Morgunblaðið - 09.07.1988, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.07.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 17 Skrúðgangan á leið út í Hrútey. Kirkjan í baksýn. Bæjarmálanef nd: „Ánægðar með hvernig til tókst“ UNDIRBÚNINGUR hátíðarhald- anna á Blönduósi í tilefni kaups- staðarréttindanna var í höndum Bæjarmálanefndar sem í áttu sæti þær Kristín Mogensen, Sigríður Friðriksdóttir og Sigfríður Angantýsdóttir. Þær sögðu í stuttu spjalli við blaðamann að undirbúningur há- tíðarhaldanna hefði staðið frá því í janúar og fram á síðasta dag. Þó þær hafi átt sæti í nefndinni sem að skipulagningunni stóð, vildu þær taka það skýrt fram að þetta hefði ekki hafist nema með mikilli hjálp góðra manna. Um 300 manns lögð hönd á plóginn til að gera hátíðina sem veglegasta, bæði Blönduósingar og fólk úr sveitum í kring. Ung- mennafélagið Hvöt, Björgunarsveit- in Blanda og Skátafélagið Bjarmi voru þar á meðal. Þær Kristín, Sigríður og Sigfríður vildu þakka öllu þessu fólki fyrir ómetanlega aðstoð, sem gerði það að verkum að allt gekk eins vel og raun bar vitni. Aðspurðar hvort þær væru án- ægðar með þátttöku Blönduósinga í hátíðarhöldunum, sögðu þær að ekki væri hægt annað. Fyrir utan heimamenn hefði einnig verið þó nokkuð um gesti á staðnum, bæði gamlir Blönduósingar og fólk frá nærliggjandi sveitum. Veðrið hefði að ósekju mátt vera betra, en þar sem það hamlaði í engu dagskránni og virtist ekki hafa áhrif á þátttök- una, hafi það ekki 'verið neitt stór- mál. Vígsla brúarinnar út í Hrútey, grillveislan í Fagrahvammi og helgi- Börnin lifðu sig inn í ævintýri Finns í sýningu brúðuleikhúss Al- þýðuleikhússins. stundin í nýju kirkjunni voru stærstu þættir hátíðarhalda helgarinnar. Dansleikurinn í Félagsheimilinu var einnig mjög vel sóttur, bæði af heimamönnum og fólki úr nágranna- sveitum. En það var ýmislegt fleira um að vera á Blönduósi þessa daga. Sýningar voru á nokkrum stöðum í bænum, þar á meðal málverka- og ljósmyndasýningar. Guðráður Jó- hannsson, sýndi olíumálverk í sal Hótel Blönduóss og í Bókhlöðunni var sýning á ljósmyndum Björns Bergmann. Þar voru einnig til sýnis gamlar bækur. Heimilisiðnaðarsafnið var opið og voru þar sýnd gömul vinnubrögð. Safnið er staðsett í litlu húsi sem Hátíðarhöldimiim útvarpað beint tilbæjarbúa SVÆÐISÚTVARP virðist vera orðinn ómissandi þáttur þar sem eitthvað er um að vera. Blöndu- ósingar voru engir eftirbátar annarra hvað þetta varðar og voru með svæðisútvarp meðan á hátíðarhöldunum stóð. Þar skipt- ust nokkrir útvarpsáhugamenn á um að sitja við hljóðnemann og flytja bæjarbúum kveðjur og fréttir af því sem fram fór í bænum. Útvarpið var með aðsetur í Skjól- inu, félagsmiðstöð unglinganna á Blönduósi. Útvarpsstjóri var Einar Logi Vignisson, en honum og félög- um hans til halds og traust var tæknimaðurinn Sturla Bragason. Blaðamaður náði tali af Einari Loga í hljóðstofu útvarpsins, á meðan Blönduósingar snæddu hádegisverð við ókynnta tónlist er ómaði úr við- tækjunum þeirra. Einar Logi, sem er innfæddur Blönduósingur, vildi sem minnst gera úr titlinum útvarpsstjóri og sagði hafa lent í þessu starfi fyrir misskilning. Hann var nú engu að síður beðinn um að greina ögn frá svæðisútvarpinu. „Við sendum út héðan úr Skjólinu og notum di- skógræjur félagsmiðstöðvarinnar. Önnur tæki sem við notum hefur tæknimaðurinn okkar hann Sturla útvegað. Sendirinn er síðan fenginn að láni hjá Pósti og síma.“ Er ekkert erfitt að reka útvarps- stöð? x „Þetta er ekki erfitt tæknilega séð, en dálítið púsluspil samt, enda erum við bara áhugamenn." Þegar blaðamann og ljósmynd- ara bar að garði sat Ómar Ámason við hljóðnemann. Eru bara tveir dagskrárgerðarmenn? „Nei, við höfum vérið fleiri. Ómar sér bara um þennan þátt, en svo hefur Finnbogi Hilmarsson einnig verið með þætti auk mín. En það hafa fleiri komið við sögu. Pétur Kristjánsson, tæknimaður frá Reykjavík og hann Auðunn." Hvernig hefur dagskráin verið byggð upp? „Þetta er mest tónlist, óskalög og kveðjur. Ég hef líka fengið fólk í viðtöl og farið með hljóðnemann út í bæ og rætt við vegfarendur. Besta dagskráin var samt á sunnu- daginn milli klukkan tíu og sex. Þá reyndum við að gera vandaðan þátt með viðtölum við eldri Blöndu- ósinga og pistlum um sögu staðar- ins. Þetta var tekið upp fyrirfram og við fengum menn til að sjá um viðtölin og pistlana. Skarphéðinn Ragnarsson átti þar stærstan hlut að máli. Við sendum líka út gamlar upptökur með Lionskómum og leik- félaginu. Það var s.s. reynt að höfða til fullorðna fólksins og þeirra sem ekki áttu heimangengt. Á' kvöldin höfum við verið með poppþátt og útsendingu frá barna- ballinu á laugardaginn. Enda var það haldið hérna. Nú, síðan höfum við verið með beinar útsendingar þaðan sem hlutirnir eru að gerast. Þar má nefna messuna á sunnudag, fótboltaleikinn, skemmtunina í Fagrahvammi að ógleymdum fyrsta fundi bæjarstjómarinnar.“ Og þar með vom þeir þotnir af stað, Einar Logi og Ómar. hér áður fyrr var fjós gamla Kvenna- skólans. Skólinn, sem nú hefur verið lagður niður, hefur útvegað mörgum manninum í Húnaþingi eiginkonu. Það var á mönnum að heyra að stúlkurnar sem sóttu skólan og sneru ekki aftur heim að vori hafí bætt blóðið í héraðinu. Hlutirnir á heimilisiðnaðarsafninu koma þó ekki frá Kvennaskólanum, heldur eru það 'að mestu leyti munir sem Halldóra Bjarnadóttur safnaði á ferðum sínum um landið. Og að sögn forstöðukonu safnsins, Elsu Sigurgeirsdóttur, er þetta stærsta textílsafn á landinu. Þar er enda að finna fjölmarga hluti sem segja margt um heimilisiðnað í landinu frá því fyrir aldamót. Fyrir utan fatnað, ofin teppi og útsaum má þarna sjá spuna- og pijónavélar, strokka og fleira það er notað var til að búa til mat og skjólfatnað fyrr á tímum. í Hnitbjörg, dvalarheimili aldr- aðra, var sýning á tómstundaiðju vistmanna og á föstudag var dag- heimilið og leikskólinn Barnabær opinn þeim sem höfðu áhuga á að kynna sér starfsemina. Iþróttir eru ómissandi þáttur í hátíðardagskrá sem þessari og á laugardag var leik- ur heimaliðsins Hvatar og Reynis frá Áskógsströn í 3. deild íslandsmótis- ins í knattspyrnu. Allir aldurshópar fengu sinn skammt af dansleikja- haldi. Unglingarnir fengu ball í Skjólinu á föstudagskvöld, börnin seinni part laugardagsins og full- orðna fólkið í Félagsheimilinu um kvöldið. Þá má ekki gleyma svæðis- útvarpinu sem sendi út nær stans- lausa dagskrá meðan á hátíðarhöld- unum stóð. Þær voru því að vonum kátar konumar í bæjarmálanefndinni þeg- ar blaðamaður kvaddi þær á mánu- dagskvöld. Morgunblaðið/Bjami Einar Logi Vignisson og Ómar Árnason, sem situr fyrir framan hann, gáfu sér tíma fyrir myndatöku þrátt fyrir annir. Spunnið á rokk í heimilisiðnaðarsafninu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.