Morgunblaðið - 09.07.1988, Síða 21

Morgunblaðið - 09.07.1988, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 21 AÐ AFSTOÐNUM FORSETAKOSNIN GUM eftirdr. Gunnlaug Þórðarson Nýafstaðnar forsetakosningar eru óvenjulegar um margt, eins og bent hefur verið á. I fyrsta lagi að því leyti, að boð- ið var fram gegn starfandi forseta, sem engum gat dulist að hlaut að verða endurkjörin með yfírburðum, vegna þess hve vel forsetanum, frú Vigdísi Finnbogadóttur, hafði fam- ast í hinni vandasömu stöðu. I öðru lagi vegna þess að hér var um algjört óánægju-framboð að ræða, þar sem þeir sem að því stóðu gerðu sér enga von um meira en þijá af hundraði atkvæða. Með hverri þjóð fyrirfínnast slíkir hópar manna, sem eru óánægðir með allt og alla og freista þess að fá útrás fyrir óánægju sinni á ýmsa lund. Þess vegna var þetta framboð til embættis forseta íslands hrein ósvinna og gert í skjóli þess að þeir vankantar eru á lýðraeði okk- ar, sem auðvelda fólki slíka uppá- komu á milljónatuga kostnað al- mennings. I þriðja lagi vegna þess yfírburða meirihluta atkvæða, sem frú Vigdís hlaut og mun óhugsandi að neinn forseti muni nokkum tíma verða kosinn með viðlíka yfírburðum. Reyndar kom það á óvart, að fram- bjóðandinn frú Sigrún Þorsteins- dóttir skyldi ekki ná þeirri 10% hlut- fallstölu kjósenda, sem telja má að kjósi -af ábyrgðarleysi. Kosningabaráttan var líka all sérstæð að vonum. Stuðningsmenn frú Sigrúnar kröfðust þess að þær fæm í karp saman í fjölmiðlum. Slíkt hefur ekki átt sér stað í fyrri kosningabaráttu til forsetakjörs og kom ekki til mála að flestra áliti; enda ekki að vita hvað slík uppá- koma hefði getað farið út í með tilliti til þess hugrekkis sem stuðn- ingsfólk Sigrúnar sagði að prýddi hana, en var aðeins algjört dóm- greindarleysi. Stuðningsmenn frú Vigdísar báðu prófessor Sigurð Líndal að gera almenningi grein fyrir helstu ákvæðum stjómarskrárinnar varð- andi embætti forseta íslands, í út- varpi. Svo sem vænta mátti fórst prófessomum þetta vel úr hendi með hlutlægri og gagnorðri grein- argerð, sem var án efa til fróðleiks fyrir marga. Hins vegar brá svo ftirðulega við að stuðningsmenn frú Sigrúnar höfðu engan skilning á þeim lögfræðilegu upplýsingum, sem fólust í greinargerðinni og sendu ríkisútvarpinu til birtingar yfirlýsingu, sem var full af gífuryrð- um og dónaskap í garð próf. Sigurð- ar eða útúrsnúningur. Var mál- flutningur hans talinn „tilræði við þróun lýðræðis á íslandi" og hann m.a. talinn hafa „andstyggð á lýð- ræðinu og vilja halda í hefðir konungsvaldsins" og klykkti út með „að fyllsta tilefni væri til að kæra Sigurð Líndal fyrir siða- nefnd lögfræðingafélagins“. Slík nefnd er ekki til, enda átti hin stór- yrta yfirlýsing ekkert skylt við lög- fræði. í stað að marglesa í útvarpi þessa fáránlegu árás á prófessor- inn, sem kom forsetakosningunum ekkert við, mátti geta þess að út- varpinu hefðu borist mótmæli við greinargerð hans frá stuðnings- mönnum frú Sigrúnar. En fyrst Fundurinn á Flúðum var vel sóttur. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson þessi yfírlýsing var birt orðrétt hefði verið rétt að lesa greinargerð pró- fessorsjns um leið, svo fólk hefði getað áttað sig á því hve tilefni hennar var mikil fjarstæða. Daginn eftir kosningarnar var ríkisútvarpinu mest í mun að stagl- ast á því að forsetinn hefði verið kosinn með minnstri þátttöku í al- mennum kosningum frá því 1933. Ein aðalfrétt ríkisútvarpsins var sú að einn af kennurum Háskólans í stjómmálafræðum teldi líklegt að nú eftir þessar kosningar myndu heQast miklar umræður um forseta- embættið, neitunarvald forseta o.fl. og þótti þetta álit háskólakennarans merkisfrétt. Sá góði maður virðist ekki átta sig á því að meginþorri þess fólks, sem kaus frú Vigdísi Finnbogadóttur var með atkvæði sínu að kjósa óbreytt ástand for- setaembættisins. Hitt má líka vera öllum ljóst að það að kosningaþátt- takan varð ekki meiri en raun bar vitni, stafaði af því að í þeim kosn- ingum var ekki um neina sam- keppni að ræða, frú Vigdís var ör- ugg um endurkjör. Undirritaður var í hverfiskjör- stjóm einni hér í höfðuborginni. í nokkur skipti kom það fyrir að fólk var mætt á kjörstað í mínu hverfí, en á daginn kom að það átti að kjósa annars staðar í borginni eða á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Sagði það þá óþarfí væri að vera að gera sér fyrirhöfn út af þessu, því forset- inn væri svo viss um endurkjör og hætti við að kjósa að því er ætla mátti. Við í hverfisstjóminni hvött- um það tii að kjósa, því það væm borgaraleg réttindi. Spuming er líka hvort leiða ætti í lög skyldu til þátttöku í alþingiskosningum og forsetakosningum, því fólk getur þó ætíð skilað auðu.o— Slíkt þekk- ist meðal margra lýðræðisþjóða. Hitt er jafn víst að allir stuðn- Dr. Gunnlaugur Þórðarson „Að fenginni þeirri reynslu, sem umrætt forsetaframboð hefur gefið, er brýnt að með- mælendafjöldinn til forsetáframboðs verði leiðréttur, þannig að krafist verði lágmarks- hundraðshluta kjós- enda í hverju kjör- dæmi, t.d. þriggja af hundraði og í mesta lagi 6 af hundraði, þá er von til þess að þvílíkt forsetaframboð sem þjóðin varð að þola, illu heilli, 25. júní sl. verði ekki endurtekið.“ ingsmenn frú Sigrúnar, sem gátu kosið, munu hafa skilað sér á lq'ör- stað og má því ætla að hefði verið um eðlilega forsetakosningu að ræða t.d. 85% kjörsókn hefði hún ekki fengið meira en 4% atkvæða. Það er því hrein ósvinna hjá henni Lögreglufélag Reykjavíkur: Ekkert bendir til óeðlilegs harðræðis eftírJón Pétursson Fallinn er dómur í máli ákæru- valdsins gegn tveimur lögreglu- mönnum vegna ætlaðrar rangrar handtöku og harðræðis við Svein B. Jónasson aðfaranótt 13. febrúar sl. Var öðrum lögreglumanninum vikið úr starfi vegna þess, og sonur hans, sem fyrir engum sökum hefur verið hafður, var einnig látinn víkja frá störfum. Eins og kunnugt er féll dómurinn á þann veg að lög- reglumennimir voru sýknaðir af öll- um meginákærum, en annar þeirra dæmdur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi. Er þar þó gengið út frá að hann hafi í hvívetna gert eins og honum hefur verið kennt að sé rétt og öruggt. Þessi niðurstaða dóms segir það eitt að skilgreina þurfí að nýju ábyrgðarþátt lögreglu. Hins vegar bendir ekkert til óeðlilegs harðræðis, hvað þá verri hluta, eins og sumir hafa viljað halda fram. Við meðferð málsins fyrir dómi hefur hins vegar sýnt sig að sú saga sem fremst hefur verið höfð fyrir að ætla að eigna sér eitthvað af þeim kjósendum, sem heima sátu, en það er svo sem eftir öðru úr þeirri átt. Að fenginni þeirri reynslu, sem umrætt forsetaframboð hefur gefíð, er brýnt að meðmælendafjöldinn til forsetaframboðs verði leiðréttur, þannig að krafíst verði lágmarks hundraðshluta kjósenda í hveiju lqördæmi, t.d. þriggja af hundraði og í mesta lagi 6 af hundraði, þá er von til þess að þvílíkt forseta- framboð sem þjóðin varð að þola, illu heilli, 25. júní sl. verði ekki endurtekið. Reyndar hefur það sýnt sig við fjölda undirskriftasafnana, að hægt er að fá fólk til að skrifa undir hvað sem er. Því er hægt að taka undir það, sem Göethe sagði eitt sinn: „Maður getur aldrei ímyndað sér hve fólk getur verið heimskt." En með því að kreíjast fleiri meðmælenda er verið að leggja áherslu á það hve forsetaembættið er mikilvægt með þjóðinni. Mér kæmi hins vegar ekki á óvart að við næstu forsetakosningar verði 10 manns í framboði og þá þarf að vera búið að breyta stjómar- skránni í þá veru að enginn verði kosinn án þess að hafa meirihluta kjósenda að baki. Þá er rétt að fenginni þeirri ágætu reynslu af því að kosið er á laugardögum, að byija kosningar kl. 8 að morgni og ljúka þeim kl. 20. Það er flest, sem mælir með því og er á allan hátt til hagsbóta, en skal ekki rökstutt frekar nú, en samt á það bent að fjöldi vill kom- ast úr bænum snemma á laugardög- um. — I síðustu kosningum var talsvert af fólki mætt kl. 9, en kosn- ing var ekki látin hefjast fyrr en kl. 10 vegna óska einhverra starfs- manna við kosninguna. Telja má vfst að flestir þeir, sem vinna við kosningar myndu vilja byija fyrr til þess m.a. að talning gæti hafíst fyrr og það er engin ástæða til þess að hafa kosninguna i lengri tíma en 12 klst. sem er ríflegt mið- að við reynslu fyrri kosninga. Höfuadur er hæstaréttarlögmað- ur. almenningi í landinu sem heilagur sannleikur er ekki annað en runa af rangfærslum, ýkjum og lygum. Þar hefur verið vikið til máli í hveiju orði. Þessi þvættingur hefur síðan ver- ið brúkaður sem tilefni til að úthrópa þá menn sem átt hafa hlut að máli og síðan til að rakka niður lögreglu- stéttina og stimpla hana sem safn hrottamenna sem lygju til að vemda hver annan. Við eigum enga von um að sumir þeir, sem hæst hafa látið, eigi nokkra löngun til að skyggnast eftir stað- reyndum málsins. Þær liggja nú fyr- ir í dómsskjölum. Við vonum og trú- um að í íslenskri blaðamannastétt fínnist þeir menn er telji rétt að hafa það heldur er sannara reynist og fáist til að gera almenningi grein fyrir því sanna f málinu. Höfundur er formaður Lögreglufélags Reykjavíkur. vera tryggt að ríkið stæði við skuld- bindingar varðandi bætur vegna niðurskurðar. Til áréttingar þessu var samþykkt eftirfarandi tillaga: „Almennur fundur um riðuveiki og vamir gegn henni, haldinn á Flúð- um 30. júní, skorar á ríkisvaldið að standa við skuldbindingar varð- andi bætur til sauðfjáreigenda ef til niðurskurðar kæmi. Að öðrum kosti sjáum við sauðfjárbændur okkur ekki fært að skrifa undir neinar skuldbindingar er varða nið- urskurð á sauðfé, kunni riðuveiki að koma upp f hjörðum okkar." í greinargerð með tillögunni seg- ir að hún sé til komin vegna efa- semda bænda í garð núverandi stjórnvalda þar sem bændur álíti að gerðir þeirra stangist stundum á við lög ef um fjármagn til Iand- búnaðar er að ræða. Megi þar nefna afgreiðslu fjármálaráðherra á jarð- ræktarframlögum vegna fram- kvæmda liðins árs þar sem bæði vantar upp á futlt framlag og einn- ig þar sem búgreinum sé mismun- að. í ullarsölumálum er bent á að ekki sé unnt að standa við gefin heit um greiðslur fyrir vetrarrúna ull þar sem ekki fáist niðurgreiðslur frá ríkinu. Ennfremur er bent á að nú standi styr um endurgreiðslu söluskatts af hluta búvara. Þetta telur Haraldur Sveinsson flutnings- maður tillögunnar renna stoðum undir tortryggni sauðQárbænda. í lok fundarins var önnur ályktun samþykkt þar sem skorað er á stjómvöld að sjá til þess að sveitar- stjómir og upprekstrarfélög fái full- virðisrétt fyrir það sauðfé sem ekki fínnst eigandi að í haustréttum. Þetta er talið nauðsynlegt svo þess- ir aðilar þurfi ekki að bera kostnað af meðhöndlun og slátmn fjárins f því skyni að forðast riðuveiki. — Sig. Jóns. Árleg fjöl- skylduhátíð Kiwanismanna KIWANISMENN af Ægissvæði og fjölskyldur þeirra halda ár- Iega Vigdísarvallarhátíð nú um helgina. í frétt frá forsvarsmönnum há- tíðarinnar segir að á þriðja hundrað þátttakendur hafí mætt á hátíðina í fyrra og vonast sé til að sem flest- ir Kiwanismenn af Ægissvæði sjái sér fært að mæta í ár. Á hátfðinni verður keppt f íþrótt- um og farið í leiki og þátttakendur fá áritað viðurkenningarskjal. Þeir sem skara fram úr fá verðlaunapen- inga. (Úr fréttatilkynningu)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.