Morgunblaðið - 18.08.1988, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 18.08.1988, Blaðsíða 51
MORÖUNÖLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1988 51 Regína J. Erick- son — Minning Regína Jóhanna Erickson fæddist í Winnipeg, Kanada, 19. maí 1898 og dó í júní sl. í Minneapolis í Banda- ríkjunum. Foreldrar hennar, hjónin Þórður Helgason frá Brúarfossi í Mýrar- sýslu og Halldóra Geirsdóttir, fædd- ust bæði hér á landi, en fluttu vest- ur á unglingsaldri með íjölskyldum sínum. Þau hófu búskap árið 1897 í Winnipeg en þegar Regína var fjögurra ára fluttu þau norður í Nýja-ísland og kölluðu bæ sinn Laufás, því að Halldóra var komin af séra Gunnari Gunnarssyni að Laufási í Suður-Þingeyjarsýslu. Á efri árum settust þau Halldóra að í Vancouver á vesturströnd Kanada og völdu sér íbúðarhús þar sem sást bæði til fjalla og sjávar því að það minnti þau á íslenska staðhætti. Á íslandsferðum sínum ræktaði Regína frændskapinn við Laufás meðal annars með því að vitja stytt- unnar af Tryggva Gunnarssyni í alþingishússgarðinum, „heilsa upp á Tryggva," eins og hún komst að orði. Regína giftist liðlega tvítug, árið 1919, William (Eiríki Vilhjálmi) Erickson, syni íslenskra hjóna í Svold í N-Dakota, Bandaríkjunum. Þau William áttu fyrst heima í Winnipeg en fóru á kreppuárunum miklu í atvinnuleit til Tvíburaborg- anna í Minnesota í Bandaríkjunum og ílentust þar. William gegndi her- þjónustu í fyrri heimsstyijöldinni en vann síðan við húsbyggingar og í byggingarfyrirtækjum, bæði í Winnipeg og Minneapolis, þangað til hann varð bráðkvaddur í júlí 1946, tæplega 52 ára. Hann var ölum sem til þekktu mikill harm- dauði. Böm þeirra Regínu em tvö, Halldóra Guðrún (Dóra), fædd 1920, og Harold Hannes, fæddur 1923. Kona Harolds er af enskum ættum en Dóra giftist Vilhjálmi Þórlákssyni Bjamar úr Reykjavík, síðar bókaverði við Fiske-safnið í Comell-háskóla í Bandaríkjunum (d. 1983). Á stríðsámnum 1939-1944 og síðar fjölgaði mjög þeim sem fóm héðan til náms í Bandaríkjunum. Vestur-íslendingar tóku námsfólk- inu opnum örmum og á heimili Regínu og Williams í Minneapolis komu margir þeirra um helgar og á hátíðum þó að þar byggju aðeins einn til tveir að staðaldri. Regína útbjó og bar fram veitingar, oftar en ekki pönnukökur. Húsbóndinn fór með hópinn niður í kjallara, spil- aði á grammófón og stjórnaði dansi. Húsráðendur gengu ríkt eftir að gestir sýndu hver öðmm kurteisi þó að þeir væm ósammála í stjóm- málum og enginn fékk að vera utan- veltu eða einmana á þeirra heimili. Ég kynntist þeim hjónum er ég kom til Bandaríkjanna árið 1945 til að læra heimilisfræði við Minne- sota-háskóla og bjó hjá þeim fyrstu vikumar. Á þeim tíma vom tvær aðrar íslenskar stúlkur til húsa hjá Regínu og William. Dóttirin Dóra var á fömm til íslands að giftast unnusta sínum Vilhjálmi, og sonur- inn Harold var enn í herþjónustu. Er ég fluttist frá þeim til að búa nær skólanum var mér sagt að halda húslyklinum svo að ég þyrfti ekki að sitja á tröppunum ef ég kærhi þegar enginn væri heima. Um þessar mundir vann Regína við færiband í verksmiðju ásamt heimilisstörfum og hún saumaði mikið, bæði á sjálfa sig og fjölskyld- una. í Nýja-íslandi hafði hún vanist algengum sveitastörfum. Hún kunni að kemba ull og spinna og gera skyr og slátur. Stundum gaf hún okkur heita lifrarpylsu í kvöldmat- inn. Eftir að hún varð ekkja, rifjaði hún upp vélritun og skrifstofustörf sem hún hafði lært í Success Busi- ness College í Winnepeg og unnið við á yngri ámm. Hún fékk starf sem læknaritari í heilsuverndarstöð ríkisháskólans. Þar líkaði henni mjög vel og eftirfarandi frásögn í bréfi frá henni í október 1975 sýnir að samstarfsfólkinu líkaði við hana. Hún var komin á eftirlaun en átti erindi í heilsuvemdarstöðina og var svo óheppin að detta „kylliflöt á hart steinstrætið" þegar hún steig úr úr vagninum. Með hjálp tveggja vegfarenda komst hún þó á leiðar- enda „og læknamir vom allir að stumra yfir mér þangað til ég gat farið heim.“ Skömmu eftir þetta atvik fór heilsu hennar að hraka og minnis- leysi háði henni mjög síðustu árin. Hún átti íbúð í sama húsi og sonur hennar og með hjálp fjölskyldu hans gat hún verið heima hjá sér löngu eftir að hún varð sjúklingur. Regína skrifaði nærri stafrétta íslensku. Bréfin vom þéttskrifuð, báðum megin á fremur þunnan pappír. Hún var meðalmanneskja á vöxt, kvik og létt í hreyfingum og bar höfuðið hátt, fríð, brosleit og hlátur- mild. Hversdagslegir hlutir vom skemrfitilegir og spennandi í návist hennar. Regína kom hingað til lands árin 1949,1968 og síðast á elllefu hundr- uð ára afmæli íslandsbyggðar, 1974. Þá fór hún, með föðurfólki sínu á Þingvallahátíðina 28. júlí og gladdist innilega að sjá Dóm, Vil- hjálm og börn þeirra þrjú þar sem þau gengu með Vestur-íslendingum og landsmönnum fylktu liði inn á hátíðarsvæðið til að hylla landið og votta því virðingu. Hún kom aftur til Reykjavíkur úr þessari ferð um lágnættið, örþreytt en geislandi af fögnuði og sagði við mig: „Þetta var himneskur dagur. Ég vildi að þú hefðir verið með mér.“ Regínu þótti vænt um Kanada og hélt reglulegu bréfa- og síma- sambandi við frændur og vini þar og skiptist á heimsóknum við þá. Hún var líka dyggur bandarískur þegn og tók nærri sér þegar banda- rískum stjómvöldum var hallmælt á alþjóðavettvangi. Hún ásakaði sjálfa sig sem hluta af hvíta meirihlutan- um þegar árekstrar urðu milli hvítra og svartra í heimalandi hennar. Þá • hafði hún sterkar taugar til „gamla landsins“ og lagði sig fram um að efla tengsl Islendinga austan hafs og vestan. Allir sem áttu hana að vini geta yljað sér við minningar um góða og skemmtilega konu. Uppáhaldssagan hennar Regínu var af tveim náms- mönnum nýkomnum að heiman. Þeir spurðu hana hvar húsbóndinn væri. „Hann fór á show,“ (kvik- myndasýningu) svaraði Regína. „Á sjó?“ segja þeir báðir mjög undrandi á svip. I sömu andrá verður þeim öllum ljós misskilningurinn. Þá var hlegið dátt og alltaf síðan þegar atvikið var rifjað upp. Megi gæfa fylgja afkomendum Regínu. Anna Gísladóttir Egill Sigurðsson, Alafossi — Minning Fæddur 30. október 1904 Dáinn 9. ágúst 1988 Lækkar lífdaga sól, löng er orðin mín ferð, fauk í faranda skjól, feginn hvíldinni verð. Guð minn gefðu þeim frið, gleddu og bless- aðu þá sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésdóttir) Egill Sigurðsson fæddist að Arn- arstöðum í Helgafellssveit þann 30. október 1904. Að Álafossi í Mos- fellssveit kom hann 1. október 1928, þá tæplega 24 ára gamall. Þar vann hann óslitið allan sinn starfsaldur eða í tæp 55 ár, nær alltaf sem kembimaður, nema síðustu árin var hann í léttri vinnu á pijónastofunni. Mun fátítt ef ekki einsdæmi að maður vinni jafnlengi hjá sama fyrirtæki. Trúmennska hans og húsbóndahollusta var ein- stök. Egill lenti í alvarlegu bílslysi á leið sinni í vinnu í apríl 1983. Datt víst fáum í hug að hann ætti aftur- kvæmt eftir það. En með fádæma hörku tókst honum að koma sér á fætuma á nýjan leik, sem má telj- ast kraftaverk. Hann fékk sér meira að segja nýjan bíl, og keyrði í heim- sóknir til kunningjanna þó á tveim hækjum væri. En heilsunni hrakaði smátt og smátt, enda aldurinn orð- inn hár. Á dvalarheimili aldraðra á Hlaðhömrum, þar sem hann bjó seinustu árin, naut hann góðrar aðstoðar, sem gerði honum kleift að vera heima þar til í maí sl. að hann varð að leggjast inn á sjúkra- hús, og þar lést hann 9, ágúst sl. Til síðasta dags var Egill andlega hress. Hann var hafsjór af fróðleik frá gamalli tíð, og víðlesinn. Oft var gaman að spjalla við hann um liðna tíma. Sérstaklega varð honum tíðrætt um gömlu góðu dagana á Álafossi, þegar allur bragur var þar eins og á stóru heimili undir stjórn Siguijóns Péturssonar og Sigur- bjargar konu hans. Ekki var hann sáttur við allar þær breytingar, sem orðið höfðu á starfseminni seinustu árin, og taldi gamlar dyggðir eins og sparsemi og nýtni ekki lengur í hávegum hafðar. Egill var prýðilega hagmæltur, og hafði yndi af vel kveðnum vísum. Leirburður og nútíma „atóm“skáld- skapur átti ekki upp á pallborðið hjá honum. Hann var líka mikill bridsspilari, en ekki þótti heiglum hent að spila svo að honum líkaði. Egill kvæntist ekki né eignaðist böm. í gegn um tíðina eignaðist hann marga góða vini meðal sam- starfsfólksins á Álafossi. Að öllum öðrum ólöstuðum má segja að Bene- dikt ívarsson, sem allir þekkja sem Bent, hafi reynst honum sem besti sonur. Egill talaði oft um það, og var honum innilega þakklátur. Og nú er komið að kveðjustund. Við fylgjum honum síðasta spölinn vestur á bemskuslóðirnar, þar sem hann verður lagður til hinstu hvíldar, og þökkum honum sam- fylgdina. Bræðmm hans og öðrum vandamönnum flytjum við samúð- arkveðjur. Hulda og Dísa HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ Fyrsta hraðlestrarnámskeið vetrarins hefst 30. ágúst nk. Námskeiðið hentar öllum sem vilja auka lestrarhraða sinn, hvort heldurervið lesturfagurbókmennta eða námsbóka. Nemendur HRAÐLESTRARSKÓLANS þrefalda að meðaltali lestrarhraða sinn í öllu lesefni. Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00 í síma 641091. HRAÐLESTRARSKÓUNN UMBERTO GINOCCHIETTI Tískusýning í Blómasal á morgun á íslenskum fatnaði. Módelsamtökin sýna ullarlinuna '88 i hádeginu alla föstu- daga frá Rammagerðinni, Hildu, Fínull, Álafossi ásamt skartgripum frá Jens Guðjónssyni gullsmiö. Vikingaskipiö er hlaöið islenskum úrvalsréttum alla daga ársins. Sjávarréttahlaðborö á aðeins 995 kr. Borðapantanir í síma 22321. HÚTEL LOFTLEIÐIR FLUGLEIDA HÓTEL eioissl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.