Morgunblaðið - 28.10.1988, Page 15
15
áherzlu á kaup á skipum eða fasta
samninga við þau. Ennfremur hafa
útgerðir nokkurra skipa í sameing-
inu fest kaup á verksmiðju á Aust-
fjörðum. Skipin eru frá suðvestur
horni landsins og þar er því um að
ræða að draga úr kostnaði við sigl-
ingar til heimahafnar og tryggja
sér öryggi í löndun. Verð á loðnu
er fijálst. Um er að ræða svipað
grunnverð, sem breytist í samræmi
við íjarlægð verksmiðjanna frá mið-
unum. Ennfremur hefur verið í
gangi bónuskerfí hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins, en samkvæmt því
hækkar verðið eftir því sem meiri
hluta kvóta viðkomandi skips er
landað hjá verksmiðjum SR. Sam-
kvæmt samningum milli útgerðar-
manna og sjómanna, sér útgerðar-
maðurinn um sölu aflans, en honum
ber að selja hann þar sem hag-
kvæmast er.
Eyjar eiga tæplega 180.000
tonna kvóta
Bein tengsl skipa og verksmiðja
verða æ augljósari. Krossanes hefur
á sínum snærum þijú skip með
samtals 45.000 tonna kvóta á
síðustu vertíð. Útgerð nokkurra
skipa í Grindavík, tveggja í
Reykjavík og eins á Akranesi keypti
fyrir skömmu síðan fiskmjölsverk-
smiðjuna Hafsíld á Seyðisfirði.
Þessi skip höfðu á síðasta ári tæp-
lega 180.000 tonna kvóta, Sfldar-
vinnslan í Neskaupstað á tvö af
stærstu skipum flotans, en auk
þeirra hafa nokkur skip landað þar
nokkuð reglulega. Fiskimjölsverk-
smiðjan á Eskifírði á skip, sem
höfðu 70.000 tonna kvóta í fyrra,
og eitt enn með 24.000 tonna kvóta
hefur landað mikið þar. Eskfirðing-
ar misstu hins vegar eitt skip, Esk-
fírðing, sem fórst og verður annað
skip, að minnsta kosti fyrst í stað
ekki keypt í stað hans. Hann hafði
17.900 tonna kvóta. Vestmannaeyj-
ar ráða yfir næst mesta kvótanum,
174.700 tonnum miðað við sama
tíma í fyrra. Þó skipin séu tengd
ákveðnum verksmiðjum, landa þau
ekki öllum afla sínum þar. Fjarlægð
frá miðum og þróarrými ræður
miklu um löndunarstað og því dreif-
ist löndun skipanna nokkuð víða.
Það er þó ljóst, að tengsl skipa og
verksmiðja verða enn meiri en áður
BORAR OG
SNITT-
VERKFÆRI
í ÚRVALrl
G.J. Fossberg
vélaverslun hf.
Skúlagötu 63 - Reykjavík
Símar 18560-13027
MORGUNBLABIÐ, FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1988
með tilheyrandi tilfærslu afla milli
verksmiðjanna.
„Hlutur okkar skerðist“
Jón Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Sfldarverksmiðja
ríkisins, segist hafa af þessu nokkr-
ar áhyggjur. „Mér fínnst þetta ekki
rétt þróun," segir Jón. „Það er eðli-
iegra að útgerð loðnuskipanna og
verksmiðjurnar séu aðskildar og
þessi þróun hefur á vissan hátt.
áhrif á gang mála hjá okkur. Haldi
þessu árfram, skerðir það auðvitað
hlut okkar í aflanum. Það er stefna
stjómar SR að fara ekki í útgerð,
enda er það óheimilt samkvæmt
lögum. En við höfum til dæmis
hlaupið undir bagga með útgerðum
einstakra skipa með fyrirgreiðslu.
Hráefnisöflunin byggist líka á
framboði. Þegar framboð er lítið
og verksmiðjumar verða að fá afla
upp í gerða sölusamninga, fara
skipin, sem þeim em tengd ekkert
annað þó langt sé þaðan á miðin.
Með vaxandi veiði vænkast hagur
okkar, en þróunin er okkur engu
að síður óhagstæð," segir Jón Reyn-
ir.
„Bein teng'sl óæskileg"
Sjómenn hafa líka áhyggjur af
þessari þróun. Hólmgeir Jónsson,
hagfræðingur Sjómannasambands
íslands, segir að frjálst verð á loðnu
gangi tæpast um leið og skipin og
verksmiðjumar séu í eigu sömu
aðila. Hann hafí því af þessu
áhyggjur, en líklega verði það ekki
ljóst fyrr en að lokinni vertíð, hver
áhrif þetta hefur haft á laun sjó-
manna. „Bein tengsl þarna á mílli
em óæskileg. Með þeim er hægt
að blanda saman rekstri skipa og
verksmiðja og getur það haft áhrif
til lækkunar launa sjómanna. Við
verðum að vera vakandi fyrir þess-
ari þróun og hugsanlegum afleið-
ingum hennar," segir Hólmgeir.
„Samtök um
verðlagningTi"
„Mér fínnst auðvitað skemmti-
legra, þegar útgerðarmaður kaupir
verksmiðju, en þegar verksmiðja
kaupir skip,“ segir Kristján Ragn-
arsson, framkvæmdastjóri LIÚ.
„Það er eftirsjá af sjálfstæðum út-
gerðarmönnum, en þeim fer nú
fækkandi. Með aukinni tengingu
útgerðar og verksmiðja fer maður
að efast um gildi frjálsrar verðlagn-
ingar á loðnunni. Svo virðist sem
nú séu uppi samtök milli verksmiðj-
anna um verðlagninguna því þær
greiða allar sama verðið. Hins veg-
ar get ég ekki snúizt gegn márkað-
lögmálunum og frelsi manna til
athafna. Menn verða auðvitað að
ráða gerðum sínum og haga þeim
þannig að þeir sjái hag sínum sem
bezt borgið," segir Kristján.
Slátrun stór-
gripa haf-
in í Króks-
fjarðarnesi
Miðhúsum.
SLÁTRUN stórgripa er hafin í
KróksQarðarnesi og er slátrað
20—30 gripum á dag. Miklar end-
urbætur hafa verið gerðar á slát-
urhúsinu í sumar sem miðuðu að
því að hægt væri að slátra þar
stórgripum með góðu móti.
Bundið slitlag hefur verið sett
við sláturhúsið, hraðfrystiaðstaða
og kælir hafa verið sett upp þannig
að öll aðstaða hefur stórbatnað.
— Sveinn
f f
BILASYNING
T0Y0TA 1989
Nú kynnum viö 1989 árgeröirnar af Toyota
á 8 bílasýningum um allt land, helgarnar 29. - 30. okt. og 5. - 6. nóv.
Staðirnir eru:
• P. Samúelsson & Co. hf., Kópavogi • Bílasala Brynleifs, Keflavík
• Svanur Steinarsson, Borgarnesi • Bókabúð Brynjars, Sauðárkróki
• Vélsmiðjan Þór hf., Isafirði • Bílasalan Stórholt, Akureyri
• Sigurður Rögnvaldsson, Egilsstöðum • Fjölverk, Vestmannaeyjum.
Opiö veröur frá kl. 13.00 - 17.00 laugardag og sunnudag,
báöar helgarnar.
TOYOTA
TOYOTA
FIÖLVENTLA
VÉLAR
h