Morgunblaðið - 18.08.1988, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1988
Zia-ul-Haq, forseti Pakistans, týnir lífi í flugslysi
Mikil óvissa ríkir um aðstoð-
ina við afganska skæruliða
Óbreyttir borgarar í Islamabad,
höfuðborg Pakistans, fylgjast
með nýjustu sjónvarpsfréttum af
flugslysinu í verslun einni í borg-
inni.
Washington. Reuter.
MEÐ fráfalli Mohammeds Zia-ul-Haqs, forseta Pakistans, hafa
Bandaríkjamenn misst mikilvægan bandamann og dauði hans gæti
haft alvarlegar afleiðingar fyrir baráttu afganskra skæruliða gegn
leppstjórninni í Afganistan, að því er bandarískir embættismenn og
sérfræðingar í utanríkismáilum sögðu i gær.
„Samskipti Bandaríkjamanna og
Pakistana hafa verið mjög sérstæð
og fráfall Zia er harmleikur," sagði
George Bush, varaforseti Banda-
ríkjanna, á blaðamannafundi á
flokksþingi repúblikana í New Orle-
ans. Bandarísk vopn hafa verið send
til afgönsku skæruliðanna um Pa-
kistan og Sovétmenn, sem styðja
afgönsku stjómina, hafa ítrekað
lýst yfir óánægju með aðstoð Pak-
istana við skæruliðana.
Fyrrum sendiherra Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum,
Jeane Kirkpatrick, sagði að með
dauða Zia ríkti óvissa um það hvort
Pakistanir gætu veitt afgönsku
skæruliðunum eins mikla aðstoð og
þeir hefðu gert, því að hún gæti
skapað nokkra hættu fyrir Pakist-
ani. Hún sagði enn fremur að at-
burðurinn skapaði jafnframt óvissu
um það hvort Pakistanir „gætu
staðist þá íslömsku öfgastefnu sem
vissir menn vilja innleiða í Pakist-
án.“ Auk Afganistans á Pakistan
landamæri að íran, Indlandi og
Kína.
John Zindar, sérfræðingur í hem-
aðarlegum málefnum þriðja heims-
ins, sagði að dauði Zia skapaði
mikla óvissu fyrir Bandaríkjamenn
sökum þess hversu örugg tök hann
hefði haft á stjóm lands síns. Ric-
hard Cronin, sérfræðingur í málefn-
um Asíu, sagði hins vegar að afleið-
ingamar hefðu orðið miklu verri
fyrir ári, áður en Genfar-samning-
urinn um brottflutning sovéskra
hermanna frá Afganistan var undir-
ritaður.
Perez de Cuellar, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, tók fréttinni um
fráfall Zia mjög nærri sér, að sögn
talsmanns Sameinuðu þjóðanna, og
Allsheijarþing Sameinuðu þjóðanna
fyrirhugaði að minnast hans sér-
staklega áður en fundur hófst í
gærkvöldi.
Zia-ul-Haq:
Umdeildur en snjall
stjórnmálaleiðtogi
Andstæðingar sögðu hann blóði drifinn harðsljóra
Islamabad, Pakistan. Reuter.
LEIÐTOGI Pakistana, Mo-
hammed Zia-ul-Haq, hershöfð-
ingi, sem nú er látinn, efndi til
stj ómarby ltingar árið 1977
gegn sitjandi forseta, Zulfikar
Ali Bhutto, eftir að götubar-
dagar höfðu átt sér stað í
landinu mánuðum saman. Hann
hét því að boða til fijálsra kosn-
inga innan 90 daga frá bylting-
unni. Zia lét síðar draga AIi
Bhutto fyrir rétt og sakaði
hann um launráð gegn pólitísk-
um andstæðingi árið 1974; hann
var hengdur 1979. Zia var enn
við völd og herlög voru enn að
mestu leyti í gildi er hann lést,
11 árum eftir byltinguna og
andstæðingar hans sögðu hann
vera einræðisherra.
Zia var þriðji maðurinn úr röð-
um herforingja til að ráða ríkjum
í Pakistan frá því að ríkið var
stofnað er Bretar yfirgáfu yfirr-
áðasvæði sitt á Indlandsskaga
árið 1947. Fyrstu tvö árin í valda-
sessi naut Zia lítils álits erlendis.
Hann var sakaður um mannrétt-
indabrot og síðar formælt af
mörgum fyrir að láta taka
vinstri-yfírstéttarmanninn Ali
Bhutto af lífi. Innrás Sovétmanna
í nágrannaríkið Afganistan í árs-
iok 1979 breytti stöðu hans til
hins betra. Honum var fljótlega
hampað sem mikilvægum banda-
manni Vesturlanda og hrósað fyr-
ir stuðning sinn við frelsisher-
sveitir Afgana sem börðust gegn
Sovétmönnum og leppum þeirra í
Kabúl.
Innanlands treysti hann stöðu
sína, sneri undantekningalítið á
stjómarandstæðinga og var ekki
vandur að meðulunum. 1986 kom
dóttir Ali Bhuttos, Benazir, heim
úr útlegð og var talin ógna völdum
Reut«r
Zia-ul-Haq flytur ræðu á sjálfstæðisdegi Pakistans, 14. ágúst siðast-
liðinn. -
Zias er henni tókst að efna til
íjöldafunda stuðningsmanna
sinna. Zia braut þá hreyfíngu á
bak aftur sama ár en að undanf-
ömu hafa stjómarandstæðingar
haft uppi mikil mótmæli vegna
banns Zia við því að stjórnmála-
flokkar fengju að bjóða fram í
þingkosningum sem eiga að fara
fram síðar á árinu.
Zia var ávallt brosleitur og
höfðinglegur í framkomu er hann
lét sjá sig opinberlega en pólití-
skir andstæðingar hans sögðu
hann grimman harðstjóra. Sjálfur
sagðist hann vera auðmjúkur og
sanntrúaður múslimi sem vildi
miklu fremur leika golf en stjóma
landinu. Hvað sem auðmýktinni
leið þá var Zia fádæma viljasterk-
ur maður og einn af snjöllustu
stjómmálamönnum þessa heims-
hluta. Um það voru pakistanskir
stjómmálamenn, stjórnmálaský-
rendur og stjómarerindrekar yfir-
leitt sammála.
í upphafí ferils síns reyndi Zia-
ul-Haq að sveigja Pakistan í átt
til meiri rétttrúnaðar og var lög-
um m.a. breytt svo að þau væru
í samræmi við boð kóransins,
helgasta rits múslima. Strangtrú-
armönnum fannst þó ekki nóg að
gert og smám saman snerust þeir
gegn honum. Pólitísk framtíð
hans var því enn ótrygg er hann
lést.
Reuter
Zia-ul-Haq, forseti Pakistans og Arnold Raphel, sendiherra Banda-
ríkjanna í Pakistan, létust báðir í flugslysinu í Pakistan í gær. Mynd-
in er tekin við móttöku í bandaríska sendiráðinu í Islamabad sem
haldin var í tilefni af þjóðahátíðardegi Bandaríkjanna árið 1987.
Sendiherra Bandaríkjanna:
Tók við embætt-
inu á síðasta ári
Sérfróður um málefni Mið-Austurlanda
Washington, Reuter.
ARNOLD Raphel, sem lést í flugslysinu við Iandamæri Indlands
í gær, var skipaður sendiherra Bandaríkjanna í Pakistan í janúar
árið 1987. Raphel var einn þeirra sem þátt tók í að frelsa banda-
rísku gíslana, sem haldið var í sendiráðinu í Teheran, höfuðborg
íran, árið 1979.
Raphel var fæddur í bænum
Troy í New York-ríki árið 1943
og lauk prófí frá Hamilton College
í New York árið 1964. Hann lauk
meistaragráðu frá Syracuse-
háskóla árið 1966 og hóf störf við
utanríkisþjónustuna að námi lok-
nu. Raphel var tvíkvæntur og læt-
ur eftir sig dóttur af fyrra hjóna-
bandi.
Raphel hafði starfað í íran og
Pakistan auk þess sem hann
gegndi ýmsum störfum hjá ut-
anríkisráðuneyti Bandaríkjanna.
Árið 1984 var hann aðstoðarut-
anríkisráðherra og fór með mál-
efni Austurlanda nær og Suður-
Asíu.
Jeane Kirkpatrick, fyrrum
sendiherra Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum, sagði í sjón-
varpsviðtali í gær að mikill missir
væri að Raphel sem hefði verið
framúrskarandi sendiherra.