Morgunblaðið - 18.08.1988, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 18.08.1988, Blaðsíða 64
upplýsingar ^ um vörur og þjónustu. V .. Y' Sl urn HRESSANDI. FRÍSKA BRACÐ FIMMTUDAGUR 18. AGUST 1988 VERÐ I LAUSASOLU 70 KR. Morgunblaðið/Einar Falur LOKASNYRTING FYRIR HA TIÐIVIÐEY Starfsmenn Reykjavíkurborgar voru í óða önn að leggja lokahönd á framkvæmdir í Viðey og snyrta til, er ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði í gær. Viðgerðir hafa staðið yfir frá því ríkisstjórn ís- lands gaf Reykjavíkurborg Viðeyjarstofu, Viðeyjarkirkju og það land sem byggingunum fylgdi á 200 ára afmæli hennar. í dag, á 202 ára afmæli borgarinnar, verður haldin sérstök opnunarhátíð í Viðey. Hefst hún í kirkjunni með því að biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, leggur blessun sína yfir viðgerðimar. Séra Þórir Stephensen, staðar- haldari í Viðey, prédikar. Síðan verður opnunarhátíð Viðeyjarstofu þar sem m.a. verður ljóðalestur og flutt stutt ávörp. Sjá forystugrein á miðopnu Landsbankinn ákveður að minnka útlán á næstunni STJÓRN Landsbankans hefur ákveðið að draga úr útlánum eins og unnt er, en þó þannig að áfram verði veitt reglubundin afurða- og rekstrarlán til fyrirtækja í öll- Krafla: Hálfnað að bora holu 24 VINNA við borun holu númer 24 við Kröflu gengur vel. Verkið er nú um það bil hálfn- að og er áætlað að því ljúki um næstu mánaðamót. Virkj- unin verður gangsett fyrir helgina, en hún hefur ekki verið í gangi i sumar. Hafíst var handa við að bora holu 24 þann 4. ágúst og hefur nú verið borað niður á 400 metra dýpi. Búið er að fóðra holuna og er hún nú tilbúin fyrir áfram- haldandi borun. Hinrik Ami Bóasson stöðvarstjóri í Kröflu- virkjun segir, að næsti áfangi holunnar verði svokölluð vinnsluhola. Borað verður niður á 1.000 til 1.200 metra dýpi. Þessi hola er boruð til að afla lágþiýstrar gufu, sem farið var að skorta. um atvinnugreinum, svo og lán til einstaklinga eftir reglum bank- ans þar að lútandi. ÖHum útibús- stjórum bankans hefur verið til- kynnt þessi stefna með bréfi og þeir jafnframt boðaðir til fundar með bankastjórninni í Reykjavík föstudaginn 26. ágúst næstkom- andi. Að sögn Björgvins Vilmundarson- ar bankastjóra er um að ræða tíma- bundnar ráðstafanir, sem rekja má til slæmrar lausafjárstöðu bankans. „Við köllum saman okkar útibús- stjóra til fundar til að ræða þessi mál frekar og til að kanna með hvaða ráðum er hægt að bæta lausaíjár- stöðu bankans,“ sagði hann. Lausafjárstaða bankans er svo slæm sem raun ber vitni þar sem innlán hafa aukist mun minna á þessu ári en áætlað var. Björgvin sagði að Ásókn út- lendinga í störf hér UM 1000 atvinnuleyfi hafa verið gefin út sjö fyrstu mánuði ársins til útlendinga, en undanfarin ár hafa að meðaltali verið veitt um 1200 leyfi á ári og hefur sú tala verið nokkuð stöðug undafarin ár, að sögn Óskars Hallgrímsson- ar hjá Félagsmálaráðuneytinu. Er hér þvi um umtalsverða aukn- ingu að ræða á atvinnuleyfum til útlendinga. Framlengingar á leyfum eru inni í þessum tölum, en þess ber að geta að Norðurlandabúar þurfa ekki at- vinnuleyfí hér á landi. Óskar bjóst við að framlengingar á atvinnuleyf- um vegi nokkuð þungt í þessum tölum. Félagsmálaráðuneytið veitir atvinnuleyfí lengst til eins árs. Jóhann Jóhannsson hjá Utlend- ingaeftirlitinu sagði að ásókn útlend- inga í störf hérlendis ákvarðaðist fyrst og fremst af ástandinu á vinnu- markaðinum. Þegar mikil atvinna er hér er mikil ásókn í störf, en minni þegar atvinnuleysis gætir. Breskir ríkisborgarar eru flestir erlendra starfsmanna á íslandi, þá koma Þjóðveijar og Bandaríkja- menn. Einnig er hér margt um Astr- alíubúa og Ný-Sjálendinga í fisk- vinnslustörfum og við Blönduvirkjun vinna 35 Júgóslavar. þessi samdráttur í útlánum muni ekki skaða þau fyrirtæki sem eru í viðskiptum við bankann, þau fái eft- ir sem áður sín reglubundnu rekstr- arlán og eigi það jafnt við um fyrir- tæki í öllum atvinnugreinum. „Þetta er ekki mikil breyting frá því sem verið hefur en við höfum ákveðið að stíga aðeins á bremsuna og sjá hvort ekki rætist úr hjá okkur," sagði Björgvin Vilmundarson. Jafn mörg gjaldþrot nú og allt síðasta ár BEIÐNIR um gjaldþrotaskiptí eru jafn margar það sem af er þessu ári og allt árið í fyrra. Fjöldi gjaldþrota hefur meira en þrefaldast á fjórum árum, frá 1983 til 1987. Þetta kom fram í máli Ragnars Hall skipt- aráðanda, á fjölsóttum morg- unverðarfundi Verslunarráðs íslands á Hótel Sögu í gær. Ragnar kvaðst telja að ger- breyta þyrfti ákvæðum laga um greiðslustöðvun, ef hún ætti að bera tilætlaðan árangur. Auka þyrfti möguleika lánardrottna á að hafa áhrif á hvort greiðslu- stöðvun væri veitt og hvemig staðið yrði að málum skuldarans. Sjá nánar bls. B1 og B2. Ráðgjafanefnd ríkisstj órnarinnar sammála um hliðarráðstafanir: Hugmyndir um hækkun vaxta á húsnæðislánum SAMSTAÐA er í ráðgjafanefnd ríkisstjórnarinnar um tillögur að hlið- arráðstöfunum með væntanlegum efnahagsaðgerðum, að sögn Einars Odds Kristjánssonar, formanns nefndarinnar. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru þar á meðal tillögur um hækkun húsnæðislána- vaxta til samræmis við markaðsvexti, hallalausan rekstur ríkissjóðs, stöðvun uýrra erlendra lántaka, og takmörkun á lánsheimildum fjár- festingarlánasjóða atvinnuveganna. „Nefndin er sammála um að grípa þurfí til aðgerða í peningamálum, sem eru til mikilla muna róttækari en tíðkast hafa áður,“ sagði Einar Oddur. „Þetta eru samdráttarað- gerðir, sem eiga við allt efnahagslíf- ið, jafnt ríkisfjármálin sem atvinn- ulífíð sjálft og ekkert er undanskil- ið,“ sagði hann. Nefndi hann niður- skurð á heimildum til erlendra lán- taka og aðhald í útgjöldum ríkis- sjóðs. Einar Oddur var spurður hvort ætlunin væri að leggja til hækkun húsnæðislánavaxta vegna þenslu- áhrifa þess að stór hluti fjár lífeyris- sjóðanna er lagður í húsnæðiskerfið á niðurgreiddum vöxtum og hækkar þannig annan fjármagnskostnað. „Það deilir enginn um það, það eru bara staðreyndir sem liggja á borð- inu,“ sagði hann. Nefndarformaðurinn sagði að í dag væri vonast til þess að ljúka þeim þætti nefndarstarfsins, sem sneri að tillögum um aðgerðir til að bæta eiginfjárstöðu fyrirtækja. „Við reiknum með að skila tillögum okkar í einu lagi um næstu helgi," sagði hann. Sjá Af innlendum vettvangi á blaðsíðu 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.