Morgunblaðið - 09.07.1988, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
57
KNATTSPYRNA
lan Ross, þjálfari KR, hyggst gera miklar breytingar á liði stnu á næstunni.
Mjólkurbikarkeppnin:
Bikarmeistarar
Fram mæta íslands-
meisturum Vals
BIKARMISTARAR Framfá indastóll, sem sló KR út úr
erfiða mótherja í 8-liða úrslit- I bikarkeppninni á eftirminni-
um Mjólkurbikarkeppninnar í |egan hátt, ieikur gegn Leiftri á
knattspyrnu. Framarar ieika Ólafsfirði.
gegn ísiandsmeisturum Vals Skagamenn fá Keflvtkinga í heim-
og verður leikurinn að Hlíða- sókn og FH-ingar leika gegn
renda 20. júlí. Víkingum á Kaplakrikavellinum.
Stórfleikur
á Akranesi
Skagamenn fá Framara í heimsókn
ÞAÐ verður sannkallaður stór-
leikur á Akranesi í dag kl.
14.30. Skagamenn fá þá Fram-
ara í heimsókn, en Framarar
hafa öruggt forskot í 1. deildar-
keppninni og hafa tekið stefn-
una á íslandsmeistaratitilinn.
Skagamenn og Valsmenn geta
veitt Fram keppni, þannig að
það má búast við fjörugum leik á
Akranesi.
Valsmenn fá leikmenn KA í heim-
sókn að Hlíðarenda annað kvöld kl.
20. Á sama tíma leikur Leiftur og
Völsungur á Ólafsfirði, þar sem
leikmenn Leifturs hafa ekki tapað
leik í deildinni. Eins og menn muna
þá unnu þeir Völsunga, 3:1, í bikar-
keppninni í vikunni.
Á mánudagskvöldið verða tveir leik-
ir. Þá leika Þór og KR á Akureyri
og er talið líklegt að Ian Ross, þjálf-
ari KR, geri breytingar á liði sínu.
Víkingar fá þá Keflvíkinga í heim-
sókn.
1
Pétur Ormslev, fyrirliði Fram hefur
skorað mark í síðustu fjórum deildar-
leikjum Fram. Tekst honum að skora
á Akranesi?
Eddie May frá Siglu-
firði til IMewport
EDDIE May, sem hœtti þjálf-
un 2. deildarliðs Siglufjarðar
í vikunni, hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Newport
County.
May, sem 45 ára, fyrrum
leikmaður Swansea, var
kallaður heim frá Islandi, til að
taka við stjórninni hjá welska
félaginu Newport
FráBob County, sem féll
Hennessyi úr 4. deildar-
Englandi keppninni sl.
keppnistímabil og
er nú orðið utandeildarlið. Það
verður hlutverk May að koma
þessu fomfræga félagi, sem var
stofnað 1912, aftur upp í deildar-
keppnina.
Það var mikið áfall hjá stuðnings-
mönnum Newport, þegar félagið
féll úr 4. deild. Það eru ekki mörg
ár síðan Newport lék f 8-liða úr-
slitum Evrópukeppni bikarhafa,
eða 1981.
Meiri háttar
breytingar hjá
KR framundan
lan Ross hyggst gefa nýjum mönnum tækifæri
IAN Ross, þjálfari KR-inga seg-
ist munu tefla fram breyttu liði
gegn Þórá mánudaginn. KR-
ingar urðu fyrir miklu áfalli
þegar þeir töpuðu fyrir Tinda-
stól í 16-liða úrslitum bikar-
keppninnar og hafa tapað fjór-
um af fimm siðustu leikjum
sínum á keppnistímabilinu eftir
góða byrjun.
Mannleg mistök of oft ollu
ósigrinum gegn Tindastól.
Það er ekki hægt að segja að allt
liðið hafi brugðizt í leiknum en það
gerðu hins vegar of margir leik-
menn“, sagði Ross í samtali við
Morgvnblaðið.
Hann sagðist vera óánægðastur
með að liðið hefði ekki haldið haus
cftir að hafa jafnað 3:3 í leiknum
heldur fengið á sig mark strax á
eftir. “Þetta er eins og að hafa
verið grafinn í gröf og náð að
klöngrast upp úr henni með erfiðis-
munum en henda sér síðan ofan í
hana aftur", sagði Ross óhress með
kæruleysi sinna manna í leiknum.
Ross ætlar að endurskipuleggja lið
sitt á næstunni. „Það verða gerðar
meiri háttar breytingar á liðinu á
næstunni. Fjórir leikmenn, sem
hafa æft með allan tímann en ekki
fengið tækifæri, fá að spreyta sig
á næstu tveimur til þremur vikum“,
sagði Ross. Leikmennimir sem hér
um ræðir eru Hálfdán Örlygsson,
Jón G. Bjamason og markverðimir
Stefán Jóhannsson og Páll Ólafs-
son.
Ross mun tilkynna leikmönnum lið-
ið gegn Þór á síðustu æfíngunni
fyrir leikinn.
„Jósteinn mikilvægur11
Ross efast um að lið sitt hefði feng-
ið á sig fjögur mörk, ef vamarmað-
urinn sterki, Jósteinn Einarsson
hefði getað leikið allan leikinn en
hann þurfti að fara af velli vegna
meiðsla á fyrstu mínútunum.
„Hann er dæmi um leikmann, sem
menn sjá ekki hversu mikilvægur
er liðinu fyrr en hann vantar. Hann
hefur flesta þá kosti sem prýða
góðan knattspymumann, meðal
annars geysilegan baráttuvilja.
Hann hefur að vísu ekki mikla
knatttækni en hann veit sín tak-
mörk og það er mikill kostur. Allir
knattspymumenn þurfa nefnilega
að þekkja sín takmörk, einnig
landsliðsmenn", sagði Ross.
Jóstelnn Elnarsson - meiddist á
hné í leik KR við Tindastól.
Landslidið
fer ekki
til Sviss
ÍSLENSKA landsliöið í
knattspyrnu mun ekki leika
vináttulandsleik gegn Sviss-
lendingum í Sviss í ágúst,
eins og fyrirhugað var.
Svisslendingar gátu ekki
tekið á móti landsliðinu.
Leikurinn átti að vera upphitun-
arleikur fyrir leikinn gegn Sov-
étmönnum á Laugardalsvellin-
um 30. ágúst. Það er fyrsti leik-
ur íslenska landsliðsins í undan-
keppni heimsmeistarakeppninn-
ar á Ítalíu 1990.
Ovíst hvort
Jósteinn leikur
með gegn Þór
Fékk skurð á hnéskelina
EKKI er Ijóst hvort varnarmað-
urinn eitilharði, Jósteinn Ein-
arsson getur leikið með KR
gegn Þór á Akureyri á mánu-
daginn. Jósteinn varð fyrir
meiðslum á upphafsmínútun-
um í leik Tindastóls og KR
síðasta þriðjudag.
Einn leikmanna Tindastóls rak
takkana mjög harkalega í hnéð
á mér þegar við áttum í baráttu
um boltann. Ég fékk skurð á hné-
skelina og varð að fara af leikvelli
til að láta sauma hann saman.
Saumurinn er á þannig stað að
hætta er á að teygist á honum og
skurðurinn opnist að nýju, ef ég fer
of snemma af stað. Ætli það séu
ekki svona tæplega helmingslíkur á
að ég geti verið með gegn Þór“,
sagði Jósteinn Einarsson í samtali
Morgunblaðið.