Morgunblaðið - 09.07.1988, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
I
mörku á árunum 1985-1987 og
hefur frá desember 1987 starfað
að markaðsmálum hjá Álafossi hf.
Eiginkona hans er Guðrún Stef-
ánsdóttir og eiga þau eina dóttur.
Ofangreindum störfum tekur
Þorkell við af Þorgný Þórhalls-
sjrni, fulltrúa kaupfélagsstjóra, en
Myndin er tekin um borð í Sólbaki EA, sem lenti inni í isnum er
hann var á veiðum á Strandagrunni í vikunni ásamt öðrum skipum.
Bifreiðastjórar:
Hafið bílbænina í bílnum
og orð hennar hugföst
þegar þið akið.
■ Drottmn Guð, 11 1 N veit mér
vernd þína, og lát mig
minnast ábyrgðar minnar
er ég ek þessari bif reið.
1 Jesú nafni. A m e n . Á
Fæst í Kirkjuhúsinu,
Klapparstíg 27, í verslun-
inni Jötu, Hátúni 2,
Reykjavík og í Hljómveri,
Akureyri.
Verð kr. 50.-
Orð dagsins, Akureyri.
Nægviðhalds-
verkefni hjá Slipp-
stöðinni í sumar
MIKIÐ hefur verið um viðhaldsverkeni hjá Slippstöðinni á Akur-
eyri það sem af er sumri. Gunnar Ragnars forsljóri Slippstöðvar-
innar sagði í samtali við Morgunblaðið að útlitið væri gott í sum-
ar en búast mætti við einhveijum samdrætti þegar líða færi á
haustið ef stærri verkefni kæmu ekki til.
„Við höfum vissulega augun til að auðvelda sölu togaranna
opin fyrir nýjum verkefnum og tveggja. Erlendar skipasmíða-
þyrfti stöðin að fá eitthvert nægi-
íega stórt verkefni, sem gæti verið
kjölfesta í rekstrinum yfir lengri
tíma, sérstaklega yfir vetrartí-
mann því erfiðast væri að brúa
hann. Þó má segja að smíði
tveggja 230 tonna togara sem
hafin er verði kjölfestan hjá okkur
næstu misserin og er búist við að
fyrri togarinn verði tilbúinn upp
úr næstu áramótum. Þá hefst
væntanlga smíði hins,“ sagði
Gunnar.
Hann sagði smíðina hafa farið
rólega af stað, en þó hefðu nokkr-
ar fyrirspumir borist varðandi
skipin. Hann sagði of snemmt að
segja til um hver kostnaður yrði.
Slippstöðin §ármagnar smíði tog-
aranna með bankalánum, sem
greiðast upp við sölu skipanna.
Unnið er nú að því í Slippstöðinni
að kanna hvort stöðin geti tekið
eldri skip upp í kaup á nýsmíðinni
stöðvar hafa haft þennan hátt á
lengi, en íslenskar stöðvar hafa
ekki treyst sér til þessa enn.
Gunnar sagði að augljóslega
hefði harðnað á dalnum í skip-
asmíðaiðnaðinum. „Menn halda að
sér höndum og áform eru ekki líkt
því eins mikil og tíðkaðist fyrir
einu til tveimur árum. Af því leið-
ir að miklu minna er um meirihátt-
ar breytingar á skipastólnum og
förum við ekki varhluta af því.
Hinsvegar get ég ekkert sagt til
um hvernig árið kemur til með að
líta út rekstrarlega hjá fyrirtæk-
inu. Óvissan er mikil í þessum
rekstri." Eins og fram hefur kom-
ið í Morgunblaðinu var 50 milljóna
króna hagnaður hjá Slippstöðinni
á síðasta ári. Gunnar kvaðst án-
ægður með útkomuna miðað við
aðstæður og á meðan ekki væri
tap hjá fyrirtækinu. Hagnaðurinn
var þó heldur lakari 1987 en 1986.
KEA:
Nýr fulltrúi
kaupfélaofsstj óra
Akurpvri. “ ^ ^
Akureyri.
ÞORKELL Pálsson hefur frá
1. júlí 1988 verið ráðinn fulltrúi
kaupfélagsstjóra á sviði mark-
aðs- og iðnaðarmála. Undir
umsjónarsvið hans falla öll
markaðsmál fyrir matvæla- og
iðnaðarframleiðslu félagsins
svo og rekstur Brauðgerðar
KEA, Smjörlíkisgerðar KEA og
Efnagerðarinnar Flóru, auk þes
sem hann mun taka þátt í eftir-
liti með ýmsum samstarfsfyrir-
tækjum félagsins.
Þorkell Pálsson fæddist 14.
ágúst 1952. Hann var á árunum
1980-1985 framkvæmdastjóri
Hosby-hús hf., stundaði háskóla-
nám í markaðsfræðum í Dan-
svo sem tilkynnt var með orðsend-
ingu 17. maí sl. hefur umsjónar-
svið Þórgnýs breyst þannig, að
olíusöludeild félagsins fellur nú
undir hans umsjónarsvið ásamt
flutningastarfsemi félagsins
(skipaafgreiðsla og landflutning-
ar), fóðurvörudeild og Hótel KEA
með þvottahúsinu Mjöll, auk þess
sem hann tekur þátt í eftirliti með
ýmsum samstarfsfyrirtækjum fé-
lagsins. Skrifstofa Þórgnýs verður
í húsakynnum Olíusöludeildar á
Oddeyrartanga á Akureyri, en
skrifstofa Þorkels á 3. hæð í Hafn-
arstræti 91 á Akureyri.
(Fréttatilkynning)
Séð yfir athafnasvæði Slippstöðvarinnar.
Eðlilegt að heimamenn fái
aðild að flugrekstrinum
- segir Gísli Bragi Hjartarson bæjarfulltrúi
BÚAST MÁ við að bæjarstjórn Akureyrar samþykki á næsta fundi
sínum að leggja til við samgönguráðuneytið að einkaleyfi Flugleiða
hf. á leiðinni á milli Akureyrar og Reykjavíkur verði afnumið. Gísli
Bragi Hjartarson bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins flutti tillögu þessa
efnis á síðasta fundi bæjarstjórnar og verður hún væntanlega sam-
þykkt nk. þriðjudag. Meðflutningsmaður Gísla Braga var samflokks-
maður hans, Björn Jósef Arnviðarson, auk framsóknarmannanna
Heimis Ingimarssonar og Úlfhildar Rögnvaldsdóttur.
„Ég vil að öðrum aðilum verði
gefinn kostur á þessari flugleið líka,
ekki síst eftir að flugmenn félagsins
virðast geta hagað sér hvernig sem
þá lystir. Mér finnst eðlilegt að
heimamenn fái aðild að þeim at-
vinnurekstri, sem að þeim snýr. Ég
tel Flugfélag Norðurlands hf. fylli-
lega í stakk búið til að sinna flug-
leiðinni að einhverjum hluta. Mér
finnst ansi hart að 106.000 far-
þegar fari á milli á ári og nánast
allar tekjur af rekstri þessum renni
alfarið til höfuðborgarsvæðisins.
Leyfi Flugleiða á leiðinni rennur
út þann 1. janúar 1990 og veit ég
að ef Flugfélag Norðurlands fengi
aðeins um 30-40% flutninganna
myndi það stórauka mannahald í
tekjuháum mönnum sem okkur
vantar hér a Akureyri. Svo veit
maður að með samkeppni á leiðinni
yrði þjónustan mun betri," sagði
Gísli Bragi.
Flugleiðir hf eiga 35% í Flugfé-
lagi Norðurlands hf., en hafa lítið
með stjórnina þar að gera, að sögn
Gísla Braga. „Takmörkuð verkefni
standa vexti FN fyrir þrifum, en
ljóst er að bæta þarf við vélakost
þess ef til kemur áætlunarflug á
milli Reykjavíkur og Akureyrar.
Mér finnst ekkert sjálfgefið að
einkaleyfi Flugleiða hf. vari um alla
eilífð. Þessa dagana er unnið að því
að kanna hvað Akureyrarbær geti
aukið tekjur sínar við breyttar að-
stæður," sagði Gísli Bragi.
Barokk-tónlistarhópur
heldur þrenna tónleika
Barokk-tónlistarhópur frá Akureyri heldur þrenna tónleika nk.
sunnudag, mánudag og þriðjudag og eru þeir hluti af sumartónleika-
röð, sem ætlunin er að halda í sumar. Fyrstu tónleikarnir fara fram
í Akureyrarkirkju kl. 17.00 á sunnudag. Þá verða tónleikar haldnir
í Húsavíkurkirkju kl. 20.30 á mánudag og á sama tíma á þriðjudags-
kvöld í Reykjahlíðarkirkju.
Barokk-hópinn skipa Margrét
Bóasdóttir sópransöngkona, Þuríð-
ur Baldursdóttir altsöngkona, Lilja
Hjaltadóttir fiðluleikari, Inga Rós
Ingólfsdóttir sellóleikari og Bjöm
Steinar Sólbergsson organisti. Á
efnisskránni er eingöngu tónlist
eftir þekkt tónskáld frá barokk-
tímabilinu, Bach, Monteverdi, Vi-
valdi, Pergolesi og Purcell.
Hafís hamlar veiðum
út af Norðurlandi
og Vestfjörðum
FISKISKIP úti fyrir Norðurlandi hafa undanfarið lent í ís á miðunum
fyrir norðan og vestan, en hafís er óvenju mikill og óvenju nálægt
landi miðað við árstíma. Búist er við að áttin haldist svipuð, en að ísinn
bráðni mjög ört á næstu dögum vegna hlýinda á landi og í sjó. Svipuð
veðurskilyrði voru hér við Iand sumarið 1984 og 1986 og kom ís nærri
landi.
undarlega á þessum árstíma, en þeg-
ar ísinn er svona nálægt landi er
best að hafa varann á. Ég veit að
ferðafélögin eru viðbúin, en svo geta
ýmsir smáhópar verið að fara þama
án þess að það hvarfli að fólki að
það geti mætt ísbjömum á göngu.“
Landhelgisgæslan fór í ískönnun-
arflug í byrjun vikunnar og var meg-
inísjaðarinn þá um 25 sjómílur norð-
ur af Horni, 20 sjómílur norður af
Kögri, 32 sjómílur norðvestur af
Straumnesi. Þá mátti sjá mjóa og
gisna ístungu frá meginísnum
skammt frá Homi sem náði 12
sjómílur að landi. ís er á siglingaleið
norður af Vestíjörðum og vildi Þór
Jakobsson, deildarstjóri í hafísrann-
sóknadeild, brýna fyrir skipstjórum
að vera iðnir á útkfkkinu. Þór vildi
einnig vara ferðafólk, sem er á ferð
um Homstrandir til dæmis, við hvíta-
bjömum. „Þetta hljómar ef til vill
Þór sagði að ísinn hyldi miðin að
mestu úti fyrir Norðurlandi. „Strangt
tiltekið eiga öll skip að tilkynna hafís-
rannsóknadeild um ís, en því miður
vill verða misbrestur á því. Undan-
farið höfum við því aðallega reitt
okkur á Landhelgisgæsluna og ha-
frannsóknaskipin."