Morgunblaðið - 09.07.1988, Síða 22

Morgunblaðið - 09.07.1988, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 Flotinn verður Banda- ríkjamönnum ætíð mikil- vægari en Sovétmönnum — segir Robert Wood, kennari við Stríðsháskóla bandaríska flotans „Sumir hafa lagt til að við breyttum nafni skólans og gæfum honum vinalegra nafn eins og til dæmis Friðar- og afvopnunar- skólinn eða eitthvað í þá veruna. En mér finnst sá kostur við að halda nafninu að það minnir stjórnmálamenn á þá staðreynd að þegar her er haldið uppi þá fylgir því hætta á stríði. Með nafn- inu er ekki dregin dul á þetta. Við megum ekki láta blekkjast og gleyma því að stríð er „áhættusamt fyrirtæki" og út í slíkt skyldi ekki leggja nema brýn nauðsyn krefji,“ segir Robert S. Wood, stjórnmálafræðingur og kennari við Naval War College, Stríðsháskóla bandaríska flotans. Wood var staddur hér í síðustu viku í boði Menningarstofnunar Bandaríkjanna til að ræða framtíð flotamála og þátt stjórnmála, ríkisfjármála og tækniþróunar í flotastefnu Bandaríkjanna. Blaðamaður notaði tækifærið og spjallaði við Wood um starfsemi skólans, flotastefnu Bandaríkja- manna og þátt flotans í afvopnunarviðræðum risaveldanna. „Stríðsháskóli flotans (Naval War College) er æðsta mennta- stofnun bandaríska flotans. Hann er jafnframt elsti herskóli landsins og elsti herskóli í heimi sem starf- að hefur samfleytt," segir Wood. „Þar er ein besta aðstaða í landinu til að iðka stríðsleiki og sviðsetja orustur. Þar rannsökum við her- stjómarlist og framkvæmd henn- ar. Stríðsleikir og rannsóknir starfsmanna háskólans miða að því í sameiningu að koma fram með nýjar hugmyndir sem gætu nýst hermálayfirvöldum. Hjá skó- lanum metum við styrk banda- ríska heraflans og jafnvægið milli austurs og vesturs. Við njótum góðs af því að vera í Newport sem er innan við þús- und km frá Washington þar sem ákvarðanimar eru teknar og því erum við sjálfstæðari en margan grunar.“ Wood segir blaðamanni að Marshall Brennant sem var sendi- herra Bandaríkjanna á íslandi sé nú yfirmaður starfshóps um her- stjómarrannsóknir á vegum skól- ans en því starfi gegndi Wood sjálfur áður. Nú er hann deildar- forseti miðstöðvar fyrir rannsókn- ir á flotahemaði. Wood var því næst beðinn að útskýra hvernig áætlun eins og geimvamaáætlun Ronalds Reag- ans Bandaríkjaforseta, SDI, væri meðhöndluð hjá skólanum. „Við athugum fremur hvaða tilteknu hlutverki SDI eigi að þjóna og hvort líkur séu á að það takist en að meta hana í heild sinni og afleiðingar hennar fyrir vígstöðu Bandaríkjanna á breiðum grunni. Við veltum ekki mikið fyrir okkur róttækustu útgáfunni af SDI, þ.e.a.s. að hún tryggi að engar óvinaflaugar geti lent á banda- rískri grund. Við metum fremur líkur á því að þessi eða hin vopna- kerfín standist árásir óvinar. Nið- urstaða okkar virðist sú að sumar hliðar SDI auki öryggi okkar og stuðli að slökun," segir Wood. Flotinn Bandaríkja- mönnum mikilvægur Aðspurður um samskipti ís- lendinga við skólann segir Wood að íslendingar hafí komið nær árlega í heimsókn undanfarin ár. „Þar hefur verið um að ræða menn frá hinu opinbera og stjóm- málamenn úr ýmsum flokkum. Rætt hefur verið óformlega um eðli hemaðar á hafí og vama ís- lands. Hingað er ég fyrst og fremst kominn til að ræða flota- stefnu Bandaríkjanna. Sú stefna byggist á því að sókn sé besta vömin og hefur verið kölluð fram- vamarstefna. Flotinn hefur alltaf og mun alltaf verða Bandaríkja- mönnum mikilvægari en Sovét- mönnum af landfræðilegum ástæðum. Sovétríkin njóta yfir- burðastöðu í Evrasíu og eru því ætíð hugsanleg ógnun við ná- grannaríki sín, einkum í Vestur- Evrópu. Bandaríkin á hinn bóginn eiga sína helstu bandamenn handan hafsins eða í næsta nágrenni Sov- étríkjanna. Eigi að veita þeim liðs- styrk til að hindra stríð eða stunda hemað með árangri þá hlýtur flotastefna Bandaríkjanna að mið- ast við það að flotanum sé beitt eins nærri óvininum og kostur er. Jafnvel þótt Sovétmenn kölluðu eitthvað af herliði sínu heim, til dæmis skriðdrekasveitir frá Aust- ur-Evrópu, og drægju úr flota- umsvifum þá myndi þessi staða ekki breytast. Ég sé fram á batn- andi sambúð austurs og vesturs og að Sovétmenn einbeiti sér í vaxandi mæli að innanríkismálum í einhvem tíma a.m.k. og Banda- ríkin einnig. En hver vill byggja vamir sínar á tímabundnum að- stæðum hjá öðru hvoru risaveld- anna, Sovétríkjunum eða Banda- ríkjunum? Vegna legu sinnar gegnir ís- land mikilvægu hlutverki því það- an er hægt að vemda siglingar bandaríska flotans á hættu- og átakatímum milli Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu. Þetta mun ekki breytast nema eðli Sovétríkj- anna breytist gjörsamlega og hemaðaruppbygging þeirra," seg- ir Wood. Minnkandi umsvif sovéska flotans En hefur sovéski flotinn dregið úr umsvifum sínum að undanf- ömu? „Studeman, yfirmaður leyni- þjónustu hersins, sagði nýléga í yfírheyrslu hjá rannsóknamefnd þingsins að sovéski herinn hefði dregið úr umsvifum upp á síðkas- tið. Eða öllu heldur að vaxtar- hraði flotans væri minni en áður. Ástæðumar eru tvær: Flotinn er Sovétmönnum ekki svo mikilvæg- ur eins og ég sagði áðan. Sovét- menn komast þangað sem þeir vilja fótgangandi ef svo má að orði komast. Flotinn gegnir því ekki lykilstöðu í hemaðarupp- byggingu Sovétríkjanna. Og þetta atriði hefur torveldað afvopnunar- viðræður því báðir aðiljar leggja ekki sama mat á einstaka hluta hersins og einstakar vopnagerðir. í öðru lagi leyfír efnahagsstaða Sovétríkjanna ekki útþenslu á öll- um sviðum. Þá kemur flotinn fyrst til greina sem fómarlamb niður- skurðarins. Kafbátar eru þó und- anskildir því þeir eru mikil ógnun við Bandaríkin og vestræn ríki. Næsta skref verður líklega að draga úr herafla í Austur-Evrópu. Mér kæmi þó á óvart ef Gor- batsjov væri reiðubúinn að skera Robert S. Wood. svo niður útgjöld til hermála að þau ykjust ekki um 2% á ári. Sovéski flotinn er því ekki eins ógnvænlegur og fyrir 2-3 ámm. Vert er að geta þess að sumar afvopnunartillögur Gorbatsjovs virðast hafa það að markmiði að binda hendur bandaríska flotans. Það er klókindalegt. Hann leggur til að Bandaríkjamenn dragi kaf- báta sína út úr Noregshafí, Bar- entshafí, Miðjarðarhafí og Jap- anshafí. í staðinn segist hann reiðubúinn að minnka flotaumsvif og ef til vill kalla eitthvað af her- aflanum í Austur-Evrópu heim. Þessar og margar aðrar tilögur miða augsýnilega að því að kljúfa Bandaríkin frá Vestur-Evrópu ef til stríðs kæmi. Yfirburðir okkar á hafí er ein af fáum leiðum sem við höfum til að vega upp á móti hemaðaryfírburðum Sovétmanna á landi.“ En hver verður framtíð af- vopnunarviðræðna að mati Wo- ods? „Ég held að nú höfum við náð því stigi í afvopnunarviðræðum að ekki sé lengur rétt að einblína á einstakar vopnagerðir heldur verðum við að líta á þær allar í samhengi. START-samkomulag (um helmingsfækkun langdrægra kjamorkueldflauga) væri að mínu mati skynsamlegur endahnútur á tvíhliða viðræðum risaveldanna. Bandamenn risaveldanna þurfa að koma til skjalanna eftir það,“ svarar Wood. Gorbatsjov er snillingur Og hver er þáttur stýriflauga á hafi í komandi afvopnunarvið- ræðum? „Gorbatsjov hefur sagt að skil- yrði fyrir START-samkomulagi sé samkomulag um stýriflaugar á hafí. Ekki er ljóst hvort hann á einungis við stýriflaugar með kjamahleðslu eða hvort hann telur stýriflaugar með hefðbundnum sprengjuoddum með. Ég held að Gorbatsjov sé að notfæra sér af- vopnunarvilja Bandaríkjanna til að ná fram niðurskurði í kjam- orkuvopnum og hefðbundnum flot.abúnaði Bandaríkjanna. Stýri- fiaugamar sem Gorbatsjov vill losna við gegna m.a. því hlutverki að veija lofthelgina yfír Noregs- hafí úr ijarska. Það er ekki að ástæðulausu sem ég segi að Gor- batsjov sé snillingur. Almenningur á Vesturlöndum ætti ekki að þrýsta svo mjög á stjómvöld sín að þau hafí laka vígstöðu við samningaborðið sem leiðir til þess að Sovétstjóm þarf engu að fóma. Líkt og á fjórða áratug aldarinnar hneigist al- menningur til að taka orð fyrir gerðir. Með samkomulaginu, um upp- rætingu meðal- og skammdrægra kjamaflauga á landi, vom skilin eftir í Evrópu skammdrægustu kjamorkuvopnin. Því er skiljan- legt að V-Þjóðveijar hafi áhyggj- ur af þeirri stöðu sem nú er kom- in upp. Áhyggjur af því að kjam- orkustríð yrði takmarkað við land- svæði þeirra. En undirstaða NATO er sú að hættunni á stríði sé dreift á öll aðildarríki. Árás á eitt ríki er túlkuð sem árás á þau öll. Hér koma stýriflaugar með kjamahleðslu á hafi til sögunnar. Hlutverk þeirra er að auka öryggi í Evrópu. Gorbatsjov vill semja um takmörkun þessara stýri- flauga vegna þess hve þær eru mikilvægar fyrir NATO. Hann heldur því fram að staðsetning stýriflauga með kjarnahleðslu dragi úr gildi samningsins um eyðingu meðal- og skammdrægra kjamorkueldflauga. Bandaríkja- menn hafa í grundvallaratriðum fallist á sjónarmið Gorbatsjovs en vilja þó semja um stýriflaugamar óháð START-samkomulagi. Sjálfum fínnst mér Iíklegt að eitthvert samkomulag náist um fjölda stýriflauga á hafí eftir harð- ar samningaviðræður. Núll-lausn tel ég ólíklega af fyrrgreindum ástæðum, þ.e.a.s. V-Evrópubúar sjá sér hag í að hafa eitthvað af þessum flaugum. Ég efa einnig að hömlur verði settar á endumýj- un stýriflauga. Bæði risaveldin vinna nú að smíði langdrægra, hljóðfrárra og torséðra stýri- flauga. Mjög erfitt er að fylgjast með framleiðslu og staðsetningu stýriflauga. Ef eftirlit á að vera framkvæmanlegt þá hlýtur það að verða þar sem kjamahleðslur em settar í flaugamar. En vissu- lega kemur það ekki í veg fyrir að framleiðendur geti safnað birgðum af kjarnahleðslum. Hugsanleg leið til að auðvelda eftirlit er að búa svo um hnútana að nær ómögulegt sé að setja kjamahleðslu í stað hefðbundinn- ar sprengjuhleðslu á hafí úti,“ segir Wood. Blaðamaður skýtur inn í að þama sé augljóslega um gífurlega erfítt verkeftii fyrir samninga- menn risaveldanna að ræða. Flókið eftirlit með stýriflaugum „Ég hef nú samt ekki miklar áhyggjur af þessu efni,“ segir Wood. „Nú þegar er til nógu mik- ið af kjamavopnum til að gera allt sem menn vilja gera með slíkum vopnum. Þó menn hafí áhyggjur af tilvist kjamavopna þá er ég sannfærður um að bæði risaveldin líta á þau sem algert neyðarúrræði. Ég held það sé ekki síður mikil- vægt fyrir NATO að viðhalda fælingu á sviði hefðbundinna vopna heldur en kjamavopna. Og stýriflaugar á hafí með hefð- bundnum sprengjuhleðslum stuðla að þess háttar fælingu og þess háttar jafnvægi í Evrópu. Ástæðan fyrir því að Vesturlönd hafa lagt svo ríka áherslu á fram- leiðslu kjamavopna er sú að þau hafa ekki getað mætt uppbygg- ingu hefðbundins herafla Sovét- manna. Ástæðan er ekki sú að skort hafi efnahagslegan mátt heldur öllu fremur pólitískan vilja. Ég held að ekki sé lengur hægt að bæta við fælingarmátt kjarn- orkuvopna. Annað vandamál varðandi eft- irlit með stýriflaugum er hversu smáar þær em og að ómögulegt er að þekkja kjamaflaug frá hefð- bundinni nema taka hana í sundur eða fara með geislamæli um borð. í Bandaríkjunum er hægt að fylgj- ast með þegar kjamahleðsla er sett í slíka flaug því það er einung- is gert undir ströngu eftirliti hjá flotanum. Þar með er skapaður grundvöllur fyrir eftirlit, en ein- ungis vegna þess hvernig vopna- framleiðslukerfið er uppbyggt. Ég hef velt því fyrir mér hvernig Sovétmenn fari að þessu. Ef þeir hefðu svipað kerfi hjá sér þá myndi það auðvelda samninga- gerð. Það er erfíðara fyrir Banda- ríkjamenn að „svindla" vegna þess að þjóðfélagið er opnara og að vopnaframleiðsla er að miklu leyti í höndum verktaka. Við verð- um því að treysta að miklu leyti upplýsingum .frá Sovétmönnum um það hvar framleiðslan eigi sér stað. I þessu sambandi er vert að nefna hlut sem mörgum líkar illa að heyra. Ég held því fram að með aukinni afvopnun komi það stig að hún auki hættuna á stríði. Því færri vopnakerfum sem hvor aðilinn hefur yfir að ráða, því meira sem menn byggja á gagn- kvæmu trausti, því meiri verður freistingin að „svindla" og gera árás.“ Hættulegt að útrýma kjarnavopnum „Við höfum heyrt stjómmála- menn segja við hátíðleg tækifæri að þeir voni að þeir megi lifa þá stund að öllum kjamavopnum hafí verið eytt. I fyrsta lagi er þetta ómögulegt. í öðru lagi væri það ef til vill hættulegt," segir Woods og hlær dátt. „Allur heim- urinn þyrfti að taka þátt í slíku og freistingin yrði mikil að koma sér upp kjamorkuvopni og nota sér það. Við vitum nú þegar að mörg ríki eiga kjamorkuvopn án þess að viðurkenna það.“ Wood var spurður að því að lokum hvort íslendingar hefðu að hans mati ástæðu til að hafa áhyggjur af umferð skipa með kjamorkuvopn í nágrenni við landið. „Ekki_ frekar en önnur ríki NÁTO. í fyrsta lagi sjá Banda- ríkjamenn sér hag í því að tak- marka notkun kjamorkuvopna í sjó. í öðru lagi er áhættan lítil miðað við það sem vinnst. Ef Bandaríkjamönnum eða banda- ríska flotanum yrði meinaður fijáls aðgangur eða hugsanlegur aðgangur að svæðinu umhverfis ísland til þess að framfylgja fram- vamarstefnunni og sjá Evrópu fyrir birgðum á stríðstímum þá væri það ekkert annað en her- fræðilegt skipbrot. í þriðja lagi, ef til þess kæmi að Sovétmenn gerðu árás með hefðbundnum sprengjum eða kjarnorkusprengj- um á kjamorkukafbáta Banda-' ríkjamanna þá yrði afleiðingin a.m.k. ekki eins slæm og ef þetta gerðist á landi. Bandaríkjamenn hafa, eða það vona ég a.m.k., gert Sovétmönnum ljóst að slík árás myndi sjálfkrafa lækka kjamorkuþröskuldinn og auka líkumar á alhliða kjamorkustyij- öld. Ekki getur því verið um sér- staka áhættu fyrir ísland að ræða hvað þetta varðar. Líkurnar á kjamorkuslysi tel ég einnig hverf- andi. Bandaríkjamenn leggja mun meira upp úr öryggi skipa sinna og kjarnorkuhreyfla en Sovét- menn. Ég þekki þess heldur engin dæmi að kjarnorkueldflaug hafi valdið mengfun vegna leka eða slíks," segir Wood að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.