Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 49
f MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988 49 MONAKO Karólína prinsessa vill ættleiða barn Karólína prinsessa er fjarska vinsæl í heimalandi sínu og ekki hafa vinsældirnar dvínað eftir að orðrómur fór á kreik um að Karólína væri ófrísk í fjórða sinn. Reyndar það ekki verið staðfest af furstafjölskyldunni en kunnugir telja miklar líkur á því. Þrátt fyrir orðróminn er Karólína alvarlega að hugsa um að ættleiða bam. Barnið heitir Vanessa og er þriggja ára. Litla stúlkan fannst eitt rigningarkvöld í apríi fyrir utan símaklefa við spilavíti í Monte Carlo. Hún var bæði skítug og van- nærð og fötin hennar eintómir lar- far. Vanessa gat aðeins sagt nafnið sitt og þegar hún var spurð um foreldra sína sagði hún að þeir væru „í bílnum". Enginn hefur spurt um hana síðan hún fannst. Vanessa var lögð inn á sjúkrahús og þá kom í ljós að hún þjáðist af næringarskorti og fleiri kvillum í tengsum við það. Þegar Karólína prinsessa heyrði um örlög stúlkunnar lét hún ekki á sér standa. Hún skipaði svo fyrir að Vanessa skyldi fá jafn góða umönnun, fæði og klæði eins og hennar eigin börn myndu fá og hún myndi sjá um kostnaðinn. Síðan Vanessa fannst hefur Ka- rólína heimsótt hana næstum dag- lega á sjúkrahúsið. „Það er eins og ég hafi eignast mitt fjórða bam“ BILDSHOFÐA10 Fatnaður Karólína Mónakóprinsessa er sögð vera ófrísk en samt sem áður er hún alvarlega að hugsa um að ættleiða barn. segir Karólína. Foreldrar Vanessu em líklega af sígaunaættum og það gerir leitina að foreldrum hennar enn erfiðari. „Ef foreldrar Vanessu koma ekki í leitimar, mun ég sjá um barnið" segir Karólína. Börnin hennar, Andrea og Karlotta hafa þegar heimsótt Vanessu í nokkur skipti og hlakka til að fá nýjan leikfélaga. SARA FERGUSON Fergie á von á stúlkubarni Englendingar stunda veðmál af miklu kappi og það er fátt sem ekki er veðjað um. Síðustu mánuði hafa Englendingar eytt mörgum milljónum í að veðja um hvort kyn- ið Sara Ferguson gengur með og hvort það verði tvíburar eða ekki. Nú hafa Fergie og Andrew upp- lýst að þau eiga von á stúlkubarni og þar með er allt gamanið búið hjá enskum veðmöngumm. Talið er víst að Fergie hafi farið til sér- fræðings til að fá vitneskju um málið og þess vegna séu þau Andrew og Fergie svo viss í sinni sök. Kvisast hefur út að þau hjónin hafi þegar ákveðið hvað dóttirin á að heita. Barnið á að heita Annabel Victoria ef sérfræðingurinn hefur haft rétt fyrir sér og nú er bara að bíða og sjá. Betri búðin AxelÓ. Bombey Vinnufatabúðin Bragasport Sportvöruversíunin Sparta Pastel Toppleður Yrsa "Hll ’!! íi.M Blómasalinn Carlos Nesco Vöruver o.m.fl. [Husgagnahöllinj / iNestil Heitt kaffi á könnunni Opnunartími: Virka dagakl. 12-19 Laugardaga kl. 10-16 SUMARMARKAÐUR Fergie segist ganga með stúlku- barn og ef það reynist rétt á barnið að heita Annabel Victoria. ★ ★v t /★★ BRAUTARHOLTI 20 - SÍMI 29098. Vetrarbrautin er nýr mjög vandaður veitingastaður. Metnaðarfullt starfsfólk Vetrarbrautarinnar hefur sett sér verðugt markmið; að verða best á sínu sviði. Láttu metnaðinn ráða þínu vali. OPNUNARTÍMI: Miðvikudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 19.00 - 01.00. Föstudaga og laugardaga kl. 19.00 - 03.00. Pantið borð tímanlega hjá veitingastjóra í síma 29098.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.