Morgunblaðið - 09.07.1988, Page 13
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JULI 1988
13
■
Sendiherrar Norðurlandanna afhenda forsetum ástralska Jþingsins
kertastjakana fimm, sem prýða munu hið nýja þinghús Astrala í
Canberra. Benedikt Gröndal er lengst til vinstri á myndinni.
Afhenti kertasljaka á
200 ára afmæli Astrala
BENEDIKT Gröndal, ferða-
sendiherra, er nýlega kominn
heim úr ferð ti! Indónesíu og
Astralíu, þar sem hann var með-
al annars viðstaddur vigslu nýrr-
»ar þinghússbyggingar í Can-
berra, sem var hápunkturinn á
200 ára afmæli landnáms hvítra
manna í Astralíu. Benedikt af-
henti ásamt sendiherrum hinna
Norðurlandanna fimm kertastj-
aka úr silfri og kristal, en þeir
eru gjöf þjóðþinga Norðurland-
anna til hins nýja þinghúss Astr-
ala. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið að mönnum hefði
þótt mikið til koma að fimm þjóð-
ir hefðu svo náið samstarf að
standa sameiginlega að gjöf.
Benedikt afhenti landsstjóra
Ástralíu, Sir Ninien Stephen, trún-
aðarbréf sitt sem sendiherra og
flutti við það tækifæri heillaóskir
forseta Islands, nkisstjórnarinnar
og þjóðarinnar til Ástrala á þessum
tímamótum. Hann heimsótti ásamt
konu sinni Islendinga í borgunum
Sydney og Melbourne, en alls munu
vera um 4-500 íslendingar í Ástr-
alíu. Sagði Benedikt að þeir væru
samheldnir og hefðu mikil sam-
skipti við ísland.
Þá ræddi Benedikt við ráðamenn
um viðskipti, einkum um möguleika
á sölu á íslenskri fiskveiðitækni til
Ástralíu og Indónesíu. Benedikt
sagði að hann legði ríka áherslu á
að koma á viðskiptasamböndum í
ferðum sínum og hefði hann samráð
við Útflutningsráð, sem síðan leit-
aði eftir áhugasömum fyrirtækjum.
Sagði hann mikla möguleika á sölu
fiskveiðitækni til Austur-Asíu og
Kyrrahafslanda.
Forseta Sameinaðs þings hefur
verið boðið til fyrstu þingsetningar
í nýja þinghúsinu .í Canberra síðar
í sumar.
Vegnr í Súðavíkurhlíð:
Jónog
Magnús
áttulægsta
tilboðið
TILBOÐ frá fimm aðilum vegna
nýbyggingar vegarkafla i
Súðavíkurhlið við ísafjarðar-
djúp voru opnuð hjá Vegagerð
ríkisins 4. júlí. Kostnaðaráætlun
nemur um 21,6 milljónum en
lægsta tilboð, 16,5 milljónir,
kom frá verktökunum Jóni og
Magnúsi.
Hæsta tilboð í verkið, tæplega
32 milljónir, kom frá Suðurverki
hf. en Hagvirki hf. átti tilboð að
upphæð 27,2 milljónir. Önnur til-
boð voru undir kostnaðaráætlun.
Um er að ræða nýbyggingu 3,1
km vegarkafla í Súðavíkurhlíð og
skal verkinu lokið 20 nóvember
næstkomandi. Gunnar H. Guð-
mundssson, hjá Vegagerðinni á
ísafírði, segir að gerð verði vatns-
rás fyrir ofan veginn til að koma
í veg fyrir svell á vetrum, vegurinn
verði lagður beinni en nú sé og
reist verði rofvörn neðan við hann.
Útibúið
er 50 ára
í FRÉTT Morgunblaðsins á mið-
vikudag af afmæli útibús Útvegs-
bankans á Siglufirði var rang-
lega sagt að útibúið væri 40 ára.
Hið rétta er að útibúið er nú 50
ára gamalt. Beðist er velvirðingar
á þessari missögn.
Myndlistar-
sýning í
Þrastarlundi
Sýningu Guðrúnar Einarsdóttur
í veitingaskálanum Þrastarlundi við
Sog lýkur mánudaginn 11. júlí, en
þar sýnir hún 16 olíumálverk.
Guðrún _er útskrifuð úr málara-
deild M.H.Í. sl. vor. Veitingaskálinn
er opinn alla daga til kl. 23.00.
(Fréttatilkynning)
Graegum
Grasöum
ÁTAK i LANDGRÆÐSLU
LAUGAVEG1120,105REYKJAVIK
SlMI: (91129711
Hlauparaikningur 261200
BúnaOarbankinn Hellu
GÆTU NÝJAR VÉLAR RÁÐIÐ
ÚRSLITUM UM VELGENGNI
FYRIRTÆKIS ÞÍNS?
IÐNLANASJÖÐUR ÚTVEGAR FJÁRMAGNIÐ!
í síharönandi samkeppni veröa framleiöslufyrirtæki aö
geta lagað sig aö nýjum aðstæðum og breyttri eftirspurn. Þá
reynir á tækjabúnaöinn hvort unnt er aö framleiða eftir þeirri
forskrift sem gefur hæst markaðsverð hverju sinni.
lönlánasjóöur veitir hagkvæm lán til kaupa á fram-
leiðslutækjum. Lánin taka jafnt til fjárfestingar í stærstu vélum og
kaupa á minnstu tækjum. Kjörin eru aðgengileg, afgreiösla hröð
og lánshlutfall er allt að 60% af f.o.b. verði vélarinnar. Lánshæf
eru öll fyrirtæki og einstaklingar sem stunda iðnrekstur
á íslandi.
Hafðu samband við okkur sem fyrst. Kynntu þér nánar
lánin sem við bjóðum, fyrirtæki þínu til framdráttar!
IÐN LÁNASJÓÐUR
IÐNAÐARBANKINN LÆKJARGÖTU 12, 101 REVKJAVÍK,
SlMI691800