Morgunblaðið - 09.07.1988, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
BLÖNDUÓS VERÐUR BÆR
Morgunblaðið/Bjami
Menn voru ákafir í að komast út í Hrútey, en félagar úr Björgunarsveitinni Blöndu stjómuðu umferðinni.
hvammi seinni part sunnudagsins.
Fagrihvammur er í aflíðandi grasi-
gróinni brekku niðri við ánna, með
tijám og runnum. Þar var búið að
koma upp palli fyrir skemmtiatriði,
en grillað var fyrir ofan hvamminn,
uppi á veginum fyrir framan grunn-
skólalóðina. Yngsta kynslóðin fékk
pyslur, sem borðaðar voru með
bestu lyst að því er best varð séð
og tómatsósa kringum marga
munna. Aðrir gátu valið um lax,
lambakjöt og folaldakjöt með sal-
ati. Að sögn var reiknað með mat
fyrir um fimmtánhundruð manns,
sem hefur ekki verið of rúmt áætl-
að því hver einasti biti var upp et-
inn áður en yfir lauk. íbúar á
Blönduósi eru um 1100.
Meðal skemmtiatriða á pallinum
var leikur lúðrasveitarinnar, söngur
Samkórsins Bjarkar og gamanmál
flutt af félögum úr Leikfélagi
Blönduóss. Leikfélagið rakti sögu
staðarins, sem er 112 ára gamall,
gat á stóru spjaldi. Hvatningaróp
bárust frá þeim sem stóðu í röð-
inni, en sá sem var í gatinu reyndi
að bera sig mannalega. Hópur frá
Alþýðuleikhúsið var einnig mættur
á staðinn með brúðuleikhússýningu,
en Blönduós var fyrsti viðkomustað-
ur hans á ferðlagi um landið.
Hreppsnefndar- og
bæjarstjórnarfundir
Formleg skipti Blönduóss frá því
að vera hreppur og verða bær voru
í Félagsheimilinu á mánudag, 4.
júlí. Veðurguðirnir höfðu þá séð að
sér og sólin skein glatt á tilvonandi
bæjarstjóm og aðra íbúa staðarins.
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, þingmenn kjördæm-
isins og fulltrúar frá nærliggjandi
sveitafélögum vom komin til
Blönduóss að fagna þessum tíma-
mótum í sögu staðarins. Blönduós-
Hópur manna stóð við grillið, enda ekki vanþörf á þar sem veiting-
arnar hurfu hratt oní maga veislugesta.
BLÖNDUÓS fékk kaupsstaðarréttindi mánudaginn 4. júlí sl. og var
af því tilefni mikið um að vera í bænum. Hátíðarhöld stóðu yfir í
fjóra daga, frá l.-4.júlí, en í þeim tóku þátt, auk íbúa staðarins,
gamlir Blönduósingar og fólk úr nágrannasveitunum.
Félagar úr Leikfélagi Blönduóss fluttu gamanmál í tali og tónum.
Veitingunum í grillveislunni voru gerð góð skil.
Það var mikið um að vera á
Blönduósi þessa daga. Hátíðar-
höldin hófust á föstudag, en þá var
dagheimilið og ieikskólinn Bama-
bær opinn og útimarkaður við
Kaupfélagið. A Hótel Blönduósi
opnaði Guðráður Jóhannsson mál-
verkasýningu og um kvöldið var
unglingaball í Skjólinu, félagsmið-
stöð unglinganna í Félagsheimilinu.
Á laugardeginum var bamaball í
Skjólinu, en um kvöldið almennur
dansleikur í Félagsheimilinu. Að
sögn heimamanna er þetta best
sótta ball sem haldið hefur verið á
staðnum. Hatt á fímmtahundrað
manns mættu á dansleikinn, sem
stóð yfír fra.m undir morgun.
Hápunktur hátíðarhaldanna var
á sunnudeginum. Dagskrá dagsins
hófst með helgistund í nýrri kirkju
Blönduósinga, sem aðeins er fok-
held að innan en fullbúin að utan.
Hálfkalt var því inni í kirkjunni
enda sólin falin á bakvið ský. Við-
staddir létu það samt ekki spilla
hátíðleika stundarinnar. Hópur
telpna lék helgileik undir stjóm Sr.
Stínu Gísladóttur sem predikaði og
kirkjukórinn söng.
Göngxibrú út í Hrútey
Á eftir var farin skrúðganga nið-
ur að nýrri göngubrú út í Hrútey
og hún formlega tekin í notkun.
Eyjan liggur úti í ánni Blöndu, sem
rennur í gegnum bæinn, skammt
fyrir ofan hann. Það er langt síðan
byijað var að ræða byggingu brúar
út í eynna, en ekkert hefur orðið
úr því fyrr en nú. Hrútey hefur
verið friðlýst svæði síðustu 13 árin,
sem Blönduósingar hafa ræktað
upp. Tvisvar sinnum hefur kviknað
þar eldur, síðast árið 1964. Hilmar
Kristjánsson flutti stutt ávarp áður
en brúin var opnuð, en síðan klippti
Sigrún Kristófersdóttir á borðann
og gekk fyrst út í eynna. Lúðra-
sveit staðarins lék meðan á athöfn-
inni stóð.
Viðstaddir fylgdu á eftir út í
eynna sem er tæpur kflómeter á
lengd og mjög gróðursæl. Tilkoma
brúarinnar gerir Blönduósingum nú
kleift að nota eyjuna sem útivistar-
svæði. Hún hefur fram til þessa
verið flestum þeirra ókannað land-
svæði, enda ekki fært þangað nema
á vaði á vorin og haustin. Gæslu-
maður er á vakt við brúnna á opn-
unartíma, sem í framtíðinni verður
á daginn yfir sumarmánuðina.
Grillveilsa
Hreppsnefndin bauð öllum bæj-
arbúum til grillveislu í Fagra-
í tali og tónum og rifjaði upp ýmis
spaugileg atvik. Þá voru kveðnar
vísur um hreppsnefndina við góðar
viðtökur áhorfenda.
Skátafélagið Bjarmi og Ung-
mennafélagið Hvöt sáu um leiki og
þrautir fyrir börnin á grunnskóla-
lóðinni, sem þau virtust kunna vel
að meta. Vinsælast virtist vera að
kasta blautum svampi í þá sem
þorðu að stinga hausnum á sér í
bær fékk afhenta gjöf af þessu til-
efni frá nærliggjandi þéttbýlisstöð-
um, Siglufirði, Sauðárkróki, Hofs-
ósi, Hvammstanga og Skagaströnd,
8 metra fánastöng umkringda
stuðlabergi úr Staðarbæjarvík.
Stöngin ásamt stuðlaberginu
mynda lítið torg á planinu við bæj-
arskrifstofumar og fylgdu henni
góðar óskir frá gefendum með von
um áframhaldandi gott samstarf.
Síðasti hreppsnefndarfundurinn
og fyrsti fundur bæjarstjómarinnar
voru haldnir seinni part dagsins,
að viðstöddum gestum og fjölmörg-
um íbúum staðarins. Á fyrri fundin-
um var lesið bréf félagsmálaráð-
herra vegna samþykktar hrepps-
nefndar um að gera Blönduós að
bæ, samkvæmt nýjum ákvæðum
sveitarstjórnarlaga frá 1986. Þar
sem engin mótmæli né athuga-
semdir komu fram var fundi slitið
og settur fyrsti fundur bæjarstjórn-
ar.
Fyrsta verkefni bæjarstjórnar-
innar var að kjósa forseta bæjar-
stjómar og var hann kosinn Hilmar
Kristjánsson, fyrrverandi oddviti.
Samkvæmt ákvæðum laganna
þurfti einnig að kjósa fyrsta og
annan varaforseta, þó aðeins eigi
sjö manns sæti í bæjarstjórninni.
Þau voru kosin, Kristín Mogensen,
fyrsti varaforseti og Jón Sigurðs-
son, annar varaforseti. Umhverfis-
mál voru annað mál á dagskrá og
var þar samþykkt að veita árlega
ákveðnu hlutfalli af tekjum bæjar-
ins til umhverfísmála, eða einu pró-
senti, næstu fimm árin. Þá var einn-
ig ákveðið að rita sögu bæjarins
og skipa nefnd þriggja manna til
þess að sjá um það. Að fundinum
loknum flutti félagsmálaráðherra,
Jóhanna Sigurðardóttir, ávarp þar
sem hún rakti sögu bæjarins og
flutti honum ámaðaróskir sínar.
Fundinum bárust einnig blóma-
sendingar og skeyti, m.a. frá Þor-
steini Pálssyni, forsætisráðherra og
Davíð Oddsyni, borgarstjóra.
Bæjarstjóri Blönduóss hefur ver-
ið ráðinn Ófeigur Gestsson. Hann
tekur við embætti 1. september
n.k., en fram til þess tíma mun
Haukur Sigurðsson gegna embætti
bæjarstjóra.
Helgileikur í nýju kirkjunni á Blönduósi. Hún er ekki nema fokheld að innan.