Morgunblaðið - 09.07.1988, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
29
# Reuter
Sátt og samlyndi
William Crowe (t. v.), aðmíráll og forseti herráðs Banda-
ríkjanna, útskýrir málin fyrir starfsbróður sínum frá Sovétríkjun-
um, Sergei Akhromeyev, en sá síðarnefndi er nú í heimsókn í
Bandarikjunum. Þeir eru staddir um borð í bandaríska flugTnóður-
skipinu „Theodore Roosevelt.“
Afganistan:
31 ferst í
sprengingn
Moskvu, Reuter.
ÞRJÁTÍU og einn maður beið
bana og á fjórða tug manna slas-
aðist þegar sprengja sprakk í bíl
i borginni Jalalabad í austurhluta
Afganistans í gær.
Sovéska fréttastofan Tass kennir
„afgönskum öfgasinnum" sem er í
nöp við leppstjórn Sovétmanna um
sprengjuárásina. Flestir hinna látnu
voru börn, konur og eldra fólk, að
sögn fréttastofunnar.
Sprengingin kemur í kjölfar
nokkurra slíkra undanfamar vikur.
Stjómvöld í Sovétríkjunum saka
skæmliða sem beijast við stjóm
Najibullahs um árásimar.
í Jalalabad, nærri landamæmm
Pakistans, hófst brottflutningur
sovéska herliðsins þann 15 maí sl.
Að sögn embættismanna em nú
allir sovéskir hermenn á brott úr
borginni.
Sænskur dómstóll sýkn-
ar lækna í morðmáli
Saníianirnar á hendur þeim taldar ónógar
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKUR dómstóll sýknaði í
gær tvo lækna, sem sakaðir voru
um að hafa myrt og sundurlimað
vændiskonu. I dómsorðinu sagði,
að ekki hefði tekist að sanna
sekt þeirra, svo að óyggjandi
væri.
Kviðdómurinn, sem sjö manns
skipuðu, sagði, að margt benti til,
að mennimir tveir, almennur lækn-
ir og meinafræðingur, hefðu framið
morðið, en ekki væri unnt að færa
sönnur á það með óyggjandi hætti.
Dómurinn sagði enn fremur, að
saksóknari hefði sýnt fram á, að
læknamir hefðu sundurlimað lík
hinnar 27 ára gömlu vændiskonu,
Catrin da Costa, í líkskurðarstofu
Stokkhólmsspítala árið 1984, en
ekki væri unnt að refsa mönnunum
fyrir það, þar sem málið væri fymt
að því er þetta varðaði.
Mennimir tveir voru handteknir,
eftir að dóttir annars þeirra hafði
sagt móður sinni frá málinu. Seinna
lýsti stúlkan í smáatriðum fyri*-
sálfræðingi lögreglunnar þvi, sem
hún hafði séð, og sagði, að faðir
sinn hefði ásamt meinafræðingnum
limað í sundur líkið og hent höfðinu.
Bamið var aðeins 18 mánaða,
þegar þetta gerðist.
I dómsorðinu sagði m.í.: „Dóm-
urinn telur, að frásögn stúlkunnar
sé sönn,“ og enn fremur, að báðir
læknamir væm „augljóslega kyn-
ferðislega brenglaðir“.
Mennimir tveir, sem ekki má
nafngreina samkvæmt sænskum
lögum, vom fundnir sekir um morð
fyrr á þessu ári, en áfrýjunardóm-
stóll dæmdi málsmeðferðina ógilda,
eftir að nokkrir kviðdómenda lýstu
opinberlega yfír í fréttaviðtölum,
að þeir efuðust um réttmæti dóms-
ins.
HITABYLGJA geysar nú í Grikk-
landi og Júgóslavíu. Hitinn, sem
mestur hefur mælst 44 gráður,
hefur valdið röskun á daglegu
lífi fólks og í Grikklandi hafa
15 manns látið lífið af hans sök-
um. Flestir hinna látnu eru gam-
alt fólk sem átt hefur við hjarta
eða öndunarsjúkdóma að stríða.
Ferðamenn í Aþenu láta sér fátt
um hitana fínnast og halda áfram
Veijendur sakbominganna drógu
í efa áreiðanleika framburðar
stúlkubamsins og töldu, að sak-
sóknari hefði ekki sannað, að um
morð hefði verið að ræða. Höfuð
líksins fannst aldrei og sögðu veij-
endumir, að da Costa hefði getað
dáið af öðmm orsökum.
Jan Carlsson, lögfræðingur
meinafræðingsins, sagði, að niður-
staða dómsins reisti við tiltrú
manna til sænsks réttarfars.
að skoða minnismerki og söfn þó
svo að alltaf sé gott að svala sér í
gosbmnnum inn á milli. Á götum
borgarinnar var fátt um manninnn
en strendurnar fullar af fólki.
Búist er við að um miljón
Aþenubúar yfírgefí borgina yfír
helgina til þess leita sér svalara
lofts á grísku eyjunum eða upp í
fjöllum. Samkvæmt veðurspá á hit-
ana að lægja á sunnudag.
Grikkland:
Hitabylgja í Grikk-
landi og Júgóslavíu
Aþena. Reuter.
Langarþig ekkií góðan sumarbústað? Svona einn alvöru...
Hefurðu hugleitt hvað sumarhúsið getur orðið notalegt í vetrarkyrrðinni Ifka...
Sýnum fullinnréttað frístundahús í Brautarholti laugardag og sunnudag kl. 13 til 17 og aðra
daga á verslunartíma.
6 óra góð reynsla í íslenskrí veðráttu.
ELDASKÁLINN
Brautarholtl 3, 105 R.
S 621420
Aðaifundur Byggung
B.S. V.F.
verður haldinn föstudaginn 15. júlí nk. í
Átthagasal Hótels Sögu kl. 17.00.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Langholtsvegur 110-150
Langholtsvegur 152-208
Karfavogur
Háahlíð
Austurbrún
Tunguvegur
Breiðagerði
Miðleiti
Skipholt 52-70 o.fl.
Þórsgata
Álfheimar4-30
Kambsvegur
UTHVERFI
Fiskakvísl
KOPAVOGUR
Sunnubraut
Kársnesbraut 77-139
VESTURBÆR
Hjarðarhagi 11-42
Melhagi
FOSSVOGUR
Goðaland