Morgunblaðið - 04.12.1988, Page 2
2 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
Aðstaða fyrir skautafólk verður bætt á Rauðavatni.
Aðstaða bætt fyrir skauta-
fólk á og við Rauðavatn
Á næstu dögum bjrrja starfs-
menn íþróttavalla Reykjavíkur
að bæta aðstöðu fyrir skauta-
fólk á og við Rauðavatn. Lýsing
verður bætt til muna og bíla-
stæði lagfierð.
Að sögn Jóhannesar Óla Garð-
arssonar vallarstjóra þarf
einnig að dýpka vfkina þar sem
fólk hefur einkum farið á skauta.
Við þá vík á einnig að bæta lýs-
ingu stórlega. Til stóð að dýpka
víkina fyrr í haust á meðan yfir-
borð vatnsins var lægra en það
er nú. Umhverfismálaráð hefur
nú gefið grænt ljós á breytingarn-
ar og því ætti að vera hægt að
hefjast handa á næstunni.
Til þess að freista þess að fá
slétt og gott svell í víkinni verður
útbúin ejrja úti fyrir henni þannig
að víkin lokist betur og lygnara
verði í henni. Starfsmenn íþrótta-
valla vonast til að með þessu verði
einnig auðveldara að komast að
til að þrífa svellið.
Endurgreiðsla á uppsöfiiuðum söluskatti:
Fiskeldisstöðvarnar fá tvö til
þrjú prósent af rekstrarkostnaði
ÁK VEÐNAR hafa veríð reglur um endurgreiðslu á uppsöfnuðum
söluskatti fískeldisstöðva og loðdýraræktenda frá árunum 1986 og
1987. Sveinbjörn Eyjólfsson deildarstjóri í landbúnaðarráðuneytinu
segir að greiðslur söluskattsins farí eftir fjárveitingum, en reynt
verði að greiða fyrsta hlutann sem fyrst.
Ársþing KSÍ:
8 milljóna
króna tap
Selfossi.
„VIÐ þurfúm að draga saman
seglin, það er um líf eða dauða
að tefla,“ sagði Ellert B.
Schram, formaður Knatt-
spyrnusambands íslands, á árs-
þingi sambandsins, sem haldið
er á Selfossi nú um helgina. Tap
á rekstrí KSÍ er rúmlega átta
milljónir króna á árínu. Fram-
kvæmdastjóri sambandsins, Sig-
urður Hannesson, sagði starfí
sínu lausu á sfjórnarfúndi á
fostudag.
Erfið fjárhagsstaða var helsta
umræðuefnið á þinginu í gær,
laugardag. Helstu skýringuna
sagði Ellert B. Schram vera að
þrír leikir hefðu verið leiknir er-
lendis í heimsmeistacakeppninni,
en aðeins einn heima. Þessi út-
koma sýndi hve dýrt það er, að
taka þátt í slíkum keppnum. Hann
sagði að staðan væri vissulega
slæm, en nú væri aðeins leikhlé,
seinni hálfleikur yrði leikinn næsta
sumar, en þá verða fleiri heima-
leikir. Tekjur KSÍ voru um 40
milljónir króna á árinu.
Ellert sagði að uppsögn fram-
kvæmdastjórans væri í fullu sam-
ráði á milli hans og stjómar KSÍ
og væri liður i að draga saman
reksturinn.
Stjóm KSÍ verður kjörin í dag
og þá lýkur þinginu.
— Sig-Jóns.
Reykjanesbraut:
Tveir út af
vegna hálku
TVEIR bílar fóru út af Reykja-
nesbraut á föstudagskvöld og
aðfaranótt laugardags og eru
óhöppin rakin til mikillar hálku.
Ekki urðu alvarleg meiðsli á
fólki.
Um kl. 21 á föstudagskvöld
valt bíll á Reykjanesbraut,
skammt sunnan Hafnarfjarðar.
Ökumaður og farþegar voru flutt-
ir á slysadeild, en meiðsli þeirra
reyndust ekki alvarleg. Aðfaranótt
iaugardags missti annar ökumað-
ur stjóm á bíl sínum á svipuðum
slóðum og hafnaði bíllinn utan
vegar. Ökumaðurinn slapp
ómeiddur.
Ekki næst í
Asmund
EKKI hefúr tekist að ná tali af
Ásmundi Stefánssyni forseta
Alþýðusambandsins til þess að
fá álit hans á nýjustu upplýsing-
um um stöðu sjávarútvegfyrir-
tækja og viðbrögðum ráðherra
við þeim.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra hefur sagt að
launakostnaður þjóðarbúsins væri
of mikill og fram kom að laun
vega mun þyngra í efnahagskerf-
inu hér heldur en í nágrannalönd-
unum. Steingrímur sagðist telja
að yfirborganir væru að jafiiaði
um 20% og að þeim yrði að linna.
Morgunblaðið gerði ítrekaðar
tilraunir til að ná sambandi við
forseta ASÍ í gær og fyrradag
beint og með skilaboðum en án
árangurs.
Söluskattur til fiskeldis verður
endurgreiddur sem hlutfall af
rekstrarkostnaði fyrirtækjanna.
Uppsafnaður söluskattur 1986 er
15,9 milljónir og 1987 er hann
áætlaður 35-40 milljónir. Mat-
fiskeldið fær endurgreidd 2,9% af
rekstrarkostnaði bæði árin, seiða-
eldið 2,4-2,5%, hrognaframleiðslan
2,4% árið 1986 og 2,1% 1987 og
hafbeitin 2,1-2,2%.
Loðdýraræktin fær í sinn hlut
11,8 milljónir vegna 1986 og 16,5
milljónir vegna 1987. Ekki liggur
fyrir hvað söluskattur beggja grein-
anna er mikill á árinu 1988. Þessum
upphæðum er deilt niður á hvolpa-
Bankaútkall
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík fór
í gærmorgun mikinn þegar boð-
unarkerfí í Vegamótaútibúi
Landsbankans að Laugavegi 7
fór í gang.
egar á staðinn var komið voru
engir sviðnir seðlar, heldur
aðeins hreingemingamenn, sem
höfðu í ógáti ert skynjara og sett
kerfíð af stað.
Hólar:
Dómkirkjan í
notkun á ný
Hóladómkirkja verður tekin f
notkun á ný í dag eftir endurbygg-
ingarstarf frá síðustu áramótum.
Þá var kirkjan gerð nær fokheld
en síðan hefúr endurreisnarstarf-
ið fe-ið fram.
Hátíðahöld verða að Hólum í dag
og hefjast þau með hátíð-
armessu kl. 13.30. Þar mun herra
Pétur Sigurgeirsson, biskup, prédika
og lýsa blessun. Pyrir altari þjóna
séra Sigurður Guðmundsson vígslu-
biskup, séra Hjálmar Jónsson pró-
fastur, séra Sigurpáll Óskarsson og
séra Dalla Þórðardóttir.
Nú er lokið endurreisn Hóladóm-
kirkju innan dyra fyrir utan viðgerð
á Hólabríkinni, en í tilefni af 70 ára
afmæli fullveldis íslands hefur ríkis-
stjóm íslands ákveðið að kosta það
sem á vantar í viðgerðinni á
Hólabríkinni.
§ölda þessi ár. Refabændur fá 102
krónur á hvolp vegna 1986 og 120
kr. vegna 1987. Minkabændur fá
60 kr. á hvolp vegna 1986 og 70
krónur vegna 1987. Bóndi sem fær
600 refahvolpá á ári fær rúmar 60
þúsund kr. endurgreiddar fyrir
fyrra árið og rúmar 70 þúsund kr.
seinna árið.
Ósk Flying Tigers um flugleyfi:
Myndu kaupa eldsneyti fyr-
ir 300 miUjónir króna árlega
MEÐ auknum samgöngum verður heimurínn sífellt „minm“ og
möguleikar á verzlun og viðskiptum við fjarlæg lönd aukast að
sama skapi. Skrífleg umsókn frá flutningarísanum Flying Tigers
um lendingaleyfi og leyfi til fragtflutninga milli Asíu og Evrópu
um Island liggur nú þjá samgönguráðherra og verður lögð fyrir
flugráð i þessari viku. Fullvlst er talið að leyfi til millilendinga
fáist svo og leyfi til fragtflutninga milli íslands og Asíu. Vafi
leikur hins vegar á leiðinni milli Islands og annarra Evrópu-
landa, þar sem Flugleiðir eiga þar hagsmuna að gæta. Mál þetta
snýst um hundruð mifljóna í veltu og tugi í tekjur á hveiju ári.
Til dæmis má áætla beinar tekjur ríkisins vegna lendingagjalda
og fleirí þátta um 60 mifljónir á ári og sala eldsneytis gæti num-
ið um 300 miiyónum króna. Það er því mikið í húfí, en jafnframt
mikilvægt að Flugleiðir og Arnarflug berí ekki skarðan hlut frá
borði.
Afstaða Flugleiða er ekki fylli-
lega ljós í þessu máli, en
stjórnendur þeirra segjast tilbúnir
til viðræðna við Flying Tigers.
Burt Hubbs, yfirmaður Evrópu-
deildar Flying Tigers, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að hann
óskaði samvinnu við Flugleiðir og
hann teldi möguleika þeirra á
auknum fragtflutningum vaxa
verulega, fengi félag hans leyfí
til flutninga á þessum leiðum.
Verulegur flutningur á ýmiss kon-
ar varnmgi er |
milli Evrópu og
Asíu og pólleiðin
erhagkvæmfyr-
ir þá. Komi Fly-
ing Tigers til
Keflavíkur með mikið af þessum
vamingi, á enn eftir að dreifa
honum til Norðurlandanna. Eftir
þeirri flugleið sækist Flying Ti-
gers ekki, heldur London og
Frankfurt, svo flutningar til Norð-
urlandanna myndu að minnsta
BAKSVIÐ
eftir Hjört Gíslason
kosti falla Flugleiðum í skaut.
Austurleiðin er hins vegar mun
ljósari. Flugleiðir eru ekki á þeirri
leið, enda má segja að hún hafi
nánast verið okkur lokuð. í Japan
er stærsti fiskmarkaður heims og
hvergi er greitt jafnhátt verð fyr-
ir fiskinn og þar. Með Asíufluginu
opnast þessi markaður fyrir ís-
lendinga og ætti það að geta
breytt miklu. Stopult flug og tak-
mörkuð flutningageta hefur til
þessa komið í veg fyrir reglulegt
flug með ferskan fisk í verulegum
mæli héðan til annarra landa.
Japanskir kjöt-
■■■■■■^H kaupmenn hafa
lýst áhuga á
kaupum á um
. þremur tonnum
af svokölluðum
pístólum, sem
eru afturpartar af feitum hrossa-
lqötsskrokkum, á viku hverri á
haustmánuðum. Þá eru taldir ein-
hveijir möguleikar á sölu íslenzks
lambakjöts tíl Japans, einkum
vegna þess að það er laust við
hormóna. Ný-Sjálendingar einoka
þennan lambakjötsmarkað og við
þá er erfitt að keppa í verði, en
takist að sýna fram á að gæði
íslenzka kjötsins séu meiri, ætti
að vera möguleiki á einhverri
lambakjötssölu þangað austur. Þá
má ekki gleyma því að flutnings-
kostnaður á vamingi ættuðum að
austan ætti að lækka við það að
með hann verður flogið beint.
Flying Tigers munu þurfa
mikla þjónustu hér, koma upp
skrifstofu, kæligeymslu og ann-
arri aðstöðu á Keflavíkurflugvelli.
Þar munu þeir einnig kaupa ýmsa
þjónustu af Flugleiðum, kaupa
eldsneyti fyrir hundruð milljóna
árlega og veita nokkrum fjölda
fólks vinnu. Mjög mikilvægt virð-
ist vera að stjómendur Flugleiða
og Flying Tigers ræði saman og
komist að samkomulagi, sem auki
möguleika Flugleiða og komi
þannig báðum aðilum að gagni.
Ljóst er að miklir hagsmunir eru
í veði fyrir alla aðila þessa máls
og bylting í samgöngum getur
verið framundan.