Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 Ferskar ferskjur Þegar ég var unglingur voru ekki fluttir inn aðrir ávextir en epli, appelsínur, bananar og einstaka sinnum vínber og mandarínur. Aðra ávexti, t.d. ferskjur, þekkti ég ekki öðruv- ísi en í dósum eða þurrkaðar. Systir mín hafði dvalist í FVakklandi og lýsti því með fögr- um orðum, hvað ferskar ferskjur væru ljúffengar nýtíndar af tijánum. Hún sagði jafn- framt að börkurinn væri loðinn. Mig langaði mikið til að bragða þessa ljúffengu „loðnu“ ávexti og þegar ég sá þá fyrst, varð ég hissa á hvað þeir voru lítið loðnir. Raunar passar betur að segja að börkurinn sé mjúkur en loðinn, hann er eins og hann sé úr flaueli. Aftur á móti eru nektarínur alveg snöggar, en þær eru skyldar ferskjunni. í bók minni 220 gómsætir ávaxta- og beijaréttir er smá sögulegur inngangur að hveij- um kafla. í kaflanum um ferskjur stendur: „Ekki eru allir á einu máli um, hvaðan ferskju- tréð sé upprunnið. Sumir segja Kína, en aðrir Persía, en nú eru ferskjur ræktaðar um nær allan heim utan köldustu svæða. Frakkar rækta t.d. mjög mikið af ferskjum og fer helmingur þeirrar ræktunar fram í Rhonedalnum, en helmingur heimsræktunarinnar er í Ameríku. Ferskjur eru steinaldin með örlítið loðinni húð. Þær eru langljúffengastar fer- skar, en þær eru mikið soðnar niður og einnig notaðar í ýmsar áfengistegundir. Það er svo með ferskjur og nektarínur eins og svo margar ávexti að þær eru ljúffengastar ef þær fá að fullþroskast á tijánum." Nú eru ferskjur fluttar inn á hveiju ári, og eru einmitt núna í verslunum ferskar og ljúffengar. Ótal margt er hægt að gera við ferskar ferskjur og eru hér nokkrar tillögur. Ef við ætlum að taka börkinn af ferskjum, þurfa þær að standa nokkrar mínútur í sjóð- heitu vatni. Þá losnar börkurinn yfírleitt af, en þó er hann stundum furðu fastur. Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON Ferskjur með marsipani og marengs 6 ferskar ferskur, 2 msk. góð sulta, 100 g marsipan, 1 msk. líkjör eða sherry (má sleppa), 2 eggjahvítur, 1 dl flórsykur. 1. Látið ferskjumar standa í sjóðandi vatni í 6—8 mínútur. Los- ið þá húðina af. Ef það gengur illa skuluð þið sleppa því. 2. Skerið ferslqumar í tvennt og fjarlægið steina. 3. Raðið ferskjunum á eldfast fat, holan undan steininum snúi upp. * 4. Hrærið saman marsipani, , sultu og víni, ef þið notið það. Smyijið.þessu síðan yflr ferskjum- ar. 5. Þeytið eggjahvítumar, setjið flórsykurinn smám saman út í. Látið verða alveg stíft. 6. Smyijið marengsinum yfir ferskjumar. 7. Hitið bakarofn í 180°C, blást- ursofn í 160°C. Setjið í miðjan ofn- inn og bakið í 10 mínútur. Meðlæti: ís eða þeyttur ijómi eða jafnvel ekki, neitt. Terta með ferskjum, perum og ís 1 meðalstór svampkökubotn, 3 ferskar ferskjur, 3 ferskar perur, 100 g möndlumakrónukökur, •/2 dl góð sulta, V2 kg ís, 3 eggjahvítur, U/2 dl sykur. 1. Smyijið botninn með sult- unni, myljið síðan makrónukökum- ar yfir. 2. Takið steinana úr ferskjunum, skerið í þunnar sneiðar. 3. Afhýðið perumar og skerið í sneiðar. 4. Setjið ávextina yfir sultuna á botninum. 5. Skafið ísinn upp og setjið yflr. 6. Þeytið eggjahvítumar, setjið sykur saman við og búið til mar- engs. Smyijið marengsinn síðan yfír ísinn. 7. Hitið bakarofninn í 220°C. Setjið í ofninn og bakið í 5 mínútur. 8. Berið strax á borð. Athugið: Hægt er að geyma þetta í frysti þar til því er stungið í ofn- inn. Bakstur með ferskjum og marsipani 4 ferskjur, 200 g marsipan, 2 msk. sherry eða ávaxtasafí, 2 egg. 1. Hellið sjóðandi vatni á ferskj- umar, látið þær liggja í vatninu í 6—8 mínútur. Takið þá húðina af. 2. Skerið ferskjumar i tvennt og takið steinana úr. 3. Skerið ferskjumar í sneiðar og leggið á botninn á smurðu eld- föstu fati. 4. Meijið marsipanið með gaffli, setjið siðan sherry eða ávaxtasafa og eggjarauður út í. 5. Þeytið hvíturnar og setjið saman við marsipanmassann. 6. Hellið marsipan/eggjamass- anum fyrir ferslcjumar. 7. Hitið bakaraofninn í 170°C, blástursofn í 150°C. Setjið fatið í miðjan ofninn og bakið í 30 mínútur. 8. Berið kökuna fram heita eða kalda. Heilsuferskjuís 5 stórar ferskar ferskjur, helst vel þroskaðar, 1 sítróna, 1 appelsína, 1 msk. hunang, 2 litlar dósir jógúrt án bragðefna. 1. Hellið sjóðandi vatni á ferskj- umar, látið standa smástund í vatninu og fjarlægið síðan himn- una. 2. Skerið ferskjumar utan af steinunum og setjið í blandara eða hrærivélarskál, og hrærið vel í sundur. 3. Rífið börkinn af sítrónunni og appelsínunni og setjið saman við ferskjumar. 4. Kreistið safann úr sítrónunni og appelsínunni og setjið út í ásamt hunangi. 5. Setjið jógúrt út í og hrærið vel saman. Þetta þarf að jafnast vel. 6. Hellið í skál og setjið í frysti í 1 klst. 7. Takið úr frystinum og hrær- ið vel í þessu. 8. Setjið aftur í frysti í minnst 2 klst. Ferskjur i smábrauðum, (rúnnstykkjum) 6 ferskjur, 2 dl sykur, 1 dl vatn, */2 kanilstöng, 1 dl portvín eða eplasafí, 6 hnöttótt smábrauð, 50 g smjör. 1. Hellið sjóðandi vatni yfir ferskjurnar, flettið síðan húðinni af þeim. Skerið í tvennt og fjar- lægið steina. 2. Setjið sykur, vatn og kanil- stöng í pott. Sjóðið þar til sykur- inn er bráðnaður. Setjið þá port- vínið eða eplasafann út í. 3. Setjið ferskjumar í löginn og sjóðið við hægan hita í 15 mínútur. 4. Takið ferskjumar úr legin- um, en sjóðið hann áfram í opnum póttinum þar til hann þykknar. 5. Bræðið smjörið. 6. Skerið lok ofan af brauðun- um, holið þau síðan út. 7. Penslið brauð að utan og innan með smjörinu. 8. Hitið bakaraofn í 200°C, setjið brauðin í ofninn og bakið í 10 mínútur. 9. Setjið 2 ferskjuhelminga í hvert brauð. 10. Hellið safanum síðan yfir brauðin með skeið og berið strax fram. Meðlæti: ís eða þeyttur ijómi. Ferskjur með gráðaosti og salthnetum 6 ferskar ferskjur, • 50 g gráðaostur, 1 msk. ijómaostur án bragðefna, ’/2 dós sýrður ijómi, 5 dropar tabaskósósa, 100 g salthnetur. 1. Þvoið ferskjumar, skerið síðan í tvennt og fjarlægið steina. Skerið síðan ferskjuhelmingana í báta. 2. Meijið gráðaostinn með gaffli, hrærið saman við ijómaost- inn. Setjið síðan sýrðan ijóma og tabaskósósu út í og hrærið vel saman. . 3. Saxið helming salthnetanna fínt. Blandið saman við. 4. Setjið helming ferskjubát- anna út í sósuna. Hellið á fat. 5. Setjið hinn helming ferskju- bátanna á miðju fatsins og stráið því sem eftir er af salthnetum (heilum) yfir. Meðlæti: Ristað brauð eða kex. Karamelluhúðaðar ferskj- ur 4 stórar ferskjur, 15 g smjör, 4 msk. sykur, '/2 dl ijómi. 1. Skerið ferskjumar í helm- inga og fjarlægið steina. Skerið síðan ferskjuhelmingana í báta. 2. Setjið smjör á pönnu, hrærið sykur út í og síðan ijóma. Hrærið í þar til þetta er jafnt. Það gæti þurft að minnka hitann. 3. Setjið ferskjubátana út í og brúnið eins og þið væmð að brúna kartöflur. Meðlæti: ís.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.