Morgunblaðið - 18.08.1988, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1988
6Í
KNATTSPYRNA / VINÁTTULANDSLEIKUR
Einn
sigur
gegn
Svíum
- í6tilraunum
Islendingar og Svíar hafa sex
sinnum mætst í landsleik í
knattspymu. íslendingar hafa
einu sinni borið sigur úr býtum
— í fyrstu viðureigninni 29. júní
1951 í Reykjavík. Úrslitin urðu
4:3 og skoraðj Ríkharður Jóns-
son öll mörk íslands.
Einu sinni hefur orðið jafn-
tefli og fjórum sinnum hafa
Svíar sigrað. Síðasti leikur þjóð-
anna fór fram í Reykjavík 17.
ágúst 1983 og þá sigruðu Svíar,
4:0.
Amljótur
í byrjunar-
liðinu?
Eina spurningin virðist hvort hann
eða Ragnar Margeirsson verði í
framlínunni með Halldóri
STÓRA spurningin varðandi
byrjunarlið íslands í landsleikn-
um gegn Svíum á Laugardals-
velli í kvöld er hvort Arnljótur
Davíðsson úr Fram leiki sinn
fyrsta landsleik.
Amljótur, sem leikið hefu'r
geysilega vel með Fram í sum-
ar, var kallaður inn í hópinn gegn
Búlgaríu á dögunum eftir að Pétur
Pétursson meiddist. Hann tók ekki
þátt í þeim leik, en þar sem Sigurð-
ur Grétarsson kemur ekki til leiks
í kvöld frá Sviss hafa menn í her-
búðum KSÍ velt þvi fyrir sér hvort
Amljótur fái tækifæri í kvöld.
í augum uppi
Tvær breytingar sem liggur fyrir
að verði gerðar era þær að Bjami
Sigurðsson stendur í markinu í stað
Friðriks Friðrikssonar og að Gunnar
Gíslason taki stöðu Sigurðar Jóns-
sonar sem aftasti miðvallarleikmað-'*
ur. Hvorki Friðrik né Sigurður
mæta til leiks þannig að þessar
breytingar liggja í augum uppi.
Þriggja manna vörn Islands verð-
ur varla breytt frá Búlgaríuleiknum.
Guðni verður því aftasti maður og
Sævar Jónsson og Atli ðvaldsson
fyrir framan hann. í vængstöðunum
verða Ólafur Þórðarson, hægra
megin, og Viðar Þorkelsson og á
miðjunni með Gunnari þeir félagar
úr Fram, Pétur Ormslev og Ómar
Torfason.
Ragnar eda Amljótur
0g þá er það framlínan. Skv.
heimildum Morgunblaðsins lá það
nokkuð Ijóst fyrir í gær að Halldór
Áskelsson yrði í byrjunarliði, en
spumingin var talin, eins og áður
sagði, hvor þeirra Ragnars eða
Arnljóts, yrði með honum frammi.
Ragnar var tekinn útaf í leikhléi
í viðureigninni við Búlgaríu á dög-
unum — þar sem hann náði sér
ekki á strik. Halldór kom inn á fyr-
ir Ragnar og stóð sig vel.
Siegfried Held, landsliðsþjálfari,
vildi í gærkvöldi ekki tjá sig um
byrjunarlið sitt, venju fremur.
Sagðist tilkynna leikmönnum sfnum
eftir morgunæfingu í dag hveijir
hæfu leikinn. Og því verða menn
bara að bíða spenntir...
Á varamannabekk íslands í kvöld
munu því sitja Guðmundur Hreið-
arsson, markvörður úr Víkingi, Pét-
ur Amþórsson Fram, Þorvaldur
Örlygsson KA, Þorsteinn Þorsteins-
son Fram og annaðhvort Amljótur
Davíðsson úr Fram eða Keflvíking-
urinn Ragnar Margeirsson.
„Mikilvægur liður í
undirbúningi okkar*4
Flautad
til leiks
klukkan
hálfsjö
LEIKUR íslands og Svíþjóðar á
Laugardalsvelli í kvöld hefst kl.
18.30.
ómari leiksins í kvöld verður
W.N.M. Crombie frá Skotlandi
en línuverðir Sveinn Sveinsson og
Magnús Jónatansson. Aðstoðar-
maður þeirra verður Haukur Torfa-
son.
Forsala aðgöngumiða verður á
Laugardalsvelli frá kl. 12.00 f dag.
Verð aðgöngumiða er kr. 600 í
stúku, 400 í stæði og 150 kr. fyrir
böm.
Hornaflokkur Kopavogs leikur
fyrir leik og í hálfleik undir stjóm
Bjöms Guðjónssonar.
Morgunblaðiö/Bjarni
Sansku leikmennirnir sýna takta á
æfingu í gærmorgun á Laugardals-
velli.
„LEIKURINN við íslendinga er
afar mlkilvœgur liður í undir-
búningi okkar fyrir Ólympíu-
leikana f Seoul, því að þetta
er seinasti landsleikurinn sem
við spilum fram að leikunum",
sagði Benny Lennardson, þjálf-
ari sœnska óiympfulandsliðs-
ins í knattspyrnu f samtali við
Morgunblaðið í gær.
rír atvinnumenn, sem leikið
hafa með sænska ólympíulið-
inUj komust ekki frá liðum sínum
til Islands en ungir leikmenn taka
sæfyþeirra í liðinu.
„Ég ætla að prófa nokkra unga
leikmenn í þessum leik en það þýð-
ir ekki að við tökum leikinn ekki
alvarlega. Þvert á móti munum við
beijast á fullu“, sagði þjálfari
Svíanna.
Hann sagði að lið sitt væri nú
ekki í 100% formi en yrði það á
Ólympíuleikunum. Aðspurður um
möguleika Svía þar sagði hann, að
Sovétmenn, V-Þjóðveijar og Bras-
ilfumenn væra með sigurstrang-
legustu liðin. ítalir gætu líka bland-
að sér í toppbaáttuna en Svíar
kæmu sennilega á hæla þessara
þjóða.
Sænska liðið keppti nýverið við
þtjár þessara þjóða, tapaði fyrir
Sovétmönnum 0:3, tapaði fyrir V-
Þjóðveijum 0:1 en gerði jafntefli
við Brasilfumenn 1:1. Svíar era með
V-Þjóðveijum, Kfnvetjum og Túnis-
mönnum í riðli. Tvær efstu þjóðirn-
ar í hveijum riðli komast í átta liða
úrslit.
íslenzka IIAIA sterkt
„íslendingar era með sterkt lið.
Ég sá að þeir stóðu sig mjög vel
gegn Frökkum og Sovétmönnum á
heimavelli og heyrði að þeir hefðu
verið mjög óheppnir að vinna ekki
Búlgari um daginn.
Eg þekki ekki til allra leikmanna
fslenzka liðsins en kannast þó við
Ólaf, bróður Teits Þórðarsonar,
Pétur Ormslev og síðan auðvitað
Bjama Sigurðsson og Gunnar Gfsla-
son, sem leika f Noregi“, sagði
Lennardson, þjálfari sænska
ólympíuliðsins í knattspymu.