Morgunblaðið - 28.10.1988, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1988
39
Rod Stewart
TWIGGY
Hver man ekki eftir Twiggy tá-
grönnu sem fræg var á sjöunda
áratugnum. Hún hefur nú nýlega
gengið í hjónaband með manni að
nafni Leigh Lawson. Twiggy hefur
leikið í kvikmyndum í mörg ár og
nú leikur hún aðalhlutverk í sænskri
spennumynd „Istanbul" sem tekin
er upp í Tyrklandi. Mótleikari henn-
ar er enginn annar en Timothy Bot-
toms. Myndin verður frumsýnd í maí
á næsta ári á kvikmyndahátíðinni í
Cannes. Frumsýning í Svíþjóð verður
næsta haust.
AUKIN BÍLAÞJÓNUSTA ESSO
. SJÁLFVIRKAR
BiLAÞVOTTASTOÐVAR
í REYKJAVlK, HAFNARFIRÐI,
KEFLAVlK, AKRANESI OG AKUREYRI
Við bjóðum nú fullkominn bílaþvott og bón í sjálfvirkum
bílaþvottastöðvum á fimm stöðum á landinu:
Skógarseli, Breiðholti
Lækjargötu, Hafnarfirði Aðalstöðinni, Keflavík
Þjóðbraut 9, Akranesi Veganesti, Akureyri
w
Olíufélagið hf
Rokksöngvarinn Rod Stewart og
sambýliskona hans Kelly Em-
berg voru nýlega stödd á Heathrow
flugvelli í London. Með í för var
Ruby, 16 mánaða dóttir þeirra. Þau
gáfu sér tíma til þess að ræða stutt-
lega við blaðamenn áður en þau
héldu frá vellinum. Sagði Rod að
kannski myndu þau gifta sig einn
góðan veðurdag en hann hefur al-
farið verið á móti hjónaböndum eft-
ir að hann skildi við Alönu. Heyrst
hefur að þegar Kelly var bams-
hafandi hafi Rod dregið sig út úr
sambandinu en eftir að bamið
fæddist féll allt í ljúfa löð. „Mér
líkar pabbahlutverkið vel“ sagði
Rod Stewart og það er ekki annað
að sjá á myndinni en að hann taki
sig vel út í þvi hlutverki.
í