Morgunblaðið - 09.07.1988, Síða 14

Morgunblaðið - 09.07.1988, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 T - Landsfundur Samtaka um jafnrétti milli landshluta Skiptar skoðanir um hvernig markmið samtakanna nást best Seyðisfirði Á AÐALFUNDI Samtaka um jafnrétti milli Iandshluta, sem haldinn var á Hallormsstað á Fljótsdalshéraði, voru það mál- efni landsbygg'ðarinnar og framtið samtakanna sem settu mestan svip á umræðuraar. Menn virtust ekki á eitt sáttir um tilgang og framtíðarmark- mið þessara samtaka. Hvort þetta eigi að vera þverpólitísk samtök sem reyna að ná mark- miðum sínum í gegnum alla stjóramálaflokkana, hvort þetta eigi að vera rabbsamtök eða hvort samtökin eigi að bjóða fram tíl Alþingis. Bjöm Hafþór Guðmundsson formaður Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi var einn framsögu- manna á fundinum og sagði: „Ef þessi samtök eiga að verða eitthvað annað en þægileg rabbstofa með góð markmið mega þau ekki útiloka neina möguleika, þ.m.t. framboð til Alþingis. Aðeins á þann hátt kann að verða mögulegt að komast í aðstöðu til að hafa áhrif á að leið- rétta þá mismunum f búsetu, sem nú á sér stað hérlendis.“ Umraeður fundarmanna eftir framsöguerindin voru miklar og sitt ráðuneyti til að fara í saman- burðarkönnun á því.“ Hann sagði að það þyrfti að slá á sjálfvirkni í skoðanamyndun fólks að það sé eitthvert náttúrulögmál. að fólk flytji suður. Sigurður Helgason sýslumaður N-Múlasýslu og bæjarfógeti á Seyð- isfirði sagði að þessi samtök þyrftu og ættu að vera þverpólitísk. „Við verðum að fá meiri völd inn í héruð- in og ég held að við séum á réttri leið. Það hefur verið byggt of mik- ið upp á því að valdið sé í stofnun- um og flokkum," sagði Sigurður. Sigríður Rósa Kristinsdóttir, Eskifirði, sagðist vera mjög veik fyrir byltingum og hrifín af hug- mynd Karvels Pálmasonar um landsbyggðarbyltingu. „Ég starfaði í gömlu stjómmálaflokkunum > mörg ár og ég sé mest eftir því að hafa ekki stofnað nýjan stjóm- málaflokk fyrr en við stofnuðum Þjóðarflokkinn," sagði Sigríður. Hluti landsfundargesta Samtaka um jafnrétti milli landshluta. tóku margir til máls. Guðni Ágústs- son þingmaður Framsóknarflokks- í Suðurlandskjördæmi sagði í ms umræðunum að íslendingar byggju við of veikt löggjafarvald. „Við er- of bundnir af ráðherrum og um embættismannakerfínu og of bundnir forystu flokkanna, en ég held að það sé vilji ungra stjóm- málamanna að breyta þessu. Við viljum aukið héraðsvald, en því miður hafa þingmenn eftir langan þingmannsferil snúið baki við hér- aðsvaldinu. Við eigum að horfa til framtíðar og horfa til aukins hér- aðsvalds. Ég vil hvetja þessi samtök til að álykta sem minnst, en ganga til verks og ganga beint inn í stjóm- málaflokkana og taka þar völdin." Þórarinn Lárusson tilraunastjóri á Skriðuklaustri ræddi um byggða- þróunina og þriðja stjómsýslustigið og sagði: „Það er spuming hvort ekki eigi að staldra við og gera faglega könnun á áhrifum þriðja stjómsýslustigsins og ég skora á Jóhönnu Sigurðardóttur að virkja Stefán Valgeirsson alþingismað- ur sagði að ef menn fæm ekki að taka á þessu vaxtaokri verði ekki bjart yfír byggðum landsins í framt- íðinni. „Flokkamir hafa verið varað- ir við þessari þróun, ég gerði það í þingflokki Framsóknarflokksins fyrir 7 ámm og sagði þá að það yrði uppreisn í öllum stjómmála- flokkunum ef ekkert yrði gert. Ég hef ekkert á móti því að þessi sam- tök séu þverpólitísk, en menn verða þá að kjósa þá menn til Alþingis sem vilja láta athafnir fylgja orð- um,“ sagði Stefán Valgeirsson. Til greina kemur að kjósa um þriðja sljórnsýslustigið í næstu sveitarstjómakosningum - segir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra Seyðisfirði. Morgunblaðið/Garðar Rúnar Frummælendur á landsfundinum. Þorvaldur Jóhannsson er í ræðu- stói en við borðið sitja Jóhanna Sigurðardóttir, Kristin Halldórs- dóttir og Björa Hafþór Guðmundsson. Á AÐALFUNDI Samtaka um jafnrétti milli landshluta um siðustu helgi kom Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra fram með þá hugmynd að i sveitarstjómakosningunum 1990 gætu legið fyrir valkostir um framkvæmd þriðja stjórasýslustigsins og kjósendum yrði gefinn kostur á að kjósa um það, þannig að fólkið i landinu hefði úrslitavald um það hvort sijórasýslustigunum verði fjölgað. Reykjavík hefur valdíð og það er höfuðmeinið - segir Kristín Halldórsdóttir alþingismaður Seyðisfjörður. í máii Kristínar Halldórsdótt- ur á landsfundi Samtaka um jafnrétti milli landshluta kom fram að hún telur nauðsynlegt að færa valdið til, færa verkefni frá ríki til sveitarfélaga, slfkt gæti dregið úr þeirri þróun sem verið hefur undanfarið. Hún sagði einnig að landsbyggðarum- ræðan hefði verið alltof neikvæð og alltof Htið tillit tekið til kvenna. „Þetta hefur verið of mikið væl,“ sagði Kristín. „Aðstæður kvenna og íbúa utan Reykjavíkur eru svipaðar, við eigum við réttindaleysi að stríða. Það er því gagnkvæmur skilningur á milli þessara samtaka. En umræðan um landsbyggðina hefur verið alltof neikvæð og alltof lltið tillit tekið til kvenna og fjölskyldunnar í þessum umræðum. Konur hafa verið of hógværar og þurfa að vera meira með í umræðunni um aukin at- vinnutækifæri úti á landsbyggðinni. Það er víðar þörf fyrir Lárur en á Seyðisfírði. Fólk úti á landi segist ekki fá góða þjónustu, en tilfellið er að víða á landsbyggðinni er betra að fá heilbrigðisþjónustu en í Reykjavík, þó að ýmsa sérfræði- þjónustu þurfi að sækja suður. En Reykjavík hefur eitt fram yfír aðra staði, það er valdið og það er höfuð- meinið. Pólitíkusar hafa verið of uppteknir við að plástra og gefa deyfílyf," sagði Kristín Halldórs- dóttir. Jóhanna Sigurðardóttir, sem var einn framsögumanna á landsfund- inum, sagði að í starfsáætlun ríkis- stjómarinnar væri ákvæði um að verkaskipting ríkis og sveitarfélaga verði gerð skýrari og einfaldari í sambandi við heildarendurskoðun skattalaga og tekjustofna sveitarfé- laga enda ætti það að vera öllum ljóst að núverandi skipting landsins í sveitarfélög væri í mörgum tilvik- um orðin úrelt. Við undirbúning Qárlaga árið 1988 hefði fyrsta skrefíð verið stigið og nú væri unn- Áfall að ekki tókst að ljúka verkaskiptingunni - segir Þorvaldur Jóhannsson Seyðisfirði Seyðisfirði. Á landsfundi Samtaka um jafnrétti milli landshluta sagði Þorvaldur Jóhannsson bæjar- stjóri á Seyðisfirði það hafa ver- ið áfall að ekki skyldi hafa verið hægt að ganga frá breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga á síðasta þingi. „Ástæðan fyrir því var að í frum- varpinu var gert ráð fyrir því að flytja verkefni frá ríki til sveitarfé- laga án þess að gert væri ráð fyrir að auka tekjustofna sveitarfélag- anna. Þess vegna vildum við sveit- arstjómarmenn ekki samþykkja þetta. Ríkið þarf að taka heilsu- gæsluna, sjúkrasamlögin og tann- lækningamar, þetta leggst misjafn- lega á sveitarfélögin. Ef þetta verð- ur tekið til baka án þess að skerða tekjustofnana þá stendur ekki á okkur að samþykkja þetta," sagði Þorvaldur. Hann sagði að sveitarstjómar- menn hefðu verið óánægðir með ákvörðun félagsmálaráðherra í fyrra þegar hún ákvað útsvarspró- sentuna í staðgreiðslu skatta: „Það varð m.a. þess valdandi að verka- skiptingin komst ekki á,“ sagði Þorvaldur Jóhannsson. ið að því að yfirfara fyrri tillögur eftir ábendingar frá sveitarstjóma- mönnum. „Þær fela í sér m.a. að ríkið greiði beina styrki til íþrótta- og æskulýðsfélaga, en í fyrri tillögum var gert ráð fyrir að þetta færi al- farið til sveitarfélaga. í tillögum um heilbrigðismál var reiknað með að ríkið annaðist stofnkostnað og rekstur heilsugæslustöðva. Það hef- ur réttilega verið bent á að erfitt er að draga þama mörk á milli, þetta er oft rekið í tengslum hvort við annað. Auk breytinga á sjálfri verkaskiptingunni er gert ráð fyrir að sveitarfélög hætti að greiða hluta af kostnaði sjúkrasamlaga, tannlækninga og framlag til At- vinnuleysistryggingasjóðs, ríkið taki við þessu," sagði Jóhanna. Um kaupleiguíbúðir og íbúðafjár- festingar á landsbyggðinni sagði hún: „Á landsbyggðinni er alvarleg húsnæðisekla, á næstliðnum ámm hefur dregið úr íbúðarbyggingu ein- staklinga á landsbyggðinni þrátt fyrir góða afkomu og tekjumögu- leika. Ástæðan er m.a. sú að fjár- festing í íbúðarhúsnæði á lands- byggðinni hefur reynst of áhættu- söm, ég tel að kaupleiguíbúðiir henti vel við þær aðstæður sem þar eru.“ Um millistig í stjómsýslunni og stöðu mála á landsbyggðinni eins og þau blasa við henni sagði hún: „Sumir hafa talað um tvær þjóðir í einu landi þegar rætt er um stöðu landsbyggðarinnar annars vegar og höfuðborgarsvæðið hins vegar. Svo- kölluð byggðastefna hefur ekki náð þeim árangri sem til var ætlast og þáttaskil eru að verða í byggðaþró- un í Iandinu. Mikið misvægi á mill' landsbyggðarinnar og höfuðborgar' svæðisins er staðreynd. Ástæðurnar fyrir þessu eru hveijum manni aug- ljósar, meira frelsi í peningamálum, verðbréfamarkaðir, fjármagn lífeyrissjóðanna hefur sogast tr& landsbyggðinni og skapað gífurlega þenslu á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess sem öll gjaldeyrisöflun verður til á landsbyggðinni en nánast öll verslun á upphaf sitt á Stór- Reykjavíkursvæðinu. En ekki má gleyma að vandi þjóð- arinnar í byggðamálum stafar að nokkm leyti af mikilli offjárfestingu í fískiskipum og fískvinnslufyr>r' tækjum. Það vaknar sú spurning hvemig hægt sé að auka völd °g áhrif sveitarfélaga og hvort unnt sé að hraða verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Með þeim breyting- um á verkaskiptingunni sem áform- aðar em yrði stigið stórt skref til að auka sjálfsforræði sveitarfélaga- En er hægt að feta þessa slóð enn hraðar og stofna til millistigs í stjómsýslunni eða til þriðja stjórn- sýslustigsins, fylkjaskipulags? Nefnd er einnig lögfesting vald- svæða að stærð núverandi lands- hlutasamtaka sem til væri kosið í beinum persónulegum kosningum, með algjöran sjálfsákvörðunarétt í Qármálum. Allar þessar leiðir eru til þess að auka völd og áhrif lands- byggðarinnar. Ég er þeirrar skoð- unar að ákvörðun um þriðja stjórn- sýslustigið eigi að vera í höndum kjósenda. Þannig að í sveitar- stjómakosningunum 1990 gsetu legið fyrir valkostir um framkvæmð þriðja stjómsýslustigsins, fylkja- skipun eða valdsvæði, svo að fólkið í landinu hefði úrslitavald um það hvort stjómsýslustigunum verði fjölgað," sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir. J-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.