allt og fískar jafn vel
veiðst á Vallarvaði og á Hrauni.
Enn rýrt í Stóru Laxá.
Enn gengur hvorki né rekur í
Stóru Laxá, en áin er enn vatns-
mikil mjög og gerir það mönnum
erfítt fyrir, enda áin engin
spræna. Mikil fískför í Ölfusá og
Hvítá hefur þó vakið vonir með
mönnum að úr fari að rætast á
næstunni. Eitthvað er þó komið
af físki og menn eru að reita upp
einn og einn, t.d. yeiddist 22
punda lax við Bergsnös fyrir fáum
dögum. Einn klókur Laxárkarl
sem rætt var við í gær taldi líklegt
að talsvert af fiski væri komið í
ána, hann væri hins vegar ekki á
hefðbundnum miður í svona miklu
vatni og margir flöskuðu á því.
Hann stakk upp á að menn veiddu
hyljina langtum neðar en vant er
og leituðu fanga niður eftir öllu
svæði eitt, allt niður undir Eiríks-
bakka, þar lægi fískurinn oft þeg-
ar svona hagaði til.
Sauðárkrókur:
Skortur á
íbúðum
Sauðárkróki.
Undirbúningsfundur um stofn-
un félags til byggingar kaupleigu-
íbúða var haldinn á Sauðárkróki
um miðjan júni sl. Mættir voru á
fundinum fulltrúar Sauðárkróks-
kaupstaðar og allra stærstu fyrir-
tækja bæjarins, sem lýstu sig fúsa
til þátttöku í félaginu.
• Tilefni fundarins var að fjalla um
nýsamþykktar breytingar á lögum
um Húsnæðisstofnun ríkisins, sem
opnar möguleika á byggingu kaup-
leiguíbúða.
Fram kom á fundinum að mikil
þörf er fyrir aukið íbúðarhúsnæði í
bænum, en á síðasta ári var ekki
hafín bygging neinnar íbúðar, en
aukning á íbúafölda var þónokkuð
yfir landsmeðaltali. Töldu fundar-
menn nauðsynlegt að Sauðárkrókur
missti ekki af þessu tækifæri til að
fjármagna byggingar íbúðarhúsa á
staðnum og var samþykkt að senda
Húsnæðisstofnun umsókn um lán til
byggingar á 20 íbúðum, þar af 14 í
fjölbýlishúsum en 6 í raðhúsum.
Gert er ráð fyrir 15 mánaða fram-
kvæmdatfma og er hugsanlegt ef
allt gengur upp, að framkvæmdir eða
að minnsta kosti undirbúningur und-
ir framkvæmdimar geti hafist þegar
f haust.
í undirbúningsnefnd fyrir form-
lega félagsstofnun um þessi mál voru
kosnir: Snorri Bjöm Sigurðsson bæj-
arstjóri, Guðmundur Guðmundsson
framkvæmdastjóri Trésmiðjunanr
Borgar og Guðbrandur Þorkell Guð-
brandsson skrifstofumaður hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga.
- BB
TORFÆRUKEPPNI RIKR
Sunnudaginn 10. júlí kl. 13.00
á Bolaöldu, gegnt Litlu-kaffistofunni
í Svínahrauni
Kynnir verður hinn eldhressi Jón Ragnarsson, rallkappi