Morgunblaðið - 09.07.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
19
síðasta árs 30,52. í upphafi þessa
árs er meðalverðið talið 32,38 og
eftir 5% hækkun upp úr sjó um
mánaðamótin maí-júní 33,99.
Hækkun á umræddu tímabili er því
um sexföld. Launakostnaður á
sama tímabili sexfaldaðist einnig.
Hækkanir á hráefni og framleiðslu-
kostnaði hafa undanfarið verið mun
meiri en á afurðaverði og tap á fisk-
vinnslunni. Þar hefur meðal annars
ráðið lækkandi verð á dalnum, fast
gengi samfara talsverðri verðbólgu
hér heima, aukinn fjármagnskostn-
aður og tenging fiskverðs við launa-
þróun í landi, þar sem laun sjó-
manna ákvarðast fyrst og fremst
af fískverðinu. Bilið á milli afurða-
verðs og framleiðslukostnaðar, hrá-
efni meðtalið, hefur því verið að
aukast.
Óeðlileg verðþróun
Að framansögðu sýnist að ekki
megi búast við verðhækkunum á
sjávarafurðum næstu misserin,
hvort sem um er að ræða ferskan
eða frystan fisk, nema í Japan, en
þar hefur verð farið hækkandi síðan
salan þangað hófst í einhveijum
mæli. I dölum talið hefur verð á
fiski til Sovétríkjanna einnig hækk-
að. Verðþróunin síðustú misseri
virðist óeðlileg. Hækkanir hafa ver-
ið það miklar að verðfall, ekki verð-
lækkanir, hefur fylgt í kjölfarið.
Fiskseljendur vöruðu við því á
síðasta ári, að verðið væri að verða
of hátt. Á sama tíma báðu þeir um
að meira yrði framleitt fyrir Banda-
ríkjamarkaðinn til að hægt yrði að
ná þar jafnvægi í framboði og eftir-
spurn og um leið verði. Svo virðist,
sem þetta jafnvægi hafi í för með
sér svipað eða lægra verð en nú
fæst. í Bretlandi virðist um hreint
offramboð að ræða, fyrst og fremst
vegna þess hve pundið er miklu
styrkara en dalurinn. Færsla fisk-
sölunnar frá Bandaríkjunum til
Bretlands af þessum sökum er því
veruleg og jafnframt mjög óæski-
leg, því hún veldur framboði um-
fram eftirspum í Bretlandi en öfugt
í Bandaríkjunum, en afleiðingin á
báðum stöðum er lækkandi verð. Á
sama tíma hækkar hráefnisverðið
hér heima.
Samdráttur framundan
Þjóðartekjur og- tekjur af sölu
fiskafurða fylgjast nokkuð að enda
skilar sjávarútvegurinn í kringum
77% af gjaldeyristekjunum. Síðan
1983 hafa tekjur af fisksölu reikn-
aðar í milljónum dala rúmlega tvö-
faldazt, en þjóðartekjur tæplega
tvöfaldazt. 1983 voru físksölutekj-
umar 507 milljónir dala, 500 1984,
626 1985, 865 1986 og í fyrra
1.073. 1983 vom þjóðartekjumar
743 milljónir, en 1.374 í fyrra.
Tekjuaukning af fisksölunni er
umtalsverð síðustu þijú árin, en nú
er reiknað með samdrætti upp á
um þijá milljarða króna. Augljós-
lega hlýtur að gefa á þjóðarskútuna
við þessar aðstæður og ekki sízt
allar greinar sjávarútvegsins. Sam-
dráttur hlýtur að vera fram undan.
Ekki verður séð að fiskvinnslan
geti með nokkrum hætti gengið án
taps meðan afurðarverð lækkar og
allur kostnaður hækkar. Fiskverð
fylgir iaunum í landi, sem koma í
humáttina á eftir verðbólgunni, sem
ekki virðist fylgja verðbreytingum
á sjávarafurðunum nema að mjög
litlu leyti, þrátt fyrir að þær skipti
sköpum í þjóðarbúskapnum. Þegar
aðrar þjóðir lækka fískverð til sam-
ræmis við lækkun afurðaverðs,
hækkar það hér.' Það leiðir hugann
að því, hvort verðmyndun á fiski
sé með eðlilegum hætti. Nú ákveður
Verðlagsráð sjávarútvegsins eða
yfimefnd þess verðið. Oftast nær
er það yfimefndin, sem skipuð er
tveimur fulltrúum fiskvinnslunnar,
einum frá sjómönnum, einum frá
útgerð og oddamanni skipuðum af
stjómvöldum. í lögum um Verð-
lagsráðið og yfirnefnd þess, en
ákvarðanir þaðan hafa lagagildi,
segir meðal annars að við ákvörðun
verðs skuli taka mið af afurða-
verði, kostnaði við vinnslu og kostn-
aði við veiðar. Upp á síðkastið hef-
ur æ meira tillit verið tekið til þess
að laun sjómanna hækki svipað og
laun fólks í landi. Við síðustu verð-
ákvörðun var í raun farin millileið,
sem fullnægir engum þessara aðila.
Verðið var hækkað um 5%, ekki
10% eins og laun í landi mega
hækka samkvæmt bráðabirgðalög-
um. Verðið lækkaði ekki í samræmi
við verðlækkun á afurðunum og
hækkunin hefur ekki dugað upp í
vaxandi kostnað við útgerðina.
Verulegoir skortur
á samhæfingu veiða
og vinnslu
Mikil óánægja kom upp meðal
sjómanna vegna þessarar ákvörð-
unar og hættu þeir að hluta til og
tímabundið störfum í Verðlagsráð-
inu. Upp hefur komið sú spuming
hvort ekki væri rétt að leggja ráðið
niður í núverandi mynd og útgerð
og fískvinnsla semdu einfaldlega
um verð, en sæju síðan um að
greiða starfsfólki sínu, fískverka-
fólki og sjómönnum, laun. Laun
fiskverkafólks em lág og hefur
gengið illa að fá fólk til starfans.
Svigrúm til hækkunar virðist lítið
nema sjómenn gefí eitthvað eftir,
enda laun þeirra mun hærri en land-
verkafólks í nær öllum tilfellum.
Með mögulegri hækkun launa fisk-
verkafólks gæti sjávarútvegurinn
fengið betra og stöðugra vinnuafl
en ella, sem aftur þýddi aukin af-
köst og aukna framleiðslu í gjöful-
ustu pakkningamar. Hvað þetta
varðar skortir einnig greinilega á
samhæfingu veiða og vinnslu. Oft
á tíðum er veiðin mun meiri en
hægt er að anna, þó fískurinn fari
bæði utan óunninn, sé frystur, salt-
aður og hengdur upp. Afraksturinn
verður lægra verð erlendis vegna
offramboðs og lítil framlegð vinnsl-
unnar þar sem svigrúm er ekki til
að vinna fískinn í hagkvæmustu
pakkningamar. Slík óstjóm virðist
afar einkennileg í ljósi þeirrar stað-
reyndar að 80% fiskiskipaflotans
er í eigu fiskvinnslunnar eða öfugt
eftir því hvemig á það er litið. í
þrengingum fiskvinnslunnar að
undanfömu hefur mikið verið talað
um hagræðingu. Sé hægt að sam-
hæfa og hagræða veiðum og vinnslu
meira en gert er, gæti verðmæti
aflans aukist um milljarða króna.
Góðærin reynast
okkur erf ið
Þenslan í þjóðfélaginu hefur
einnig komið við í sjávarútveginum.
Miklu fé hefur verið varið í end-
umýjun og endurbætur á flotanum
og fiskvinnslan hefur fest fé í ýms-
um búnaði, þegar vel hefur gengið.
Til mögru áranna hefur aldrei verið
geymt fé, þar sem dæmið virðist
ætíð reiknað út frá toppunum, jafn-
vel þó menn viti, vilji þeir það á
annað borð, að þeir eru skammlífír
og geti verið erfiðari en lægðimar.
Góðærið virðist okkur íslendingum
mun vandmeðfamara en hallærið.
Við kunnum að þrauka, en ekki að
hafa stjóm á hlutunum í batnandi
tíð.
ÁS-TENGI
Allar gerðir.
Tengið aldrei stál í stál.
SOcjirllsQsngxuB' .JémiæsŒOT <5®
VESTURGÖTU 16 - SIMAR 14680 - 21480 .
• Willy’s drifbúnaður.
• Sportfelgur og framdrifslokur.
• Diskahemlar á framhjólum.
• Luxusinnrétting meö sportsæt-
um og margt fleira.
Bílaborg h.f. er nú að hefja innflutning á bifreiðum frá stórfyrirtækinu Ssangyong Gerið ykkur dagamun um helgin;
í Suður Kóreu. Fyrstu gerðirnar sem kynntareru samtímis á öllum Norðurlöndun-
um eru KORANDO jeppar, sem eru hinir kunnu Willy’s J-5 jeppar framleiddir undir
leyfi frá AMC í Bandaríkjunum. Að þessu tilefni sýnum við um helgina 3 gerðir af
þessum glæsilegu, sterkbyggðu jeppum: Blæjubíl með veltigrind, sama bíl með
vönduöu stálhúsi og lengda gerð með stálhúsi. Þettaeru vandaðir bílar og ríkulega
búnir.
komið og reynsluakið þessum
glæsilegu bílum!
BÍLABORG H.F.
FOSSHÁLS11 .SÍMI68 12 99
naa
ctiihii*
■MII1U
Opið laugardag og
sunnudag frá kl. 1-5
2.3 I Opel/lsuzu diselvél.