Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
15
TEXTI: GARÐAR RÚNAR
liiC
Jíö
u
Gerum landsbyggðar-
byltingu fyrst -
svo kvennabyltingu
- sagði Karvel Pálmason alþingismaður
Seyðisfjörður.
A landsfundi Samtaka um
jafnrétti milli landshluta sagði
Karvel Pálmason alþingismaður
að umræðurnar um byggðamálin
væru ekkert væl. „Ég er ekkert
hissa þótt mönnum hitni í hamsi
í þessum umræðum eins og
ástandið er, ég horfi upp á mörg
fyrirtæki í minum landsfjórðungi
eiga í miklum erfiðleikum," sagði
Karvel.
Hann sagði að með þetta yrðu
menn að grafa sig með inn í flokk-
ana, ekki þýddi að stofna nýja
flokka. „En nú duga engin orð leng-
ur, nú eru það gjörðir. Núverandi
félagsmálaráðherra hefur orðað
kvennabyltingu, ég vil gera sam-
komulag við ráðherra um að gera
landsbyggðarbyltingu á undan
kvennabyltingu. Hvar halda menn
að þetta endi þegar endalaust er
verið að byggja hótel o.fl. í
Reykjavík?
Við landsbyggðarfólk fáum ekki
nema lítið brot af þeim gjaldeyri
sem við öflum. Við skulum gefa
stjómmálamönnunum einhvern
ákveðinn tíma og ef ekki verður
búið að leiðrétta þetta fyrir þann
tíma þá skulum við láta hendur
standa fram úr ermum og stoppa
framleiðsluna, við lifum ekki lengur
á loforðum," sagði Karvel Pálma-
son.
Kvennalistmn andstæða
jafnréttishugtaksins
- segir Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri
Seyðisfjörður.
Valur Arnþórsson kaupfé-
lagsstjóri KEA á Akureyri sagði
á landsfundi Samtaka um jafn-
rétti milli landshluta, að ef
landsbyggðin væri ekki til, væri
engin íslensk þjóð til. „Það er
ekkert sjálfgefið að 250 þúsund
manna þjóð sé sjálfstæð, hún
verður að hafa sérstöðu og vera
samstæð innbyrðis, það er hún
því miður ekki í dag. Konurnar
risu upp en þær þurfa að vinna
sig inn í flokkana því Kvenna-
listinn er andstæða jafnréttis-
hugtaksins,“ sagði Valur.
Hann sagði að íslendingar gætu
átt von á því að missa sjálfstæðið
því mannkynssagan sýndi að
borgríki hefðu aldrei lifað. „Það
er spor í rétta átt að Austfirðingar
hafa farið út í beinan innflutning
og skiparekstur í samvinnu við
Færeyinga í samkeppni við Skipa-
deild SÍS og Eimskip. Það er aug-
ljóst mál að margar af þessum
ofvöxnu stofnunum í Reykjavík
má leggja niður. Seðlabankinn var
t.d. einu sinni í einu herbergi í
Landsbankanum og launadeild
fjármálaráðuneytisins sem nú er í
stóru húsnæði var áður fyrr í einu
herbergi í fjármálaráðuneytinu.
Við, þjóðin sjálf, erum efna-
hagsvandi, ríkið keppir um mann-
afla og peninga við fyrirtækin.
Vextimir eru orðnir þannig að
ekki er hægt að standa lengur
undir því, hvorki fyrir fyrirtæki
eða einstaklinga og ríkið á sinn
þátt í því. Vextirnir voru gefnir
fijálsir, peningum var dælt 5 hús-
næðiskerfið. Misvægið milli fram-
boðs og eftirspurnar er mikið, þess
vegna eru vextimir snarvitlausir,
vöntun á fjármagni spennir vext-
ina upp. Eg vona að við náum
samstöðu í þessu þjóðfélagi um
að leiðrétta ýmsa kompásskekkju
sem er. Við verðum að lifa á því
sem við öflum sjálf, við getum
ekki lifað um efni fram enda-
laust,“ sagði Valur Amþórsson.
Héraðsþing- nýr mögu-
leiki í sljórnsýslu
— segir Björn Hafþór Guðmundsson formaður SSA
Seyðisfjörður.
A landsfundi samtakanna
Jafnrétti milli landshluta talaði
Björn Hafþór Guðmundsson um
héraðsþing sem nýjan mögu-
leika í stjórnsýslunni. Segja
mætti að Alþingi hefði nú með
höndum bæði löggjafar- og
framkvæmdavald og slíkt ætti
að vera í lagi vegna þess að til
Alþingis er kosið lýðræðisleg-
um kosningum. Þó væru ekki
allir sáttir við þetta fyrirkomu-
lag og teldu að þingmenn marg-
ir hverjir séu slitnir úr tengsl-
um við kjördæmi sín.
„Menn spyija gjarnan í umræð-
unni um hið svonefnda þriðja
stjómsýslustig, hvernig skuli valið
til héraðsþinga ef af verður. Ég
geri mér ljóst að mismunandi
t ft stærð sveitarfélaga og uppbygg-
---------------------
ing fjórðunga getur valdið því að
erfitt er að búa til einfalda form-
úlu um hvemig fyrirkomulag hér-
aðsþinga skuli verða. Mér sýnist
eðlilegast að í kjölfar sveitar-
stjómarkosninga verði á hveiju
svæði kosinn hlutbundinni kosn-
ingu ákveðinn fjölda fulltrúa á
héraðsþing. Héraðsþing ættu að
koma reglulega saman 2-3svar á
ári. Verkefni þeirra væri að taka
ákvarðanir um útdeilingu þess
fjármagns, sem rynni beint til
héraðsins til framkvæda. Einnig
gerðu slík þing langtímaáætlanir
um framkvæmdir. Stærsti kostur-
inn við þetta er sá að um leið og
völd heima í héraði ykjust myndi
vaxa ábyrgð og samstaða sveitar-
félaga," sagði Björn Hafþór Guð-
mundsson.
SEX GOÐIR
MATSÖLU-
STAÐIR
allir á sama stad í Kringlunni
Ljúffengar V pizzur matreiddar af kúnst.
mwm i<(®
Bragðmikill mexíkanskur matur,
kjúklingabitarog hreinn ávaxtasafi.
H.H. Hamborgarar
Safaríkir hamborgarar, franskar,
salat, fiskurog fleiragott.
Austurlensk matargerðarlist, t.d. nauta-
pönnukökur, svínatsjámein og Saigonrækjur.
Smurt brauð, heitt brauð, kökur
ogeinmeðöllu.
ÍSHÖLLIN
Úrval af freistandi ísréttum,
heimalagaður ís og ferckir ávextir.
\o
••
u*°