Morgunblaðið - 18.08.1988, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
FIMMTUDAGUR 18. AGUST 1988
iÞRÖmR
• FOLK
■ ÞORSTEINN Einarsson sér
ekki um gönguæfingu íslensku
ólympíufaranna að þessu sinni. Hún
verður 6. september, en þá verður
Þorsteinn farinn til Seoul í boði
íslensku ólympíunefndarinnar, þar
sem hann mun flytja fyrirlestur um
islensku glírnuna. Sennilegt er að
Valdimar Ornólfsson stjómi æf-
ingunpi í stað Þorsteins.
■ ÓLAFUR H. Jónsson, fyrrum
^ landsliðsfyrirliði í handknattleik, og
nú stjómarmaður í HSI, verður
flokksstjóri landsliðsins á Olympíu-
leikunum í Seoul. Hann verður því
aðalfararstjóri handknattleiks-
manna. Jón Hjaltalín Magnússon,
formaður HSI, verður einnig á
staðnum. Hann gegnir hins vegar
starfí blaðafulltrúa ólympíunefndar
íslands meðan á leikunum stendur.
■ ELLERTB. Schram, formað-
ur KSÍ, hafði samband við blaðið
vegna fréttar í gær um að eins leiks
heimaleikjabanni KS hefði verið
aflétt. Það væri ekki rétt, en hins
vegar hefði aganefnd KSI fallist á
að fresta framkvæmdinni, því öll
aðstaða á Siglufirði væri stórbætt
^ með tilkomu nýja grasvallarins.
Dómurinn væri skilorðsbundinn út
næsta tímabil og kæmi ekki til óláta
yrði ekkert af banninu.
■ ÞAÐ verður enginn annar en
Michel Vautrot frá Frakklandi
sem dæmir síðari leik Fram og
Barcelona í Evrópukeppni bikar-
hafa, sem fram fer á Spáni 5. októ-
ber í haust. Vautrot þessi dæmdi
úrslitaleik Hollendinga og Sovét-
manna í Evrópukeppni landsliða
fyrr í sumar og hlaut frábæra dóma
fyrir.
■ CHELSEA á ekki sjö dagana
sæla um þessar mundir; í fyrra féllu
þeir niður í aðra deild og nú horf-
ast þeir í augu við það að þurfa
að yfírgefa heimavöll sinn, Stam-
ford Bridge, sem liðið hefur leikið
á síðan árið 1905. Chelsea bauðst
til að kaupa völlinn, en það hefur
leigt þar, en þeirri ósk var hafnað,
og stendur til að byggja íbúðarhús
á svæðinu. Félagið hefur ítrekað
reynt að koma í veg fyrir að það
þurfí að yfirgefa svæðið, en fall
þeirra í aðra deild, svo og ólæti
áhangenda þeirra, hafa ekki orðið
til að bæta málstað þeirra.
I KURT Jara mun taka við
“v þjálfarastöðunni hjá St. Gallen í
Sviss. Jara tekur við stöðunni af
Markúsi Frei, sem var rekinn frá
félaginu á þriðjudag, eftir að félag-
ið hafði tapað fyrstu sex leikjum
sínum í deildakeppninni þar. Jara
er 38 ára gamall og lék 59 lands-
leiki fyrir Austurríki.
IÞROTTAMANNVIRKI / TENNIS
Fyrirhugað að reisa
höll með sex völlum
Verður stærsta íþróttahús landsins að gólffleti
FYRIRHUGAÐ er að reisa
tennishöll í Reykjavík er rúm-
að gæti sex tennisvelli í fullri
stærð. Tveir ungfr tennisá-
hugamenn hafa um nokkurt
skeið unnið að þessu máli og
skapað grundvöll fyrir bygg-
ingunni með stuðnigi ýmissa
aðila. Sótt hefur verið um lóð
undir húsið í Suður-Mjódd og
lagðar fram teikningar að
því. Er nú beðið svara borgar-
yfirvalda við umsókninni.
Húsið á verða límtréshús og
er kostnaður við byggingu
þess áætlaður 60 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir að húsið sjálft
verði 4500 fermetrar að gólffleti,
113 metrar á lengd og 39 metrar
á breidd. Þar með er ljóst, að það
verður stærsta íþróttahús landsins
að gólffleti. Hluti hússins verður
þjónustuhús með búningsaðstöðu
og veitngasölu. Finnur Björgvins-
son arkitekt hefur annast teikn-
ingar að tennishöllinni.
Fjármögnun tryggð
Skúli Mogensen og Ámi Páll
Hansson hafa haft veg og vanda
að undirbúningi byggingarinnar.
Að þeirra sögn hefur íjármögnun
verið tryggð. Stærsti hluti fjárins
kemur frá ýmsum fyrirtækjum og
einstaklingum en hlutfallslega
lítill hluti verður á lánum og er
gert ráð fyrir að þau verði nær
alveg að fullu greidd eftir fímm ár.
Sennilegt er, að leiga fyrir einn
völl verði 800 krónur á tímann
eða 400 kr. á mann í einliðaleik
og 200 kr. á mann í tvíliðaleik.
Tennishöllin er hönnuð með
hliðsjón af sams konar höllum
erlendis. Gólfefnið og undirlag
verður miðað við tennis og viður-
kennt á alþjóðamælikvarða.
Ætlunin er að nota húsið sem
mest undir tennis. Þó er mögu-
leiki á að stunda þar aðrar íþrótt-
ir og hafa þar sýningar. Ekki er
hins vegar gert ráð fyrir fjölmenn-
um áhorfendasvæðum.
íslenzki tennisklúbburinn
í tengslum við undirbúning að
byggingu tennishallarinnar hefur
verið stofnaður sérstakur klúbbur,
íslenzki tennisklúbburinn. For-
varsmenn hans eru auk þeirra
Skúla Mogensen og Áma Páls
Hanssonar, þeir Arnar Arinbjarn-
ar og Árni Tómas Ragnarsson,
tennismenn.
Klúbburinn er ekki íþróttafélag
sem slíkur heldur verður hann
opinn öllum tennisáhugamönnum
úr hinum ýmsu íþróttafélögum.
Er nú verið að vinna að kynning-
arbæklingi um klúbbinn.
Tennissamband fslands stendur
ekki beint að byggingu hússins
en hefur mælt sterklega með því
að það verði byggt enda mikil-
vægt fyrir framgang tennisíþrótt-
arinar hér á landi, að hægt verði
að iðka tennis allt árið. Til dæmis
verður mun auðveldara að byggja
upp unglingastarf þegar tennis-
höll verður komin upp.
FRJALSAR IÞROTTIR
Bestu spjótkastarar heims
í „feluleik" fyrir ÓL í Seoul
EinarVilhjálmsson fær því ekki tæki-
færi til að keppa í Finnlandi og Sviss
BESTU spjótkastarar heims
eru nú í „feluleik" - liggja und-
ir feldi og undirbúa sig fyrir
Ólympíuleikana í Seoul. „Það
kom mér óneitanlega mikið á
óvart að flestir bestu spjót-
kastararnir eru hættir við að
taka þátt í keppni í Bern í Sviss
23. ágúst og Lohja í Finnlandi
28. ágúst," sagði Einar Vil-
hjálmsson í viðtali við Morgun-
blaðið i gær.
Einar sagði að heimsmethafinn
Jan Zelezny frá Tékkóslóvakíu,
Finnamir Seppo Ráty, Tapio Kotjus
og Yki Laine, ásamt Klaus Tafel-
íneier frá V-Þýskalandi og Eng-
lendingunum Mike Hill og David
Ottley, hefðu allir ætlað að vera
með í þessum mótum. „Þeir hafa
dregið sig til baka, þannig að ég
sé enga ástæðu til að fara til Lohja
og Bem til að sýna mig.“
„Eg er á mjög góðu róli um þess-
ár mundir - bæði líkamlega og
andlega," sagði Einar, sem fer fljót-
lega í æfíngabúðir til Svíþjóðar eða
Kaupmannahafnar, þar sem hann
verður fram að landskeppninni
gegn Luxemborg 3. september.
„Ég sé enga ástæðu til að vera
leita uppi mót um alla Everópu -
til að sýna og sanna mig. Lokaund-
irbúningurinn fyrir ÓL í Seoul er
nú kominn á lokastig,“ sagði Einar.
Þess má geta að ekki er keppt í
GOLF / SVEITAKEPPNI UNGLINGA
Umdeildur dóm-
ur í bráðabana
réði úrslitunum
SVEITAKEPPNI unglinga í
golfi lauk um síðustu helgi
og var keppt í tveimur flokk-
umjflokki unglinga 18-21 árs
og flokki unglinga yngri en
18 ára. Bráðabana þurfti milli
tveggja efstu sveitanna í
keppni 18 ára og yngri, og
gerðist þar mjög umdeilt at-
vik, sem líklega réði úrslitum
um það hvor sveitin sigraði.
Keppnin fór fram á tveimur
stöðum; í Hafnarfirði og á
Akranesi.
í Hafnarfirði var keppt í fiokki
unglinga 18-21 árs og sigraði
A-sveit GR. í öðru sæti var A-
sveit GK og í þriðja sæti B-sveit
GR.
Á Akranesi fór fram keppni 18
ára og yngri, og sem fyrr segir
þurfti þar bráðabana til að gera
upp á milli Golfklúbbs Vest-
mannaeyja og Nesklúbbsins.
Vestmannaeyingarnir unnu í
bráðabananum, en þar kom fyrir
atvik, sem olli miklum deilum um
það hvort úrskurður dómarans
hefði verið réttur eða rangur.
Aðstoðarmaður eins kylfingsins
hafði tekið upp rangan bolta, og
var samheijum hans því dæmd
holan töpuð, en töldu margir að
einungis hefði átt að dæma eitt
högg í víti.
Það var því sveit GV sem sigr-
aði. I öðru sæti kom sveit Nes-
klúbbsins og í þriðja sæti var sveit
Golfklúbbs Akureyrar.
spjótkasti í ár á Grand Prix-mótun-
um.
Eins og menn muna þá vann
Einar alla fyrrnefnda sjótkastara í
keppni í Finnlandi og Svíþjóð á
dögunum.
Sigurður Einarsson, spjótkastari
og Vésteinn Hafsteinsson, kringlu-
kastari, eru nú í Svíþjóð við æfing-
ar. Helga Halldórsdóttir, hlaupari,
er í Bandaríkjunum og íris Grön-
feldt, spjótkastari, er á leið til
keppni á Norðurlöndunum.
Einar Vllhjálmsson ætlar ekki að „sýna sig“ þar aðrir bestu spjótkastarar
heimsins eru í „feluleik“ um þessar mundir.