Morgunblaðið - 28.10.1988, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1988
35
Hjónaminning:
Jón Guðmunds-
son — Sigríður G.
Guðmundsdóttir
Fæddur 21. júlí 1900
Dáinn 22. september 1982
Fædd 16. mars 1900
Dáin 22. október 1988
Okkur systkinin langar til að
kveðja afa og ömmu, Jón Guð-
mundsson og Sigríði G. Guðmunds-
dóttur sem reyndust okkur svo vel
alla tíð.
Við þökkum fyrir yndislegar
æskustundir í Hafnarfirðinum og
allt sem þau gerðu fyrir okkur og
kveðjum þau með þessu erindi:
Að beði ég höfðinu halla,
hljððs biður sál mín og önd.
Nú sofna ég sátt við alla
og svíf inn á draumanna lönd.
(Fr.V.)
Ásbjörn Andrason,
Guðrún Edda Andradóttir,
Ásgeir Andrason og
Sigrún Jóna Andradóttir.
Mig langar með örfáum orðum
að kveðja foreldra mína. Faðir
minn, Jón Guðmundsson, f. 21. júlí
árið 1900 að Seljalandi í Álftafirði,
d. 26. sept. 1982. Þegar hann lést,
var ég erlendis og kom daginn áður
en hann var jarðaður og þess vegna
er þessi síðbúna kveðja frá mér
núna.
Lífsstarf föður míns var sjó-
mennska sem var mjög erfíð áður
en vökulögin komu, eins og þeir
vissu sem til þekktu.
En það var ekki til í honum að
hlífa sjálfum sér. Hann var á línu-
veiðaranum Fróða þegar árásin var
gerð á hann í mars 1941 og stóð
hann á milli tveggja rnanna sem
fórust.
Þrátt fyrir þessa lífsreynslu hélt
hann áfram á sjónum meðan heilsa
hans leyfði. Foreldrar mínir voru
búin að vera gift í 58 ár þegar
hann lést. Móðir mín, Sigríður Guð-
rún Guðmundsdóttir, f. í Amardal
16. mars árið 1900, andaðist 22.
október sl. á sjúkradeild Hrafnistu.
Hún var svo æðrulaus í sinni sjúk-
dómslegu, að þegar hún var spurð
hvemig henni liði þá var svarið yfir-
leitt að henni liði vel. Fyrir tveimur
mánuðum var hún flutt fársjúk á
Landakot en þá lá maðurinn minn
einnig þar. Þá spurði ég hana
hvemig henni liði, þá sagði hún,
„það er ekkert með mig, en hvemig
hefur hann Benedikt minn það“?
Svona var ávallt hugsun hennar
fyrst og fremst um aðra. Og bama-
bömunum sínum sýndi hún alveg
sérstaka umhugsun og hlýju. Hún
var skýr í hugsun fram á síðustu
stund og fylgdist með öllu sem var
að gerast hjá fólkinu sínu. Hún var
( 18 ár á Hrafnistu og við bömin
hennar þökkum af alhug starfs-
fólkinu á 4. hæð og starfsfólki á
sjúkradeildinni, frábæra umönnun.
Ég kveð foreldra mína með þökk
fyrir allt og fel þau í hendur okkar
himneska föður.
Ólöf Ragnheiður Jónsdóttir
Hótel Saga Slml 1 2013
Kransa-og
kistuskreytingar.
Heimsendingarþjónusta.
Sfmi 12013.
Opið laugardaga
til kl. 18.00.
Þau voru bæði fædd aldamóta-
árið. Tilheyrðu þeirri kynslóð sem
kölluð hefur verið aldamótakynslóð-
in. Þá var fátæktin landlæg, flestir
bjuggu við basl og bágindi. En þetta
var afreksfólk, sem vann mikið en
gerði litiar kröfur um þægilegt líf.
Var fómfúst og lagði sig fram að
sjá fyrir sér og sínum.
Jón Guðmundsson var fæddur á
Seljalandi í Álftafirði við Djúp. For-
eldrar hans voru Guðmundur Jóns-
son, bóndi á Seljalandi en síðar
búsettur á Flateyri, og Jóhanna
Jakobsdóttir frá Skarði á Snæfjalla-
strönd.
Sigriður G. Guðmundsdóttir var
fædd í Arnardal. Foreldrar hennar
voru Guðmundur Helgi Kristjáns-
son, sjómaður sama stað, og Guð-
mundína Magnúsdóttir frá Amar-
dal. Eru ættir þeirra mestan part
frá ísafjarðardjúpi.
Jón byrjaði ungur að vinna fyrir
sér eins og títt var um unglinga á
þeim árum. Mig minnir að hann
segðist hafa verið innan fermingar
þegar hann réðst fyrst til sjóróðra.
Var þetta vitanlega á árabát. Var
bátnum róið frá verstöð yst á nes-
inu milli Amardals og Álftaijarðar,
nokkru austan við Amarneshamar-
inn. Síðar og lengst af var hann
svo á stærri bátum og fiskiskipum.
Var hann ýmist háseti en þó oftast
vélstjóri. Einnig var hann nokkuð
í siglingum á farskipum og hafði
m.a. komið til Bandaríkjanna og
Spánar. Jón var skipveiji á línuveið-
aranum Fróða þegar árásin var
gerð á hann í mars 1941. Hann var
sjómaður á litlum þilfarsbáti, Betu
frá Súðavík, og voru þeir á sjó í
Halaveðrinu 1925. Skrifaði ég upp
frásögn Jóns af þessari sjóferð. Jón
var sagnasjór og sagði vel frá.
Voru það oftast frásagnir af minnis-
verðum viðburðum frá langri veru
á sjónum. Minni hafði hann trútt.
Jón hafði mikla ánægju af að tala
um liðna tíð, ræða um fólk, sem
hann hafði þekkt og starfað með.
Vísa Stephans G. St. getur mæta-
vel átt við hann:
Víst er gott að vera hjá
vinasveit og grönnum
og kunna réttar áttir á
eldri byggð og mönnum.
Jón var áreiðanlega duglegur
maður, óvílinn og ósérhlífínn. Hann
hafði ákveðnar skoðanir á flestum
málum þ.á m. þjóðmálum. Hann var
alltaf heill en ekki hálfur.
Sigríði konu Jóns kynntist ég
ekki að ráði fyrr en eftir að þau
hjón fluttu frá Patreksfirði til Hafn-
t
GUÐLAUG SIGMUNDSDÓTTIR
fró Gunnhlldargarðl
Dalbraut 27
lóst í Borgarspltalanum 26.okóber.
Inga M. LanghoK
Ragnhildur Pótursdóttir
Elnar Pótursson
Margrót Þorvaldsdóttir
Rós Pótursdóttir
Bryndfs Pótursdóttlr
Benedlkt E. LanghoK
Áamundur Matthfasson
Sigrfður Karlsdóttir
Þórey Sigurbjörnsdóttir
Magnús Jóhannsson
öm Eirfksson.
t
Faðir okkar, tegndafaöir og afi,
ÓLI PÉTURSSON,
Hlfðarvegl 20,
Í8aflrðl,
sem lést f Fjórðungssjúkrahúsinu, ísafirði, 21. október, veröur
jarösunginn fró Isafjarðarkapellu laugardaginn 29. otkóber kl.
14.00.
Ásgeir Ólason,
Guðmundur Ólason,
Elfn Óladóttir,
Gunnar Pótur Ólason,
Kristján Ólason,
BlrgirÓlason,
Jakob Ólason,
Torfhlldur Jóhannesdóttir,
Jena Markússon,
Kristfn Jónsdóttir,
Anna Jóna Ágústdóttir,
Eygló Eymundsdóttir
og barnabörn.
+
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
UNNUR HALLDÓRSDÓTTIR,
Gröf,
Mlklaholtshreppi,
veröur jarösungin frá Fáskrúöabakkakirkju laugardaginn 29. októ-
ber kl. 14.00. Minningarathöfn fer fram frá Neskirkju föstudaginn
28. október kl. 13.30. Ferö verður frá BSl kl. 10.00 á laugardag.
Kristfn Helgadóttlr,
Halldór Helgason,
Pótur Haukur Helgason,
Hilmar Helgason,
Ásgeir Helgason,
Martelnn S. Björnsson,
Jóhanna G. Slgurbergsdóttlr,
Guðbjörg Þorstelnsdóttir,
Erla Sverrisdóttlr,
Guðrún K. Inglmarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðafarar verður akrifstofa og afgreiðsla Áburðar- verksmiðjunnar lokuð frá kl. 12.00, föstudaginn 28. októ-
ber. Áburðarverksmiðja ríkisins.
arfjarðar 1959. Höfðu þau áður
búið víðar á Vestíjörðum.
Þau giftust 1924 og settu saman
bú á Súðavík. Eftir dvöl sína í
Hafnarfirði voru þau mörg síðustu
ár sín á Hrafnistu í Reykjavík, eða
til dánardægurs hans 1982 en henn-
ar 22. þ.m.
Þau hjón eignuðust 7 böm. Eitt
þeirra, Edda, dó á barnsaldri en
Björg og Guðmundur dóu rúmlega
tvítug að aldri. Fjögur böm eni á
lífi við fráfall móður þeirra. Ólöf
sem gift er Benedikt Kristjánssyni,
Hólmfríður, maður hennar er Þór-
mundur Hjálmtýsson, Hulda, ekkja
eftir Sigurð Árna Vigfússon, og
Andri sem kvæntur er Agústu Sig-
urðardóttur. Þetta fólk býr í Kópa-
vogi nema Hulda, sem býr í
Reykjavík. Fyrir hjónaband átti
Sigríður tvö böm: Jón Gestsson,
sem kvæntur er Guðríði Hannes-
dóttur og Sigurborgu Gfsladóttur,
sem gift er Þorvaldi Ásgeirssyni.
Það var alltaf gaman að heim-
sækja Jón og Siggu eða fá þau í
heimsókn. Þar mætti manni innileg
gestrisni, alúð og hlýja. Við hjónin
komum oft til þeirra eftir að þau
fluttu í Hafnarfjörð og eins þegar
þau voru komin á Hrafnistu. En
upphaf kunningsskapar okkar var
á Patreksfirði. Var oft tekið í spil
eða rabbað um heima og geima.
Heimili þeirra var jafnan aðlað-
andi, þrifalegt og hreint en íburðar-
laust. Þau höfðu frá ýmsu að segja
og kunnu vísur og ljóð, sérstaklega
hún. Hún kenndi mér t.d. vísumar
um týnda hringinn, löngu áður en
ég las þær í Þjóðsagnabók Sigurðar
Nordals:
Þegar ég geng út og inn
og ekkert hef að gera,
hugsa ég um hringinn minn,
hvar hann muni vera.
Ef hann finna ekki má,
áður en rennur vorið,
huldufólkið hefur þá
hann í kletta borið.
og fleira gamalt og gott kunni hún
og þau bæði.
Ríkur þáttur í skapgerð Sigríðar
var gjafmildin. Hún vildi helst alltaf
vera að gefa barnabörnum sínum
o.fl. Dóttursonum okkar gaf hún
stundum á afmælisdögum þeirra
af sínum litlu efnum. Mér gaf hún
Bamasálma sr. Valdemars Briems
af því hún vissi að hann var í dá-
læti hjá mér.
Sigga var trúuð kona. Hún kveið
ekki dauðanum. Hún var sannfærð
um líf að loknu þessu. Hún gat
tekið undir með Jens Hermanns-
syni, kennara frá Bíldudal:
Ég þótt rói út á haf
- öllum sleppi löndum,
og þótt fari allt i kaf,
er ég i drottins höndum.
Að lokum viljum við hjónin þakka
kynnin við þau Jón og Sigríði, fyrir
öll árin á Patreksfirði og hér syðra.
Megi þau hvíla í friði. Og nú við
fráfall hennar sendum við aðstand-
endum öllum innilegar samúðar-
kveðjur.
Salómon Einarsson
t
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
EIRlKA P. SIGURHANNESDÓTTIR
löjuþjélfl,
Vatnsenda, Skorradal,
veröur jarösungin fró Hvanneyrarkirkju laugardaginn 29. október
næstkomandi kl. 14.00.
Haukur Engilbertsson,
Bergur Jónsson,
Hafstelnn Jónsson,
Agnar Mér Jónsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug við andiót og
útför eiginmanns míns, tengdafööur og afa,
HALLGRfMS KONRÁÐSSONAR,
Furugerðl 1.
Inglbjörg Pélsdóttlr og böm.
Erfidrykkjur í hlýju
og vinalegu
umhverfi.
Salir fyrir 20-25
Veitingahöllinni o
Veitingahöllin
S: 685018-
Þetta er minningarkort
Slysavarnafélags islands
Skrifstofan sendir þau bæði
innanlands og utan.
Þau fást með enskum, dönskum eða
þýskum texta.
Simi SVPÍ er 27000.
Gjaldið er innheimt með giró.