Morgunblaðið - 09.07.1988, Page 11

Morgunblaðið - 09.07.1988, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 11 Sextug kona tekur prestvigslu: Fæ allan mínn kraft frá Guði MEÐAL þeirra sex presta sem vígðir voru í Dómkirkjunni 2.júlí sl. var sextug kona, sr. Ólöf Ólafsdóttir. Það þykir ekki lengur tíðind- um sæta að kona gegni prestsembætti hér á landi, en óvenjulegra er að nývígður prestur sé kominn yfir sextugt. Blaðamaður hitti sr. Ólöfu að máli til að fræðast um tildrög þess að hún lagði fyrir sig guðfræði og prestskap. „Ég lauk guðfræðinámi frá Há- skóla íslands vorið 1987, en bætti við mig námi í félagsráðgjöf nú í vetur, með sérstakri áherslu á tryggingalöggjöf. Fyrir 20 árum varð ég ekkja, og stóð þá skyndi- lega ein eftir með þtjú ung böm. Það var ákaflega erfitt og ég hefði ekki getað lifað án Guðs. Þegar yngsti strákurinn minn fór í menntaskóla ákvað ég svo að drífa mig í guðfræðina. Ég var með stúd- entspróf frá 1947 og kennarapróf frá 1969. Ég kenndi aðeins í tvö ár en vann í erlendu bókadeildinni í Bókaverslun Snæbjamar þangað til ég fór í Háskólann. Ég hafði alltaf lesið mikið en var farið að langa til að lesa skipulega og guð- fræðin var það eina sem kom til greina." - Hefurðu engar áhyggjur af því að þetta verði of erfítt? „Styrkur manneskjunnar felst í því að gera sér grein fyrir að sjálf- ur er maður ekkert. Páll postuli sagði: „Allt megna ég fyrir þann sem mig styrkan gjörir". Ég fæ allan minn kraft frá Guði, og þá á ég við raunverulegan, lifandi kraft. Eg hef verið einstæð móðir í 20 ár og það er óhemju erfítt. En það er dásamleg reynsla að biðja Guð um hjálp, bugaður af sorg og þreytu, og vakna upp að morgni áhyggju- laus og tilbúinn að mæta nýjum degi. Það er einskonar upprisa í daglega lífinu. Erfíðast af öllum störfum er starf húsmóðurinnar. Móðurhlutverkið hjálpar manni að skilja óeigingjam- an og takmarkalausan kærleika Guðs, enda líkja spámennimir Jer- emía og Jesaja kærleika hans við móðurkærleikann. Kærleikurinn er það sem mestu máli skiptir í Krist- inni trú og því held ég að enginn geti átt betri grundvöll til að byggja á sitt prestþjónustustarf, en sú sem hefur verið húsmóðir og móðir. Ég er líka hraust og þakklát fyr- ir það. Ég hef reynt að hugsa vel um heilsuna, stunda leikfími og sund. Meðalaldur íslenskra kvenna er rúm 80 ár og mér fínnst það vera skylda manns að gera leggja sitt af mörkum til að halda líkaman- um í lagi eins lengi og kostur er.“ - Hvernig líst þér svo á nýja starfið? . „Ég hlakka til að takast á við þetta starf. Mig hefur alltaf langað til að vinna við einhverskonar stofn- un, sjúkrahús eða þess háttar, og fínnst það meira spennandi en að verða almennur sóknarprestur. Ég vil líka vera í Reykjavík, þar sem ég er fædd og upp alin. í ómanneskjulegu þjóðfélagi, þar sem hraði og tímaskortur ráða ríkjum, gefur fólk sér sjaldan tíma til að sinna eldra fólki og bömum. Viðskipta- tengsl í hálfa öld Morgunblaðið/Einar Falur Sr. Ólöf Ólafsdóttir, sem mun gegna prestþjónustu við Umönnunar- og hjúkrunarheimilið Skjól. Að mínum dómi er mikil þörf á að fjölga prestum hér í fjölmenninu. Við stórar sóknir ættu að vera fleiri en einn prestur. Fólkið þarf að geta leitað ráða og talað við prestinn sem á að geta leiðbeint því í trúarlegum og andlegum efnum og hjálpað því að takast á við aðsteðjandi vanda. Sóknarpresturinn þarf að ná til allra kynsióða og það er ofvaxið einum manni að sinna t.d. 4000 manna sókn. Umönnunar- og hjúkrunarheimi- lið Skjól, þar sem ég hef verið ráð- in frá 1. júlí verður um 100 manna heimili. Til að byrja með verð ég í hálfu starfí en ætla að bæta við mig eftir því sem þörf krefur. Ég aflaði mér félagslegrar menntunar til að geta verið ráðgefandi og til að hjálpa fólkinu að fóta sig í sam- félaginu. Hlutverk mitt verður að veita alla prestþjónustu og félags- lega ráðgjöf eftir bestu getu. Það er tilhneiging í öllum fræðigreinum að líta á manneskjuna sem eina heild og meðhöndla hana sem slíka. Hún hefur trúarlegar-, félagslegar- og líkamlegar þarfír sem öllum þarf að sinna.“ -GHS UM þessar mundir eru liðin 50 ár frá því að Stefán Thorar- ensen, apótekari, hóf viðskipti við svissneska lyfjafyrirtækið F. Hoffmann-La Roche. Af því tilefni voru fyrir skömmu staddir hér á landi dr. A. F. Leuen- berger, varaformaður stjómar F. Hoffmann-La Roche, og dr. W. A. Wemer, forstjóri Roche A/S í Kaupmannahöfn. F. Hoffmann-La Roche er langstærsti viðskiptavin- ur Stefáns Thorarensen hf. Starfs- menn fyrirtækisins telja 47 þúsund um allan héim, en aðalstöðvar þess em í Basel í Sviss. Morgunblaðið/KGA W. A. Werner, A. F. Leuenberger og Bjarni Bjarnason, forsljóri Stefáns Thorarensen hf. Bjarni heldur á glerlistaverki sem Werner og Leuenberger færðu Stefáni Thorarensen hf. að gjöf í tilefni hálfrar aldar viðskipta við fyrirtækið. Meira almenns eðlis Raunvísindi Egill Egilsson í síðustu grein var rætt um rannsóknir almennt og skiptingu þeirra í grunnrannsóknir og hag- nýtar rannsóknir. Við vorum kom- in þar sem verið var að lýsa gildi gmnnrannsókna og ástæðum til þess að þær væm stundaðar, þó svo að ekki væri sjáanlegt hag- nýtt gildi þeirra að svo stöddu. Við tökum hér enn eitt dæmi um að gmnnrannsóknir sanni hagnýxt gildi sitt löngu eftir að þær hafa farið fram. Tölvurnar og rökfræðin Fyrir fáum áratugum var varla hægt að hugsa sér hugvísinda- legri fræðigrein en rökfræðina. Þessi grein hefur þróast allt frá því á fomöld mannkyns, og hefur heyrt undir eða verið talin hliðar- grein heimspeki. Hin sígilda rök- fræði snerist um að setja hugsun- inni skorður, einkum þegar álykt- anir væm dregnar að gefnum for- sendum. Á síðustu öld tekur þessi fræðigrein að þróast og öðlast gildi sem hjálpargrein stærðfræð- innar. Áður en tölvur verða til úr þessari deiglu, kemur til skjalanna önnur vísindagrein sem á rætur að rekja til eðlisfræðinnar. Þar er sú rafeindafræði veikra raf- strauma sefn byggist á eðlisfræði rafeindakerfis fastra efna, sem aftur tengist skammtafræðinni. í ljós kom að lögmál rökfræðinnar mátti „holdgera" með rafstraum- um í þessum föstu efnum. Hliðum má loka eða opna þau fyrir raf- straumi, svo að það jafngildir ját- un eða neitun innan rökfræðinn- ar. Þær játanir eða neitanir er auðvelt að láta jafngilda samlagn- ingu talna, eða hverri þeirri reikniaðgerð sem verkast vill. Þannig má rekja samband hinnar eldfomu „húmanísku" rökfræði og hinnar hánútímalegu og hag- nýtu tölvutækni. Grunnrannsóknir og framtíðin Fortíðin var nútíð áður fyrr. Á þessari stundu standa menn í sömu sporum og áður, að því leyti, að ný svið þekkingar eru að verða til. Enginn getur sagt til um hvemig þekkingin þróaðist. Enn sem fyrr verður að reiða sig á að þær myndir sem smám sam- an taka á sig form í óskapnaði þekkingarleysisins, og bætast við þekkingarforða mannkyns. f þess- ari trú er enn verulegum hluta Nóbelsverðlauna veitt til gmnn- rannsókna en ekki hagnýtra rann- sókna. Árið 1975 fengu t.d. Dan- imir Aage Bohr og Ben Mottelson ásamt Bandaríkjamanninum Rainwater verðlaun fyrir rann- sóknir á kjama frumeindarinnar. Ekki verður séð fram á það sem stendur, að þessar rannsóknir þeirra hafí nokkra hagnýta þýð- ingu. Á hinn bóginn verður ekki séð fyrir hvemig verður sú heild- armynd sem til verður af kjarna frumeindarinnar þegar fram líða stundir. Ekki verður heldur sagt fyrir um hver kann að verða tæknileg nýting kjarnans, né hveijar vísindalegar staðreyndir um hann öðlast hagnýtt gildi, og hveijar ekki. Grunnrannsóknir meðal smáþjóða Þáttur gmnnrannsókna meðal smáþjóða hefur verið smár á kostnað hagnýtra rannsókna. Enn em það fyrst og fremst hin stóm samfélög, sem geta leyft sér þann „munað“ að rannsaka það sem gefur ekki arð á staðnum. Enn kemur það til, að þegar svo löng leið er orðin fram til átakasvæða visindanna sem raun ber vitni, og erfiðið er orðið svo mikið við að tileinka sér nauðsynlegan þekk- ingarforða, hafa grunnrannsóknir orðið æ meir að hópvinnu margra manna. Rökrétt afleiðing þessa væri sú, að samfélag þyrfti að ná vissri stærð til að bera uppi svo stóra hópa, að þeir gætu stundað gmnnrannsóknir. Á hinn bóginn hafa bættar samgöngur og fjar- skipti orðið til þess, að smáþjóðir jafnt sem aðrar em fullgildir með- limir stærsta samfélags sem til er, nefnilega samfélags allra þjóða. Staðsetning einstakra vísindamanna skiptir ekki öllu máli. Um rannsóknir á íslandi Þannig er það ekki gild rök- semdafærsla, að nota smæð landsins til að hafna gmnnrann- sóknum hér á landi. Enn em þau rök fyrir rannsóknum, sem heyr- ast sjaldan nefnd. Þau snúast um að sú þjóð, sem leitast við að halda uppi góðri menntun, verður innan menntakerfísins að geta reitt sig á rannsóknir að vemlegu leyti. Þetta er ekki síst vegna þeirra auðgandi áhrifa, sem rann- sóknarþrótturinn þarf að hafa á hinn þátt menntakerfísins, þar sem er menntun hinna yngri. En sem stendur búum við við þess konar menntakerfi, að erfítt er að hugsa sér meiri aðskilnað rannsóknarþáttarins og kennslu- þáttarin's. Á vegum Háskóla ís- lands er fjöldi sérfræðistofnana. Sérfræðingar þeirra taka ekki þátt í menntun annarra, nema það séu ofhlaðin aukastörf. Innan framhaldsskólakerfisins hafa flestir sem þar starfa of skamma menntun til þess, að þeir hafí nokkum tímann í námi sínu feng- ið öllu meira en þef af rannsóknar- verkefnum. Hvað þá að þeim gef- ist tök á slíku síðar meir. SÝNING á Paradiso fellihýsinu Paradiso Compact fellihýsið er einstaklega hentugt fyrir íslenskar aðstæður: 1. Vagninn er uppsettur á 1 /2 mínútu. 2. Fullkominn búnaður eykur öryggið. 3. Léttur í drætti, aðeins 300 kg. 4. Eldhús með gaseldavél og vaski. 5. Sérstaklega sterkur PVC-tjalddúkur, sem þolir þvott eins og bíllinn og mikla áníðslu. Eigum nokkra vagna til afgreiðslu strax. Tökum í umboðssölu fellihýsi, tjaldvagna og kerrur. Höfum allt í ferðalagið frá Seglagerðinni Ægi og Olíuverslun íslands. Opið virka daga frá kl. 09-18 Opið laugardag frá kl. 10-19 Opið sunnudag frá kl. 14-16 FERÐAMARKAÐURINN, Bíldshöfða 12 (við hliðina á Bifreiðaeftirlitinu), sími 680003.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.