Morgunblaðið - 04.12.1988, Page 6
6 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
Ræðst í verkefiii
sem aðrir leggja ekki í
SVERRIR Kristinsson á og rekur
eina stærstu fasteignasölu á
landinu og stýrir framkvæmdum
Hins íslenska bókmenntafélags,
sem er eitt elsta félag á landinu.
Þá hefur hann um árabil rekið
umfangsmikla bókaútgáfu á
vegum eigin forlags, Lögbergs.
Hann hefur ráðist í Qölmörg
stórvirki, meðal annars gefið út
fomhandrit ljósprentuð,
Guðbrandsbiblíu, Skálholtsbók,
sögu fomleifarannsókna í
Skálhoiti, röð listaverkabóka
með verkum íslenskra
listamanna og nú síðast þýðingu
Odds Gottskálkssonar á Nýja
testamentinu og Konungsbók
Eddukvæða.
Hann er áhugamaður um varð-
veislu fomminja og stjómar-
maður í félaginu Minjar og saga.
Auk þess safnar hann listaverkum
af miklum móð, les mikið og á
gott bókasafn. Manninn þekkja
hins vegar ekki margir. Lítið hefur
borið á honum í fjölmiðlum og af-
rekalista hans er ekki að finna i
Æviskrám samtíðarmanna.
Sverrir er haldinn geysilegum
áhuga á bókmenntum og listum.
Þau stórvirki í
bókaútgáfu, sem
hann hefur ráðist
í, em fremur gerð
af eldmóði en í
gróðaskyni. Út-
gáfa af þessu tagi er ákaflega sér-
stök og mjög dýr,“ segir Þórólfur
Halldórsson, sem er meðeigandi
Sverris í fasteignasölunni Eigna-
miðluninni. „Það er óhætt að full-
yrða að hann hafí unnið verk sín
af lítillæti og hann er ekkert fyrir
það að berast á.“
Aðrir, sem þekkja Sverri, taka í
sama streng og segja að hann mikl-
ist ekki af verkum sínum. Til dæm-
is hafí menn í mörg ár verið búnir
að tala um nauðsyn þess að gefa
fomhandrit út ljósprentuð á íslandi
og mikið verið velt vöngum og
málin. Það er mjög
skemmtilegt að vinna fyrir
hann vegna þess hvað hann
leggur mikinn metnað í
verkin og kastar ekki til
höndum. Þótt hann sé með
sérfræðinga með sér er
hann sjálfur á kafí í því að
tryggja að prentgæði,
pappír og fleira slíkt sé í
fullkomnu lagi og eftir hans
höfði."
Sverrir hefur stundað
fasteignasölu í yfir 20 ár.
„Þar koma fram sömu per-
sónueinkennin hvað varðar
nákvæmni og festu,“ segir
Þórólfur. „Hann vill að allt
sé í góðu lagi og eftir settum
reglum og tilskildum form-
úlum.“
Þorgeir segir að Sverrir
hafi ekki stóran hóp starfs-
fólks í kring um sig hjá
Lögbergi, heldur vinni hann
ótrúlega mikið í fyrirtækinu
sjálfur. „Hann gefur einkum
út stærri verk og vandaðri
og leggur því ekki megin-
áherslu á jólamarkaðinn,
heldur verk sem eru sígilt
innlegg i menninguna og
seljast á löngum tíma,“ segir Þó-
rólfur.
Sverrir hefur um næstum
tveggja áratuga bil verið bókavörð-
ur Hins íslenska bókmenntafélags,
en sú staða jafngildir starfí fram-
kvæmdastjóra. Sigurður Líndal,
forseti Bókmenntafélagsins, segir
að störf hans þar hafí einkennst
af frábærri umhyggju og óeigin-
gimi fyrir félagið. Sverrir var feng-
inn til starfans vegna áhuga síns
á bókum og útgáfu. „Sá áhugi
kemur alveg frá hjartarótum," seg-
ir Sigurður.
Sverrir er feikna athafnasamur
maður. Reyndar hætti hann lög-
fræðinámi áður en prófi var lokið
vegna þess hvað hann var þá orð-
inn umsvifamikill.
Sverrir Kristinsson, fasteignasali og
bókaútgefandi.
SVIPMYND
efíir Ólaf Stephensen
skrafað án þess
að úr yrði, en
Sverrir undið sér
í það orðalaust og
tekist vel. „Hann
ræðst í verkefni,
sem aðrir útgefendur myndu aldrei
leggja í. Það eru þá rit, sem honum
fínnst merkileg og eiga erindi á
markaðinn. Að þessu leyti er hann
sérstakur í bókaútgáfunni, segir
Þorgeir Baldursson, forstjóri prent-
smiðjunnar Odda, þar sem bækur
Lögbergs eru prentaðar.
„Sverrir er með áreiðanlegri
mönnum sem ég hef átt viðskipti
við,“ sagði Þorgeir Baldursson.
„Hann vill hafa allt eins vel úr
garði gert og kostur er, en engu
að síður passar hann vel upp á fjár-
Verð á loðnulýsi
fer lækkandi ytra
Fituinnihald loðnunnar óvenju lítið
„ VERÐ á Ioðnulýsi fer lækkandi og nú feest svipað verð fyrir það í
dollurum og á sama tíma í fyrra, 325 dollarar eða um 14.700 krónur
fyrir tonnið. Verð á loðnumjöli hefur haldist nokkuð stöðugt að undanf-
örnu, 9,50 dollarar fyrir prótíneininguna eða um 30.200 krónur fyrir
tonnið en það má búast við að það falli einnig á næstunni því Suður-
Ameríkumenn hafa selt mikið magn af fiskimjöli að undanförnu fyrir
lágt verð. Hins vegar hefur lítið verið selt af loðnuafurðum að undanf-
örnu,“ sagði Jón Olafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra fisk-
mjölsframleiðenda, í samtali við Morgunblaðið.
Menn búast við að lýsisverðið
hækki aftur eftir áramótin og
halda því að sér höndum með sölu á
lýsi núna,“ sagði Þórhallur Jónasson
rekstrarstjóri síldarverksmiðju ríkis-
ins á Siglufirði. „Fituinnihald loðn-
unnar er óvenju lélegt núna miðað
við árstíma en það er venjulega mest
í nóvember. Fituinnihaldið er 15 til
16% en var 16 til 18% á sama tíma
í fyrra.
Skýringin liggur ef til vill í því að
loðnan hafi ekki nógu mikið æti og
það hefur verið óvenju mikið smátt
í því sem hefur borist á land að und-
anfömu. Nú fást 25.000 til 28.000
króna skilaverð fyrir tonnið af loðnu-
mjöli og um 13.000 króna skilaverð
fyrir tonnið af loðnulýsi. Hráefnis-
verðið er trúlega um 3.700 krónur
að meðaltali á Norður- og Austurl-
andi og hækkun á því hefur skilað
sér svo að segja eingöngu til útgerð-
arinnar," sagði Þórhallur Jónasson.
„Meðalhráefnisverð á suðvestur-
hominu er um 4.000 krónur. Það
kom upp spenna að standa við fyrir-
framsamninga og hráefnisverðið hef-
ur rokið upp úr öllu valdi. Það er
komið upp fyrir það að hægt sé að
reka verksmiðjurnar á núllinu," sagði
Jón Ólafsson.
í nóvember í fyrra fengust 7,50
til 8 dollarar fyrir prótíneininguna
af loðnumjöli og um 330 dollarar
fyrir tonnið af loðnulýsi. í júnílok í
sumar fengust allt að 9,90 dollarar
fyrir prótíneininguna af loðnumjöli
og 475 dollarar fyrir tonnið af loðnu-
lýsi. Þeir sem gerðu fyrirframsamn-
inga um kaup á lýsi fyrir há verð í
sumar hafa hins vegar komið sér
undan þessum samningum þegar
menn hafa ekki haft lýsi upp í samn-
ingana vegna lélegrar loðnuveiði,"
sagði Jón Olafsson.
Habitat
flytur í
Miklagarð
ÁKVEÐIÐ hefiir verið að KRON
taki við rekstri verslunarinnar
Habitat af Kristjáni Siggeirssyni
hf. og verður verslunin opnuð í
mun stærra húsnæði í marsmán-
uði næstkomandi í Miklagarði við
Sund.
Samkvæmt upplýsingum þeirra
Hjalta Geirs Kristjánssonar,
framkvæmdatjóra Kristjáns Sig-
geirssonar hf. og Þrastar Ólafsson-
ar, stjómarformanns KRON, varð
samkomulag milli fyrirtækjanna um
að KRON yfírtæki rekstur Habitat á
íslandi. Fram að þeim tíma verður
verslunin í fullum rekstri Kristjáns
Siggeirssonar hf. að Laugavegi 13,
á sama stað og hingað til.
Dauðastríð og
íramhaldslíf
FLEST hefur fallið í skuggann af hrikalegri afkomu fiskvinnslu og
fiystingar á liðinni viku, en ýmislegt annað þvælist þó fyrir
stjórnarherrunum. Þar má nefiia ágreining um ýmis
tekjuöflunarfriimvörp, ákvörðun um framhaldslíf Arnarflugs, og hvort
afskrifa beri a.m.k. 110 milljónir króna. Loks stökkva sljórnarherramir
út og suður, norður og niður, þegar rætt er um byggingu varaflugvallar.
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, segir einfaldlega að það
verði enginn varaflugvöllur byggður f tíð þessarar ríkisstjórnar, „Það
er alveg ljóst að það verður ekkert farið f svona ágreiningsmál í
þessari ríkisstjórn. Því verður enginn varaflugvöllur byggður. Ég trúi
þvf ekki að nokkur maður vilji setja fiármuni f slíka framkvæmd nú,
eins og efiiahagsástand þjóðarinnar er,“ segir forsætisráðherra.
Varaflugvallarmálið er nú í hönd-
um Jóns Baldvins Hannibals-
sonar, utanríkisráðherra, en hann er
talinn ætla að fara sér hægt, og
undirbúa málið vel á bak við tjöldin,
þannig að bygging varaflugvallar
fáist samþykkt. Einkum mun hann
hafa í hyggju að ræða við Steingrím
nokkum Sigfússon, samgönguráð-
herra, og gefa honum kost á að láta
af andstöðu sinni, sem er mjög hörð.
Andstaða samgönguráðherra við
byggingu slíks flugvallar, í eigin
kjördæmi, Norðurlandskjördæmi
eystra, mun leggjast afskaplega illa
í marga íbúa þess. Þegar að staðarv-
ali kemur er líklegast að Aðaldalur
verði ofan á. Það þarf því ekki að
■■ DAGBÓKmm
STfÓRNMÁL
eftir Agnesi Bragadóttur
verða ofverk utanríkisráðherra að
snúa Þingeyingnum. Kratar og sjálf-
stæðismenn eru sama sinnis í vara-
flugvallarmálinu, svo og borgara-
flokksmenn, þannig að málið sem
slíkt hefur tryggan þingmeirihluta.
En alþýðubandalagsmenn eru harðir
á móti slíkri byggingu og framsókn-
armenn munu margir hvetjir fylgja
þeim að málum, en Framsóknar-
flokkurinn er klofínn í afstöðu sinni.
hvort þurfí ríkið að afskrifa skuldir
Amarflugs við ríkissjóð, vegna ríkis-
ábyrgða, breyta þeim í víkjandi lán
(sem er lán þar sem aðrir kröfuhafar
hafa forgang) eða að breyta skuldun-
um í hlutafé ríkisins. Hér er um
nálægt 110 milljónir króna að ræða.
Stjómarandstaðan leggur á það
mikla áherslu að bráðabirgðalög
ríkisstjómarinnar verði afgreidd, áð-
ur en fjárlögin verða endanlega af-
Sá klofningur er talinn meginástæða
þess að Steingrímur Hermannsson
fór með veggjum í þessu máli og
beitti sér ekki í utanríkisráðherratíð
sinni, þar sem klofningurinn innan
flokksins hefði þar með opinberast.
Forsvarsmenn Amarflugs gengu
á fund forsætisráðherra á föstudags-
morgun. Niðurstaða þess fundar var
sú að í næstu viku verður haldinn
fundur fulltrúa Arnarflugs, Flugleiða
og stjómvalda, þar sem möguleiki á
einhvers konar samstarfi félaganna
verður ræddur. Forsætisráðherra
sagði að afloknum fundinum á föstu-
dagsmorgun að hann vildi fyrst sjá
hver niðurstaða yrði af þeim viðræð-
um, áður en hann gerði upp hug sinn
til þess hvort rétt væri að ríkið gerð-
ist hluthafí í Amarflugi. „Ég vil hafa
tvö flugfélög í landinu, en ég tel að
mikið og gott samstarf á milli þeirra
sé mjög æskilegt," segir Steingrím-
ur. Hann segir jafnframt að annað
greidd, en eins og vitað er, hefur
ríkisstjómin ekki meirihlutá' í neðri
deild Alþingis. Stjómarliðar reyna á
hinn bóginn að komast hjá því í
lengstu lög að láta greiða atkvæði
um bráðabirgðalögin í neðri deild.
Leita þeir ljósum logum að „hulduat-
kvæðinu" en árangurslaust hingað
til. Kannski. að Parísarleikur Alberts
Guðmundssonar verði til þess að
bjarga þeim fyrir hom, um stundar-
sakir?