Morgunblaðið - 16.10.1988, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐE), SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER' 1988
B 7
Þær lögðu lyklqu á leið sína og
stönsuðu á gamalkunnu veitinga-
húsi úti á landi. Þar beið þeirra
matur sem þeim þótti harla fagur
á diskunum en skammtamir
fjarskalega smáir. Þær höfðu ekki
uppburði í sér til að biðja um meira
og var ekki boðið uppá það. Hins
vegar tóku þær ljósmyndir af litlu
skömmtunum og höfðu á orði að
bagalegt væri að þær hefðu gleymt
að taka með sér stækkunarglerin
sin. Kvenfélag í annarri sveit lagði
einnig land undir hjól pg brá sér á
suðurslóðir. Stjóm kvenfélagsins
hafði pantað mat fyrir hópinn á
ákveðnu veitingahúsi. En veður var
slæmt og færð léleg svo bflnum
seinkaði. Konumar fóm alls staðar
sem unnt var út til þess að hringja
og láta vita af seinkuninni en náðu
aldrei sambandi því álagið á síman-
um hjá veitingahúsinu virtist vera
mikið. Loks komu þær á áfangastað
og gerðu vart við sig. Þá snéri
starfsfólkið uppá sig og sagði að
þeim hefði seinkað um heila klukku-
stund og því hefði mat þeirra verið
fleygt en þær þyrftu að borga hann
eigi að síður. Konumar vom alls
ófúsar að borga og sögðust marg-
oft hafa reynt að hringja en allt
kom fyrir ekki. Lyktir urðu þær að
konumar óku banhungraðar á braut
og keyptu sér mat á öðram stað.
Af tileftium sem þessum snéri gár-
ungi einn sunnanlands gömlum
húsgangi:
Togarinn er róinn
langt út á sjóinn
að sækja okkur fískinn
sera kemur ekki á diskinn,
rafabelti og höfuðkinn,
þetta gefur guð minn
verðbólgunni í skoltinn sinn.
Með tilliti til alls þessa væri
kannski ekki úr vegi að láta fylgja
hér með nokkuð stytta lýsingu á
miðdegisverðarboði sem Henry
nokkur Holland sat hjá Ólafí Steph-
ensen stiftamtmanni í Viðey árið
1810. „Fyrst var borin fram stór
skál með sagósúpu og var okkur
veitt ríkulega af henni. Því næst
var hryggjarsteik á borð borin, en
henni fylgdi sykmð eggjakaka. Að
loknum þeim rétti hófst mikilvæg
athöfn. Inn var borinn silfurbikar
mikill, skreyttur allt um kring með
smá silfurskjöldum, en á skildina
vom letmð nöfn stiftamtmanns,
konu hans og allra bama þeirra."
Úr þessum bikar barmafullum urðu
Holland og félagi hans að drekka
og aðrir þeir sem við borðið sátu
og ef einhver frávik urðu var hegn-
ingin sú að hinn brotlegi varð að
drekka aukabikar og skemmti þá
húsráðandi sér vel. „Að lokinni
þessari drykkju vora borin inn tvö
föt með kökum úr sagóhlaupi, sem
beinlínis syntu í ijóma." Sfðan var
dreypt á víni og eftir það gengu
menn út til að skoða kýr stiftamt-
manns og útihús hans. Þegar inn
var komið á ný var borið fram-
kaffí. „Nú hugðum við að lokið
væri áti og drykkju. En okkur til
undranar og skelfíngar var þá bór-
in inn skál ein mikil full af heitu
púnsi. Var okkur ekki sleppt fyrr
en hún var tæmd til hinsta dropa,"
segir Holland að lokum.
Með því að birta þennan útdrátt
úr bók Hollands er ég ekki að ætl-
ast til að íslenskir gestgjafar og
veitingamenn fari beinlínis að for-
dæmi Stephensens stiftamtmanns
hvað snertir viðurgjöming gesta.
Hins vegar má kannski eitthvað á
milli vera, ofgnótt eða „skreytt
níska" eins og konan frá Þýska-
landi kallaði það. Erlendis er það
til að nánasarlegar veitingar séu
bomar fram á fínum veitingahús-
um. En þá er oftast ekki síður ver-
ið að selja fólki eindæma glæsilegt
umhverfí og það að vera samvistum
við allskyns stertimenni t.d. úr kvik-
myndaheiminum. Slíku er ekki til
að dreifa hér í sama mæli. Þó menn
vilji kannski gjaman vera grannir
og „lekkerir" þá vilja flestir ugg-
laust heldur halda í við sig heima
en svelta sig á veitingahúsum fýrir
háar fjárhæðir.
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
50 nemendur í Tónlistarskóla Dalasýslu
Búðardal.
KENNSLA hófet í Tóniistarskóla
Dalasýslu 1. október. Nemendur
verða í kringum 50 og kennt
verður á þremur stöðum S sýsl-
unni eins og undanfarin ár, í
Saurbæjarhreppi, Laugarskóla
og í Búðardal.
Kennarar verða þeir sömu og
unnið hafa við skólann sl. tvö ár.
Auk skólastjóra, Kjartans Eggerts-
sonar, eru þar Ingibjörg Sigurðar-
dóttir og Halldór Þórðarson.
Nú hefur Tónlistarskólinn fengið
rýmra og betra húsnæði í Dalabúð
svo aðstaða öll hefur batnað og
má segja að hún sé viðunanleg en
það má geta þess að kennaralið
skólans er nægjusamt og gerir fyrst
og fremst kröfur til sjálfs sín.
Kristjana
HÖRPUDISKAR 4 STK.
kr. 352,-
STÁLPOTTAR
frá kr. 1.257,-
ÁHALDASETT FYRIR
ÖRBYLGJUOFNA
BÖKUNARFORM
frá kr. 66,-
SKURÐARBRETTI
frá kr. 400,-
kr. 357,- SALATÁHÖLD
kr. 146,-
BRAUÐKÖRFUR
frá kr. 70,-
HRAÐSUÐUPOTTUR
FYRIR ÖRBYLGJUOFNA
kr. 612,-
HNÍFAPÖR FYRIR 4
kr. 2.005,-
ELDFÖST FORM
frá kr. 559,-
KRAUMÍSVÉL
kr. 2.512,-
kr. 2.125,-
HÚSA
SMIÐJAN
SKÚTUVOG116 SÍMI 6877 00
(>sU4?SIA