Morgunblaðið - 09.07.1988, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
55
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
Kvenleg myndlist
Jónína H. Jónsdóttir, Bergi,
Eyrarbakka hringdi:
„Nú um daginn, er ég var ný-
komin heim frá Hvolsvelli í fallegu
veðri, fann ég hvað það var sem
gerði ferðalag mitt svo ánægju-
legt, fyrir utan fallegt landslag,
góðan malbikaðan veg og veður-
sældina. Það var myndlistarsýn-
ing er leikkonan og leikstjórinn
Ingunn Jensdóttir heldur um þess-
ar mundir í Essoskálanum,
Hlíðarbæ, sem er nýr og vistlegur
veitingastaður. Þetta er fyrsta
málverkasýning Ingunnar og eru
myndir hennar forvitnilegar og
mótívin margvísleg, allt frá
Reykjavíkurtjðrn austur á Homa-
fjörð.
Konur láta nú æ meir til sín
taka í myndlist hér á landi og
margar þeirra hafa lifað skemmti-
lega og litríka ævi sem óneitan-
lega kemur fram í myndum þeirra.
Ingunn er ein þeirra. Hennar
kvenlega eðli kemur glöggt fram
í fallegum, lýrískum abstraktion-
um og í mjúkri litameðferð. Það
er mikið rætt um list hér á landi
og eru íslendingar að verða jafn-
þekktir fyrir listina og fískinn.
Því fannst mér að fólk mætti vel
vita af þessari sýningu sem hefur
hlotið miklar og góðar viðtökur í
sinni heimabyggð og hvet jafn-
framt byggðarlög að hafa eitthvað
fallegt á veggjunum þegar ferða-
menn stoppa á áningarstöðum.
Ingunn, til hamingju." *
Góð gamanmynd
Bíóunnandi hringdi:
„Mig langar til að benda öllum
bíóunnendum á myndina „Enda-
skipti" (ViceVersa) með Judge
Reinhold og Fred Savage, sem
nú er verið að sýna í Stjömubíói.
Ég er 35 ára gömul og orðin nokk-
uð gagnrýnin á myndir, ekki síst
gamanmyndir. En myndin kom
mér stórkostlega á óvart. Þar var
engu ofgert, leikurinn var frábær
°g ég hló bókstaflega allan
tímann. Ég vil þakka Stjömubíói
fyrir ánægjulega kvöldstund og
mæli hiklaust með myndinni fyrir
alla aldurshópa."
Lágu bílnúmerin
forréttindi ríkra
Kona í Austurbænum hringdi:
„Nú er enn einu sinni farið í
gang með að mismuna þjóðfélags-
þegnunum. Að þessu sinni með
því að selja lágu númerin hæst-
bjóðanda. Þá er eins gott að hafa
meira en smáaura í buddunni, því
samkvæmt upplýsingum frá Bif-
reiðaeftirlitinu koma þau til með
að kosta 50.000-ln0.000 kr.
Þama er verið að hygla þeim ríku
einu sinni ehn, því ef maður hefur
ekki efni á að halda gamla góða
númerinu sínu verður það bara
selt þeim sem hæst.býður."
Emil I Kattholti
snýr aftur
Dóra Sigurðardóttir, form-
aður Leikfélags Kópavogs
hringdi:
„Varðandi fyrirspurn sem birt-
ist á síðum Velvakanda 7. júlí vil
ég að komi fram að leikritið „Em-
il í Kattholti" verður tekið upp
að nýju með haustinu. Óvíst er
hvaða húsnæði við munum hafa
til þess, því ekki er komið á hreint
hvenær framkvæmdum við leik-
húsið okkar lýkur. Við munum
auglýsa leikritið þegar þar að
kemur, svo það er engin hætta á
að það fari framhjá fólki.“
TIL DÝRAVINA
Kærí Velvakandi.
Vegna fyrri skrifa að undanförnu
um meðferð katta, langar mig að
bæta nokki-u við. Þeir sem hafa
umgengist dýr árum saman og
kunna vel á þarfir þeirra vita, eða
ættu að vita að þessir litlu vinir
okkar þarfnast okkar mikið. Þeir
sakna okkar óskaplega ef við förum
í ferðalag, þeir finna svo sannarlega
á sér ef eitthvað slíkt er í bígerð.
Það er því mjög brýnt að það fari
vel um litlu skinnin meðan eigendnr
þeirra eru fjarverandi, þá helst af
öllu að einhver úr ijölskyldunni
gæti þeirra. Þá er allt miklu örugg-
ara og söknuðurinn ekki eins mikill.
Að fá sér kettling er ekki eins
einfalt og margur heldur. Áhuginn
dvínar oft þegar kisa er orðin full-
vaxin, þá er eins og gamanið sé
búið og kisa er ekki eins eftirsókn-
arverð og áður. Við sem störfum
að dýravemdarmálum vitum ótal
dæmi um það. Fólk má til að hugsa
sig vel um áður en það fær sér
húsdýr, hvort sem um hund eða
kött er að ræða. Dýrin treysta al-
gerlega á okkur og reynast okkur
vel ef þau fá rétta umönnun. Það
gefur manni mikið að hafa hjá sér
húsdýr en við megum til með að
hugsa vel um þau. Þau þakka það
margfalt.
Oft hefur verið hringt til mín og
spurt um kettling, með það í huga
að gefa bami hann í afmælisgjöf.
Ég tel þetta afar vanhugsað, fólk
ætti að hugsa málið vandlega áður
en það gefur bami slíka gjöf, því
kettlingar eru engin leikföng.
Það má að lokum ítreka það sem
á undan hefur komið að skora á
fólk að láta gelda fress og taka
læður „úr sambandi". Það er svo
ósköp dapuriegt að láta svæfa
stálpaða kettlinga þegar framboðið
er meira en eftirspumin. Þá hvet
ég alla dýravini að vera vakandi
vegna þessa máls og að síðustu að
merkja dýrin sín.
Með kveðju,
Soffía Sigurjónsdóttir.
Týndur
köttur
Þrettán ára gömul læða tapaðist
frá Bergstaðastræti 28b 27. júní.
Hún gegnir nafninú Lóra, er hvít
og grábröndótt með dökka rönd á
baki og í rófu. Eins er hún brönd-
ótt fyrir ofan augu og niður fyrir
vinstra auga. Finnandi vinsamleg-
ast hringið í síma 10539 eða 32877.
Fundarlaunum heitið.
ÞJÁLFUNARNÁMSKEIÐ
hjá dr. Fredrick
C. Hatfield P.hD
í Æfingastöðinni,
Engihjalla 8, Kópa-
vogi, einum fróðasta
þjálfunarfræðingi á
Vesturlöndum um
líkamsrækt.
Hér er um að ræða námskeið í kraft- og líkamsþjálf-
un. Efni, sem farið verður yfir: Næringarfræði, aerobic,
teygjur, íþróttanudd, tækjaþjálfun, endurnýjunartækni
og annað, er viðkemur þjáifun mannslíkamans.
Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal af hálfu
dr. Hatfields í lok námskeiðsins og útnefninguna,
líkamsræktarþjálfari af hálfu Kraft.
Námskeiðið verður haldið dagana 15.-17. júlí og
hefst á eftirtöldum tímum:
15. júlí kl. 19.30.
16. júlí kl. 10.00 og 17.00.
17. júlí kl. 10.00 og 17.00.
Námskeiðsgjald einungis kr. 6.500,00
Skráning og allar nánari upplýsingar í Æfingastöðinni
í símum 46900 og 46901.
Sérblað
á miðvikudögum
Myndasögur, þrautir og efni
frá börnum.
Auglýsingar í barnablaðið
þurfa að hafa borist
auglýsingadeild fyrir
kl. 17.00. á föstudögum.
- bl^é allra landsmanna