Morgunblaðið - 18.08.1988, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 18.08.1988, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1988 Embættinu hefur ekki enn borist skattaframtal yðar fyrir árið 1987 ... Stundum segi ég við sjálfa mig: Ég Vildi að hann sýndi meiri ábyrgð. HÖGNI HREKKVÍSI „és HEÍ.P AO tíáPSé,.E''yFIR HM.C’Í Er ekki dyggð að spara? Nýlega birtist í Velvakanda bréf, þar sem segir frá manni, sem tók fyrir fjórum árum lán að upphæð 1,5 milljón króna í formi skulda- bréfa. Nú séu eftirstöðvar þess 2,4 milljónir, þótt afborganir hafi alltaf verið greiddar. Nú veit ég ekki til hvers lánið var tekið, en hafi það farið til kaupa á húseign hefur hún væntanlega hækkað um dtjúgan skilding í krón- um talið, en hafí það farið í atvinnu- rekstur, sem einhver glóra var að leggja út í, hefur hann væntanlega skilað einhverjum arði. Tölur, sem eru þannig settar fram, segja oft harla lítið, — að minnsta kosti ekki alla söguna. En nú ætla ég að segja aðra sögu. Ég vildi sýna fyrirhyggju og hafði fyrir allmörg^um árum nurlað saman nokkru fé (líklega samsvar- andi 1,5 milljón á verðgildi ársins 1984). Síðan æxlaðist það svo, að ég lánaði manni þessa peninga, gegn greiðslu í skuldabréfí (óverð- tryggðu, annað þekktist ekki þá). Bréfíð skyldi greiðast á 10 árum. En skjótt skipast veður í lofti. Verð- bólgan tók á skrið. Sá sem lánið fékk átti hús sitt skuldlaust eftir árin 10, en afborganimar og vext- imir, sem ég fékk hefðu ekki gert meira en að duga fyrir útidyrahurð- inni. Ég gafst þó_ekki upp og reyndi enn, þegar sparifé var orðið verð- tryggt, að öngla einhveiju saman til elliáranna. Nú skilst mér, að hörð hríð sé gerð að þessari inneign minni. Verðtrygginguna eigi að af- nema og leggja skatta á vextina, þótt ég hafí þegar greitt að fullu tekjuskatt af þeim auram, sem í bankann fóm. Ég er nú orðinn of gamall til að standa í einhveijum stórræðum til þess að vernda þennan „ellilífeyri" minn og geri því eins ráð fyrir því, að ég verði sviptur honum öðm sinni, ef skuldakóngamir ná sínu fram. En ekki kæmi mér óvart þó aðrir, sem em meiri bógar en ég, reyndu að krafsa í bakkann, tækju peninga úr banka og seldu skulda- bréfín og festu allt í steinsteypu. Gmnar mig að þá gæti svo farið, að enginn þyrfti að rífast um láns- fé, — það væri einfaldlega ekki til. Nei, hér er aðeins eitt ráð sem dugir, og það er að verðbólgunni verði náð niður. Verðbólgan er sá draugur, sem veldur öllu þessu „misgengi", sem talað er um. Hana þurfum við að losna við númer eitt, tvö og þijú, — ásamt því að auka ekki erlendar skuldir, heldur leggja kapp á að grynnka á þeim. Ég held að þetta sé almennt við- urkennt og þeir stjómmálamenn, sem ekki hafa þor til að ráðast gegn þessum meinum, vegna há- værra radda sérhagsmunapotara, ættu að sjá sóma sinn í því að fá sér aðra vinnu. Alþingismenn em kosnir til að stjóma og það eiga þeir að gera, láta samviskuna ráða og standa og falla með gerðum sínum. Skattborgari. Að hagræða hlutunum Þetta er eitt af slagorðum stjórn- málamannanna. Og svo að tala um að þjóðin verði að spara, og eiga þeir þá við alia aðra en sjálfa sig. Ennþá eitt er, að spara verði í ríkis- geiranum og um leið fara öll ráðu- neytin 100% fram úr áætlun. Er- lendum lántökum á að fækka, og stilla á „ferðamannastraumnum" á vegum ríkissjóðs í hóf. En hvaða hóf það er skilur eng- inn. Það er talað um hóf á hlutunum en áttavitinn segir allt annað. Menn eiga að kunna sér hóf í drykkju, þ.e. allir nema þeir sem kunna ekki með áfengi að fara. Ríkið þarf að græða á brennivínssölunni, og því er hamast við að setja upp brennivínsútsölur og veita vínveit- ingaleyfi út um allar trissur. Þetta er það sem á valdsmannavísu er kallað að hafa hóf á hlutunum. Gróði ríkisins af áfengissölunni birtist glögglega í starfsemi sjúkra- húsa, sem fara fram úr öllum fjár- lögum og lögum, í fjölgandi af- vötnunarstofnunum og lögregluliði, sem á að passa hóflegheitiná hlut- unum. Svo verða viðskiptin liðugri og hagstæðari ef tappinn er tekinn úr flöskunni, og á því getur ríkið grætt með íjölgandi gjaldþrotum og öðru slíku hóflegu. Og það má ekki gleyma því, að fjölgun bifreiða er nauðsyn, því það þykir ekkert tiltökumál þótt klessu- keyrðum bifreiðum fari fjölgandi og þá þarf að bæta við í þeirra stað. Á þessu græða svo bifreiðaumboðin og fólkið í umferðinni. Þetta er mjög einfalt, og alltaf vex brennivínsgróðinn og ríkið græðir á því að veita áfengi í veislum. Bind- indi og bönn eru bara tímaskekkja. Kristindómur og trú yfírleitt er nútímamanninum að litlu gagni og hana þarf að athuga með breyttum tíma til hagræðis í veraldarvolkinu. Þetta hlýtur hver og ■ einn að skilja og eitt er víst, að breytingam- ar em miklar frá því maður var bam. Nú er það Bakkus konungur sem ræður ferðinni í heiminum og honum lúta bæði háir og lágir og láta hann píska sig áfram. „Já, það er nú meiri breytingin," sagði bles: suð konan við mig á dögunum. „í ungdæmi mínu var talað um brennivínsberserki og vom þeir ekki margir, en fór mikið fyrir þeim. í dag er talað um áfengissjúklinga, ja, öllu fer aftur.“ Árni Helgason. Víkyerji skrifar Mikið er rætt um efnahagsmál um þessar mundir og þá með- al annars hvernig afla skuli ríkis- sjóði tekna. Skattheimta er vinsæl leið til þess, en stundum innheimt- ist skatturinn illa. Eftir að stað- greiðslukerfi skatta var tekið upp, hefur borið á því að samfara stað- greiðslu, reynist mörgum erfítt að greiða vangoldna skatta. Sú hug- mynd hefur komið fram, að ríkis- sjóður falli frá töku dráttarvaxta, allt að milljarði króna, í þeirri von að skuldirnar innheimtist betur með því móti. Hvort af þessu verður eða ekki, er óljóst. Hugsanlega getur þessi aðferð borgað sig fyrir ríkis- sjóð, en að mati Víkveija, sem eins og líklega flestir skattgreiðendur, hefur greitt skatta sína skilvíslega, felur þessi hugmynd ekkert annað í sér en stórlega mismunun skatt- greiðenda. Það getur ekkert rétt- lætt það, að þeir, sem ekki greiði skatta sína á tilskildum tíma, eigi að fá einhveija niðurfellingu á upp- söfnuðum kostnaði og um leið raun- lækkun skattanna. Liggi ríkissjóði mjög á því að fá skatta greidda, hlýtur það að vera réttmætari að- ferð að gefa staðgreiðsluafslátt. Sú aðferð hefur gengið of lengi, að þeir, sem ekki geta staðið í skilum, einhverra hluta vegna, njóti fyrir vikið betri kjara en þeir, sem borga skuldir sínar á réttum tíma. XXX Alltaf dettur mönnum eitthvað í hug. Ný bylgja gengur um þessar mundir yfir Bandaríkin, en það er sala segulbandsspóla með ýmsum skáldverkum á. Eru þær einkum notaðar í bílum þar vestra, en líklega eyðir engin þjóð jafn- miklum tíma í akstur og þarlendir. í grein í nýútkomnu.. Urvali segir frá þessu og ánægju ýmissa við- mælenda greinarhöfundar. Sagt er frá því að hægt sé að fá mikinn fjölda bókmenntaverka með þessum hætti, bæði klassískra svo men Moby Dick Hemians Melville og léttmetis. Hér á landi hefur efni sem þetta ekki verið áberandi. Spólur eru að sjálfsgöðu til með bamaefni og ýmsum náttúrulýsingum, en tón- listarspólurnar hafa vissulega vinn- inginn hér, eins og víðast annars staðar. Víkveija líst vel á þessa hugmynd að vestan og finnst hún miklu fysilegri kostur til afþreying- ar í akstri en tónlistin, sem oft á tíðum virðist þurfa að spila svo hátt venjulegu fólki ofbýður. Það hlýtur að vera mikill munur á því að aka eftir Fljótshlíðinni og hlusta á einhvem af hinum ágætu leikur- um okkar lesa kafla úr Njálu eða hlusta á þungarokk. XXX Annað slagið berast okkur frétt- ir af því að ákveðnir hópar, sem kenna sig við dýravemd, bijót- ist inn á tilraunastofur lækna og hleypi þaðan út dýrum, sem notuð em við ýmsar læknisfræðilegar rannsóknir. Þetta fólk telur tilraun- imar misþyrmingu á dýmnum og notkun þeirra ónauðsynlega. Lækn- ar em yfírleitt á annarri skoðun og segja að tilraunir, sem gerðar hafí verið á dýmm, hafí tvímælalaust orðið til þess að bjarga fjölda mannslífa og flýta fyrir þróun ýmissa rannsókna og lyfjafram- leiðslu. Líklegast þykir Víkveija að læknamir séu ekki haldnir sérstök- um kvalalosta og noti dýrin til að fá honum svalað, heldur séu þeir ekki aðeins dýravinir, heldur einnig mannvinir og geri sitt bezta til að hlú að mannfólkinu. Öfgar, á hveiju sem þær byggjast, þjóna engum tilgangi öðmm en varpa rýrð á það, sem byggt er upp af kost- gæfni og verður ekki haggað með haldbæmm rökum. Við hljótum að trúa því að hámenntaðir vísinda- menn viti hvað þeir em að gera, metum framlag þeirra til læknis- fræðinnar um leið og við höfnum öfgunum. XXX ann 11. september næstkom- andi verður hlaupið í þágu bama um allan heim. íslendingar taka þátt í hlaupinu og leggja þann- ig sitt að mörkum til að gera bág- stöddum börnum víða um heim til- verana léttbærari en ella. Framtak þetta er til fyrirmyndar og aðferðin táknræn, því skokkið er ein af þeim leiðum, sem velmegunarþjóðimar nota gjaman til að losa sig við auka- kílóin. Um leið og við erum minnt á líkamlegt ástand okkar, leggjum við þeim, sem era vannærð og heim- ilislaus, lið. Sjálfra sín vegna og annarra hefðu því æði margir ástæðu til að taka þátt í heims- hlaupinu 1988.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.