Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 1
112 SIÐUR B/C/D
279. tbl. 76. árg.
SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 19888 Prentsmiðja Morgrinblaðsins
Halda enn til
í herstöðinni
Buenos Aires. Reuter.
PRESTUR sem ræddi
við fréttamenn í gær
eftir að hafa verið
meðal 400 uppreisn-
armanna í Campo de
Mayo, stærstu her-
stöð Argentínu, sagði
að þeir væru stað-
ráðnir i að berjast til
síðasta blóðdropa. Skömmu áður hafði
herinn lýst því yfir að uppreisnin, sem
hófst á föstudag undir forystu Mo-
hameds Ali Seinaldin, hefði verið bæld
niður.
Mengunarhætta
orðum aukin?
í NOREGI sem og
víðar hefur nokkuð
verið rætt um meng-
unarhættuna, sem
sumir telja geta staf-
að frá laxeldisstöðv-
unum, en norski
fiskifræðingurinn
Jan Aure telur, að
burtséð frá nokkurri hættu á stað-
bundinni mengun sé mengunarhættan
almennt mjög litil. Kom þetta fram í
norska sjávarútvegsblaðinu Fiskaren
nú fyrir skemmstu. Aure segir, að
þegar sildin hafi verið mest hafi stofh-
inn talið 10 milljónir tonna og hafi þá
að sumu leyti háft slæm áhrif á um-
hverfið. Laxeldið við Noreg er nú kom-
ið í 80.000 tonn og Aure segir, að þótt
sú tala sé tvöfölduð til að taka tillit
til mengunar frá fóðrinu sé enn langt
i land með að mengunin verði sú sama
og af síldinni.
Steikin eldri en
áður var talið
London. Reuter.
LJÓST þykir, að maðurinn hafi farið
að nota eldinn miklu fyrr en áður var
talið eða fyrir hálfri annarri milljón
ára. Breska visindatímaritið Nature
skýrði frá þessu í gær og segir, að
þetta hafi komið fram við fornleifa-
uppgröft í Suður-Afríku. Fundust þar
í helli brunnar beinaleifar ýmissa dýra
og má af aldri þeirra ráða, að menn
hafi verið komnir upp á lag með að
steikja sér kjöt til matar hálfri milljón
ára fyrr en áður var haldið.
Morgunblaðið/Þorkell
ISLIPPNUM
ísraelar ætla að framselja
sovésku flugræningjana
Jerúsalem. Reuter. "
ÍSRAELAR ætla að afhenda Sovétmönnum
mennina fimm, sem neyddu i fyrradag áhöfn
sovéskrar flutningaflugvélar til að fara með
þá til Tel Aviv. Var þetta haft eftir tals-
manni ísraelska utanrikisráðuneytisins, Alon
Liel, sem sagði, að sovésk stjórnvöld hafa
farið fram á, að mennirnir yrðu framseldir
og hefði verið ákveðið að verða við þvi þótt
ríkin hefðu ekki með sér gagnkvæman fram-
salssamning.
Flugræningjamir, fjórir karlmenn og ein kona,
vora vopnaðir skammbyssum og riffli en
afhentu vopnin og gáfust upp strax við komuna
til ísraels. Vora þeir auk þess með mikið af pen-
ingum í fóram sínum.
Sagan hófst með því, að fólkið náði á sitt
vald skólabíl með 30 börnum, sem það hótaði
öllu illu fengi það það ekki flugvél til að flytja
Flugræningjarnir fimm á Ben-
Gurion-flugvelli eftir að þeir
gáfust upp. Fyrir framan þá eru
tveir sekkir fiillir af rúblum.
sig úr landi. Varð ísrael fyrir valinu vegna þess,
að fólkið hélt, að andkommúnísk ríkisstjórn hefði
komist þar til valda að loknum kosningunum 1.
nóvember sl.
Israelska lögreglan yfirheyrði flugræningjana
í alla fyrrinótt en talsmaður hennar sagði, að
þeir hefðu gefið heldur raglingsleg svör við flest-
um spurningum. Þó kom það fram hjá þeim, að
þeir hefðu krafist flugvélarinnar til að komast
úr landi með féð, tvær milljónir rúblna, sem ekki
er vitað hvort þeir stálú eða fengu í lausnargjald
fyrir börnin.
Flugræningjamir virðast hafa misskilið
ástandið í ísraelskum stjórnmálum. Litlu hægri-
flokkamir styrktust að vísu í kosningunum en
ný stjórn hefur enn ekki verið mynduð. Yitzhak
Shamir, leiðtogi Likudflokksins og núverandi
forsætisráðherra, hefur auk þess mikinn áhuga
á bættum samskiptum við Sovétmenn.
EIN f SORG OG GLEÐI
MULRONEY