Morgunblaðið - 09.07.1988, Síða 30

Morgunblaðið - 09.07.1988, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 2K#f0i Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, MagnúsFinnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst (ngiJónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 70 kr. eintakið. Afturhaldiðí Alþýðubandalaginu Umræður um nýtt álver vekja upp afturhaldsöfl í Alþýðubandalaginu. Hjörleifur Guttormsson, þingmaður flokksins á Austurlandi, sem var iðnaðarráðherra nær sam- fellt á árunum 1978 til 1983, hefur í Þjóðviljagrein ráðist harkalega gegn því, að seld verði raforka til hins nýja stór- iðjufyrirtækis. Finnur hann hugmyndum um slíkan raf- orkusamning allt til foráttu og grípur til gamalla röksemda, sem lágu að baki neikvæðri stefnu hans í iðnaðarráðuneyt- inu, stefnu, sem reynst hefur þjóðarbúinu dýrkeypt. Hjörleifur Guttormsson lagði mikið undir, þegar hann hóf að framkvæma stefnu Alþýðu- bandalagsins í iðnaðarráðu- neytinu. Hann ætlaði sér að búa þannig um hnúta, að eng- um kæmi framar til hugar að ganga til samninga á borð við þá, sem gerðir voru á sjöunda áratugnum við Alusuisse og voru í senn forsenda stórvirkj- ana og stóriðju. Þá virtist Hjör- leifur einnig stefna að því að gera Alusuisse ókleift að starf- rækja álverið í Straumsvík áfram. Sendi hann menn út um allar jarðir til að leita að gögn- um í ófrægingarherferð á hend- ur félaginu. Þessi stefna Hjörleifs Gutt- ormssonar gekk ekki upp. Var svo komið undir lok embættis- ferils hans, að jafnvel Þjóðvilj- inn kinokaði sér við að veija málstaðinn og er þá mikið sagt. Þeir sem aðhyllst hafa marx- isma eru fastir í misheppnaðri kenningaflækju. Skoðanir Al- þýðubandalagsins í stóriðju- málum eru kennisetningar sem eru jafn úreltar og marxisminn. Þessar skoðanir hafa aldrei átt upp á pallborðið hjá meirihluta íslendinga og enn síður eftir að Hjörleifur Guttormsson reyndi að hrinda þeim í fram- kvæmd, á meðan hann var iðn- aðarráðherra. Fjögur evrópsk fyrirtæki at- huga nú hagkvæmni þess að þau reisi sameiginlega nýtt ál- ver í Straumsvík. Þessi athug- un snýr ekki einvörðungu að tæknilegum, verkfræðilegum og ijárhagslegum þáttum. Hún hlýtur einnig að snerta al- menna stöðu íslenskra þjóð- mála. Er ekki ólíklegt að til dæmis sé hugað að því, hvort afturhaldsstefna Alþýðubanda- lagsins eins og hún er boðuð af Hjörleifi Guttormssyni um stóriðju og stórvirkjanir verði ofan á í stjómmálunum. Þess- um fyrirtækjum eins og öðrum þykir vafalaust engin ástæða til að ganga til samninga um orkukaup við okkur, ef það leið- ir til þess að þau verða dregin niður á plan Hjörleifs Gutt- ormssonar og Alþýðubanda- lagsins og sökuð um að „falsa' bókhald" og fleira af því tagi. Alþýðubandalagsmenn ættu að líta sér nær, þegar þeir saka aðra um að vinna þjóðarbúinu skaða í stóriðjumálum. Góðafkoma á Grundar- tanga Stóriðja er áhættusamur at- vinnurekstur. Jámblendi- verksmiðjan á Grundartanga, þar sem íslendingar eiga 55% á móti Norðmönnum og Japön- um, hefur staðið af sér þunga ágjöf. í Morgunblaðssamtali við Jón Sigurðsson fram- kvæmdastjóra hennar sem birt- ist á þriðjudag kom fram, að nú væri afkoman á Gmndar- tanga það góð, að unnt væri á tiltölulega skömmum tíma að vinna upp 335 milljóna króna tap á ámnum frá 1984. Markaðsverð á kísiljámi hef- ur hækkað, raforkusamningur verksmiðjunnar við Landsvirkj- un er hagkvæmur en síðast og ekki síst ræðst góð afkoma á Gmndartanga af þróunar- og rannsóknastarfi, sem unnið hefur verið í verksmiðjunni sjálfri og skilar auknum afköst- um. Er líklegt að ársframleiðsl- an nú sé 68-70 þúsund tonn en samkvæmt upphaflegum áætlunum átti 50.000 tonna ársframleiðsla að bera uppi all- an fastakostnað í rekstrinum. Segir Jón Sigurðsson, að fyrstu 275 milljón krónumar sem kunni að fást í hagnað á þessu ári séu beinn árangur af af- kastaaukningu. Þessar góðu fréttir frá Gmndartanga ættu að vera mönnum hvatning til að halda áfram á stóriðjubrautinni og efla og styrkja þetta myndar- lega fyrirtæki. Opinber heimsókn forseta íslands til Vestur-Þýskalands: Vigdís Finnbogadóttir í lok heimsóknarinnar: Vandrötuð gata í samskiptum við EB - Fallast hendur í hvert sinn sem hún kemur að Berlínarmúrnum Hamboiv. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara VIGDIS Finnbogadottir, forseti íslands, sagðist véra mjög ánægð með opinbera heimsókn sina til Vestur-Þýskalands, í samtali við Morgunblaðið í gestahúsi þingsins í Hamborg í gær. „Ég er fullviss um að það á eftir að sýna sig að þessi ferð ber árang- ur,“ sagði forsetinn. „Ég hef hitt marga menn s°m eru áhrifaríkir um málefni Evrópu og held að okkur hafi tekist að kynna málstað íslands gagnvart Evrópubandalaginu (EB), betur en nokkru sinni fyrr. Við erum Evrópubúar en stöndum utan við bandalagið og engar áætlanir eru uppi um að við göngum í það. En við verðum að fylgjast vel með og þessi ferð var fyrst og fremst farin til að efla vináttu og við eflum hana með því að kynna málstað okkar." Þurfum að laga okkur að einum markaði EB Forseti íslands sagði ennfremur um samband íslands og EB: „Ég dreg ekki dul á að mér finnst samein- ingu Evrópu bera brátt að. Þetta er stórt skref sem verið er að stíga og margir aðilar þurfa að glíma við þá spumingu hvemig best er að aðlag- ast þeim áhrifum, sem sameinað markaðssvæði Evrópubandalagsins mun hafa. ísland er í erfiðri aðstöðu hvað þetta snertir vegna fámennis- ins, þetta er bandalag stórþjóða. Mér virðist sem flestir séu samxnála um að við getum ekki gengið undir þau ákvæði sem Evrópubandalagið setur aðildarlöndunum. Við getum ekki opnað fískimiðin fyrir ásókn annarra þjóða né opnað landið fyrir endalausu erlendu fjárstreymi. Við verðum að feta okkur eftir vandrataðri götu og Morglinblaðsins. sjá hveiju fram vindur. Ákvarðanir okkar varðandi Evrópubandalagið hljóta ávallt að verða teknar í ljósi þess að við íslendingar verðum að varðveita þjóðemi okkar og menn- ingu, sem er sérstæð og einstök í heiminum. Hún er dýrmætasta fram- lag okkar til samfélags þjóðanna. Það er mjög mikilvægt að íslending- ar geri sér grein fyrir hvað er að gerast í Vestur-Evrópu og fylgist grannt með þróun mála'þar." Hlýhugiir Þjóðverja í garð íslendinga Heimsókn Vigdísar Finnbogadótt- ir til Vestur-Þýskalands lýkur í kvöld. Hún flýgur þá heim ásamt fylgdar- liði frá Hamborg með Amarflugi. Hún sagði að viðbrögð Þjóðverja og viðhorf þeirra í garð íslendinga hefðu jafnvel verið jákvæðari en hún bjóst við. „Ég átti von á að Þjóðveijar myndu sýna málstað okkar og þjóð áhuga á meðan á ferðinni stæði fyrst þeir vom á annað borð að bjóða okk- ur. Við höfum fengið einstaklega hlýjar móttökur og mætt vináttuhug alls staðar sem við höfum farið. Þjóð- veijar hafa borið okkur, þessa ferða- langa frá íslandi, á höndum sér. Ferðin hingað hefur verið frá- brugðin sumum öðrum ferðum mínum að því leyti að Þjóðveijar vita svo mikið um ísland, til dæmis í sam- anburði við suðrænni Evrópuþjóðir. Þeir eru vel að sér um landið og eru vel lesnir í miðaldabókmenntum. Márgir þeirra sem eru við völd þar sem við höfum farið eru jafnaldrar mínir og þessi kynslóð las bækumar eftir Jón Sveinsson í æsku. Samtöl mín við það byija iðulega á því að fólk segist muna eftir að hafa lesið AP Vigdís Finnbogadóttir óskar landsliði íslands góðs gengis við upphaf leiksins við Vestur-Þjóðveija í Hamborg i gær. Forsetíim á vináttuleik íslenska landsliðsins BORGARSTJORI Hamborgar, dr. Henning Voscherau, tók á móti forseta íslands og fylgdarliði við komuna tíl Hamborgar í gær- morgun. Á dagskrá forseta var m.a. móttaka hjá Útflutningsráði og vináttuleikur i handbolta. Vigdís Finnbogadóttir sótti flöl- menna móttöku Utflutningsráðs þar sem Blásarakvintett Reykjavíkur lék, Steingrímur Hermannsson fjallaði um viðskiptamál íslands, sýnd var tískusýning og boðið upp á íslenskan mat. Forsetinn heimsótti því næst skrifstofu aðalræðismanns íslands í Hamborg og drakk te með gestum í Gestahúsi þingsins þar sem hún dvelur í borginni. Vigdís fór á landsleik íslands og Vestur-Þýskalands síðar um daginn og sagði eftir leikinn að Bjami Felix- son hefði kallað þetta æsispennandi leik. Hann fór 19:18 fyrir íjóðveijum og úrslitin réðust ekki fyrr en á síðustu sekúndum leiksins. Komelíus Sigmundsson, forsetaritari, sagði að það hefði verið ákveðið að leika þenn- an vináttuleik i tengslum við heim- sókn Vigdísar í Þýskalandi en lands- liðið er á leið til keppni í Austur- Þýskalandi. Þingið í Hamborg hélt kvöldverð- arveislu fyrir forsetann og fylgdarlið hans í ráðhúsinu í gærkvöldi. Vigdís ritaði nafn sitt í hina gullnu gestabók borgarinnar. Hún mun taka þátt í umræðum um bókmenntir, kvik- myndir og leiklist í Kaþólsku Akade- míunni í dag og síðan halda móttöku fyrir íslendinga búsetta í Þyskalandi áður en hún heldur heim á leið úr þessari sex daga ferð um Sambands- lýðveldið Þýskaland. Nonna-bækumar sem böm. Við Helmut Kohl, kanslari, töluðum til dæmis um Nonna í upphafí samræðu okkar á þriðjudag í Bonn. Vináttan og hlýhugurinn sem við mættum í ferðinni gladdi mig innilega og ég má til með að nefna hversu ánægju- legt það var að hitta Weizsácker for- seta. Ég met hann mjög mikils og tel hann einn helsta menningarmann Evrópu,“ sagði Vigdís. Hún sagði að hún léti sér fátt finnast um mótmælaaðgerðir Græn- friðunga gegn hvalveiðum. „Geðs- hræring ræður oft athöfnum þessa fólks og fæst af því hefur kynnt sér málstaðinn sem skyldi," sagði hún. „Mér dettur ekki í hug að reyna að röræða við það en ef ég gerði það þá myndi ég spytja hvort að því detti virkilega í hug að við íslendingar séum svo miklir kjánar að gera út af við hvalastofnana. Það hagar sér eins og við höfum ekki næga greind til að móta skynsamlega hvalveiði- stefnu sjálf. Þessum samtökum er að takast að hengja grímu skrattans á okkur íslendinga- án þess að hafa kynnt sér málið til hlítar og það finnst mér miður. Utanríkisráðherra: Friðsar með Gr STEINGRÍMUR Hermannsson, utanríkisráðherra, Hannes Haf- stein, ráðuneytisstjóri og Sigríð- ur Snævarr, sendiráðunautur og staðgengill sendiherra íslands i Vestur-Þýskalandi, áttu klukku- tíma fund með þremur talsmönn- um Grænfriðunga í Hamborg siðdegis í gær. Þeir óskuðu eftir fundi með Vigdísi Finnbogadóttur, forseta, en Steingrímur féllst á að hitta þá. Steingrími og Grænfriðungunum kom saman um að fundurinn hefði verið gagnlegur og þeir voru sam- mála um flest allt „nema grundvall- armálið, nefnilega hvalveiðar," eins og einn Grænfriðunganna orðaði það. Grænfriðungar hafa verið með mótmæli á nokkrum stöðum þar sem forseti íslands hefur farið. í Frankfurt var dagskránni hnikað örlítið til vegna þessa en Grænfrið- ungar hugðust skvetta blóði á Vigdísi. Miklar öryggisráðstafanir voru gerðar í Hamborg til að forð- ast að Grænfriðungar kæmust í námunda við forsetann. Talsmenn samtakanna sögðust ekki ætla að standa fyrir neinum mótmælaaðgerðum þar sem þeir fengu tækifæri til að tala við ut- anríkisráðherra. „Við komum okkar málstað til skila á fundinum og þurfum þess vegna ekki að vera með mótmælaspjöld á götum úti,“ sögðu þeir. Steingrímur sagði að fundurinn hefði verið friðsamlegur. „Við ræddum ýmis umhverfismál eins og mengunina í Norðursjónum og vorum sammála um þau,“ sagði hann. „En okkur greindi á um hval- veiðimálin. Við vorum ósammála um hvort samþykktir Hvalveiðir- áðsins væru bindandi og hvort að hvalastofnar sem við veiddum væru í raunverulegri hættu. Við túlkum niðurstöður síðasta fundar Hval-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.