Morgunblaðið - 18.08.1988, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1988
Jfavgii Útgefandi Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar MatthíasJohannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 70 kr. eintakið.
Viðey og Reykjavík
Reykjavíkurborg hélt upp á
200 ára afmæli sitt fyrir
tveimur árum, 18. ágúst 1986.
Borginni bárust góðar gjafir af
þessu tilefni. Sverrir Hermanns-
son, þá menntamálaráðherra,
afhenti borginni til eignar óg
ráðstöfunar eignarhluta
íslenzka ríkisins í Viðey og Við-
eyjarstofu. Jafnframt var borg-
inni afhent Viðeyjarkirkja til
varðveizlu. Borgaryfirvöld hafa
síðan fært þjóðinni sönnur á að
hér var hyggilega ráðið. Á af-
mæli borgarinnar í dag, tveimur
árum eftir að borgin tók við
Viðeyjarstofu og Viðeyjar-
kirkju, er lokið endurbyggingu
þessara merku og söguríku
mannvirkja.
Líklegt er talið að byggð hafi
hafízt í Viðey skömmu eftir
landnám. Eyjan hefur efalaust
heyrt til landnámi Ingólfs Am-
arsonar sem og allt núverandi
höfuðborgarsvæði. Hún fær
síðan sérstakan virðingarsess í
fslandssögu með stofnun Við-
eyjarklausturs 1225 eða 1226.
Ógmundur Pálsson, síðasti kaþ-
ólski biskupinn í Skálholti, var
ábóti í Viðey 1515-1521. Sá
atburður, tengdur klaustrinu,
sem bezt hefur greypst í sögu
þjóðarinnar og hugi fólksins, er
Viðeyjarför Jóns Hólabiskups
Arasonar og sona hans 1550,
þegar hann náði klaustrinu úr
höndum konungsmanna.
Fram til siðaskipta tengist
saga Viðeyjar trúariðkun og
auðsöfnun. Eftir siðaskiptin
lækkar hagur hennar um sinn.
Hún verður eins konar hjáleiga
frá Bessastöðum. Þar rís þó
„fátæktarspítali“, kostaður af
konungseignum, sem fluttur er
í Gufunes 1752.
En vegur Viðeyjar rís á ný.
Árið 1751 er Skúla Magnús-
syni, landfógeta, heimiluð ábúð
í Viðey. Hann telst til gagn-
merkari íslendinga, fyrr og
síðar, og er almennt viður-
kenndur sem „faðir Reykjavík-
ur“. Hann reisir embættisbú-
stað, Viðeyjarstofu, í eynni og
situr staðinn með reisn. Viðeyj-
arstofa er í dag elzta steinhús
í landinu — og reyndar elzta
hús á íslandi í upprunalegu
formi.
Viðey var um tíma embættis-
setur hins æðsta framkvæmda-
valds í landinu. Ólafur Stefáns-
son, stiftamtmaður, ættfaðir
Stefánunga, settist þar að 1793.
Hann lét af embætti 1806 en
bjó í Viðey til 1812. Eftir hans
dag fær sonur hans, Magnús
Stephensen konferensráð og
dómstjóri í Landsyfirréttinum,
eyna til ábúðar. Hann flytur
prentsmiðju til Viðeyjar 1819
sem var staðsett þar til ársins
1844. Viðey er í eign Stephen-
senættarinnar til 1903. Það ár
eignast Eggert Briem, land-
búnaðarfræðingur, eyna og hef-
ur þar búskap. Næsti kapituli í
sögu hennar tengist miklum
umsvifum „Milljónafélagsins“
svokallaða. Eyjan gengur síðan
kaupum og sölum, en Ingibjörg
og Stephan Stephensen gefa
þjóðkirkjunni Viðeyjarkirkju
1961. Árið 1968 eignast
íslenzka ríkið Viðeyjarstofu og
aðliggjandi land. Árið 1983
kaupir Reykjavíkurborg megin-
hluta eyjarinnar — og fær eign-
arhluta ríkisins að gjöf 1986,
sem fyrr segir.
Svo sem sjá má af framan-
greindu rís Viðey hátt í íslands-
sögu. Saga hennar tengist þó
einkum sögu höfuðborgarinnar.
Skúli Magnússon, landfógeti,
„faðir Reykjavíkur“, reisir setur
sitt í Viðey. Og þar er hann
grafínn. Þegar eyjan var færð
til lögsagnarumdæmis Reykja-
víkur 1978 var „faðir Reykja-
víkur loks kominn til Reykja-
víkur eða öllu heldur Reykjavík
til hans“, eins og segir í yfirlits-
grein í Morgunblaðinu síðast-
liðinn sunnudag.
í dag, á afmæli Reykjavíkur-
borgar, fögnum við endurbygg-
ingu Viðeyjarstofu og Viðeyjar-
kirkju. Hér hefur verið vel að
verki staðið. Reykvíkingar
mega vel við una þann stórhug
og þá ræktarsemi við sögu borg-
ar og þjóðar sem framkvæmd-
imar í Viðey bera glæsilegan
vott um. Davíð Oddsson, borg-
arstjóri, hefur enn einu sinni
sýnt, að hann er einhver mesti
framkvæmdamaður, sem setið
hefur í embætti borgarstjóra
Reykjavíkur. Það vekur óneit-
anlega eftirtekt, að það gerist
á tveimur árum undir forystu
borgaryfírvalda, sem ekki var
hægt að gera á tæpum tveimur
áratugum undir forystu ríkisins.
Enn eru í Viðey verk að vinna,
ekki sízt á sviði fomleifafræð-
innar. Máske verður reist
„sögualdarklaustur” í eynni áð-
ur en langir tímar líða? Og mik-
ils er um vert að Reykvíkingar
og landsmenn allir hafí aðstöðu
til að sækja þessa söguríku ey
heim — og aðgang að fögru
útivistarsvæði.
Morgunblaðið ámar Reyk-
víkingum heilla með borgaraf-
mælið og framkvæmdimar í
Viðey.
Jarðvegsvísindamenn frá Texas:
Mesta samfellda gróð-
ureyðingin er á íslandi
Hægt að jafna gróðureyðingu landsins við Kenýa,
Kamerún og Súdan þar sem beit er stjórnlaus
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, dr. Edward C. A. Runge, dr.
Larry P. Wilding og Ólafur Arnalds.
Selfossi.
AÐ MATI tveggja prófessora, dr.
Larry P. Wilding og dr. Edward
C. A. Runge, frá Texas-háskóla
eru á íslandi verstu tilfelli sam-
felldrar gróðureyðingar miðað
við 20 lönd sem þeir hafa til sam-
anburðar. Þeir segja skilyrði til
uppblásturs góð hér á landi,
vatnsrof og gosáhrif samfara
stuttum gróðurtíma, léttum jarð-
vegfi og ofbeit. Hvað gróðureyð-
ingu vegna ofbeitar snertir þá
segja þeir að einna helst megi
jafna íslandi við Kenýa, Kamer-
ún og Súdan þar sem engin stjórn
er á beit og þróun á gróðurfari
stöðugu í átt til eyðimerkur-
ástands. Prófessorarnir em hér
í boði Landgræðslunnar, Rann-
sóknarstofnunar Iandbúnaðarins
og landbúnaðarráðuneytisins.
Landgræðslan fékk prófessorana
til ráðlegginga og aðstoðar við
skipulagningu baráttunnar viðjarð-
vegseyðingu hér á landi. „Eitt af
þeim sviðum sem við höfum mikinn
áhuga á er að flokka landsvæði á
íslandi með tilliti til hættu á upp-
blæstri sem væri einn liður í að
skipuleggja landbúnað og haga
honum í samræmi við landgæði,"
sagði Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri sem var í Texas í
mars síðastliðnum að kynna sér
starfsaðferðir og vinnubrögð
vísindamanna í Texas við flokkun
jarðvegs.
„Við teljum að Landgræðslan
hafí ómetanlegt gagn af samstarfí
við Texas-háskólann. Þeir eru svo
óendanlega langt á undan í skil-
greiningu á jarðvegsvandanum og
meðferð á landi. Þó aðstæður hér
séu nú kannski öðruvísi en í Texas
þá sjá þeir á margan hátt sambæri-
leg einkenni uppblásturs. Álag af
Háskólinn:
völdum þurrka í Texas á gróður er
ekki ósvipað og hér er af völdum
kulda og þurrka,“ sagði Sveinn.
Vísindamennirnir hafa undan-
famar tvær vikur ferðast um landið
pg kynnt sér ákveðin svæði. Tveir
íslendingar eru við nám í háskólan-
um í Texas, Ólafur Arnalds, sem
leggur stund á jarðvegsfræði og
vinnur hér að verkefnum varðandi
jarðvegseyðingu, og kona hans, Ása
Aradóttir, sem er við nám í plöntu-
vistfræði með áherslu á íslenska
birkið.
Þörf á virkri beitarstjórnun
Þeir Larry og Edward eru sam-
mála um að þörf sé á mjög virkri
beitarstjórnun og benda á dæmi frá
Nýja Sjálandi þar sem hjarðirnar
eru girtar af svo þær fari ekki í
gróður sem er í mikilli hæð og því
viðkvæmari. Þeir telja gróðureyð-
inguna mesta við Mývatn, þar sem
mjög biýnt sé að auka þátt köfnun-
arefnisbindandi plantna í upp-
græðslunni.
„Hinu viðkvæma vistkerfi íslands
er hættara við jarðvegseyðingu en
nokkrum öðrum stað sem ég hef
séð,“ sagði Larry P. Wilding. Þetta
væri þó misjafnt eftir svæðum.
Hann kvaðst óvíða hafa kynnst
rofabörðum eins og hér væru. Voð-
inn væri alltaf vís ef gróðurhulan
rofnaði og vindurinn næði tökum á
jarðveginum. Hann sagði að erfítt
væri að draga ályktanir af þeim
jarðvegssýnum sem tekin hefðu
verið vegna skorts á góðum jarð-
vegskortum af landinu. Landsvæðin
væru það ólík.
Þeir Edward og Larry hafa mik-
inn áhuga á þeim jarðvegssýnum
Tæknigarður rís
TÆKNIGARÐUR, bygging fyr-
ir rannsóknir og þróunarstörf
á ýmsum tæknisviðum, rís nú á
Háskólalóð milli Suðurgötu og
Dunhaga í Reykjavík. I Tækni-
garði verður aðstaða fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki á tækni-
og tölvusviði. Þar verður
Reiknistofnun Háskólans einnig
til húsa á miðhæð og hluti starf-
semi Raunví sindastofnunar Há-
skólans.
Tæknigarður verður þijár hæðir
og er grunnflatarmál hússins 867
fermetrar, alls verða hæðimar
2.601 fermetri. 1.500 fermetrar
verða leigðir einstaklingum og fyr-
irtækjum til rannsókna og þróun-
arstarfsemi á sviði hugvits- og
tækniiðnaðar. Reynt verður að
laga stærð húsnæðis að þörfum
hvers leigutaka og er fyrirhugað
að leigugjald taki mið af markaðs-
verði leigu fyrir iðnaðar- og skrif-
stofuhúsnæðis í höfuðborginni.
I Tæknigarði verður margvísleg
ByKgringf Tæknigarðs er nú vel á veg komin. Húsið verður fullbyggt
í nóvember í haust.
þjónusta við leigutaka svo sem
sameiginleg símaþjónusta, funda-
aðstaða og matstofa. Þeir aðilar
sem koma sér upp rannsókna- og
vinnuaðstöðu í byggingunni geta
tengst tölvum og tölvuneti Há-
skóla Islands.
Ragnar Ingimarsson, formaður
Tæknigarðs hf., sagði að hlutverk
Tæknigarðs væri, auk þess að
hýsa framangreinda starfsemi
Háskólastofnana, að veita fyrir-
tækjum og einstaklingum aðstöðu
I I
1
1
I
TÆKNI-
GARÐAR
VR-II VerklracOihi
Raunvisindahus
SUOURGAT A