Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
Sprengingin á olíuborpallinum í Norðursjó
Reuter
Olíuborpallurinn Piper Alpha brann enn í gær út af strönd Skotlands. Lík mannanna, sem um borð
voru, eru enn að finnast.
Stjórnin krafín svara
um öryffffiseftirlit
Lundúnum, Reuter. ^ J ^ J
BRESKA stjórnin er nú beitt þrýstingi um að hún birti skýrslu um
sprengingingu, sem varð fyrir fjórum árum um borð í olíuborpallin-
um Piper Alpha, sem sprakk í loft upp á miðvikudag og óttast er
að meira en 160 manns hafi farist við. Verkalýðsleiðtogar manna
þeirra, sem um borð i pallinum voru þegar sprengingin varð 1984,
segja að stjórnin hafi haldið skýrslunni Ieyndri þrátt fyrir áskoran-
ir um að hún yrði gerð opinber. í sprengingunni fyrir fjórum árum
slösuðust fjórir menn og 175 manns var forðað af pallinum.
Cecil Parkinson, orkumálaráð-
herra Bretlands, sem hefur heitið
opinberri rannsókn á sprengingunni
á miðvikudag, segir að skýrslan um
slysið 1984 hafi ekki verið birt
vegna þess að atburðurinn hafí ver-
ið minniháttar og að bandaríska
olíufélagið Occidental, sem átti pall-
inn, hafi ekki verið lögsótt fyrir
vikið.
Talið er að Parkinson muni svara
fyrirspumum um slysið í neðri deild
breska þingsins í næstu viku.
Roger Lyons, sem er starfsmaður
verkalýðsfélagsins, segir að vegna
þess að stjómvöld hafí ítrekað synj-
að beiðni um birtingu skýrslunnar,
hafí öryggismálanefnd starfsmanna
á pallinum sagt af sér fyrir tveimur
árum og skellt hurðum. „Síðan hef-
ur ekki verið starfrækt nein hefð-
bundin öiyggismálanefnd á Piper
Alpha," sagði Lyons í samtali við
fréttastofuna Reuters.
Lyons hefur hvað eftir annað
skorað á yfírvöld að stofnsetja sér-
stakt vinnueftirlit, sem starfa
myndi óháð orkumálaráðuneytinu
og sagt olíuiðnaðinn stefna hrað-
byri til „meiriháttar stórslyss".
Segir hann það í hæsta máta
óeðlilegt að sama ráðuneyti og
standi fyrir olíuborunum og öðmm
framkvæmdum á Norðursjó skuli
um leið stýra eftirliti með öryggi.
í Noregi og Bandaríkjunum, sem
em tvö helstu olíuframleiðsluríki
önnur á Vesturlöndum, hefur þess
verið rækilega gætt að halda þess-
um tveimur þáttum aðskildum.
Á hinn bóginn hefur ráðuneytið
varið þessa skipan mála og bent á
að fyrir það vinni „margir bestu
olíuverkfræðingar heims" og einnig
að í fáum löndum geti menn státað
af jafnstuttri slysaskrá.
Allir starfsmenn á olíuborpöllum
fá undirstöðuþjálfun í því hvemig
bregðast skuli við slysum og örygg-
is skuli gætt, en að auki fá flestir
sérstaka þjálfun í þeim störfum sem
þeir eiga að gegna á neyðarstundu.
Orkumálaráðuneytið lauk árlegri
skoðun sinni hinn 28. júní síðastlið-
inn og komst að þeirri niðurstöðu
að um borð í Piper Alpha væri allt
í himnalagi. Starfsmenn ráðuneyt-
isins segjast nú vera að endurskoða
margar reglugerðir, sem að örygg-
ismálum um borð í borpöllunum
lúta, en sumar þeirra eru meira en
20 ára gamlar.
Hörmungarnar ekkí útí
fyrir þá sem lifðu af
Lundúnum, Reuter.
TALIÐ ER að margir þeirra 64
manna, sem komust lífs af úr
sprengingunnr um borð í borpall-
inum Piper Alpha á miðvikudag,
kunni að vera meira og minna
úr leik næstu mánuði vegna
slyssins og í sumum tilvikum er
óttast að menn kunni að bera
þess merki sem eftir er. James
Thompson, læknir við Midd-
Iesex-sjúkrahúsið i Lundúnum,
segir að mennimir, sem af hafi
komist, og fjölskyldur þeirra
þurfi vafalítið á hjálp sérfræð-
inga að halda til þess að ná sér
eftir slysið.
„Eftir ... að fólk gerir sér grein
fyrir að það var næstum því farið
inn í eilífðina, er bráðnauðsynlegt
að það fái tafarlausa sálfræði-
hjálp," sagði Thompson f samtali
við iZeuters-fréttastofuna. Hann
hefur haft með höndum þá sem lifðu
af ferjuslysið við Zeebriigge og
neðanjarðarjábrautarbrunann i
Kings Cross.
Meira en 160 manns eru taldir
af eftir sprenginguna á borpallin-
um, sem staðsettur var um 120
mílur undan ströndum Skotlands.
Þeir, sem komust af þurftu að
klöngrast yfír rauðglóandi yfír-
bygginguna og stinga sér í kaldan
Norðursjóinn, en þegar þeim skaut
upp úr brann olía, sem flaut á yfír-
borði sjávarins og uppi á pallinumn
Reuter
Armand Hammer, eigandi Oc-
cidental-olíufélagsins, heimsæk-
ir hér einn starfsmann sinn í
sjúkrahúsi i Aberdeen. Sem sjá
má er maðurinn, Erland Grieve,
illa brunninn á andliti, hand-
leggjum og höndum.
mátti heyra vein og hróp félaga
þeirra, sem eftir urðu um borð í
pallinum.
„Þeir munu fínna sig knúna til
þess að tala um hvað gerðist," sagði
Thompson og bætti við að þetta
skýrði hvers vegna illa særðir menn
voru fúsir til þess að ræða við blaða-
menn aðeins nokkrum stundum eft-
ir slysið, enda þótt ljóst væri að
fyrir vikið hefðu margir þeirra liðið
enn meiri kvalir en ella.
Sagði Thompson sálfræðihjálpina
verða mikilvægari eftir því sem frá
liði, því inann nokkura vikna yrðu
ættingjar og blaðamenn búnir að
fá sig fullsadda af frásögnum frá
slysinu.
Thompson taldi að um fjórðungur
mannanna myndu fínna til sektar-
kenndar vegna þess að þeir hefðu
sloppið meðan félagar þeirra urðu
eftir í hinu logandi víti.
Pat Cunnings, félagsráðgjafi sem
hefur reynslu af málum sem þess-
um, sagði ljóst að fjölskyldur þeirra
sem af lifðu þyrftu að búa sig und-
ir hinir sáru þyrftu langan tfma til
þess að ná sér. Ekki síður sagði
hann þó lífsreynslu þessa vera erf-
iða fyrir fjölskyldur hinna látnu og
ekki yrði hún auðveldari fyrir þá
sök að í flestum tilvikum er ólíklegt
að líkin finnist nokkru sinni. „Það
er erfiðára fyrir fjölskyldurnar að
syrgja ástvini sína og ná sér þegar
þær hafa ekkert — engin lík, engar
jarðarfarir."
Rætt um framtíð Kambódíu:
Sihanouk príns
fær stuðnings-
yfirlýsingu
Bangkok. Reuter.
Bandaríkin og bandamenn þeirra í Asíu lofuðu Norodom Sihano-
uk prins sem lykilmann í viðleitni til að binda enda á niu ára stríð
í Kambódiu. George Shultz, utanrikisráðherra Bandaríkjanna fékk
prinsinum, sem nú er i útlegð frá riki sínu, bréf frá sljórn sinni
þar sem sagði að hann væri ómissandi i hverri þeirri lausn sem
fundin yrði á framtíð landsins.
Utanríkisráðherrar ríkja í Suð-
austur-Asíubandalaginu og vest-
rænir starfsbræður þeirra lýstu
einnig yfír stuðningi við Sihanouk
prins. Framundan er fyrsta óform-
lega friðarráðstefíian um
Kambódíu og hefst hún þann 25.
þessa mánaðar í Jakarta í Indó-
nesíu.
Sihanouk prins, ómyrkur í máli
að vanda, sagði fréttamönnum að
fulltrúar skæruliðahópanna
þriggja sem hann er í forsvari
fyrir myndu taka þátt í þreifingun-
um í Jakarta. Rauðu Khmeramir
eru einn hópurinn í bandalaginu
sem berst gegn leppstjóm Víet-
nama í Kambódíu og nýtur viður-
kenningar Sameinuðu þjóðanna.
Sihanouk sakar Víetnama um að
vilja koma ógnarstjóm Rauðu
Khmeranna aftur á til að fá tylliá-
stæðu til að hemema Kambódíu
að nýju án fordæmingar heims-
byggðarinnar. Kínveija skammaði
prinsinn fyrir að sjá Khmerunum
enn sem fyrr fyrir vopnum.
Vestur-Þýskaland:
Telja ketti
þjást af al-
næmisveiru
Köln. Reuter.
DÝRALÆKNAR í Vestur-
Þýskalandi hafa fundið
veiru, sem líkist alnæmis-
veiru.í köttum. Ekki er talin
hætta á að fólk geti smitast
af veirunni.
í frétt sem birtist í blaðinu
Stadt-Anzeiger í vikunni er
haft eftir nokkrum dýralækn-
um að sífellt fleiri kettir hafi
smitast af veirunni sem engin
lyf virðast vinna á.
Að sögn Carl Spieth, kunns
dýralæknis, er nauðsynlegt að
rannsaka veiruna frekar áður
en staðfest verður að um ein-
hvers konar alnæmisveiru sé
að ræða.
Bela Bartok yngri (t.v.), sonur og nafni tónskáldsins fræga frá
Ungveijalandi, sést hér ásamt hálfbróður sinum, Peter, og
ónefndri konu, (fremst á myndinni) er jarðneskar leifar tónskálds-
ins voru jarðsettar með mikilli viðhöfn í Búdapest í fyrradag.
Bræðumir sáu um flutning á ösku föðurins frá New York, þar
sem hann lést árið 1945. Bartok flúði frá Evrópu árið 1940 und-
an ofsóknum ungverskra fasista en nafn hans er nú í heiðri haft
í Ungveijalandi.
Reuter
Bartok kominn heim
Breska Alþýðusambandið:
Frestur rafvirkja
runninnút
London, Reuter.
BRESKA Alþýðusambandið,
TUC, rak Rafvirkjasambandið
úr sínum röðum í gær fyrir að
fórna verkfallsréttinum f samn-
ingum við vinnuveitendur.
Rafvirkjasambandið, EETPU,
hafði fengið frest til miðnættis,
aðfaranótt föstudags, til að ógilda
tvo slíka samninga. Brottrekstur
rafvirkjanna verður tekinn fyrir á
aðalfundi Alþýðusambandsins þann
5. september næstkomandi.
Talsmenn Rafvirkjasambands-
ins, sem telur 370.000 félaga, segj-
ast ætla að halda fast við vinnu-
samninga við fyrirtæki í suðurhluta
Wales og norðvesturhluta Eng-
lands. Nú er einnig verið að und-
irbúa tíu slíka samninga til viðbótar
þar sem Rafvirkjasambandið fær
viðurkenningu sem eini lögmæti
viðsemjandinn í skiptum fyrir verk-
fallsréttinn.
í mars síðastliðnum hætti Ford-
fyrirtækið við að reisa verksmiðju
að verðmæti 65 milljóna dala í
Dundee á Skotlandi vegna þess að
Alþýðusambandið neitaði að viður-
kenna samning sem verkalýðsfélag
vélvirkja hafði gert við fyrirtækið.
Var hann á sömu nótum og þeir
samningar sem Rafvirkjasamband-
ið hefur gert.