Morgunblaðið - 09.07.1988, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
♦
%
'■%
Lærdómar Afganistan-stríðsins
eftir Tryergva
V.LÍndal
Nú er Afganistan-stríðinu að
linna, af hálfu Sovéta a.m.k., eftir
tæplega áratugs baráttu. Á þessum
tímamótum er hægt að sjá stöðu
þess í raunsærra ljósi í heimspólitík-
inni. Margar getgátur hafa verið
uppi um tilgang Sovéta þar, en nú
er hægt að afskrifa margar þeirra,
t.d.:
Rangar getgátur
1. Ætluðu Sovétar að leggja
undir sig Afganistan til að komast
nær Persaflóa, til að geta einokað
olíuna þar á ófriðartímum?
Þetta virðist a.m.k. ekki líkleg
útkoma nú þegar sovéski herinn er
á forum, og því engin trygging fyr-
ir áframhaldandi sovéskum umsvif-
um í landinu.
2. Gerðu Sovétar innrás af því
þeir héldu að lándamærum sínum
væri ógnað?
Geta Sovéthers til að heyja
áhrifaríkt vamarstríð í Afganistan
gegn skæruliðum, auk getu þeirra
til að leggja undir sig þéttbýli þar,
gera þá túlkun ósennilega.
3. Var stríðið upphafið að hem-
aðarlegri útbreiðslu byltingar Sov-
éta?
Nei, því þetta leiddi ekki til inn-
rásar sovésks hers í fleiri lönd í
kjölfarið.
4. Ætluðu Sovétmenn að hafa
áhrif á gang mála í íran, og endur-
vekja þar áhrif sín frá sjötta ára-
tugnum?
Slíkt gerðist ekki.
5. Var þetta vinsælt stríð hjá
hinum almenna Sovétborgara?
Það hefur komið á daginn að svo
var ekki.
Síðan koma ýmsar getgátur sem
virðast nú líklegri.
Líklegri getgátur
1. Var þetta liður í tilraun til að
umkringja landamæri Sovétríkj-
anna enn frekar með stuðpúðaríkj-
um?
Óneitanlega er Afganistan nú
sterkara sem stuðpúðaríki fyrir
Sovétmenn en það var í tíð hinnar
marxísku stjórnar sem var þar fyr-
ir innrásina.
2. Var það vilji Brésnév-stjómar-
innar að breyta Afganistan í iðnað-
arþjóðfélag, sem lið í baráttu
kommúnistaríkis gegn menningu
frumstæðs fólks?
Víst hafa verið lögð drög að iðn-
aði, menntun og stjómkerfi að sov-
éskri fyrirmynd í borgum Afganist-
ans. Hins vegar virðist hernaðurinn
gegn fólki dreifbýlisins hafa beinst
gegn skæruliðum en ekki frum-
stæðri menningu. Þar var ekki
stefnt að upprætingu hirðingjabú-
skapar sérstaklega.
3. Var stríðið gagnlegt æfinga-
verkefni fyrir sovéska herinn?
Tvímælalaust. Herinn hafði ekki
fengið krefjandi viðfangsefni síðan
í síðasta heimsstríði, og síðan höfðu
orðið kynslóðaskipti í mönnum,
tækni, stjómun og stjómmálum.
Bandaríkjamenn höfðu fengið tæki-
færi til að reyna getu sína í Kóreu
og Víetnam, en Sovétmenn ekki
fengið annað en heræfíngar, og
hemaðarráðgjöf í þróunarlöndum
til að prófa hemaðargetu sína. Því
ríkti vaxandi óvissa um raunveru-
lega getu Rauða hersins á ófrið-
artímum.
4. Spáð var að hinir ólíku ætt-
flokkar Afganistans gætu ekki
sameinast nóg til að hrinda innrás-
arliðinu.
Þetta hefur þó tekist að hluta,
þrátt fyrir að skæruliðar hafi verið
lítt samtaka. Meiri samvinnu mun
þó þurfa til að binda endi á væntan-
legt borgarastríð.
Tryggvi V. Líndal
„Óneitanlega er Afgan-
istan nú sterkara sem
stuðpúðaríki fyrir Sov-
étmenn en það var í tíð
hinnar marxísku stjórn-
ar sem var þar fyrir
innrásina.“
Önnur atriði
1. Deilt var um hvort Sovéther
hefði verið boðið til Afganistans eða
hvort hann hefði komið óboðinn.
Þetta skiptir minna máli nú, þeg-
ar ljóst er að þeir hafa tapað stríðinu
í flestu sem máli skiptir fyrir Vest-
urlandabúa.
2. Tókst Sovétum að kæfa and-
stöðu gegn stríðinu utan Afganist-
ans, með því einu að banna frjálsan
fréttaflutning?
Það virðist hafa tekist lengst af,
því fólk á Vesturlöndum var ekki
ónáðað af fréttamyndum þaðan fyrr
en undir lokin. Ætla má að þátt-
töku Sovéta hefði lokið fyrr ef upp-
lýsingafrelsi hefði verið.
3. í upphafi var getgáta um að
Sovétmenn vildu vega upp á móti
ítökum Bandaríkjamanna í Pakist-
an með innrásinni.
Vera má að stríðið hafi leitt til
að Bandaríkin hafi dregið kjarn-
orkuvopn frá Pakistan, en þar á
móti juku þeir fjárstuðning til Pak-
istans, og til skæruliða í Afganist-
an. Auk þess fengu þeir skæruliðum
hand- og loftvamarflaugar, en það
skipti miklu.
Að lokum: Samanburður við
Víetnamstríð Bandaríkjamanna
væri efni í aðra grein, enda hlið-
stæður margar. Þó sá munur, að
formleg landamæri breyttust ekki
í Afganistan.
Höfundur er þjóðfélagsfræðingur.
HUSEIGANDI GÓÐUR!
EnilMETTTin
A VHHALMNU?
Eru eftirfarandi vandamál
að angra þig?
0 Alkalí-skemmdir 0 Vaneinangrun
0 Frost-skemmdir 0 Sprunguviðgerðir
0 Lekir veggir 0 Síendurtekin málningarvinna
Ef svo er, skaltu kynna þér kosti
StQ-utanhúss-klæðningarinnar:
^Q-klæðningin er samskeytalaus.
stQ-klæðningin er veðurþolin.
^Q-klæðningin er litekta og fæst í yfir 300
litum.
^Q-klæðningin er teygjanleg og viðnám gegn
sprungumyndun er mjög gott.
2^Q-klæðningin leyfir öndun frá vegg.
^Q-klæðningin gefur ótal möguleika í þykkt,
áferð og mynstri.
^Q-klæðninguna er unnt að setja beint á vegg,
plasteinangrun eða steinulL
^tb'klæðninguna er hægt að setja á nær hvaða
byggingu sem er, án tillifs til
aldurs eða lögunar.
sfeyklæðningin endist - Vestur-þýsk gæðavara
Til að tryggja ésetningu
Stb-klæðningarefnanna í sumar,
vinsamlega hafið samband sem fyrst.
Opið laugardaga og sunnudaga
frákl. 13.00-16.00.
Bíldshöfða 18 (Bakhús)
RYDI r
112 Reykjavík - Sími 673320
Ferda-
tryggingar
m 1 JBcHíMr' fá ÉBSm-
fflWá W-
Svíþjóðarfarar í Heita Pottinum á mánudagskvöld
Morgunblaðið/BAR
SVIÞJOÐARFARAR
IHEITA POTTINUM
Guðjón Guðmundsson
FYRIR hlé var boðið upp á
fremur þreytt prógram sem
þeir Tómas R. Einarsson, Birg-
ir Baldursson og Sigurður
Flosason hálfvegis kreistu út
úr sér og var spilagleðin alveg
í lágmarki á þeim bænum. Enda
sveitin ekki fullmönnuð og til-
veran orðin bið.
í hléinu kom fransk-íslenski
kvartettinn öllum að óvörum og
lék þrjú lög og var gerður góður
rómur að leik þeirra.
En það var lognið á undan
storminum því næst kom Kvartett
Tómasar R. Einarssonar fullskip-
aður og eldfrískur og kýldi á
dúndurgcða útsetningu á Hinseg-
in blús eftir Tómas og fyrirgáfust
þá eldri syndir. Það var ekki fum
á þeim í blúsnum. Kjartan, synda-
selurinn sem tafðist eitthvað í
Hvalfirði, var sú sálarvakning sem
biðin snerist um. Sigurði Flosa-
syni hitnaði líka í hamsi á altinn
og minnti ofsinn á köflum á Frank
Foster.
Kvartettinn keyrði síðan í
gegnum frumsamda hlutann en
varð tafarinnar vegna að sleppa
þeim erlenda nema hvað Daydre-
am eftir Strayhom og Sophistic-
ated Lady eftir Ellington flutu
með í lokin og hefði alveg mátt
sleppa þeim. í síðamefnda laginu
léku Sigurður og Kjartan einir,
Sigurður á baritónsaxafón. Ef
Sophisticated Lady á að vera
skrautfjöður kvartettsins þá er
nauðsynlegt að það örli á fmm-
leika í flutningi þess. Ótaldir em
þeir sem hafa spreytt sig á Sop-
histicated Lady en flestir eiga það
sammerkt að leika það á persónu-
legan máta. Gera eitthvað nýtt
við þennan gamla standard. Hins
vegar var sem Sigurði væri aðeins
umhugað um að komast skamm-
laust í gegnum hann með nýja
baritóninn sinn. Baritón er flagg-
skip saxafónijölskyldunnar og er-
fítt í lundemi og aðeins á færi
fárra manna að láta sér lynda við
það. Sigurður Flosason hefur, að
mati undirritaðs, ekki náð nægi-
legum tökum á því enn sem kom-
ið er og ætti ekki að nota það á
tónleikum, heldur æfa sig og æfa
og nota það svo á tónleikum.
Umfram allt verður hann að ná
hreinum og breiðum tón sem
nokkuð skorti á í Heita Pottinum
þetta kvöld.
Kvartettinn heldur senn til
Svíþjóðar þar sem hann leikur á
norrænum jassdögum í Karlstad
og fer síðan á elstu jasshátíð á
Norðurlöndum sem haldin er í
Kristianstad. Gaman væri ef
ríkisútvarpinu áskotnuðust upp-
tökur af jassdögunum í Karlstad
því vitað er að sænska útvarpið
tekur allt upp á band þar. Kvart-
ett Tómasar R. Einarssonar er
verðugur fulltrúi íslensks jass því
meðlimir hans em allir fantagóðir
hljóðfæraieikarar og Tómas R.
Einarsson semur auk þess ágæta
tónlist. Má þar nefna Ortega,
Rúmba, samba og frjálst að
ógleymdum Hinsegin blús.
Hinn lagasmiðurinn, Sigurður
Flosason, kann einnig mæta vel
til verka en samt er eins og Sig-
urður sé límdur við einhvcrjar
klisjur. In Memoriam er til að
mynda gersamlega húmorslaust
lag enda eflaust ekki við hæfi að
gleðjast mikið í erfilögum.
Þessir tónleikar vom hin besta
skemmtun þá loks þeir hófust og
er vonandi að viðtökur verði góðar
í Svíþjóð.