Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
Paul Valéry
Eriendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Paul Valéry: Cahiers/Hefte.
Úbersetzt von Markus Jakob,
Hartmut Köhler, JUrgen
Schmidt-Radefeldt, Corona
Schmiele, Karin Wais. I.S. Fisc-
her Verlag 1987.
Þetta er fyrsta bindi sex binda
útgáfu minnisbóka Paul Valéry,
sem er þýðing minnisbókanna, sem
Judith Robinson gaf út í Biblio-
theque de la Pléiade í tveimur bind-
um 1973-’74 á forlagi Gallimard.
Þýsku útgáfuna hafa annast
Hartmut Köhler og Jurgen
Schmidt-Redefeldt og þýðingin er
unnin af þeim og hópi þýðenda.
Niðurröðun efnisins er sú sama og
í Pléiade-útgáfunni. Hveiju bindi
fylgja athugagreinar og registur
ásamt formálum.
Utgáfan er unnin úr þeim 260
minnisbókum, sem voru gefnar út
ljósprentaðar á árunum 1957-’60 í
29 bindum. Minnisbækurnar eru
íhuganir, athugasemdir um heim-
speki, tungumálið, skáldskapinn,
sögu, trúarbrögð og meðvitundina,
stærðfræði, eðlisfræði, minnið og
verundina. Hann hafði þann sið frá
1894 og allt til dauðadags að skrifa
niður það sem honum kom í hug.
Hann varði ákveðnum tíma sólar-
hringsins til þessara íhugana eða
frá kl. 5 að morgni fram til kl. 8.
Afrakstur þessara hálfrar aldar
morguniðju eru þessar andríku og
hnittnu athugasemdir og smágrein-
ar um inntak verundar, meðvitund-
ar og skáldskapar ásamt öðrum
efnum og eru meðal sérstæðustu
bókmenntaverka og óþijótandi nám
„andlegrar spektar" og auk þess
kveikja að öðrum verkum hans.
Útgáfa S. Fischer-forlagsins á sex
bindum minnisbókanna mun verða
alls um nokkur þúsund blaðsíður.
Þetta fyrsta bindi er um 650 blað-
síður.
Paul-Ambroise Valéry fæddist
1871 í lítilli hafnarborg, Séte áður
Cette, í nánd við Montpellier. Hann
lést 1945. Hann var af korsíkönsk-
um og ítölskum stofnum eins og
Napóleón, faðir hans franskur,
móðir hans ítölsk. Hann skrifar í
æviþætti af sjálfum sér: „Ég á fáar
minningar úr barnæsku. En svið
hafnarbæjarins, hafið, bátamir fyr-
ir neðan gluggana í húsi okkar,
allt sem snerti hafið, mettaði augu
mín (og meðvitund) í frumbemsku,
en eftir það „sjáum" við ekkert
nema með einbeitingu.” Hann seg-
ist hafa átt auðugt ímyndunarafl,
haft meira en ömun á kappleikjum
og ruddaskap og tekið snemma að
'lesa ævintýri. „Eg var mjög áhrifa-
gjarn. Viðkvæmnin olli þjáningu.
Hryllingsótti bernskunnar." Valéry
gekk í skóla staðarins. Leikvellimir
við skólann vom stallar, þaðan
gafst útsýn yfir höfnina. Síðan
flutti fjölskyldan til Montpellier,
með skólagöngu, sem olli honum
ekki litlum leiða. Faðir hans lést
1887 og var grafinn í Cette í kirkju-
garði, sem ég nefndi „Le Cimeriéri
marin" (kirkjugarðinn við strönd-
ina). Það er heitið á einu frægasta
ljóði Valérys. Eftir nám í mennta-
skóla tók hann að stunda laganám
við háskólann í Montpellier og þá
og í herþjónustunni vaknaði með
honum áhugi á skáldskap. Hann
telur þetta tímabil ævinnar hafa
skipt sköpum fyrir sig. Hann kynnt-
ist Pierre-Louýs, sem var kunnugt
skáld og rithöfundur, sem aðhylltist
symbolismann, þegar Valéry kynnt-
ist honum. Þessi kynni urðu honum
gluggi að heimi skálda og bók-
mennta og það var í tímariti, sem
Louýs gaf út, sem Valéry birti sitt
fyrsta ljóð, „Narcisse parle“. Kvæð-
ið vakti mikla athygli og Valéry
segist hafa orðið mjög undrandi.
Síðan kynntist hann André Gide,
Mallarmé og hann „uppgötvar Rim-
baud". Hann les Poe og um svipað
leyti opnast honum hljómlistin með
Beethoven og 1891 Wagner.
Valéry dvaldi um tíma í London
og á Ítalíu, af tilviljun fékk hann
starf í hermálaráðuneytinu og
skömmu síðar hjá Havas-fréttastof-
Paul Valéry
unni, sem var þá stjómað af Edou-
ard Lebey. Valéry starfaði þar í 22
ár, frá 1900 til 1922. Á því tímá-
bili varði hann frítíma sínum til
íhugana, en birti hvorki ljóð né
aðrar samantektir. 1913 varð hann
þó við tilmælum um að birta í heild
fyrri kvæði sín. Það varð til þess
að hann tók að yrkja kvæði sem
átti að vera lokakvæði væntanlegr-
ar bókar, en það tók hann fjögur
ár. Síðan rak hver ljóðabókin aðra
og 1923 gat hann helgað sig skáld-
skapnum eingöngu og öðmm skrif-
um. Hann hlaut sæti í Akademíunni
1925 og var prófessor í bókmennt-
um við „Collége de France" 1937.
Síðustu tuttugu árin, sem hann lifði
var hann oft talinn vera merkasti
höfundur Frakka, andríkastur og
snjallastur.
Valéry var tregur til að birta
verk sín og þau vom sjaldnast birt
að eigin fmmkvæði. Hann segir í
æviþætti að hann eigi allt vinum
sínum að þakka. Kveikja verka
hans séu aðstæðurnar og ekki
ósjaldan útgefendur.
Valéry skrifar „að sig hafi aldrei
dreymt um að gefa þessi brota-brot
út á prenti (minnisbækumar)".
Hann lét þó tilleiðast til að gefa
út smákafla úr þeim öðm hvom.
Auden skrifar í inngangi að 14.
bindi verka Valérys í enskri þýð-
ingu, að hér sé um óþarfa hlé-
drægni að ræða. því að hann geti
þess í einkabréfi til eins vina sinna,
að hann álíti Minnisbækumar sitt
eiginlega verk „æuvre“.
Og vissulega em þær það, sem
gmndvöllur ljóða hans og ritgerða
og annarra verka, og ekki síst sem
þær sjálfar, leiftrandi hugsanir
manns sem hefur í hálfa öld vaknað
til hvers dags, nýr og ferskur.
Hugrenningar eða eintal sálar-
innar um skáldskap og tungumál
em viðamiklir þættir minnisbók-
anna. Höfundurinn kemur aftur og
aftur að þessum efnum, frá nýjum
og nýjum sjónarmiðum. Hugsunin
og meðvitundin, „stundum hugsa
ég, stundum er ég.“ Höfuð-við-
fangsefni Valérys var athugun og
skilgreining hugsunarinnar og þá
lá beint við að athuga gang eigin
hugsunar. Til þess að ná árangri
var gmndvallarreglan, að gera
sjálfum sér ljóst hvað er hugsun?
Og til þess að koma því til skila,
þurfti fyrst og síðast skýra fram-
setningu og nákvæmni. Hugsun og
tungumál, tónninn og skáldskapur-
inn vom eðlilega efni, sem snertu
hann mest sem skáld.
í þessu fyrsta bindi Minnisbók-
Hússtjórnarskólanum í
Reykjavík var slitið 20. maí.
Hæstu einkunn í hússtjórnardeild
fékk Kolbrún Kjerúlf frá Akra-
nesi. Hlaut hún verðlaun úr verð-
launasjóði Guðrúnar Kristjáns-
dóttur. Skólinn var stofnaður
1942 og hefur starfað óslitið síðan
og ætíð verið til húsa á Sólvalla-
götu 12.
Á haustönn em haldin námskeið
fyrir almenning í fatasaumi, mat-
reiðslu og vefnaði. Námskeiðin em
ýmist dag- eða kvöldnámskeið og
standa mismunandi lengi allt frá
einum degi til nokkurra vikna, þann-
ig að sem flestir geti fundið eitthvað
við sitt hæfi.
Á vorönn er rekinn fimm mánaða
hússtjómarskóli. geta nemendur
búið í skólahúsinu ef þeir óska þess.
Námskeiðin halda áfram alla vor-
önnina eftir því sem húsrými gefur
anna á þýsku em eftirfarandi kafl-
ar: Hefte Cahiers, sem er einhvers-
konar inngangur að Minnisbókun-
um, valið úr köflunum sem koma
næst, sem em Ego, Ego Scriptor,
Gladiator og Sprache. Eins og sjá
má af fyrirsögnum kaflanna þá er
hér einkum fjallað um vemndina,
hugtakið ég, ég sem skrifa og yrki,
tengsl kveikjunnar að ljóðinu og
niðurritun þess, eða hugsunar og
tjáningar á pappírinn og tungumál-
ið.
Og Gladiator, um agann, aga
skýrrar hugsunar og fyrst og fremst
orðun eða tjáningu hugsunarinnar
í orðum. Efninu er raðað í tímaröð
og það sem er einstakt, er að höf-
undurinn nálgast hvern efnisþátt á
nýjan hátt í hverri smágrein eða
grein. Fjölbreytileiki íhugananna er
endalaus, enda verður efni eða hug-
tak seint afgreitt endanlega. Sjálfs-
gagnrýni Valérys var sívökul og
hvatning hans var til sjálfs sín og
annarra að láta ekki glepjast af
tákninu, skrifuðu orði. Hafí einhver
komist nálægt þvf að tjá það, sem
Wittgenstein taldi ekki gjörlegt að
tjá, þá var það Valéry.
tilefni til. Um 500 nemendur stund-
uðu nám við skólann í vetur. Um-
sóknir um hússtjórnarskólann þurfa
að berast fyrir miðjan nóvember.
(Fréttatilkynning)
Ný bók um
Morgan Kane
PRENTHÚSIÐ hefur gefið út 63.
bókina í spennubókaflokknum
um Morgan Kane.
Nýjasta bókin ber nafnið „Lög-
regluforingi í Alaska" og segir frá
Morgan Kane lögregluforingja sem
nú hefur verið sendur í nokkurs
konar útlegð til Alaska.
(Úr fréttatilkynningn)
Reykjavík;
Hússljómarskóla slitið
raöauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar j
I til sölu
Atlas Stord T3 WH
Höfum til sölu ónotaða Atlas-Stord fiski-
mjölsverksmiðju til afgreiðslu strax. Hráefn-
isafköst: 30/35 tonn á sólarhring. Gott verð.
Fiskvinnsluvélar og tæki
Eftirtaldar vélar höfum við til sölu:
Baader 189, flökunarvél, yfirfarin.
Baader 188, flökunarvél, sem ný.
Baader 413, fiskhausari, uppgerður.
Baader 99, flökunarvél, uppgerð.
Baader 694, marningsvél, sem ný.
Baader 51, roðflettivél, ný 1987.
Arenco Cub, fiskhausari, uppgerður.
Frystipressa, J & E Halls.
Teg. V127 MKIII, eitt þrep fyrir freon R-502.
Afköst 71586 kcal/klst við -34,5oC/+27oC.
Tilboð óskast.
Hamraborg 1, s: 46070, hs: 54974.
Baader flökunarvélar
Höfum til sölu á mjög góðu verði Baader
184, árg. 1985. Vélin er keyrð 2000 tíma.
Einnig Baader 185, árg. ’84, lítið notuð.
Varahlutir fylgja. Báðar vélarnar eru nýyfir-
farnar af Baader og eru til afgreiðslu strax.
Hamraborg 1, s: 46070, hs: 54974.
| titboð - útboð \
Útboð - Jarðvinna
Áburðarverksmiðja ríkisins óskar eftir tilboði
í jarðvinnu.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu verk-
smiðjunnar í Gufunnesi frá og með mánudeg-
inum 11. júlí.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Áburðar-
verksmiðju ríkisins fyrir kl. 11.00 föstudaginn
15. júlí 1988.
Áburöaveksmiðja ríkisins.
tilkynningar
RANNSÓKNARÁÐ RlKISINS
Skrifstofa okkar verður lokuð vegna sumar-
leyfa frá 11. júlí til 2. ágústs nk.
Veiðileyfi
Enn eru laus veiðileyfi í Blikdalsá á Kjalar-
nesi. Góð veiði, fjöldi stórra laxa.
Bókanir og allar nánari upplýsingar í síma
985-24552 alla daga milli kl. 17-19.
| atvinnuhúsnæði |
Kópavogur
- atvinnuhúsnæði
Til leigu nýlegt atvinnuhúsnæði 90-270 fm.
Stórar innkeyrsludyr. Góð lofthæð.
Nánari upplýsingar í síma 652524.
Skrífstofuhúsnæði til
leigu í Brautarholti 8
snyrtilega innréttað, 65 fm, auk aðgangs að
sameiginlegri setustofu og kaffistofu.
Upplýsingar hjá Fagtúni hf. í síma 621370.