Morgunblaðið - 09.07.1988, Side 60
EIGIYA
MIÐLliMíV
27711
S*enif KrisSnsson, söiusljóri - Porieilur Gg4mundsso«, »lum.
Þórótíw HMáréan, Bgfr * Umisteinntólí W„ slml 1t3Í0
Á GRÆNN! GREIN
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Breskt
kóngafólk
til íslands
FÓLK úr bresku konungsfjöl-
skyldunni er væntanlegt í heim-
sókn til íslands í byijun ágúst-
mánaðar næstkomandi.
Morgunblaðið hefur fengið stað-
festingu á því að heimsókn þessi
er á döfinni en ekki hafa fengist
nánari upplýsingar um hveijir eða
hversu margir meðlimir konungs-
fjölskyldunnar verða hér á ferð,
enda ekki um opinbera heimsókn
að ræða heldur mun fólkið koma
hingað í einkaerindum. Þess má
geta að Karl prins stundaði lax-
veiðar í Vopnafirði fyrir nokkrum
árum.
V esturiands vegur:
Stakk tví-
vegis af frá
lögreglu
Grósksi innan girðingar
UNGMENNI úr girðingarflokki Landgræðslunnar héldu á Kjöl í vikunni til að lagfæra girðingu við Hvítárvatn. Á þessum slóðum
er landeyðing mikil og á myndinni sést að jörð er sviðin utan girðingar en gróin innan. Lionsklúbburinn Baldur i Reykjavík á girð-
inguna og hefur unnið að ræktun innan hennar um árabil.
ÖKUMAÐUR vélhjóls sem fór á
134 km hraða eftir Vesturlands-
vegi í gærdag komst undan lög-
reglu í tvígang en skráningar-
númer hjólsins náðist.
Tveim vélhjólum var ekið á víta-
verðum hraða eftir Vesturlands-
vegi í Mosfellsbæ um hádegisbilið
í gær. Lögregla veitti hjólunum
eftirför en þau komust undan.
Skömmu síðar var öðru hjólanna
aftur veitt eftirför af lögreglu án
árangurs. Vélhjólinu var þá ekið
eftir Vesturlandsvegi á 134 km
hraða en hámarkshraði á þessum
vegarkafla er 90 km. Aksturinn
varðar því sviptingu ökuleyfis.
Skráningamúmer beggja hjólanna
náðust og rannsóknardeild lögregl-
unnar í Reykjavík hefur málið til
athugunar. Að sögn lögreglu verða
ökumenn hjólanna að líkindum
sóttir heim um eða eftir helgi og
látnir svara til saka.
Danskt varðskip lagði af stað með Hafþór til Grænlands seint í gærkvöldi:
Formgi af Vædderen við
fimmta mann um borð
Frá blaðamanni Morgunblaðsins Kristni Benediktssyni á Dohrnbanka.
DANSKA varðskipið Vædderen
elti Hafþór ÍS um þrjár sjómílur
austur fyrir miðlínuna milli
Grænlands og íslands um kl. 14
i gærdag og sendi sjóliðsforingja
ásamt fimm mönnum um borð.
Skipherrann á varðskipinu hafði
skipun frá dönsku herstjórninni
að gera afla og veiðarfæri upp-
tæk og færa Hafþór vestur fyrir
miðlinuna þar sem tryggingar-
féð, 440.000 dkr., hafði enn ekki
borist grænlenskum yfirvöldum.
Um klukkan 23 í gærkvöldi lagði
svo varðskipið af stað með Haf-
þór áleiðis til Grænlands.
Vædderen hefur, allt frá því að
Hafþór ÍS var sleppt á miðviku-
dagskvöldið, eftir að skipið var stað-
ið að meintum ólöglegum rækju-
veiðum 2,8 sjómílur vestan við
miðlínuna á Dohmbanka, fylgst
með skipinu úr Qarlægð. Varð skip-
stjórinn á Hafþóri að gefa upp stað-
arákvörðun tvisvar á sólarhring.
Mátti Hafþór ekki yfirgefa svæðið
meðan beðið var staðfestingar á því
að tryggingarféð væri greitt.
Kl. 14 í gærdag kallaði skipherr-
Háskólaráð vill hnekkja
stöðuveitingn ráðherra
ann á Vædderen til skipstjórans á
Hafþóri og sagðist vera með orð-
sendingu frá dönsku .herstjóminni
til hans. Hann sagist ekki geta les-
ið skilaboðin í talstöðina heldur
myndi hann senda sjóliðsforingja
yfir í skipið með þau á hraðbát.
Skipstjórinn á Hafþóri svaraði á
móti að hann myndi senda sjókort
sín yfir á móti til frekari skoðunar.
Skömmu eftir að sjóliðsforinginn
og fímm menn af Vædderen voru
komnir um borð í Hafþór kallaði
skipherrann eftirfarandi í talstöð-
ina: „Ég er með skipun frá dönsku
herstjóminni í samráði við yfirvöld
á Grænlandi um að gera afla og
veiðarfæri upptæk og færa skipið
vestur fyrir miðlínuna þar til lausn
hefur fengist á málinu. Þú mátt
hafa strax samband við eigenda
skipsins en hann á að hafa sam-
band við grænlensk yfírvöld og
leysa málið hið snarasta."
HÁSKÓLARÁÐ Háskóla íslands
kom saman í gær til þess að
ræða skipan Hannesar H. Giss-
urarso.'.ar í stöðu lektors í stjórn-
málafræði við félagsvísinda-
deild. Ráðið samþykkti einróma
harðorða ályktun, sem lýkur með
þeim orðum að háskólaráð muni
láta athuga lagalega stöðu Há-
skólans í máli þessu í því skyni
að hnekkja ákvörðun mennta-
málaráðherra um að skipa Hann-
es í stöðuna.
í ályktun háskólaráðs segir að
ráðherra hafí beitt valdi sínu þvert
á anda þeirra laga sem nú séu í
gildi. „Hefur hann sýnt fádæma
hroka í tilraun sinni til að kúga
Háskólann," segir í ályktuninni. Þá
telur háskólaráð að ráðherra hafí
lítilsvirt Háskólann með því að
senda tilkynningu um stöðuveiting-
una og bréf tii rektors og háskóla-
ráðs til fjölmiðla áður en þau bár-
ust réttum aðilum.
Ráðið vísar á bug ásökunum ráð-
herra um vanhæfni og hlutdrægni
dómnefndar við mat á umsækjend-
um um stöðuna. „Enda hefur hann
ekki tilgreint neinar sérstakar van-
hæfnisástæður og ber hann þó
sönnunarbyrðina fyrir staðhæfíng-
um sínum," segir háskólaráð.
Þá mótmælir háskólaráð þeim
vinnubrögðum ráðherra að ieita
meðmæla með Hannesi hjá fyrrum
kennurum hans, enda leitist kenn-
arar ávallt við að gera hlut nem-
enda sinna sem mestan. „Ráðherra
hefði getað með rökstuddu áliti
hafnað dómnefndarálitinu og kraf-
ist þess að ný dómnefnd yrði skip-
uð,“ ályktar háskólaráð.
Háskólaráð mótmælir einnig því
sem það kallar „tilraun ráðherra til
að hafa áhrif á kennslu í Háskóla
Islands með þeim hætti að veita
stöðuna á grundvelli sérskoðana
eins umsækjenda á eðli og hlut-
verki stjómmálafræði." Ráðið segir
að kennslufrelsi Háskólans hafí
menntamálaráðherrar virt allt frá
stofnun skólans þar til ráðherra gaf
út greinargerð sína 30. júní. „Það
er einsdæmi að ráðherra gefí út þá
yfirlýsingu að kennarastöðu við
Háskóla íslands skuli veita á grund-
velli sérskoðana," segir ráðið.
Sigmundur Guðbjamason, rektor
HÍ, sagði að það væri að sjálfsögðu
hægt að sækja það fyrir dómstólum
að hnekkja ákvörðun ráðherra, og
þá leið myndi Háskólinn fara ef hún
virtist fær. „Það eru ýmsir fletir á
því máli, annars væri það ekki í
þessari ályktun," sagði háskóla-
rektor.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná
í Birgi ísleif Gunnarsson mennta-
málaráðherra vegna ályktunar há-
skólaráðs.
Sjá ályktun háskólaráðs i heild
á bls. 24.
Eftir nokkurt málþóf fékk Haf-
þór að halda áfram að toga og var
beðið fram til kl. 20 í gærkvöldi
er togið var klárað. Varðskipið
fylgdi Hafþóri eftir allan daginn,
lengst 7 mílur austur fyrir línuna
og var bilið milli skipana um 300
metrar. Síðdegis vom sjókort Haf-
þórs send yfir til Vædderen. Sjó-
kortin eru þýsk og sýna miðlínuna
vestar en íslenska kortið sýnir hana.
Birgir Valdimarsson útgerðar-
maður Hafþórs segir að honum
hafí ekki tekist að fá bankaábyrgð
fyrir tryggingarfénu í gærdag en
hann sé að vinna að því máli og á
von á því að það gangi upp bráðlega