Morgunblaðið - 09.07.1988, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.07.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 31 DPA Oryggisverðir skýldu forseta íslands fyrir rigningunni í Hamborg í gær, en varaborgarstjóri Hamborgar, Ingo von Miiunch, tók á móti henni á flugvellinum þar. Berlínarmúrinn áhrifamikil sjón Vigdís var einn dag í Berlín og skoðaði meðal annars sýningu um aðfarir Gestapo í heimstyijöldinni síðari í rústum aðalbækistöðva þeirra sem eru skammt frá Berlínarmúm- um. Hún sagðist ekki eiga orð til að lýsa tilfinningum sínum í þegar hún kæmi að múmum. „Mér fallast hend- ur í hvert sinn sem ég kem þang- að,“ sagði hún. „Sýningin „Svæði- slýsing á grimmdarverkum" hafði mjög mikil áhrif á mig. Múrinn er framhald af þeim kafla sögunnar sem sýningin er um. Að það skuli vera hægt í upplýstu þjóðfélagi að hafa þennan múr á milli manna er þyngra en támm taki,“ sagði hún. „Ég dáist að Berlínarbúum og tel þá afar hug- rakka. Þeir hafa tekið alveg rétta stefnu, að mínu mati, að gera Berlín að háborg menningar og tryggja þannig að fjöldi manna heimsæki borgina árlega. Það er sterkasta vop- nið sem þeir geta beitt til að minna á sjálfa sig á þessari eyju mitt inni í Austur-Þýskalandi. Fólk kemur þangað og sér þennan múr. Hann hlýtur að vekja alla til umhugsunar um að svona viljum við ekki hafa heiminn." nlegur fundur ænfriðungum veiðiráðsins einnig á mismunándi hátt. En þetta fólk var vel upplýst og vildi ekki útiloka að hvalveiðar yrðu heimilaðar þegar það verður talið öruggt að hvalveiðistofnar séu ekki í hættu.“ Grænfriðungar færðu Steingrími litmynd af bakhluta hvals með áletruninni: „Með fyllstu virðingu fyrir íslensku þjóðinni." Þeir sögðu að Steingrímur hefði hlustað á málstað þeirra af þolinmæði þótt hann hefði ekki verið sammála þeim. Fundurinn hefði líklega getað staðið í margar klukkustundir án þess að samkomulag næðist. Þeir sögðust ekki skilja hvernig íslend- ingar, sem státa af langri lýðræðis- hefð, geti sagt að samþykktir sem Alþjóðahvalveiðiráðið samþykkir séu ekki bindandi fyrir aðildarlönd þess. Aðild íslendinga að EB ónauðsynleg - sagði utanríkisráðherra við þýska iðjuhölda STEINGRÍMUR Hermannsson, utanríkisráðherra, hefur ferðast með forseta íslands i opinberri heimsókn hennar til Vestur-Þýskalands. Þau hittu að máli Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands og Steingrímur átti einn- ig fundi með Kiechle, aðstoðarráðhérra landbúnaðar- og sjávarútvegs- mála, og von Wartenberg, aðstoðarráðherra iðnaðarmála. Utanríkisráð- herra flutti og erindi á fundi þýska iðnaðar- og verslunarráðsins í Bonn, um viðskipti landanna. Á fundi iðnaðar- og verslunarráðs- ins gerði Steingrímur grein fyrir sér- stöðu- íslands gagnvart Evrópu- bandalaginu. Hann sagði að útflutn- ingur íslendinga væri að tveimur þriðju hlutum sjávarafurðir og að helstu markaðslönd fyrir þær væru innan Evrópubandalagsins. Áform ríkjanna um einn markað skiptu ís- land því miklu máli. Utanríkisráð- herra lýsti því yfir að ekki væri á dagskrá að sækja um aðild að EB, enda engin aðkallandi þörf á að taka svo afdrifaríkt skref að svo stöddu. Eftirgjöf á fullum yfírráðum yfír auðlindum okkar, fískimiðum og or- kulindum, kæmi ekki til greina. ís- lendingar væru ekki heldur reiðubún- ir að opna landið fyrir erlendu vinnu- afli og ftjálsu fjarmagnsflæði. í raun taldi utanríkisráðherra enga nauðsyn bera til að ísland sækti um aðild að EB. íslendingar væru ekki að sækj- ast eftir pólitískum áhrifum í Vest- ur-Evrópu né fjárhagsaðstoð við inn- anlandsverkefni. Utanríkisráðherra sagði einnig: „Það sem við förum fram á er ein- faldlega fullt frelsi til að selja fískaf- urðir okkar og iðnaðarvörur. Við höfum upp á ýmislegt að bjóða í stað- inn. Við bjóðum besta fáanlegan físk úr ómenguðustu hafsvæðum jarðar. Við bjóðum orku á sanngjömu verði fyrir þann orkufreka iðnað sem þjón- ar mörkuðum Vestur-Evrópu. Við erum einnig reiðubúnir að taka þátt í að tryggja vamir hins vestræna heims þannig að stöðugleiki og var- anlegur friður ríki. Að mínu mati er þetta tilboð sem Vestur-Evrópa getur ekki hafnað." Steingrímur sagði að lokum að íslendingar byggju sig best undir einn markað Evrópubandalags- ins með því að taka þátt í fjölþjóða viðræðum og auknu starfí innan EFTA. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir CHRISTOPH BERTRAM Urræðaleysi ráðamanna í ríkjum Austur-Evrópu EFNAHAGSASTANDIÐ í rikjum Austur-Evrópu fer sífellt versnandi. A árum áður fór orð af matvæla- og iðnfram- leiðslu þessara landa en nú fer bUið milli þeirra og ríkja hins fijálsa heims sífellt breikkandi. Óánægja almennings með stjórnkerfi kommúnismans fer vaxandi og örvænting einkenn- ir mótmælin líkt og kom á daginn er verkamenn risu upp í Póllandi i aprílmánuði. Stjórnvöld í leppríkjum Sovétríkjanna hafa hvað eftir annað treyst á að hervald dugi til að berja niður kröfur almennings. Fjórum sinnum hefur herafla Sovét- manna verið beitt til að koma á lögum og reglu í rikjunum austan Járntjaldsins; í Austur-Þýskalandi árið 1953, 1956 í Póllandi og Ungveijalandi og í Tékkóslóvakíu árið 1968. Aundanfornum árum hefur það sýnt sig að hinar fúnu stoðir kommúnismans í Austur- Evrópu riða til falls. Hugmynda- fræði kommúnismans höfðar ekki lengur til manna, vankant- amir eru alltof augljósir. Sumir ráðamenn viðurkenna þetta. Þannig sagði Anatolíj Dobrynin, ritari miðstjórnar sovéska kommúnistaflokksins, í viðtali við tékkneskt tímarit í aprílmán- uði að heimskommúnisminn væri ekki lengur „sannfærandi fyrirmynd". Raunar hefur kommúnisminn í ríkjum Aust- ur-Evrópu ekki verið „sannfær- andi“ í áraraðir. Minnkandi viðskipti Miðstýring efnahagslífsins hef- ur brugðist gjörsamlega og þrátt fyrir endalausa skipulagningu hinna ýmsu stofnana og ráða stjómkerfísins fer efnahags- ástandið versnandi. Iðn- og mat- vælaframleiðsla dugir ekki til að anna þörfinni innanlands og út- flutningsvörumar eru ekki lengur samkeppnishæfar. Nýverið upp- lýsti breska. tímaritið The Ec- onomist að hlutur ríkja Austur- Evrópu í utanríkisviðskiptum ríkjanna vestan Jámtjaldsins hefði farið stöðugt minnkandi á undanfömum árum. Ríki eins og Hong Kong, Taiwan, Suður-Kórea og Singapore hafa náð að sölsa markaðinn undir sig. í greininni í The Economist var sú spuming borin upp hvort ríki, sem hingað til hefðu verið talin vanþróuð svo sem Indland og Indónesía, myndu ná að skjóta ríkjum Austur-Evr- ópu, sem í eina tíð hefðu verið talin til iðnríkja, aftur fyrir sig. Flokksvald og lýðræði Flestir leiðtoga kommúnist- aríkjanna hafa gert sér grein fyr- ir því að gera þarf róttækar breyt- ingar og í sumum tilfellum gerðu þeir sér þetta ljóst löngu á undan félögum sínum í Moskvu. Rætt er um umbætur og endurskipu- lagningu efnahagslífsins, sjálf- stjóm fyrirtækja og afnám niður- greiðslna. Hins .vegar hafa valda- menn utan Sovétríkjanna hingað til forðast að nefna það sem mestu máli skiptir; umbyltingu stjóm- kerfísins. Flokksmenn ríghalda í völd sín. Rödd almennings, sem ævinlega þarf að sætta sig við ákvarðanir valdastéttarinnar, fær ekki að heyrast. í Sovétríkjunum er þessu öfugt farið. Þar þurfa umbóta- sinnar á hjálp almennings að halda til að brjóta andstöðu for- réttindastéttarinnar og flokksk- líkunnar á bak aftur. Víða í lepp- ríkjunum minnast menn þeirra daga er þeir nutu frelsis áður en ófriðurinn braust út _sem lauk með skiptingu Evrópu. í huga þessa fólks hljóta vangaveltur um „lýð- ræðisþróun" óhjákvæmilega að fela í sér umræður um eðli valds- ins. Þetta fólk er ekki reiðubúið til að sætta sig við minniháttar breytingar. Það þráir raunveru- legt lýðræði. Þótt ráðamenn geri sér ljóst að breytinga er þörf eru þeir ekki reiðubúnir til að samþykkja stjómkerfisbreytingar og skerða vald flokksins. Leiðtogar „Sam- stöðu", hinnar óleyfilegu verka- lýðshreyfíngar Pólveija, reyndu ítrekað að fá stjórnvöld til við- ræðna en þeim var svarað með hervaldi og ofsóknum. Stjómvöld í Austur-Þýskalandi, Ungveijal- andi, og Tékkóslóvakíu hafa fram að þessu hundsað allar kröfur um raunverulegt lýðræði. Vonir bundnar við Gorbatsjov Þess verður víða vart að menn binda vonir við umbótatillögur Míkhaíls S. Gorbatsjovs Sovétleið- toga, sem kenndar eru við „glasn- ost“ og perestrojku“. Raunar sýna kenningar Gorbatsjovs ljóslega hugmyndaleysið og stöðnunina í hinum ríkjum austurblokkarinnar. Ólíkt Gorbatsjov geta ráðamenn í ríkjum þessum ekki kennt for- verum sínum um það sem úrskeið- is hefur farið. Þeir einir - og raun- ar einnig hugsanlegir eftirmenn þeirra - bera ábyrgð á ófremdar- ástandinu. Vonin um umbætur, skortur á nauðsynjum, hugmyndafræðileg stöðnun og pólitisk forsjárhyggja hefur leitt til vaxandi spennu í ríkjum þessum og á stundum virð- ist líklegt að upp úr kunni að sjóða. „Hættan er sú að byltingar- ástand skapist, náum við ekki fram umbótum á friðsamlegan hátt og þá kann blóði að verða úthellt," sagði Lech Walesa, þekktasti leiðtogi „Samstöðu" er hann ávarpaði verkamenn í Danz- ig. Einn fulltrúanna í miðstjórn pólska kommúnistaflokksins sagði í bréfi til ráðamanna á síðasta ári að lífskjör almennings í landinu væru hræðileg og bætti við að í vestrænum lýðræðisríkj- um hefðu menn gert uppreisn væri þeim gert að þola slíkan skort. Afleiðingar uppreisnar En hveijar yrðu afleiðingamar ef örvænting og reiði almennings í ríkjum Austur-Evrópu fengi skyndilega útrás og menn gerðu valdhöfum ljóst að þeir hefðu fengið nóg? Og hveijar yrðu af- leiðingamar ef alþýða manna gerði uppreisn í nokkrum komm- únistaríkjum samtímis? Míkhaíl Gorbatsjov kynni að sjá sig tilneyddan til að senda sovéska skriðdreka til að beija niður mót- mælin. Umbótatilraunir ráða- manna í Moskvu og víðar yrðu fyrír borð bomar. Umræður um gagnkvæma fækkun herliðs í Evrópu yrðu marklausar þar eð Rauði herinn yrði ómissandi hluti öryggisgæslunnar. Slökunar- stefna undanfarinna ára heyrði sögunni til og „endurnýjun" í for- ystusveitum kommúnistaflokk- anna yrði erfíðarí en ella. Svo virðist sem þrennt þurfí að koma til. í fyrsta lagi mega ríki Vesturlanda ekki láta af stuðningi sínum við umbótastefn- una. í annan stað ber að vona að ráðamenn í austri geri sér ljóst að pólitískt frelsi er nauðsynleg forsenda fyrir raunvemlegum umbótum og síðast en ekki síst þarf almenningur í ríkjum þess- um, sem hefur fyllstu ástæðu til að hatast við stjómvöld, að halda stillingu sinni og sýna þolinmæði. En þolinmæðin er ekki tak- markalaus. Svo lengi sem ráða- menn, sem hafa þráfaldlega bmgðist vonum fólksins, neita að horfast í augu við staðreyndir em viðsjárverðir tímar í vændum - ekki aðeins í Austur-Evrópu heldur heiminum öllum. Höfundur starfar sem blaða- maður við Die Zeit. Ólíkt öðrum Ieiðtogum ríkja Austur-Evrópu getur Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi réttlætt ófremdarástandið með tilvísun til mistaka fyrirrennara sinna. Hér sést Sovétleiðtoginn á tali við landbúnaðarverkamenn á samyrkjubúi skammt frá Moskvu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.