Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
t
1
-*
t INGA RASMUSSEN INGIMUNDARDÓTTIR, Thorvaldsensvej 13, Kaupmannahöfn, lést í Frederiksberg Hospital aðfaranótt 8. júlí. Aðstandendur.
t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN SIGURBJÖRNSSON vólstjóri, Geitlandi 37, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum 7. júlí. Sigriður Björnsdóttir, Oddgeir Sigurðsson, Fjölnir Björnsson, Eva Gestsdóttir, börn og barnabörn.
Móðir okkar, SUMARLÍNA ÞURÍÐUR EIRÍKSDÓTTIR, lést 7. júlí á Hrafnistu Hafnarfirði. Fyrir hönd vandamanna, Hulda Bergsdóttir, Guðrfður Bergsdóttir, Siguröur Bergsson, Eirfkur Bergsson.
Faðir okkar og stjúpfaðir, GESTUR PÁLSSON, Sólvöllum 8, Akureyri, lést 6. júlí sl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 13. júlí kl. 13.30. Anna Lilja Gestsdóttir, Guðrún Gestsdóttir, Hjördís Jónsdóttir.
t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVEINN JÓNSSON rafvirki, erlátinn. Kristjansand, Noregl, SigrúnSveinsdóttir, James Stansfield, Helgi Ó. Sveinsson, Marfa Annabel Lazaga, Jóna Sveinsdóttir, Guðjón Kristinsson og barnabörn.
t Faðir minn, tengdafaðir og afi okkar, BRYNJÚLFUR JÓNSSON prentari, lést á Gjörgæsludeild Borgarspítalans 7. júlí. Anna Kristín Brynjúlfsdóttir, Elfas Snæland Jónsson, Jón Hersir Elfasson, Úlfar Harrl Elíasson, Arnoddur Hrafn Elíasson.
t Móðir mín, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Kjós f Strandasýslu, Hátúni 10, Reykjavfk, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 11. júlí kl. 15.00. Fyrir hönd aöstandenda, Pálmi Pétursson.
t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN BJÖRNSSON, Hringbraut 87, veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 11. júlí kl. 15.00. Lára Guðmundsdóttir, Ólafur Rafn Jónsson, Danielle Somers, Gylfi Jónsson, Guðrún Bergsveinsdóttir og barnabörn.
t Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns mins, föður, tengdaföður og afa, AÐALSTEINS GUNNARSSONAR. Valgerður Stefánsdóttir, Silja Aðalsteinsdóttir, Gunnar Karlsson, Gunnar Aðalsteinsson, Sif Gunnarsdóttir, Sigþrúður Gunnarsdóttir.
Kveðjuorð:
Hermann Aðalsteins-
son framkvæmdastjóri
Fæddur 14. október 1945
Dáinn l.júlí 1988
Þegar góður vinur fellur frá,
langt um aldur fram, er fyrsta
spurningin sem upp í hugann kem-
ur, af hverju og til hvers.
Hópurinn sem hóf nám í við-
skiptafræði haustið 1979 var stór,
en fljótlega myndaðist góður vina-
hópur, sem stóð saman í gegn um
súrt og sætt næstu fjögur árin.
Hermann Aðalsteinsson var einn í
þessum hópi og lét ekki sitt eftir
l’ggja> þegar vinna þurfti erfið og
tímafrek verkefni, eða fara á
skemmtanir og í ferðalög. Hermann
hafði þá þegar mikla reynslu úti í
atvinnulífinu, átti og rak prent-
smiðju ásamt öðrum og nutum við
skólafélagarnir góðs af. Minnis-
stætt er íjáröflunarstarfið vegna
Ameríkufararinnar, þá var Her-
mann einna harðastur og alltaf úr-
ræðagóður, þrátt fyrir að hann
hefði ýmsum öðrum hnöppum að
hneppa. Eftir Ameríkuferð fjórða-
ársnema, sem lengi verður í minn-
um höfð, gerðum við okkur jafnvel
enn betur grein fyrir því en áður,
að með þessum hópi hafði tekist
varanleg vinátta. Slík vinátta verð-
ur aldrei fullþökkuð, en eftir standa
góðar og skemmtilegar minningar.
Þó að samverustundimar hafi orðið
alltof fáar hin síðari ár, var alltaf
jafn gott að hitta Hérmann. Hann
var einn af þeim mönnum, sem
horfir fram á við og hafði alltaf
eitthvað spennandi á pijónunum.
Atorkan og vinnugleðin skein út
út honum, svo að auðvelt var að
hrífast með og ósjálfrátt fylltist
maður sama eldmóðinum. Það var
ekkert hálfkák á því sem Hermann
tók sér fyrir hendúr.
Efst í huga Hermanns voru þó
alltaf Hrönn og strákarnir og gam-
an var að fylgjast með sameldninni
sem ríkti á þeim bæ. Gagnkvæm
virðing og tillitssemi voru áberandi
og aðdáunarverðir þættir í fari
þeirra.
Samvemstundir með Hermanni
verða ekki fleiri, en það ætti að
verða okkur sem eftir lifum til
umhugsunar, að rækta betur þá
vináttu sem við eigum í dag, því
að enginn veit hvað morgundagur-
inn ber í skauti sér.
Við vottum Hrönn og drengjun-
um samúð okkar og biðjum Guð
að gefa þeim styrk og trú til að
skilja tilgang alls þess er á hefur
dunið.
Félagar úr Viðskiptadeild HÍ
Jóhanna Á. Blöndal,
Sauðárkróki—Minning
Fædd 18. september 1903
Dáin 28. júní 1988
Hinn 28. júní sl. lést í Sjúkra
húsi Skagfirðinga, Sauðárkróki, frú
Jóhanna Ámadóttir Blöndal.
Hún fæddist á Geitaskarði í
A-Húnavatnssýslu hinn 18. sept-
ember 1903. Hún var dóttir hjón-
anna Hildar Sólveigar Sveinsdóttur
og Áma hreppstjóra Þorkelssonar.
Johanna ólst upp í hópi fimm glað-
værra og tápmikilla systkina. Elst
þeirra var Sigríður, síðar húsfreyja
á Geitaskarði, gift Þorbirni Björns-
syni, þá ísleifur lagaprófessor,
kvæntur Sofíu Gísladóttur Johnsen,
Guðrún, gift Ólafi Johnson, stór-
kaupmanni, Jóhanna, gift Jean
Valgard Blöndal, umboðsmanni
Flugfélags íslands á Sauðárkróki,
en yngstur þeirra systkina og sá
eini sem eftir lifir er Páll, fyrrum
bóndi í Glaumbæ í Langadal, síðar
í Þórlaugargerði í Vestmannaeyj-
um, kvæntur Guðrúnu Aradóttur.
Jóhanna naut ástríkis foreldra
og góðra aðstæðna í uppvexti
sínum. Hún var síglöð og björt yfir-
litum, hárið svo mikið og fagurt að
orð var á gert. Hún bjó yfir óver\ju
ríkum persónutöfrum, sem fylgdu
henni alla ævi. Hún elskaði hljóm-
list og eitt af því, sem hún hafði
hlotið í vöggugjöf var falleg söng-
rödd, en það gilti raunar um báðar
systur hennar líka svo í æsku henn-
ar var mikill söngur og gleði á
Geitaskarði. Undirbúning sinn fyrir
lífið hlaut Jóhanna á umsvifamiklu
heimili foreldra sinna og á hús-
mæðraskóla, að þeirra tíma sið, en
tuttugu og þriggja ára giftist hún
Valgarði Blöndal eins og áður sagði
Blóma- og
w skreytingaþjónusta w
*' hvert sem tilefnið er. '*
GLÆSIBLÓMIÐ
GLÆSIBÆ,
Álfheimum 74. sími 84200
og bjó upp frá því á Sauðárkróki.
Börnin urðu fimm og eru þrjú þeirra
á lífi.
Elsta soninn, Kristján, misstu
þau frumvaxta. Hildur Sólveig, hús-
freyja í Hveragerði, lést á 50. ald-
ursári fyrir fáum árum. Hennar
maður, Stefán Magnússon, tré-
smíðameistari lést ári síðar og var
þungur harmur kveðinn að frjöl-
skyldunni er þau voru kölluð burt.
Ámi, umboðsmaður Flugleiða á
Sauðárkróki, kvæntur Maríu Gísla-
dóttur. Álfheiður, húsfreyja í
Bandaríkjunum, og Auðunn, flug-
vélvirki, Akureyri.
Jóhanna og Valgarð bjuggu
lengst af í Villa Nova á Sauðár-
króki og var heimilið rómað fyrir
myndarskap og gestrisni. Þar geisl-
aði hlýjan frá húsráðendum, svo að
öllum hlaut að líða vel í návist
þeirra. Það voru ekki bara bömin
sem nutu umhyggjunnar á því
heimili, heldur hefi ég fyrir satt að
í tíð þeirra hjóna hafi sjö gamal-
menni kvatt lífið frá þeirra heimili,
sem talar sínu máli um drengskap
þeirra hjóna og mannkærleika.
Þrátt fyrir mikil umsvif á heimilinu
vannst þeim hjónum tími til að taka
þátt í félagslífinu á Sauðárkróki og
vom þau bæði mjög virk m.a. í leik-
listarstarfinu.
Síðar, þegar erfiðleikar steðjuðu
að, breyttu þau heimilinu í Villa
Nova í hótel, sem þau ráku um
árabil.
Ég átti því láni að fagna að kynn-
ast þeim hjónum allnáið vegna
skyldleika konu minnar við Jó-
hönnu. Henni var Jóhanna alla tíð
einkar kær og eigum við hjónin ljúf-
ar endurminningnar frá okkar sam-
fundum bæði hér heima og erlend-
is. Við minnumst Valgarðs sem
öðlingsdrengs, en hann féll frá árið
1965. Upp frá því fór heilsu Jó-
hönnu að hraka og síðustu árin
dvaldi hún á sjúkrahúsi Skagfirð-
inga, þar sem hún naut af einlægu
þakklæti frábærrar umönnunar. Nú
er þessi elskulega og mæta kona
ekki lengur á meðal okkar og er
kvödd með þökk og virðingu.
Agnar Tryggvason
Fanney Sigwjónsdótt-
irDavis — Minning
Fanney Siguijónsdóttir Davis
lést 23. maí sl. á spítala í Norður-
Dakota í Bandaríkjunum, 72ja ára.
Útför hennar fór fram í Melankton-
Bloomfield Lutheran kirkjunni í
Upham, Norður-Dakota 28. maí sl.
Að ósk hinnar látnu var aska
hennar send til íslands og hefur
henni nú verið komið fyrir í graf-
reit foreldra hannar í Fossvogs-
kirkjugarði.
Fanney Siguijónsdóttir Davis var
fædd 23. september 1915 á Seyðis-
fírði. Foreldrar hennar voru Sigur-
jón Johannsson, f. 16. ágúst 1881,
d. 17. febrúar 1968 og Helga
Arngrímsdóttir, f. 13. maí 1889,
d. 21. febrúar 1947.
Nánustu eftirlifandi ættingjar
Fanneyjar eru synir hennar tveir,
Helgi Davis, búsettur í Edinburg í
Texas og Lárus (Lawrence) Davis,
búsettur í Modesto í Kaliforníu.
Bræður hennar, Amgrímur og Ás-
mundur Siguijónssynir, em búsettir
í Reykjavík, en þriðji bróðirinn, Jó-
hann, lést 31. desember 1956.
Fanney fluttist frá Seyðisfirði
með fjölskyldu sinni árið 1924. Hún
stundaði nám við Verzlunarskóla
íslands og starfaði síðar m.a. hjá
Magnúsi H. Blöndahl og Bmna-
bótafélagi íslands. Árið 1947 giftist
hún Buell Davis, Bandaríkjamanni,
sem starfaði hjá varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli. í júlímánuði