Morgunblaðið - 09.07.1988, Side 10

Morgunblaðið - 09.07.1988, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 ítfairíM ffiáQ Umsjónarmaður Gísli Jónsson Hlegið var að manninum fyrir norðan sem sagði um ömmu sína á tíræðisaldri að hún væri komin á hundraðasta tuginn, enda hefði hún þá ver- ið orðin jafnaldra Metúsalems hins langlífa í Gamla testa- mentinu. Maðurinn fyrir norð- an var að vísu lítt eða ekki skólagenginn, en það er trú- lega fréttamaðurinn í útvarp- inu sem sagði um daginn (27. 6. ’88) að Leon Trotsky hefði fallið í ónáð á „tuttugasta ára- tugnum". Þetta mun reyndar hafa gerst á árabilinu 1920-’30, og má vera að orð fréttamannsins sé bönguleg þýðing úr ensku: in the twenti- es. En fyrr má nú vera hugs- unarleysi og málhelti. Bjami Guðmundsson á Hvanneyri í Borgarfirði sendi mér iðnaðarblaðið A döfinni. Hann merkti þar við og gerði athugasemdir við eftirfarandi kafla (tölusetningar eru frá honum): „Hægt er að hugsa sér að til þess að leysa tiltekið vanda- mál') væri best að setja saman rannsóknahóp, sem væri sam- settur úr líffræðingi, verk- fræðingi, viðskiptafræðingi og þjóðfélagsfræðingi2). Slíkan hóp væri erfítt að mynda ann- ars staðar en í Háskóla Is- lands.. ,“3) Athugasemdir Bjama: „0 Allt er orðið að „vanda- málum“ í dag, meira að segja spennandi rannsóknaverkefni! 2) Merkilegur samsetningur þetta, enda ekki á færi ann- arra en lærðustu manna 3> að leysa „vandamálið“.“ Siguijón Halldórsson á Ak- ureyri skrifar mér langt bréf og efnismikið, og mun ég nú hefjast handa um að gera því nokkur skil. Sigurjón tekur fyrst þijú dæmi um þágufallshneigð sem honum fínnst ganga út í öfgar: 1) „Skammta svolítilli tón- list“. 2) „Fjárfesta miklu fé“. 3) „Rústa málinu“. Hann segir: „Sögnin að rústa er orðin hluti af dægur- máli unglinga, en þá ævinlega með þágufalli. Dæmi: Hann dúndraði á staurinn og rústaði bflnum. Ég vil halda fomri venju og nota þolfall, þykir sögnin enda svipmeiri þannig: Hann greip kúbeinið og rúst- aði skriðdrekann." Umsjónarmaður tekur í sama streng og Siguijón og bætir við: Sögnin að skammta tekur með sér tvöfalt andlag, þágufall persónunnar og þol- fall hlutarins. Menn skammta einhverjum eitthvað. Vænt- anlega er átt við það í dæm- inu, sem Siguijón tók, að ein- hveijum hafi verið skömmtuð svolítil tónlist fremur en ein- hver hafí skammtað „svolítilli tónlist" eitthvað. Að vísu má segja með lærdómshnykk að „svolítilli tónlist“ gæti verið verkfærisþágufall, ef þetta merkti þá að skammta með svolítilli tónlist (og enn frekar ef skammta væri ritvilla fyrir skemmta), en þessi skýring er afar langsótt og að engu hafandi. Að mínu skyni stýrir sögnin að festa þolfalli, en hún er til með þágufalli. Sumir sjómenn tala um að festa bátnum. En að „fjárfesta miklu fé“ er stagl að auki, fé á fé ofan. Næst víkur Siguijón að hneigð manna til að sleppa beygingarendingum eða fara rangt með þær. Full ástæða er til þess að drepa á þetta: Beygingakerfí máls okkar er í bullandi hættu. Siguijón tek- ur þessi dæmi: 1) „Allt á kafi í fisk“. 2) „A jaðar dægurtónlistar- innar“. 443. þáttur Hann segir: „Sérviska mín [er sú að] ég held því ávallt fram, að pipar skuli beygja eins og hamar (og jaðar) og segja þá t.d. að fullmikið sé af pipri í matnum. Viðmæl- endur mínir taka sjaldnast undir þetta, og leggi ég til að eins sé farið með koparinn (ketillinn er úr kopri) er snar- lega skipt um ræðuefni.“ Hér grípur umsjónarmaður öðru sinni fram í fyrir Sigur- jóni. Fyrst af öllu langar mig til að vekja athygli á málnæmi Siguijóns. Hann segir „skipt um ræðuefni“, því að staglið skipta um umræðuefni hefur meitt málkennd hans. Sjálfsagt þykir mér að segja að allt sé á ícafi í fiski og eitt- hvað sé á jaðri dægurtónlist- arinnar. En þegar kemur að tökuorðunum kopar og pipar, vandast málið í bókstaflegri merkingu. Ég veit ekki nema Siguijón sé þar óþarflega mik- ill harðlínumaður, þótt orð- myndir hans séu ekki mál- fræðilega rangar. Sjálfur segi ég stundum að gamni mínu „eina teskeið af pipri“ eða þvílíkt. En ef ég væri að vanda mig við greinarskrif, treysti ég mér ekki til að ijúfa hefð- ina og segja að tiltekinn hlutur væri úr „kopri". Þetta er ákaflega erfítt úr- lausnarefni, ef þreytt er til þrautar, og sleppi ég því öllu málfræðistagli um það. Verður svo bið á því til næsta þáttar að gera bréfí Siguijóns Halldórssonar frek- ari skil. Reyndar á ég nokkrum bréfum ósvarað, og bið ég góða bréfritara að sýna mér þolinmæði. Bréfín eru geymd og ekki gleymd. ★ Áslákur austan kvað: Mér brá. Þar sem áður hún Sara sat, ég sá ekki annað en bara gat ofan í svörðinn. Það opnaðist jörðin. Um hríð sá í iljar á Arafat. MEINLÆTI Myndlist Bragi Ásgeirsson Marin Heidegger hefur þetta um listaverk að segja, „að þau varpi jörðinni sjálfri út í opinn heiminn og haldi henni innan hans. Lista- verk leyfir jörðinni að verajörðin.“ Þetta getur að lesa í lok mjög hugmyndafræðilegs formála í sýn- ingarskrá myndlistarmannsins Al- an Johnston vegna sýningar hans, sem lýkur nú um helgina og hefur þá einungis staðið yfir í átta daga. Intak hinna örfáu mynda á veggjum Nýlistasafnsins er myndrænt mein- læti í formi táknrænna flatamynda og heilmiklu af hugmyndafræði ásamt skáldlegri djúphygli. Og svo aftur sé vitnað í Heidegg- er: „Uppbygging staða er skipulag heimsins. Til að finna stað sinn í heiminum þarf heimurinn að vera „cosmos" þ.e. skipulegur og sam- stilltur. Staður staðsetur manninn 011 KH 01 Q7fl LÁRUS Þ- VALDIMARSOIM L I I v)w ’ L I 0 / U LÁRUS BJARNASON HDL. LÖGG. FA l\l SÖLUSTJÓRI FASTEIGNASALI Til sýnis og sölu auk annarra eigna: Rétt við nýja miðbæinn 3ja herb. fb. á 3. hæð, um 90 fm ( suðurenda. Vel skipulögð. Nýl. gler. Rúmgóðar svalir. Ágæt sameign. Skuldlaus. Góður bílskúrfylgir. Skipti æskileg á 2ja-3Ja herb. fb. (lyftuhúsi. Ódýr íb. í gamla bænum 2ja herb. einstaklingsíb., 45,5 fm. Vel með farin. Samþykkt. Stór, vel ræktuö eignarlóð. Langtímalán fylgir. Verð aðeins kr. 2,3 millj. Bjóðum ennfremur til sölu 2ja herb. glæsil. suðuríb. í lyftuhúsi við Álftahóla. Frábært útsýni. 3ja herb. endurnýjuð þakhæö í gamla austurbænum. Gott verð. 4ra herb. góð hæð í þríbhúsi skammt frá Háskólanum. Skammt frá Dalbraut Bjóðum á næstunni 4ra herb. endaíb. með miklu útsýni. Nánari uppl. á skrifst. Óvenju hagstæð greiöslukjör koma til greina. Þurfum að útvega m.a. fjársterkum kaupendum vegna flutnings til borgarinnar: Nýlegt einbhús, um 200 fm á einni hæð í borginni eða nágr. 3ja herb. nýlega íb. á 1. hæð í Vesturborginni. 3ja herb. góða íb. i Hlíöahverfi. Einbhús í Ártúnsholti eða Selási. Einbhús í Heimum, Vogum eða Smáíbúðahverfi. 3ja-4ra herb. íb. i Garöabæ. Skípti mögul. á sérhæð. Margir bjóða útb. fyrir rótta eign. Margskonar eignaskipti möguleg. Opið í dag laugardag kl. 11 til kl. 16. Fjöldi fjársterkra kaupenda. Almenn lögfræðiþjónusta. AIMENNA FASTEIGHASALAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21160 - 21370 Vandað timburhús til sölu i Hafnarfirði Á friðsælum stað í miðbænum er til sölu fallegt og vel byggt, járnvarið timburhús í mjög góðri hirðu. Húsið er 75 fm að grunnfl., - aðalhæð, rishæð og steyptur kj. m. fullri lofthæð, alls 200 fm. Á aðalhæð eru tvær stórar stofur, herb. og eldh. í rishæð eru þrjú herb., eldh., bað og svalir. Tvöf. verksmgler. Falleg lóð. Einkasala. Opið í dag frá kl. 12-17. Arni Gunnlaugsson, hrl., Austurgötu 10, sími: 50764. þannig að hann upplýsir ytri fjötra tilveru hans og jafnframt dýpt frels- is hans og veruleika. Eðlislæg tengsl mannsins við stað eru fólgin í „bústað“. Bústaður sameini bygg- ingu, jörð, himin, guði og manninn og þegar samruninn er algjör, má einkenna landafræðilegt rými sem „heilagt", þ.e.a.s. það gagntekur sálrænt." Samuel Beckett orðar þetta þannig, „að þetta sé „mikro- cosmopolitan universe" („smá- heimsborgara alheimur"). Slíkt er samtengt sem sálrænt landsvæði.“ „Ef landslagið gagntekur sálrænt, þá fara staðfræðilegir þættir að gegna sálfræðilegu hlutverki. Það gerist í „Finnegans Wake“. Kennet White víkur frá ákveðinni ytri landafræði að „andlegri landa- fræði", reynir að finna megindrætt- ina með sálrænni heimslýsinga- fræði — fjallar um hliðstæður kelt- nesks menningararfs og japansks zenbúddisma. Hann segir: „Hér beinum við augunum að vestasta hluta Evrópu . . . eina heildin á þessu svæði er keltneska hafið. Að öðru leyti eru brot ráðandi; skagar og eyjar sem brotsjóir skilja að. Hvert svo sem upphafið (þjóðanna sem búa á þessum svæðum) kann að vera einkennist svæðið snemma á miðöldum af afbrigði kristindóms sem á fátt sameiginlegt með róm- versku meginlandskirkjunni. ‘Agreining kirkjudeildanna tveggja má í stuttu máli skilgreina sem ágreining eyjaklasakirkju og stofn- anakirkju." White setur þessa landafræði fram sem „anarkiska". Hann heldur áfram og segir: „í framkvæmd nær hún hápunkti í hugmyndinni um meinlætalifnað sem tekur á sig mynd víðfeðmra pílagrímsferða; að oftirselja eigið sjálf „vindum guð- anna“.“ Wado Emerson: „Standandi á auðri jörð — öll smásjárleg sjálfs- dýrkun hverfur. Ég verð gagnsær augasteinn; ég er ekkert, ég sé allt; straumar Alheimsverunnar fara um mig; ég er hluti og bútur af Guði.“ Þannig má útskýrir tilgang ein- földustu tákna og meinlæti á mynd- fleti og ekki efast ég eitt augnablik að það hafi gildan tilgang í sjálfu sér. Getur jafnvel verið skemmtilegt fyrir innvígða að fara á þann hátt að hlutunum og gefur óþijótandi möguleika fyrir iðkendurna — en eru sjónrænt séð fullkomlega lokuð bók fýrir venjulegt fólk. Stendur þó fullkomlega fyrir sínu hug- myndafræðilega séð. Arki þeir sem áhuga hafa á Ný- listasafnið við Vatnsstíg . . .

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.