Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 RÓSIR in. Þær rósir sem nú eru mest í ræktun eru mikið kynbættar og nær undantekningarlaust grædd- ar á rót af annarri og harðgerð- ari rós, t.d. Rosa laxa, Rosa can- ina eða Rosa rugosa. Við ræktum rósir okkur til augnayndis, til afskurðar og til nota í skreytingar og í suðrænum löndum eru blómblöð ilmrósa mik- ið notuð til ilmvatnsgerðar. Ekki eru allar rósir ilmandi, en að öðru jöfnu eru ilmrósir ákjósan- legri til ræktunar, því auk fagurra blóma kemur til hin óviðjafnan- lega angan þeirra. Til afskurðar eru rósir mjög misgóðar. Yfirleitt standa þær rósir lengur, sem hafa ekki of stór blómblöð, en þó sæmilega þykk. Um þetta er þó engin regia án undantekningar. Blóm af te- rósum eru talin best til afskurðar, en eitt til þrjú blóm vaxa á löngum stilk. Til þess að fá eitt stórt blóm á stilk eru tveir blómknúppanna fjarlægðir eins fljótt og hægt er. Terósir Þekktust allra terósa er án efa PEACE, Friðarrósin, svokölluð, vegna þess að hún var á borði hvers þátttakanda þegar Samein- uðu þjóðimar voru stofnaðar í Los Angeles. Að mati höf. hentar þessi rós illa til ræktunar hér á landi, hvort sem er úti eða inni. Af öðr- um terósum má nefna Crock O Gold, gul, Double Delight, blanda af hvítu, gulu og rauðu, My love og Fragrant Cloud með dökkrauð blóm, Julia, bronslituð blóm og Silver Jubileum, rauðg- ul á lit, tileinkuð Elísabetu II. Bretadrottningu. Allar þessar rós- ir bera ilmandi blóm. Skúfrósir (Polyantha, floribunda) Þær hafa mörg blóm á sama stöngli. Hver planta getur borið hátt á annað hundrað blóm í einu. Sem dæmi um skúfrósir er hægt að nefnaLili Marleen, rauð, Que- en Elisabeth, rauð eða bleik, Tip Top, laxableik og Chinatown, gul — allar bera ilmandi blóm. Auk þeirra Nina Weibull, Gar- nett og Elmshorn með rauð blóm. Gamett er gamalkunn í ræktun hjá gróðurhúsabændum. Elms- hom er hávaxin og sjálfsögð í alla gróðurskála, því hún heldur blómunum allan veturinn. Af öðmm rósum er skylt að nefna Hamburger Phönix og Chinatown — skúfrós. BLÓM VIKUNNAR 100 Umsjón: Ágústa Björnsdóttir Dorn-rósina, báðar ljósrauðar. Dorn-rósin er án efa best allra ágræddra til ræktunar utanhúss. Auk Hansa-rósa ætti í hveijum garði að vera Hjónarós (Rosa swegensowii) og Meyjarós (Rosa moyesii) en þær þroska báðar ald- in í flestum sumrum. Flesta rósamnna þarf að klippa á hverju ári nokkuð mismunandi eftir tegundum. Ef mikið er klippt seinkar það blómstmn. Þess vegna er gott að klippa nokkurn hluta mnnanna mikið annað árið en lítið hitt árið. Lesið frekar um kiippingu rósa í Skrúðgarðabók- inni. Fylgjast þarf vel með og fjar- lægja greinar sem vaxa frá rót neðan ágræðslu-staðar. Ekki er nóg að skera þetta frá, það þarf að rífa greinina til þess að hún vaxi ekki aftur og aftur. Kristján Jóhannesson Lilli Marleen — skúfrós. Trilene MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ NÍÐSTERK ÞUNGAVIGTARLÍNA Fœst f nœstu sportvöruverslun. KJÖTBOLLUR Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttir Það er ekki ofsögum sagt af því hvað réttir úr hökkuðu kjöti em yfírleitt vinsælir, ekki síst hjá yngri aldursflokkum. Líklega er gripið til slíkrar matargerðar á flestum heimilum stöku sinnum. En þó að víða séu til góðar upp- skriftir af t.d. kjötbollum úr hakki getur verið gott að bæta í safnið, breyta stöku sinnum til og því em það kjötbollur sem teknar verða fyrir í vikulegu Heimilishorni í dag. „Stroganoff“ kjötbollur 750 g hakkað kjöt, V4 bolli hveitibrauðsmylsna, V3 bolli kalt vatn, 1 tsk. rifinn sítrónubörkur, salt og pipar, V4 bolli smátt brytjaður laukur, 1 msk. smjör eða smjörlíki, sveppir, magn eftir smekk, 2 matsk. hveiti, 1 súputen. leystur upp í bolla af sjóðandi vatni, 2 msk. tómatsósa úr flösku, V? bolli sýrður rjómi, steinselja. Saman við hakkið er hrært brauðmylsnu, vatni, sítrónuberki, salti og pipar. Mótaðar ca. 18 bollur sem brúnaðar em í smjöri á pönnu. Bollumar teknar af að því loknu en laukur og sveppir settir á pönnuna í staðinn, aðeins látið mýkjast. Soði (vatn + súput- en.) hellt yfír sveppi og lauk, hveiti hrært út í og suðan látin koma upp, hrært vel í á meðan. Bollumar settar út á og soðnar í ca. 15 mín. við mjög vægan straum. Bollumar settar á fat og haldið heitum meðan að tómats- ósu og sýrðum ijóma er hrært saman við. Hellt yfir bollurnar um leið og borið er fram, brytjuð steinselja sett yfir. Borið fram með soðnum kartöflum eða hrísgijónum. Ætlað fyrir fjóra til sex. Rússneskar kjötbollur 500 g hakkað kjöt, 2 tsk. salt, V2 tsk. pipar, 1 msk. enskt sinnep, 1 meðalstór laukur, brytjaður smátt, 1 msk. sojasósa, 3-4 msk. brytjuð steinselja, 1 egg, smjör eða smjörlíki til að steikja úr. Heitt kínakál Kálblöðin rifín eftir endilöngu, bmgðið í ca. 2 msk. af smjöri, kryddað með salti og pipar. Kjötið hrært með öllu því sem fara á í bollumar, gerðar meðal- stórar bollur úr farsinu, sem brún- aðar em báðum megin, ca. 5 mín. á hvorri hlið. Vatni hellt á og lá- tið sjóða í ca. 10 mín. Heitt kínakálið sett í botninn á fatinu sem bera á fram í, bollumar sett- ar ofan á, tómötum stungið inn á milli. Soðið má auka með súputen- ingi og haft sem sósa, eða hægt er að hafa heita eða kalda sósu úr sýrðum ijóma o.fl. Borið fram með soðnum kartöflum, ætlað fyrir fjóra. Bakaðar kjötbollur 500 g hakkað kjöt, 5 hveiti- eða heilhveitibrauðsneið- ar, V2 bolli heit mjólk, 3/4 tsk. salt, 1 tsk. lyftiduft, 1 lítill laukur, smátt brytjaður, 1 hvítlauksrif, 3 msk. smjörlíki, 1 dós sveppasúpa. Brauðið er lagt í heita mjólk- ina, kjöti, lauk, salti og lyftidufti hrært saman við og mótaðar boll- ur úr farsinu. Hvítlauksrifinu skipt í tvennt og sett út í smjörlíki á pönnu, tekinn aftur af og boll- umar brúnaðar á báðum hliðum. Ef feiti er eftir á pönnunni er henni hellt af. Súpunni ásamt V2 bolla vatns er hellt yfir bollumar og suðan látin koma upp, síðan er þetta sett í ofnfasta skál og bakað í meðalheitum ofni í um 30-35 mín. með álpappír yfir. Borið fram með kartöflum og grænmetissalati. Ætlað fyrir fjóra. í / I Miklaholtshreppur: , ---------------- .4 Ekið á kindur í vegköntum Borg, Miklaholtshreppi. STUNDUM er það talið til land- nýtingar að sá í sár og græða upp þar sem jarðrask hefur orð- ið verulegt. Svo hefur verið með vegaframkvæmdir að víða er búið að græða upp þau sár sem orðið hafa vegna framkvæmda í vegagerð. I nýjan gróður sem upp hefur vaxið við sáninguna, sækja kindur mikið ekki síst þeg- ar grær seint á vorin vegna kulda, því þessi grænu teppi grænka fljott á vorin. Hér í sveit er nokkuð um upp- græðslu í vegköntum og þessi grænu belti eru hættuleg fyrir kind- ur. Á svæði hér í sveit frá Fáskrúð að Laxá hefur verið keyrt á níu kindur síðan í vor. Er það ansi mik- ill tollur. Eflaust er illt að varast þetta en hér þarf að verða breyting á svo þessum slysum fækki. Best,| er ef hægt væri að -fá grasfræ í þessa kanta sem kindur sækja ekki í, eða þá að sá alls ekki í þá. Grænu kantamir eru drápsgildrur og verð- ur að finna einhver ráð til að minnka þetta. Óvenju mikið hefur verið um refi hér í vor því greni hafa fundist og j eflaust eru ennþá ófundin greni á nýjum slóðum. í Kolbeinsstaða- hreppi, Eyjahreppi og Miklaholts- hreppi hafa verið drepin 40 dýr á þessu vori. Ekki hef ég heyrt um að dýrbítar hafi verið á þessum ; grenjum sem fundist hafa. - Páll

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.